Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 86

Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 86
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 54 „Ég er ekki viðkvæm fyrir því að eiga afmæli en ætlaði ekkert að halda upp á það. Börnin mín og systkini vilja hins vegar bjóða stórfjölskyldunni í kaffi. Ég sagði þeim að ef þau ætluðu að taka upp á því mundi ég ekki gera hand- tak. Ekki vaska upp einn bolla,“ segir Magnea J. Matthíasdóttir, þýðandi og skáld, í glettnum tón og bætir svo við: „En þetta verður auðvitað voða gaman. Stórfjölskyldan hittist svo sjaldan öll. Ég á reyndar bara tvö börn en ég á sex barnabörn og systkini mín eiga börn og svo verða þarna móðurbræður og föðurbræður.“ Magnea er innfæddur Reyk víkingur úr Vesturbænum. Hún býr reyndar í Þingholtunum núna en kveðst vera að leggja drög að því að komast í Vestur- bæinn aftur. „Þar búa fjögur af barna- börnunum og svo hef ég verið að vinna þar líka,“ segir hún til skýringar. „Við hvað? Ég hef verið að kenna í Háskóla Íslands. Þýðingar. Það er það eina sem ég kann.“ Þegar nánar er grennslast kemur í ljós að Magnea vann við prófarka lestur í mörg ár á Mogganum og Helgar- póstinum auk þess að fást við heima- síðugerð um tíma – en alltaf meðfram við þýðingar og skrif. „Ég held það séu komin fjörutíu ár síðan ég fór að fikta við þann fjanda. Auðvitað með mismunandi skemmtilegt efni en mér finnt alltaf gaman að fást við texta.“ Hún kveðst aðallega þýða úr ensku en líka úr Norðurlandamálum, mest úr dönsku. „Ég bjó svo lengi í Danmörku og var þá að vinna við þýðingar fyrir Stöð 2, aðallega talsett barnaefni.“ Skyldi Magnea ekki skálda eitthvað líka? „Aðallega fyrir skúffuna. Ég skrifa alltaf ljóð inni á milli og svo hef ég eitthvað verið að fikta við prósa en það er best að hafa sem fæst orð um það.“ Hvaða bækur skyldi þýðandinn svo vera með á náttborðinu? „Ég er með dálítið blandað sett. Ég er með Terry Pratchett og ég er með Hrika- lega skrítnar skepnur, sem er barna- bók, svo er ég með fræðibækur, líka Reykjavíkurnætur Arnaldar og bókina hennar Auðar Jóns, Ósjálfrátt, svo það er sitt lítið af hverju.“ Að lokum berst talið aftur að fjöl- skyldudeginum á morgun. „Ég er voða spennt að vita hvað verður boðið upp á en fyrst ég ákvað að vera ekki með í undirbúningnum kemur mér það nátt- úrlega ekkert við. Þannig að ég hlakka bara til að láta koma mér á óvart og nýt þess að gera ekki neitt.“ gun@frettabladid.is Hlakka mikið til að láta koma mér á óvart Magnea J. Matthíasdóttir, skáld og þýðandi, verður sextug á morgun. Hún ætlar að njóta þess að vera boðið í veislu og hitta stórfj ölskylduna en þurfa ekki að gera handtak sjálf. AFMÆLISBARN Mér finnst alltaf gaman að fást við texta,“ segir Magnea sem er mikilvirkur þýðandi en fékkst líka lengi við prófarkalestur á blöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Elskuleg systir okkar, ÞORLEIF MARGRÉT BENEDIKTSDÓTTIR (LEILA GREEN) lést á heimili sinu í Bay City, Texas, 27. desember síðastliðinn. Bálför hennar hefur farið fram og verður jarðsett í kirkjugarði Madagorda Town. Karl, Jósep og Þórður Benediktssynir. Okkar hjartans eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR JÓNSSON frá Norðfirði, til heimilis að Hallveigartröð 9, Reykholti í Borgarbyggð, andaðist 11. janúar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Útförin fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 18. janúar