Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.12.2015, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 16.12.2015, Qupperneq 46
Stjórnar - maðurinn @stjornarmadur Heildarafli íslenskra fiskiskipa var tæp 95 þúsund tonn í nóvember og jókst um 6,5% milli ára. Fyrstu 11 mánuði ársins 2015 hefur aflinn verið rúm 1.315 þúsund tonn samkvæmt tölum Hagstofunnar. Það er 21,3% aukning frá sama tímabili í fyrra. Mest vegur aukning landaðs uppsjávarafla. 95 þúsund tonn Heildarafli íslenskra fiskiskipa jókst Kortavelta einstaklinga jókst um 14,1 prósent að raunvirði milli ára í nóvem- ber síðastliðnum. Aukningin á milli ára hefur ekki verið meiri síðan í ágúst á hinu mikla einkaneysluári 2007. Jafnframt var kortavelta Íslendinga í út- löndum umfram kortaveltu útlendinga hér á landi, en slíkt hefur ekki atvikast síðan í desember í fyrra. 14% vöxtur Mesti vöxtur kortaveltu frá árinu 2007 14. 12. 15 Enginn hefur staðið jafnöfluglega að því og Björk að koma íslenskum tónlistar- mönnum á framfæri. Við okkur blasir árangur þess og það er að skila milljörðum í þjóðarbúið. Björk býr hér og fjárfestir. Hún fær hingað árlega fjölda af heimsfrægu tónlistarfólki sem vinnur hér vikum saman með henni að gerð tón- listar. Björk greiðir skatta hér. Guðmundur Gunnarsson, faðir Bjarkar Guðmundsdóttur söngkonu Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16 Opið mán - fös 8:30 - 17:00 Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • Sími 580 3900 • www.fastus.is Yaxell hnífur fyrir kröfuharða kokkinn Markaðurinn Miðvikudagur 16. desember 2015fylgirit fréttablaðsins uM viðskipti og fjárMál | ftse 100 6.017,79 143,74 (2,45%) Viðskiptavefur Vísis @visirvidskiptiwww.visir.is Gott fyrsta skref Fjármálaráðherra hefur tilkynnt að hann undirbúi frumvarp um skattaívilnanir til þeirra sem fjár- festa í smærri félögum. Þetta eru góð tíðindi og nokkuð sem líklegt er til að auðvelda aðgengi smærri félaga að fjármagni. Bjarni þarf ekki að leita langt eftir fyrirmyndum. Í Bretlandi tíðkast svokallaðar EIS-undanþágur. Samkvæmt þeim geta félög safnað fjárfestingu allt að 30 milljónum íslenskum eða þar um bil eftir þeirri leið. Hver einstak- lingur getur svo lagt að hámarki 20 milljónir í slík verkefni á ári hverju. Ef EIS leiðin er farin fær einstaklingur þá þegar helming þeirrar upphæðar sem fjárfest er fyrir endurgreidda frá skattinum, og allur hagnaður sem síðar kemur er skattfrjáls. Staðreyndin er sú að smærri félög eiga oft erfitt með að safna utanað- komandi fjármagni. Mörg þeirra komast því væntanlega vart af teikni- borðinu eða líða fljótt undir lok án þess að raunveruleg reynsla sé komin á hugmyndina. Því er nauðsynlegt að búa til umhverfi sem gerir fólki kleift að láta á reyna – af því er samfélags- legur ávinningur. Hitt er svo annað að í fjárfestingu í sprotafyrirtækjum er fólgin mikil áhætta. Því er ekki út á það að setja að þeir sem taka slíka áhættu fái að njóta ávaxtanna. Osbourne fjármálaráðherra og félagar í Íhaldsflokknum telja a.m.k. að samfélagslegur ávinningur sé af því að auka aðgengi sprotafyrirtækja að fjármagni, jafnvel þótt það kosti ríkissjóð skatttekjur til skamms tíma. Skattahagræðið sem fylgir EIS er líka ein af stóru ástæðunum fyrir því að margir frumkvöðlar velja hug- myndum sínum heimavöll í London. Þar hefur enda sprottið upp stórt samfélag frumkvöðla, þrátt fyrir að borgin sé að mörgu öðru leyti í raun fremur óheppileg fyrir lítil fyrirtæki sem þurfa að stíga á bremsuna hvað varðar allan kostnað. Leiga er með því hæsta sem gerist í veröldinni, skrifræði sem fylgir stórum borgum stundum þungt í vöfum og vinnuafl dýrt á flesta mælikvarða. Ísland hefur í þessu samhengi marga góða kosti. Hér er menntað fólk sem þiggur lág laun í stórborgar- samanburði, býr yfir ágætri tungu- málakunnáttu og smæðin gerir það að verkum að hlutirnir hreyfast oft hraðar hér á landi en annars staðar. Ef útfærslan er rétt gæti útspil Bjarna verið ein skrautfjöðrin til í hatt Íslands sem frumkvöðlamið- stöðvar. Þar má hins vegar ekki láta staðar numið. Næst mætti t.d. lækka kostnað við að stofna einkahluta- félög, og einfalda umstangið kringum fyrirtækjarekstur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.