Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.12.2015, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 16.12.2015, Qupperneq 2
Óðum styttist því í að slitameðferð gömlu bank- anna þriggja ljúki með uppgjöri við kröfuhafa, rúmlega sjö árum eftir hrun. Veður Skák í Salaskóla Fremur hæg austlæg átt í dag, skýjað og úrkomulítið víðast hvar á landinu, en lengst af bjart norðanlands. Snýst í vaxandi norðaustanátt í kvöld með éljum um nóttina. Hiti um og yfir frostmarki, en yfirleitt frost norðaustanlands. Sjá Síðu 30 Veitti hundrað skákborðum viðtöku Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, tók í gær á móti hundrað skákborðum sem verktakafyrirtækið MótX gaf grunnskólum bæjarins. Þessir ungu nemendur Salaskóla voru ánægðir með gjöfina. Fréttablaðið/Vilhelm náttúra Búið er að stofna hlutafélag, Perluvinir ehf., sem hefur það að markmiði að koma á fót náttúrusýn- ingu í Perlunni. Að félaginu stendur hópur áhugafólks um að koma upp slíkri sýningu að sögn Helgu Viðars- dóttur, framkvæmdastjóra félagsins. Viðræður Reykjavíkurborgar og Náttúruminjasafns Íslands sem stóðu síðustu tvö ár um að koma á fót slíkri sýningu hafa siglt í strand. Í nóvember samþykkti borgarráð að Reykjavíkur- borg, í samstarfi við Hið íslenska nátt- úrufræðifélag, auglýsti eftir nýjum aðilum til að koma á slíkri sýningu. Helga segir að félagið muni óska eftir að fá að taka þátt í þeirri uppbygg- ingu þegar Reykjavíkurborg auglýsi það formlega. Perluvinir eru orðnir 67 og hafa lagt 4,4 milljónir króna í hlutafé til félagsins. Helga segir að áhugasamir geti komið að verkefninu en félagið hefur sett sér það markmið að safna tíu milljónum króna til að standa straum af frumhönnun á náttúru- sýningu í Perlunni og gerð viðskipta- áætlunar. „Við erum öllum opin og hvetjum fólk til að gerast meðlimir í félaginu.“ Hver hlutur kostar 25 þúsund krónur. Helga segir hugmyndina um nátt- úrusafn í Öskjuhlíð nær aldargamla. Jóhannes Kjarval hafi talað fyrir þessum möguleika í bók sinni Grjót sem kom út árið 1930. „Hann hafði hugmyndir um að byggja musteri í Öskjuhlíðinni sem tengdi manninn og náttúruna.“ Hún segir ekki liggja fyrir á þessu stigi hvernig sýningin yrði upp- byggð. „Það verður reynt að höfða til sem flestra, bæði erlendra og inn- lendra gesta, þannig að sem flestir fái að tengjast og upplifa íslenska náttúru. Draumurinn er að Öskju- hlíðin öll verði að náttúruparadís sem hún getur svo hæglega orðið,“ segir Helga. Ljóst sé að fjöldi sérfræðinga þurfi að koma að hönnun slíkrar sýning- ar. „Við viljum gæta gæða í fram- setningu og fræðilegum grunni á svona sýningu.“ ingvar@frettabladid.is Hópur áhugafólks vill sjá sýningu í Perlunni Hlutafélagið Perluvinir vill koma á fót náttúrusýningu í Perlunni. Auglýst er eftir fleiri hluthöfum til að fjármagna undirbúninginn. Viðræður Reykjavíkurborgar og Náttúruminjasafns Íslands um sýningu í Perlunni hafa siglt í strand. helga Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Perluvina, segir Jóhannes Kjarval hafa viðr- að hugmyndina um náttúrusafn í Öskjuhlíð árið 1930. Fréttablaðið/anton brinK Það verður reynt að höfða til sem flestra, bæði erlendra og innlendra gesta, þannig að sem flestir fái að tengjast og upplifa íslenska náttúru. Helga Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri Perluvina Frakkland Franska þingið hefur samþykkt að lækka svokallaðan „túrskatt“, virðisaukaskatt á hrein- lætisvörum fyrir konur, úr 20 pró- sentum niður í 5,5 prósent eftir aðra umferð málsins á þingi. Tillögunni var hafnað fyrr á árinu. Á Íslandi lögðu nýverið átta þing- menn stjórnarandstöðunnar, allt karlar, fram frumvarp til breytinga á lögum um virðisaukaskatti þar sem lagt er til að skattur á dömubindi og túrtappa fari úr 24 prósentum í 11 prósent. Í kjölfarið lagði meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar svo til í nefndaráliti við fjárlög næsta árs að tollar á þessar vörur yrðu felldar niður. Gagnrýni á skattlagninguna ætti rétt á sér. – sg Frakkar lækka túrskattinn dómSmál Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest nauðasamning Kaup- þings. Kröfuhafar bankans höfðu fyrir sitt leyti samþykkt nauðasamninginn þann 24. nóvember. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður samþykkt nauðasamninga Glitnis, en þeir samningar bíða enn samþykkis frá dómstól í New York. Reiknað er með því að nauðasamn- ingur Landsbankans verði staðfestur í Héraðsdómi Reykjavíkur innan fárra daga. Óðum styttist því í að slitameð- ferð gömlu bankanna þriggja ljúki með uppgjöri við kröfuhafa, rúmlega sjö árum eftir hrun. Slitastjórnir bankanna hafa þó frest til 15. mars til að ljúka þessu ferli og greiða stöðugleikaframlag í ríkissjóð. – gb Staðfestu nauðasamning Kaupþings GrÆnland Græn- lendingar hafa nú endanlega gefið upp á bátinn áætlanir um olíu- vinnslu. Kim Kielsen, for- maður grænlensku landsstjórnarinnar, segir olíuvinnslu ekki borga sig. Nú sé tunnan af olíu seld undir 25 dollurum í Kanada. Áætlað fram- leiðsluverð á tunnu af olíu við Grænland er 50 dollarar. Bandarískir sérfræðingar hafa reiknað út að á landgrunninu við Grænland sé að finna að minnsta kosti rúma 30 milljarða tunna af olíu. – ibs Draumur um olíuvinnslu úti Kim Kielsen 1 6 . d e S e m b e r 2 0 1 5 m I ð V I k u d a G u r2 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.