Fréttablaðið - 12.01.2013, Síða 78
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 46
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
1. Hver er það sem fer oft í vatnið án þess að verða blautur?
2. Líkami minn er hvítur en höfuðið dökkbrúnt. Hver er ég?
3. Framan í hvern getur maður rekið tunguna án þess að vera
ókurteis?
4. Hvað er það sem oft leynist í tómum vasa?
5. Hver er það sem eykur gengi félaga sinna ef hann er fyrir aftan þá
en rýrir þá og sjálfan sig mest ef hann er fyrir framan þá?
6. Hvaða karlmannsnafn og kvenmannsnafn getum við búið til úr
stöfunum EEÓÓRRYYÞÞ?
7. Hvað er í miðri Reykjavík?
SVÖR
Hver eru þín helstu áhugamál?
Söngur, teikning og listskautar.
Ég hef mikinn áhuga á japanskri
menningu, svo sem hefðunum
og trúarbrögðunum. Einnig
ýmsum listformum, eins og
teikningu og skrautskrift. Ég hef
sérstakan áhuga á manga en
það eru japanskar teiknimynda-
sögur. Japanskar teiknimyndir
eru kallaðar anime.
Hver er munurinn á manga
og öðrum teiknimyndasögu-
formum? Persónurnar eru með
sérstakt útlit, til dæmis eru
stelpurnar með rosalega stór
augu. Tilfinningar eru sýndar
frekar ýktar. Þó að sögurnar séu
látnar gerast annars staðar, til
dæmis í New York, þá lítur allt
mjög japanskt út og allir tala
japönsku.
Hvenær fórst þú að hafa
áhuga á manga? Þegar ég var
átta ára.
Þekkirðu marga sem hafa
áhuga á þessu formi? Ég þekki
níu, bæði stráka og stelpur.
Hefur þú lært þessa teikni-
aðferð sérstaklega? Ég fór á
námskeið um japanska popp-
menningu hjá Klifinu í haust.
Annars hef ég mest lært af You-
tube-myndböndum, sérstaklega
frá Mark Crilley og Sophie Chan.
Hver er uppáhaldsteikni-
myndasagan þín? Hún heitir
Kodocha.
En uppáhaldskarakter? Það
er Lili í Zodiac P.I.
Býrð þú til þínar eigin sögur?
Já, stundum, en ekki oft.
Hvers konar áhöld notar þú
helst þegar þú teiknar? Ég nota
helst blýanta, kúlupenna og svo
manga-tússpenna sem heita
lePlume.
Hversu miklum tíma dags
verð þú í að teikna? Mjög mis-
jafnt, stundum allt upp í sex
tíma, en suma daga teikna ég
alls ekki neitt.
Hvað ert þú lengi að gera eina
mynd? Tvo til þrjá klukkutíma.
Hvaðan færð þú innblástur
þegar þú teiknar? Frá Youtube
og manga-myndasögum.
Áttu þér fyrirmyndir í teikni-
heiminum? Já, Mark Crilley.
Hann sýnir á Youtube hvernig á
að teikna og talar um hvernig er
að vera manga-listamaður. Hann
gerir kennslubækur um manga og
hefur meðal annars teiknað sög-
urnar Brody’s Ghost og Miki Falls.
Hvert er uppáhaldsfagið þitt
í skólanum? Myndmennt og
bókmenntir.
Hvað langar þig að verða
þegar þú verður stór? Mig
langar helst að verða leikkona.
Myndmennt og bók-
menntir í uppáhaldi
Eygló Strand Jóhannesdóttir býr í Hafnarfi rði og hefur áhuga á söng, list skautum
og teikningu. Hún verður bráðum 13 ára en síðan hún var 8 ára hefur hún haft
mikinn áhuga á japanskri menningu, ekki síst manga-teiknimyndasögum.
EYGLÓ JÓHANNESDÓTTIR Hefur mikinn áhuga á japanskri menningu, hefðum og trúarbrögðum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1. Skugginn. 2. Eldspýta. 3. Lækninn. 4. Gat. 5. Tölustafurinn núll.
6. Eyþór og Þórey. 7. j.
Ég fór á námskeið um
japanska poppmenningu
hjá Klifinu í haust. Annars
hef ég mest lært af You-
tube-myndböndum.
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
26
„Ég er orðin leiður á því hvað Kata er alltaf leiðinleg við
mig,“ kvartaði Róbert stúrinn. „En er það ekki vegna þess
að þú þykist vita allt?“ sagði Lísaloppa. „Ég veit náttúrulega
ekki allt,“ sagði Róbert. “En ég veit margt, ég veit til dæmis
mörg fuglanöfn af því að ég veiði þá til matar.“ „Prófaðu þá
þessa gátu,“ sagði Lísaloppa. „Getur þú fundið nöfn fimm
fugla sem allir gætu verið á matseðlinum þínum?“ Róbert
horfði á stafagátuna. „Ég verð nú alltaf ringlaður af því að
horfa á svona stafasúpur.“ „Þá skal ég segja þér nöfnin sem
þú átt að finna,“ sagði Lísaloppa.
S E N D L I N G U R E E Í
R B J P X Á M A S Y F K N
Ó K Í I Y S T O K K Ö N D
M A R Í U E R L A G Ö E D
Ð Ý Æ Ó Y X Þ Y É F M J Ö
Ý M Ð Þ O Ó Ú K D J F M S
O G A Á U Æ A V Y Ó Þ M H
S T R P G R Ý G O G K H A
T V F F L U J J T I Þ Á J
F L U Æ Ð T Ú Ú P V Þ Ó Þ
Æ Ó G G Ú M X Þ P Y A Æ Æ
P H L H S B Æ K I A Ó R O
M Ú S A R R I N D I L L Þ
“Þau eru:
Rjúpa
Stokkönd
Æðarfugl
Músarrindill og
Sendlingur.“
Getur þú
hjálpað Róberti
að finna
þessi fimm
fuglanöfn?
Heilabrot
Jóakim Dylan Magnússon, sem er tveggja
og hálfs árs gamall og býr í Milwaukee í Banda-
ríkjunum, sendi krakkasíðunni þessa mynd í
vikunni. Takk fyrir það.
Arnar Ingi Magnússon, sjö ára Breiðholtsbúi,
er höfundur þessarar skemmtilegu myndar.