Fréttablaðið - 17.03.2016, Síða 2
Veður
Hæg suðlæg átt og bjart veður, en
skýjað með köflum V-lands. Hiti 3 til
9 stig yfir daginn. Sjá Síðu 46
Afrakstur vetrarins á fjalirnar
DómSmál Mannréttindadómstóll
Evrópu hefur staðfest að dómur-
inn muni taka mál Ragnars H. Hall
og Gests Jónssonar gegn íslenska
ríkinu til umfjöllunar sem og mál
Styrmis Þórs Bragasonar gegn rík-
inu. Í lok nóvember 2013 staðfesti
dómurinn að mál Geirs H. Haarde,
fyrrverandi forsætisráðherra, yrði
tekið til meðferðar.
Ragnar H. Hall og Gestur Jónsson
voru árið 2013 dæmdir til réttar-
farssektar fyrir að segja sig frá verj-
endastörfum í Al-Thani málinu.
Styrmir Þór Bragason, fyrrverandi
forstjóri MP banka, var dæmdur í
eins árs fangelsi sama ár í Exeter-
málinu.
Ragnar H. Hall segist hafa fengið
bréf frá dómstólnum á mánudag.
„Við erum afskaplega sáttir við að
þetta mál fái efnislega meðferð,
þá meðferð sem við teljum að sé
eðlileg,“ segir hann.
Aðspurður segir Ragnar að þeir
Gestur hafi verið vongóðir um að
dómstóllinn myndi fjalla um mál
þeirra. „Við töldum að það hefði
augljóslega verið brotinn réttur á
okkur samkvæmt mannréttinda-
sáttmálanum. Við hefðum ekki
kært þetta nema af því að við
töldum okkur hafa góðar vonir um
að þetta fengi sína meðferð,“ segir
Ragnar.
Mannréttindadómstóll Evrópu
tók á árunum 2000 til 2015 ein-
ungis um þrjú prósent þeirra mála
sem kærð voru til dómsins til efnis-
legrar meðferðar.
„Það fer gríðarlegur fjöldi af
málum til dómstólsins og það eru
mjög öflugar síur sem sigta út þau
mál sem þeir telja að séu þess eðlis
að fjalla eigi um,“ segir Ragnar og
bætir við að þau mál gegn íslenska
ríkinu sem dómstóllinn hefur
ákveðið að taka til meðferðar hafi
yfirleitt falið í sér áfelli á hendur
ríkinu.
Dómstóllinn hefur kveðið upp
dóm í níu prósentum þeirra mála
sem höfðuð voru gegn íslenska
ríkinu á sama tímabili en í áttatíu
prósentum þeirra var íslenska ríkið
dæmt fyrir brot á Mannréttinda-
sáttmála Evrópu.
Í tuttugu prósentum tilfella hefur
íslenska ríkið samið við viðkom-
andi borgara um lyktir málsins.
thordis@frettabladid.is
Mál gegn ríkinu fyrir
mannréttindadómstól
Dómstóllinn mun taka mál Ragnars H. Hall og Gests Jónssonar til meðferðar
og einnig mál Styrmis Þórs Bragasonar. Kærendur í málunum fagna ákvörðun
dómstólsins. Einungis um þrjú prósent kærðra mála eru tekin til meðferðar.
Mannréttindadómstóllinn mun taka tvö mál gegn íslenska ríkinu til efnislegrar
meðferðar, m.a. mál Ragnars H. Hall og Gests Jónssonar. FRéttablaðið/PJetuR
Við erum afskap-
lega sáttir við að
þetta mál fái efnislega
meðferð, þá meðferð sem við
teljum að sé
eðlileg.
Ragnar H. Hall,
hæstaréttarlög-
maður
ForSetakoSningar Halla Tómas-
dóttir, frumkvöðull og fjárfestir,
ætlar að bjóða sig fram til forseta
Íslands. Samkvæmt heimildum
blaðsins verður boðað til blaða-
mannafundar um miðjan dag þar
sem ákvörðunin verður kynnt.
Í desemberbyrjun var stofnuð
síða á Facebook þar sem skorað
var á Höllu að bjóða sig fram. Hún
sagðist þá djúpt snortin, en ætlaði
að gefa sér tíma til að hugsa málið
og ræða það við sína nánustu áður
en hún segði af eða á með framboð.
Halla er gift Birni Skúlasyni við-
skiptafræðingi og saman eiga þau
tvö börn. Fram kemur á stuðnings-
síðu hennar að hún hafi komið að
uppbyggingu Háskólans í Reykja-
vík, leitt verkefnið Auður í krafti
kvenna, en einnig gegndi hún starfi
framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs
Íslands 2006 til 2007 áður en hún
lét þar af störfum til að stofna fjár-
festingarsjóðinn Auði Capital. Und-
anfarin misseri hefur Halla mest
starfað erlendis, meðal annars sem
stofnandi Sisters Capital.
Með framboði Höllu eru komnir
fram átta sem segjast hafa hug á
framboði, en það eru auk Höllu,
Vigfús Bjarni Albertsson, Þorgrímur
Þráinsson, Elísabet Jökulsdóttir,
Ástþór Magnússon, Sturla Jónsson,
Árni Björn Guðjónsson og Hildur
Þórðardóttir.
Önnur nöfn sem nefnd hafa verið
í tengslum við hugsanlegt framboð
eru Ólafur Jóhann Ólafsson, Andri
snær Magnason, Össur Skarphéð-
insson og Stefán Jón Hafstein. – óká
Halla býður
sig fram
Halla tómasdóttir, frumkvöðull og fjár-
festir. FRéttablaðið/SteFán
Stífar æfingar Þessir nemendur í Dansstúdíói World Class æfa nú af kappi fyrir árlega nemendasýningu dansskólans. Sýningin er að þessu sinni
byggð á sögunni af Aladdín og sett upp með ævintýralegu sniði. Nú með hækkandi sól munu börn og unglingar flykkjast á fjalirnar til að sýna
afrakstur vetrarstarfsins í tómstundum – hvort sem það eru ungir tónlistarmenn, dansarar, leikarar eða aðrir sviðslistamenn. FRéttablaðið/anton bRink
ViðSkipti Fimm af sjö einstaklingum
úr bankaráði Landsbankans munu
ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Þetta
kemur fram í yfirlýsingu frá banka-
ráðsmönnunum. Meðal þeirra sem
undirrita yfirlýsinguna eru formaður
og varaformaður bankaráðsins.
Bankaráðsmennirnir segja engar
aðrar hvatir en hagsmuni bankans
hafa legið að baki varðandi sölu Borg-
unar. Einnig lýsa þeir yfir stuðningi
við Steinþór Pálsson, bankastjóra, og
segja hann vera stefnufastan og öfl-
ugan stjórnanda.
Steinþór Pálsson sendi einnig frá
sér yfirlýsingu. Hann segir að stjórn
bankans verði með óbreyttum hætti
og að hann muni sem starfa áfram
með hagsmuni bankans að leiðar-
ljósi.
Bankaráðsmennirnir reikna með
því að skila af sér störfum á aðalfundi
bankans 14. apríl. – þv / sjá síðu 23
Fimm af sjö
segja af sér
1 7 . m a r S 2 0 1 6 F i m m t u D a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð