Fréttablaðið - 16.12.2015, Side 36

Fréttablaðið - 16.12.2015, Side 36
Fólk| ferðir Í Nepal „Ég fékk „gesta- herbergið“ sem var hrísgrjóna- geymsla þar sem þau geymdu líka hænsnin á nótt- unni. Þar fékk maður að sofa á steyptu gólfinu með smá bast sem dýnu.“ Tinna hefur alltaf haft unun af því að ferðast og hefur mikinn áhuga á tungumálum, ólíkum menn- ingarheimum og því að kynnast fólki frá öllum löndum heims. „Ég reyni að kom- ast til útlanda einu sinni til tvisvar á ári en annars ferðast ég líka mikið innan- lands,“ segir Tinna sem hefur unnið við ferðamennsku á Íslandi í yfir tíu ár bæði á söluskrifstofu og sem ævintýraleið- sögumaður. Með iNNfædduM Í Nepal „Bestu ævintýrin má upplifa á Íslandi en af öðrum löndum er Nepal í uppáhaldi. „Menningin og fólkið er svo framandi en samt svo vinalegt. Náttúran er ein- stök og í uppáhaldi hjá mér er að fara á kajak niður jökulár sem er svo mikið af í Hima lajafjöllunum.“ Tinna forðast troðnar slóðir og þótti því best að umgangast innfædda og ferðast með þeim. „Eitt sinn fór ég með innfæddum vini mínum lengst út í sveit til að gista hjá fjölskyldu hans. Ég fékk „gestaherbergið“ sem var hrísgrjóna- geymsla þar sem þau geymdu líka hænsnin á nóttunni. Þar fékk maður að sofa á steyptu gólfinu með smá bast sem dýnu,“ rifjar hún upp og minnist þess einnig þegar hún kom í afskekkt þorp. „Íbúarnir urðu svo ánægðir að fá Íslending í heimsókn að þeir ákváðu að slátra geit í matinn, en það gerist bara á hátíðarstundum,“ segir hún glaðlega. Hugleiddi á iNdlaNdi Sú ferð sem er Tinnu efst í huga núna er ferð sem hún fór til Indlands fyrir um ári. „Þá fór ekki jafn mikið fyrir ævintýr- um í náttúrunni og oft áður heldur fór ég í tíu daga hugleiðslubúðir úti í sveit.“ Í þessum hugleiðslubúðum lifði Tinna eins og munkur, vaknaði klukkan fjögur og fór að sofa klukkan níu á kvöldin. „Tekin var djúp hugleiðsla allan daginn í klukkutíma hollum og pásum inn á milli.Takmarkið var að sitja alveg kyrr og hugleiða á litlum púða á gólfinu. Maður mátti ekki tala neitt, varð að vera klæddur á hógværan hátt og alveg bannað var að skreyta sig með skart- gripum, málningu eða vera með ilm- vatn. Þá mátti maður ekki vera með neitt nammi eða snarl, allt áfengi var bannað, tónlist, tölvur, símar og bækur. Allt til þess að ná að tengjast sjálfum sér án truflunar. Tinna segir reynsluna erfiða. „Það var lítið mál að sleppa þessum nútímaþæg- indum en erfitt að þurfa að díla svona við sjálfan sig allan sólarhringinn í tíu daga.“ KúKað Í poKa Tinna flutti til Ástralíu í febrúar 2014 til að læra viðskiptafræði. Hún hefur ferðast víða um landið en í uppáhaldi er Tasmanía. „Síðasta sumar, það er í febrúar 2015, fékk ég vinnu sem flúðaleiðsögumaður á Franklin River, en farnir eru tíu daga leiðangrar í stærsta þjóðgarðinum. Farið var lengst inn í óbyggðir skógar- ins og ferðast með allan þann útbúnað og mat sem til þurfti á bátunum,“ segir Tinna og lýsir því að strangar reglur gildi í þjóðgarðinum. Til dæmis megi ekki kúka úti í náttúrunni. „Við þurft- um að kúka í glæran frystipoka sem maður setti svo í stóran svartan rusla- poka, sem varð nokkuð þungur eftir hvern dag enda kúnnarnir tíu og leið- sögumennirnir þrír. Svarti pokinn var svo settur í stóran þurrpoka sem við ferðuðumst með okkur. Í lokin var eina leiðin út úr þjóðgarðinum annaðhvort með skútu eða sjóflugvél og fylgdi pok- inn okkur alla leið í byggð,“ segir Tinna og hlær að minningunni. Hún segir allt annað að fara niður árn- ar í Tasmaníu en á Íslandi. „Þarna þurfti mikið að spá í þröngum leiðum milli steina og trjáa og ég lærði mikið í nýrri tækni á hverjum degi,“ segir Tinna sem svaf á uppblásinni dýnu undir berum himni. „Ég hef aldrei séð jafn mikið af stjörnum,“ segir hún dreymin en hlakkar til að ljúka námi og fá að takast á við ís- lenska náttúru á ný. n solveig@365.is elsKar æviNTýri ferðalaNgur Tinna Sigurðardóttir hefur komið til þrjátíu landa og allra heimsálfa nema Suðurskautslandsins. Hún hefur starfað við ævintýraferða- mennsku sem heillar hana mest. Hún stundar nú nám í viðskiptafræði í Ástralíu. goTT bað Í Nepal baðaði Tinna sig oft í ám í samneyti við froska og jafnvel fíla. Ævintýramanneskjan sem hún er þurfti hún að gera fílabaðferð enn meira spennandi með því að kasta sér beint á magann ofan í svalt vatnið. HugleiTT á iNdlaNdi Tinna fór í tíu daga hug- leiðsluferð til Indlands þar sem hún þurfti að sitja kyrr á litlum púða stóran hluta dagsins og sleppa allri nútímatækni og prjáli. Eitt kort 35 vötn 6.900 kr Frelsi til að veiða! 00000 JÓLAGJÖF VEIÐIMANNSINS! www.veidikortid.is EKKERT STRESS UM JÓLIN 20% afsláttur AF SLÖKUN Í DESEMBER Tilboðið gildir í flestum apótekum og heilsubúðum Gleðileg jól *Gildir fyrir eina áskrift. Viðskiptavinir sem taka þessu tilboði fyrir 31. desember halda þessum kjörum í eitt ár. Fáðu þér áskrift í síma 1817 eða á 365.is FÁÐU STÖÐ 3 Á BETRA VERÐI Í VETUR STÖÐ 3 +ENDALAUST TAL +1 GB Í GSM 1.990 kr. til 31. desember*

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.