Fréttablaðið - 12.01.2013, Side 66

Fréttablaðið - 12.01.2013, Side 66
sími: 511 1144 | ATVINNA | ENDURBÆTUR Á RAFLÖGNUM OG LAGNA- OG LOFRÆSIKERFUM Í BYGGINGU NR. 130 KEFLAVÍKURFLUGVELLI FORVAL NR. 6061030-F Framkvæmdasýsla ríkisins, f.h. Landhelgisgæslu Íslands, efnir til forvals vegna fyrirhugaðs útboðs um endurbætur á raflögnum og lagna- og loftræsikerfum í byggingu nr. 130 innan öryggissvæðis Keflavíkurflugvallar. Hér er um að ræða forval þar sem þátttakendur verða valdir með tilliti til hæfni og reynslu (hæfi) en einnig með tilliti til þess búnaðar sem þeir hyggjast bjóða. Gerðar eru kröfur um hæfi þátt- takenda í forvali sem taldar eru nauðsynlegar til þess að bjóðendur í lokuðu útboði geti unnið verkefnið á fullnæg- jandi hátt. Bygging nr. 130 er stjórnstöð samþætts loftvarnakerfis NATO hér á landi og er um 2.800 m2 á þremur hæðum. Í meginatriðum fellst verkið í að laga rafkerfin að gildandi reglugerð um raforkuvirki og ÍST: 200:2006 – Raflagnir bygginga. Gerðar verða einnig umtalsverðar breytingar á kæli- og loftræsikerfum byggingarinnar. Dælubúnaður og stjórnlokar í neysluvatns- og frárennsliskerfi verða einnig endurnýjaðir. Öryggisvottunar og öryggisviðurkenningar á sviði öryggis- og varnarmála verður krafist af verktaka og öllum starfsmönnum og stjórnendum hans sem koma að verkinu og einnig af starfsmönnum og stjórnendum undir- verktaka sbr. reglugerð nr. 959 / 2012. Áætlaður kostnaður í þessu verki er um 200 - 300 milljónir kr. með Vsk. Forvalsgögn verða til sýnis og afhendingar hjá Fram- kvæmda sýslu ríkisins, Borgartúni 7A, 105 Reykjavík frá og með mánudeginum 14. janúar 2013, opnunartími 8:30 - 16:00. Skilafrestur þátttökutilkynninga hjá Framkvæmdasýslu ríkisins, Borgartúni 7A, 105 Reykjavík er til kl. 16:00 þann 28. janúar 2013. FRAMKVÆMDASÝSLA RÍKISINS ÚTBOÐ ÚTBOÐ OFANFLÓÐAVARNIR BÚÐUM VIÐ FÁSKRÚÐSFJÖRÐ NÝJABÆJARLÆKUR - VARNARVIRKI ÚTBOÐ NR. 15368 Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Fjarðabyggðar og Ofanflóðasjóðs óskar eftir tilboðum í verkið Ofanflóða- varnir Búðum við Fáskrúðsfjörð – Nýjabæjarlækur varnar- virki. Verkið felst í að reisa varnarvirki í farvegi Nýjabæjarlæks ofan skólamiðstöðvar og byggðar við Skólabrekku og Hlíðarveg. Varnarvirkið samanstendur í megin dráttum af grjótstíflu, leiðigarði og þvergildru. Grjótstíflan sem stendur í 110 m hæð y. s. er um 15 m á lengd og 6 m há. Leiðigarður neðan grjótstíflu er um 200 m langur og 3 – 7 m hár. Neðst er þvergildran í framhaldi leiðigarðs sem er um 80 m á lengd og um 7 m á hæð um miðbikið. Einnig felst í verkinu gerð vinnuvegar, varanlegra vegslóða og gangstíga. Jafnframt gerð drenskurða, lækjarfarvega, lagning ræsa, smíði göngubrúa og setbekkja og jöfnun yfirborðs og ýmis frágangur. Helstu magntölur eru: Grjótstífla: Klapparsprengingar / fleygun 650 m3 Stórgrýti: flokkun/ flutningur 1.200 tonn Frágangur stórgrýtis í stíflu 550 m3 Leiðigarður—þvergildra: Sprengigröftur 2.800 m3 Gröftur/tilfærsla skriðuefnis 7.500 m3 Stoðfyllingar 2.100 m3 Styrkingakerfi – uppsetning 415 m2 Vegfyllingar úr skeringum 1.500 m3 Þökulagning 1.600 m2 Verkinu skal vera að fullu lokið í ágúst 2014. Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr. 3.500 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C, 105 Reykjavík frá og með þriðjudeginum 15. janúar 2013. Tilboðin verða opnuð hjá Ríkiskaupum, 26. febrúar 2013 kl 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Rafdrifinn íshefill fyrir Skautahöllina Laugardal, útboð nr. 12957. Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Innkaupadeild Aðalskipulag Kópavogs 2012-2024 Opinn kynningarfundur Skipulagsnefnd Kópavogs boðar til kynningarfundar með íbúum og öðrum hagsmunaaðilum þar sem kynnt verður tillaga að nýju aðalskipulagi fyrir bæinn skv. 2. mgr. 30. gr skipulagslaga nr 123/2010. Aðal- skipulagið er skipulagsáætlun þar sem fram kemur stefna bæjaryfirvalda um landnotkun, samgöngu- og þjónustukerfi, umhverfismál og þróun byggðar til ársins 2024. Fundurinn verður haldinn í samkomusal Hörðuvallaskóla við Baugakór 38, fimmtudaginn 17. janúar nk. kl. 17:00 til 18:30. Skipulagsstjóri Kópavogs. Kópavogsbær Stór atvinnulóð í Reykjavík til sölu Ríflega 34 þús. fermetra atvinnulóð við Lækjarmel 1 Reykjavík (á Esjumelum) er til sölu. Um er að ræða eina af stærstu atvinnulóðum höfuðborgarsvæðisins. Lóðin hentar fyrir margvíslega plássfreka starfsemi, liggur mjög sýnileg meðfram fjölförnum Vesturlandsvegi og með mjög góðri aksturstengingu. Hringdu í 699 7600 eða sendu póst á netfangið egillj@brimborg.is fyrir nánari upplýsingar. Brimborg Söluturn/veitingastarfsemi í Hafnarfirði Af sérstökum ástæðum er til sölu söluturn í öruggum rekstri í Hafnarfirði. Starfsemin er í glæsilegu leiguhúsnæði samkvæmt tryggum leigusamningi. Tilvalinn vinnustaður fyrir samhenta fjölskyldu. Möguleikar á veitingastarfsemi einnig. Söluverð er 25 millj. auk vörulagers. Áhugasamir sendi nafn og símanúmer á box@frett.is merkt ,,Söluturn-1813“ fyrir 18 janúar nk. Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg: • Borgarleikhúsið – lýsingarbúnaður, útboð nr. 12958. Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod Innkaupadeild Boltinn á Xinu 977 – alla virka daga kl. 11 - 12 12. janúar 2013 LAUGARDAGUR20
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.