Fréttablaðið - 12.01.2013, Page 110
12. janúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 78
„Ef Arnold gat
orðið ríkisstjóri,
get ég orðið for-
seti.“ Hollywood-
leikarinn Tom
Cruise tjáir sig um
framtíðarplön-
in í nýútkomnu
bókinni Going
Clear: Scientology,
Hollywood and the
Prison of Belief.
MEÐ TONN AF BÚNAÐI
Raftónlistarmaðurinn Squarepusher
kemur hingað til lands með rúmlega
tonn af búnaði vegna tónleika
sinna á Sónar-hátíðinni sem verður
haldin í Hörpu um miðjan febrúar.
Við þennan búnað bætist svo
stærsti ljósaskjár sem til er á Íslandi
sem verður settur upp í Silfur-
bergi. Sökum umfangs
munu Squarepusher
og aðstoðarmenn
mæta fyrr til Íslands
en fyrirhugað
var. - fb
ÁRNI TILNEFNDUR
TIL BRIT
Bassaleikarinn Árni Hjörvar Árnason
og félagar hans í bresku rokksveitinni
The Vaccines hafa verið tilnefndir til
Brit-verðlaunanna sem verða afhent í
London 20. febrúar. Þeir eru tilnefndir
sem besta breska tónleikasveitin og
eru þar í flokki með ekki ómerkari
böndum en The Rolling
Stones, Coldplay, Muse og
Mumford and Sons. The
Vaccines hefur einu sinni
áður verið tilnefnd til
Brit-verðlaunanna, eða
á síðasta ári í flokknum
besti breski nýliðinn.
Þá bar Ed Sheeran
sigur út býtum. - fb
„Þetta er mjög flottur samningur
sem skiptir gríðarlega miklu máli
fyrir okkur,“ segir framkvæmda-
stjóri framleiðslufyrirtækisins
Caoz, Arnar Gunnarsson. Fyrirtæk-
ið mun sjá um gerð nýrrar teikni-
myndaseríu um norska skipið Elías.
Um er að ræða tveggja ára
samning sem hljóðar upp á 52
teiknimyndaþætti um litla björg-
unarskipið Elías. Caoz sér um alla
framleiðslu og tekur þátt í endur-
sköpun á efni þáttanna að einhverju
leyti. Arnar er mjög ánægður með
fyrirætlað samstarf. „Norska fyrir-
tækið Animando kom hingað til
lands til að skoða aðstæður fyrir
tilstuðlan Film in Iceland sem er
rekið af Íslandsstofu. Þeir komust
í samband við okkur og leist vel á,“
segir Arnar. Vinnan við þættina
hefst á næstu mánuðum.
Um þrjátíu ný störf skapast hjá
fyrirtækinu við gerð seríunnar
og því um mikil uppgrip að ræða.
Arnar segir reynslu fyrirtækisins
við gerð teiknimyndarinnar um Þór
hafa hjálpað til við að tryggja sér
þetta verkefni, en sú teiknimynd
hefur farið sigurför um heiminn.
Samkvæmt norskum miðlum
hljóðar fjárhagsáætlun þessarar
nýju seríu um Elías upp á um 44
milljónir norskra króna. „Þetta er
lyftistöng fyrir okkur og á eftir að
styrkja bransann hér á Íslandi enn
frekar.“
Hollywood-fyrirtækið Jim Hen-
son Company hefur svo keypt dreif-
ingarréttinn á Elíasi en fyrir tækið
er einna þekktast fyrir að eiga
heiðurinn af Prúðuleikaraþáttun-
um. Þættirnir um Elías eru þekktir
barnaþættir í Noregi þar sem vin-
sældum hans er líkt við hinn þekkta
Einar Áskell. Arnar segir teng-
inguna við Hollywood opna margar
dyr fyrir Caoz. „Jim Henson Comp-
any er tengt Disney-fyrirtækinu svo
þetta er flott tækifæri. Þór opnaði
margar dyr fyrir okkur og þetta
samstarf gerir það enn frekar.“
alfrun@frettabladid.is
Caoz aðstoðar skipið
Elías til Hollywood
Íslenska kvikmyndafyrirtækið Caoz hefur hafi ð samstarf við norska fyrirtækið
Animando AS um gerð teiknimyndaseríu um skipið Elías. Opnar margar dyr fyrir
íslenska teiknimyndagerð að sögn framkvæmdastjórans, Arnars Gunnarssonar.
FLOTTUR SAMNINGUR Arnar Gunnarsson, framkvæmdastjóri kvikmyndafyrirtækis-
ins Caoz, er ánægður með samninginn um norsku teiknimyndina Elías sem skapar
um 30 ný störf hjá fyrirtækinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
■ Björgunarskipið Elías er barnaefni eftir
Alf Knutsen og Sigurd Slåttebrekk.
■ Fyrsta bókin kom út árið 1998.
■ Fyrsta serían fór í loftið á barnastöð-
inni TV2 Junior árið 2005.
■ Tvær bíómyndir hafa verið gerðar um
Elías: Elías og kóngaskipið árið 2007 og
Elías og gull hafsins árið 2010.
■ Frumsýning nýju seríunnar er áætluð
vorið 2014.
■ Kvikmyndafyrirtækið Caoz hefur gert
teiknimyndirnar Þór, Litlu lirfuna ljótu,
Önnu og skapsveiflurnar og teiknimynd
um Egil Skallagrímsson.
■ Þór sló í gegn um allan heim á síðasta
ári og er hún langtekjuhæsta íslenska
kvikmyndin sem gerð hefur verið með
yfir einn milljarð í miðasölutekjur.
Teiknimyndaserían Elías
HEIMSÓTTU
SJÁLFBOÐALIÐA
Borgarfulltrúar í Reykjavík eru
annasamt fólk. Fulltrúarnir gerðu
til að mynda víðreist í gær og
heimsóttu nokkur sjálfboðaliðasam-
tök til að fræðast um störf þeirra.
Fyrst á heimsóknalistanum hjá Gísla
Marteini Baldurssyni, Elsu Yeoman og
félaga var Mæðrastyrksnefnd, svo var
haldið til Stígamóta og að lokum var
skrifstofa Landsbjargar
í Skógarhlíð heimsótt.
Heimsóknirnar voru
gerðar í tilefni af alþjóð-
legum degi sjálfboðaliða,
sem reyndar var í
desember síðast-
liðnum. - þeb
Þorrablót
Þorrablót Félags Þingeyinga í Reykjavík og
nágrenni verður haldið í Félagsheimilinu
á Seltjarnarnesi
laugardaginn 26. janúar 2013.
Ekki laugardaginn 19. janúar eins og auglýst var í
síðasta Fréttabréfi.
Húsið opnar kl. 19.00,
Glæsileg dagskrá
Verð kr: 5.500.-
Magnús Kjartansson og félagar spila fyrir dansi
Upplýsingar og miðapantanir:
Alma 897 8722 hervora@hi.is
Benedikt 843 1291 bennilund@gmail.com,
og Guðný 892 5660 timbur@mmedia.is