kl. 13.00. Edda Björk Bogadóttir Fríða Sigurðardóttir Axel Gunnlaugsson Jón Svan Sigurðsson Rakel Rut Valdimarsdóttir Birgir Örn Ólafsson Helga Ragnarsdóttir Ólafur Ragnar Ólafsson Minna Hartvigsdóttir Kristinn Jón Ólafsson Halldóra F. Víðisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÞÓRHALLSDÓTTIR Árskógum 8, sem lést 3. janúar, verður jarðsungin frá Seljakirkju mánudaginn 14. janúar kl. 13.00. Guðmundur Þ. Frímannsson Margrét Pétursdóttir Ingibjörg B. Frímannsdóttir Guðleifur Sigurðsson Jóhann G. Frímannsson Eyja Þóra Einarsdóttir María E. Frímannsdóttir Alma G. Frímannsdóttir Páll Harðarson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS VALGEIRS GUÐMUNDSSONAR Hjallastræti 32, Bolungarvík. Sérstakar þakkir sendum við öllum þeim sem komu að útförinni með einum eða öðrum hætti við erfiðar aðstæður vegna veðurs, sem og starfsfólki Sjúkraskýlisins í Bolungarvík. Rannveig Snorradóttir Elísabet Jónsdóttir Þór Sigurjón Ólafsson Snorri Hildimar Jónsson Þórhildur Sigurðardóttir Guðrún Jónína Jónsdóttir Halldór Jón Hjaltason Lára Kristín Jónsdóttir Lúðvík Karlsson Selma Guðmunda Jónsdóttir Guðmundur Ólafur Birgisson Erna Jónsdóttir Þorvaldur Þorvaldsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför GARÐARS TRYGGVASONAR Hamrahlíð 17, Reykjavík, áður Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir til hjartagáttar og hjartadeildar Landspítalans fyrir góða umönnun. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Kolbrún Hulda Sigurjónsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS GUNNAR ERLENDSSON Vatnsleysu, Biskupstungum, lést mánudaginn 7. janúar á hjúkrunarheimilinu Boðaþingi. Útförin fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn 17. janúar klukkan 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Styrktarsjóð Duchenne samtakanna, kt. 640512-2610, rnr. 0111-26-010315. Þóra Katrín Kolbeins Erlendur Björn Magnússon Sigrún Káradóttir Hilmar Magnússon Randí Þórunn Kristjánsdóttir Þorvaldur Magnússon Elena Kristín Pétursdóttir Magnús Gunnar Erlendsson Fríða Hrönn Elmarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og mágur, MAGNÚS HAUKUR GUÐLAUGSSON andaðist á Hjúkrunarheimilinu Eir hinn 10. janúar síðastliðinn. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hanna Sigríður Magnúsdóttir Bjarni Róbert Blöndal María Hrönn Magnúsdóttir Guðni Már Kárason Jónína Erna Guðlaugsdóttir Ágúst Kristmanns Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GÍSLI S. JÓNSSON Logafold 52, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 7. janúar. Jarðarförin verður gerð frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 16. janúar klukkan 13.00. Simona Simonsen Esther Gísladóttir Gunnlaugur V. Einarsson Ingunn Gísladóttir Dan Sommer Eva Ruth Gísladóttir Ásgeir Páll Gústafsson og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför JÓNS V. GUÐJÓNSSONAR. Elísabet Jónsdóttir Guðjón Jónsson Sigrún Ásta Bjarnadóttir Hafdís Jónsdóttir Björgúlfur Andrésson Jörundur Jóhannesson Sveinfríður Jóhannesdóttir Hákon Jóhannesson Helga Jóhannesdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir okkar, MATTHÍAS HJARTARSON Austurbrún 6, Reykjavík, lést 23. desember síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Hermann Hjartarson Kolbrún Hjartardóttir Elísabet G. Hjartardóttir Rune Sveingerður Hjartardóttir og aðrir aðstandendur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.