Fréttablaðið - 16.12.2015, Síða 8

Fréttablaðið - 16.12.2015, Síða 8
samgöngur Fyrsta árið sem hrað­ lest gengi milli Keflavíkur og Reykja­ víkur er gert ráð fyrir að seldir verði 4,5 milljónir farmiða, sem skilar 13,5 milljarða króna tekjum. Þetta kemur fram í nýrri, óbirtri skýrslu RRV Consulting um verkefnið. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær vinnur Fluglestin þróunarfélag ehf. að því að ljúka samstarfssamn­ ingum við sveitarfélög á höfuð­ borgarsvæðinu vegna nauðsynlegra skipulagsbreytinga og lóðamála varðandi hraðlestina sem ganga á milli Leifsstöðvar og Umferðarmið­ stöðvarinnar í Reykjavík. Í skýrslu RRV er farið yfir ýmsar áætlanir og tölulega þætti sem tengjast hraðlestinni. Ef allt gengur upp eiga framkvæmdir að hefjast eftir þrjú ár og verða lokið að átta árum liðnum, árið 2024. „Áætlað er að verkefnið skili jákvæðu tekjustreymi frá fyrsta ári,“ segir í skýrslunni. Yfir hálfrar aldar rekstrartímabil fái fjárfestar 15,2 prósenta árlega ávöxtun. Þá segir að hraðlestin verði ábatasöm sem einkaframtak og þurfi engin bein fjárframlög frá opinberum aðilum en að gera þurfi fjárfestingarsamninga við ríkið og fá sérstaka löggjöf um skattgreiðslur. Alls verða lestarteinarnir 49 kílómetra langir, þar af 14 kíló­ metrar í göngum fyrsta spölinn út úr höfuðborgarsvæðinu. Fyrir utan endastöðvarnar tvær á að vera einn viðkomustaður í suðurhluta Hafnar fjarðar. Þar verði þjónustu­ stöð og geymsla fyrir lestarvagna. Samkvæmt skýrslunni verða lestarferðir frá klukkan fimm á morgnana til klukkan eitt eftir miðnætti. Farið verður á fimmtán mínútna fresti á annatíma þegar lestin annar 1.200 farþegum á klukkustund en með 30 mínútna millibili þess utan. Lestin mun ná 250 kílómetra hraða á klukkustund og ferðatíminn verða 15 til 18 mín­ útur eftir því hvort komið verður við á aukastoppistöðinni. Vitnað er til spár Isavia um þróun farþegafjölda um að komur og brottfarir farþega í alþjóðaflugi verði samtals 5,3 milljónir á árinu 2024. Alls verði 2,7 milljónir far­ miða seldar vegna þessa hóps og aðrar 1,8 milljónir farmiða til ann­ arra sem ferðist milli Reykjaness og höfuðborgarsvæðisins. Er þar átt við námsmenn og starfsmenn fyrir­ tækja við báða enda lestarlínunnar. Nefnd eru dæmi um fargjöld í lestum sem ganga frá flugvöllum í svipaðri fjarlægð frá borgarkjörn­ um. Reiknað er með að hér gætu lægstu fargjöld verið um 1.000 krónur en hæstu 4.300 krónur. Meðalfargjaldið verði hins vegar 3.100 krónur. Sem fyrr segir er gert ráð fyrir að seldir farmiðar, samtals fram og til baka, verði 4,5 milljónir árið 2024. Tíu árum síðar verði þeir orðnir 5,9 milljónir talsins. Að baki Fluglestinni standa Landsbankinn, fasteignafélagið Reitir, Kadeco á Keflavíkurflugvelli, Efla og Ístak. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er fjárfesta nú leitað bæði innanlands og utan. Áætlað er að hlutafé nemi fimmtungi heildar­ kostnaðarins eða um 20,6 milljörð­ um króna. Að öðru leyti á að greiða stofnkostnaðinn, sem í heild er 105 milljarðar króna, með lánsfé sem endurgreiðist á 27 árum með 3,0 til 4,5 prósent vöxtum. „Reiknað er með að hluthafar hafi endurheimt fjárfestingu sína að fullu á tólfta rekstrarári,“ segir í skýrslunni fyrir Fluglestina þró­ unarfélag sem á ensku heitir Lava Express. gar@frettabladid.is Lestin skilar 13 milljörðum á fyrsta ári Félagið sem nú leitar fjárfesta að hraðlest til Keflavíkurflugvallar áætlar að lestin rúlli af stað árið 2024 og skili 13,5 milljarða króna tekjum á fyrsta ári. Fargjöld verða 1.000 til 4.300 krónur með 3.100 króna meðalfargjaldi. Lestin annar 1.200 farþegum á klukkustund. Hraðlestin til Keflavíkurflugvallar í túlkun Bjarna Reynissonar er hann útskrifaðist úr arkitektúr frá Listaakademíunni í Kaupmannahöfn vorið 2014. Mynd/BjaRni Reynis- Fjórtán kílómetra löng göng eiga að liggja frá Vatnsmýri, undir byggðina í Fossvogi og Kópavogi og suður fyrir Hafnarfjörð. Mynd/LaVa expRess Reiknað er með að hluthafar hafi endurheimt fjárfestingu sína að fullu á tólfta rekstrarári. Úr skýrslu um RRV Consulting. samfélag Kertasníkir er langvin­ sælasti jólasveinninn af íslensku jólasveinunum þrettán. Næst vin­ sælastur er Stúfur og sá þriðji er Hurðaskellir. Þetta kemur fram í könnun MMR. Pottaskefill, sem kom til byggða í nótt, er óvinsælasti jólasveinninn. Þétt á hæla hans koma búsáhalda­ bræður hans, Þvörusleikir og Aska­ sleikir. Jólasveinarnir ná misvel til kynjanna. Kertasníkir er vinsæll hjá báðum kynjum en þá sérstaklega hjá kvenpeningnum. Ríflega helm­ ingur kvenna segir hann vera uppá­ haldsjólasveininn. Karlar eru aftur á móti hrifnari af Hurða skelli og mathákun­ um Ketkróki, Bjúgna kræki og Skyrgámi. Úrtak MMR var tæplega þús­ und Íslendingar sem eru átján ára og eldri. Tæplega sjötíu prósent tóku afstöðu til spurningarinnar en aðrir sögðust ekki eiga uppá­ halds jólasvein. – ebg Kertasníkir nýtur mestrar kvenhylli Hurðaskellir er vin­ sæll hjá íslenskum körlum. Búsáhaldajólasveinarnir eru óvinsælastir meðal þjóðarinnar. FRéttaBLaðið/ViLHeLM Kerta­ sníkir 34,9% stúfur 23,9% Hurða­ skellir 11% stekkjastaur 6% skyrgámur 5,5% Bjúgnakrækir 3,9% Ketkrókur 4,7% Gluggagægir 3% Giljagaur 2,6% Sveinkarnir í vinsældaröð Gáttaþefur 2,2% Þvörusleikir 0,9% askasleikir 0,8% pottaskefill 0,7% Miði fyrir tvo á ABBA söngleikinn sem enginn má missa af Mamma Mia 12.900 kr. Miði fyrir tvo á Njálu og eitt eintak af Brennu-Njáls sögu. Njála 12.200 kr. Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Gjafakort Borgarleikhússins Gjafakort fyrir tvo og ljúffeng leikhúsmáltíð Leikhúskvöld fyrir sælkera 12.500 kr. Sérstök jólatilboð 1 6 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m I Ð V I K u d a g u r8 f r é t t I r ∙ f r é t t a b l a Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.