Fréttablaðið - 12.01.2013, Síða 42

Fréttablaðið - 12.01.2013, Síða 42
FÓLK|HELGIN NÆS NÁTTUGLA Ingi er fæddur og upp- alinn í Keflavík. Hann er giftur tveggja barna faðir en segir næturvaktina ekki bitna á fjölskyldu- lífinu enda dekki þeir Guðni Már Henningsson stundum næturvaktir föstudags og laugardags hvor fyrir annan. „Ég er náttugla að eðlisfari og eftir þáttinn líður mér oft eins og ég sé að koma úr gleðskap og þarf að trappa mig niður. Ég sofna því oftast ekki fyrr en undir hálffimm.“ MYND/GVA Næsheit og nærgætni eru eigin-leikar sem maður þarf að vera gæddur til að standa nætur- vaktina. Maður þarf að taka öllum eins og þeir eru, muna að hver og ein manneskja er mikilvæg og hefur frá ýmsu að segja,“ segir Ingi Þór Ingi- bergsson, tækni- og hljóðmaður hjá Ríkisútvarpinu, sem var óvænt ýtt út í starf útvarpsmanns þegar hann tók við stjórnartaumum á næturvakt Rásar 2 á laugardagskvöldum fyrir tveimur árum. „Nafn mitt bar á góma þegar Óli Palli og Ágúst Bogason leituðu að eftir- manni Snorra Sturlusonar. Ég var viss um að þeir væru að gera at í mér en lifi samkvæmt lífsspekinni að grípa lífsins tækifæri og sló til,“ segir Ingi og sér sannarlega ekki eftir því. „Mér þykir einstaklega gaman í útvarpinu, starfið er þakklátt og ég hef gaman af því að tala við fólk,“ segir Ingi, sem telur næturvaktina nauðsynlega þjóðarheilsunni. „Laugardagskvöld eru sparikvöld, flestir í fríi og vaka fram eftir. Þá er notalegt fyrir hlustendur að finna fyrir félagsskap útvarpsmannsins og að ein- hver vaki með þeim. Margir eru einir og ekki síður vinalegt að heyra í fleira fólki sem einnig vakir á sama tíma.“ Ingi hefur næturvaktina að loknum tíufréttum og hálfellefu eru opnaðar símalínur þar sem hlustendur geta hringt inn til að spjalla og biðja um óskalög. „Á þessum tíma dags og vikunnar eru hlustendur lítið fyrir að tuða og fjasa yfir þjóðmálunum. Margt liggur á hjarta og umræðuefnið er oft fólkið sjálft, lífið og tilveran. Andrúmsloftið er langoftast létt þótt vitaskuld komi fyrir að hlust- andi sé niðurlútur, í ástarsorg eða ein- mana. Hjalið getur því orðið hjartnæmt á köflum,“ upplýsir Ingi, sem yfirleitt fær marga fasta gesti á símalínurnar. „Ragna Sólveig á Þingeyri, Birgir í Þorlákshöfn og Sigtryggur leigubílstjóri eru dæmi um dygga hlustendur sem hringja reglulega. Ég lít á nætur vaktina sem þátt okkar allra; þátt sem við búum til saman. Við höfum enda flest eitthvað til málanna að leggja og einnig er gott fyrir fólk að geta létt á sér þegar komið er fram á nótt og ekki er almenn kurteisi að hringja í hvern sem er.“ Ingi segir tengsl óhjákvæmilega skapast á milli útvarpsmanns og einarðra hlustenda. „Ég lít á suma af föstu hlustendum mínum sem vini þótt ég hafi ekki hitt þá í eigin persónu. Við frúin hittum reyndar Sigtrygg leigubílstjóra óvænt þegar við tókum bíl frá Airwaves í haust og það urðu fagnaðarfundir. Mér þykir því vænt um hlustendurna og þykir vinalegt að heyra raddir þeirra aftur og aftur.“ Hlustendur næturvaktarinnar búa víða um heim, eins og Bandaríkjamaður sem hlustar til að læra íslensku og er farinn að biðja um óskalög með SS Sól. „Þá fæ ég reglulega bréf á dönsku frá eiginmanni íslenskrar konu í Danmörku og les þau upp á dönsku í þættinum. Þar er enda öll fjölskyldan farin að hlusta og kasta kveðjum á víxl,“ segir Ingi um einstaka stemningu þáttarins, sem orðinn er hluti af laugardagskvöldi hjá svo mörgum. „Það kom mér á óvart hversu fáir hringja inn góðglaðir. Þeir virðast meira í rólegheitum heima og dettur kannski í hug að biðja um óskalag. Ég þykist kunna að greina á milli hvort fólk sé drukkið eða málhalt vegna veikinda en auðvitað er engum útskúfað svo lengi sem hann er kurteis.“ ■ thordis@365.is HJARTNÆMT HJAL Á NÆTURVAKTINNI Keflvíkingurinn Ingi Þór Ingibergsson vakir með þjóðinni fram á nótt á laugardagskvöldum. Hann segir hlustendur orðna vini sína. UPPSKRIFTIN MIÐAST VIÐ FJÓRA 4 epli 1 límóna 1 dós hrein jógúrt 200 g gráðaostur 2 msk. fljótandi hunang 2 mangó 2 msk. ólífuolía 1 tsk. balsam-edik 1 poki blandað salat 2 msk. saxaðar valhnetur eða pekanhnetur Afhýðið eplin og fræhreinsið, skerið í litla bita, gróf- saxið hneturnar. Setjið eplabitana í skál og kreistið límónusafa yfir. Blandið helmingnum af ostinum út í jógúrtina og bragðbætið með hunangi. Bætið nokkrum vatnsdropum út í og blandið allt vel. Skerið mangó í tvennt og fjarlægið steininn. Skrælið ávöxtinn og skerið kjötið í bita. Blandið eplabitunum saman við. Setjið salat á fjóra diska og dreifið epla- og mangó- bitum yfir. Því næst er jógúrtblandan sett yfir og loks afgangurinn af ostinum. Blandið saman ólífuolíu og balsam- ediki og dreifið einnig yfir sal- atið. Að lokum er valhnetukjörnum stráð yfir. SALAT MEÐ MANGÓ OG GRÁÐAOSTI Ljúffengt, hollt og létt salat sem passar bæði sem aðalréttur og meðlæti með kjöti eða fiski. Þetta er sérstaklega girnilegt salat fyrir aðdáendur gráðaosts. Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is Öll kínvesk leikfimi • Heilsu Qi Gong 5000 ára tækni• Heilsubætandi Tai chi • Kung Fu í samstafi við Kínveskan íþrótta háskóla Einkatímarog hópatímar Fyrir alla aldurshópa Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum Rauðakrosshúsið Hamraborg 11 Sími: 554 6626 kopavogur@redcross.is raudikrossinn.is/kopavogur ÓSKUM EFTIR SJÁLFBOÐALIÐUM Í Rauði krossinn óskar eftir sjálfboðaliðum til starfa í fatabúðum Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu. Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að hafa samband við Rauða krossinn í Kópavogi í síma 5546626 eða með tölvupósti á sandra@redcross.is. FATABÚÐIR RAUÐA KROSSINS Rauða kross búðirnar á höfuðborgarsvæðinu eru fjórar: Laugavegi 12 Laugavegi 116 Mjódd Strandgötu 24, Hafnarfirði FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.