Fréttablaðið - 17.03.2016, Side 20

Fréttablaðið - 17.03.2016, Side 20
Algengt er að fasteignasalar fái eign til sölumeðferðar og fái greidd sölulaun fyrir vinnu sína en krefji svo kaupanda um þjónustu- og umsýslugjald. Dæmi eru um að gjaldsins sé hvergi getið nema í smáu letri í kauptilboði. Því getur það komið kaupanda á óvart að þurfa að reiða fram háa upphæð án þess að hafa vitað af gjaldinu. Gjaldið getur numið allt frá fjörutíu til níutíu þúsunda króna. Það kemur skýrt fram í fasteigna- kaupalögum að seljandi á að greiða kostnaðinn af vinnu fasteignasalans við sölu fasteignar. Fasteignasölur telja sig eiga rétt á þóknun frá kaupanda vegna skyldu þeirra til að gæta hagsmuna bæði seljanda og kaupanda. „Þetta snýr að margháttaðri þjónustu sem fasteignasali þarf að inna af hendi fyrir kaupandann og þá er líka Meniga er app sem heldur sjálfkrafa yfirlit yfir fjárútlát og neyslu. Hægt er að tengja alla reikninga og kort við Meniga. Sambúðarfólk getur sett sér sameiginleg markmið og fengið yfirsýn yfir fjármál heim- ilisins með því að tengja saman aðgang sinn. Þá er hægt að bera saman eigin neyslu við samfé- lagið, það er aðra sem nota appið. Hver færsla er flokkuð sjálfkrafa og birtist á tímalínu. Hægt er að fá Kjördæmi Meniga, sem eru endur- greiðslutilboð, sérsniðin að neyslu- hegðun notandans. Fáar umsagnir eru við appið og engin eftir síðustu uppfærslu. Engar persónuupplýsingar eru geymdar og Meniga ábyrgist með- ferð allra upplýsinga. sjálfkrafa yfirlit yfir heimilisbókhaldið Gott ráð til að þrífa matarslettur sem fest hafa í örbylgjuofninum er að setja skál með blöndu af sítrónusafa og vatni inn í ofninn. Láttu ofninn vera í gangi í nokkrar mínútur. Óhreinindin leysast upp á meðan og auðvelt verður að þurrka þau af á eftir með tusku sem auð- vitað á að vera hrein. Ef ekki tekst að fjarlægja öll óhreinindin strax þarf að láta skál- ina vera lengur í örbylgjuofninum. Til þess að koma í veg fyrir matar- slettur er skynsamlegt að hafa lok á ílátunum sem sett eru í ofninn. Hreinsaðu örbylgjuofninn með sítrónuvatni Fjöllistakonan Sunna Ben sá fram á að með því að styrkja landnáms- hænu, sem henni finnst gott málefni, myndi hún spara í leiðinni. „Ég greiði 20 þúsund krónur fyrir fóður landnámshænu í tvö ár og fæ í staðinn 20 egg á mánuði. Það finnst mér góð kjör,“ segir hún spurð um hagkvæm matarinnkaup. Hún kveðst jafnframt vera dugleg við það að kaupa í frystinn. Það geti oft borgað sig. „Ég kaupi gjarnan fryst grænmeti og á alltaf nóg af því. Ég bý ein og ef ég kaupi ferskt grænmeti vill það oft fara til spillis. En að öðru leyti finnst mér ég ekki vera nógu hagsýn.“ Sunna er hins vegar hagsýn þegar hún kaupir húsgögn. „Helmingur- inn er frá IKEA og helmingurinn er notuð húsgögn. Ég fíla skrýtna hluti og með því að kaupa húsgögn á nytjamörkuðum og á netinu get ég haldið uppi sérviskunni.“ Það er helst þegar kemur að fata- innkaupum sem Sunnu langar í dýra merkjavöru. „Ég reyni þá að halda í mér þangað til það koma útsölur. Ég vil heldur kaupa fínni föt ef ég get, heldur en að kaupa ódýrar flíkur sem hrynja í sundur.“ – ibs Það borgar sig að kaupa fóður fyrir landnámshænu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Neytandinn Sunna Ben fjöllistakona Styrkir landnámshænu og fær egg í staðinn App meniga Fasteignasölum óheimilt að rukka umsýslugjald án samnings Fasteignasölur krefja kaupendur um umsýslugjöld í auknum mæli. Semja þarf sérstaklega um slík gjöld. Dæmi eru um að umsýslugjalds sé hvergi getið nema í smáu letri í kauptilboði og kemur því kaupanda á óvart að þurfa að reiða fram háa upphæð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILhELm 40-90 þúsund krónur er algengt þjónustu- og umsýslugjald fasteignasala. Stóra málið er að það þarf að gera samning, það er mjög brýnt þannig að öllum sé ljóst hvað verið er að gera og um hvað er samið. Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala Ráð Heimilið ákaflega mikilvægt að hver og einn geri samning um það,“ segir Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala. Þegar fasteignasali tekur að sér að selja fasteign þá semur hann við seljandann. Ef hann hins vegar tekur að sér sérstök verkefni fyrir kaup- anda, svo sem þinglýsingu skjala og fleira, verður hann að semja um það sérstaklega. Þetta kemur fram í 9. gr. laga um sölu fasteigna og skipa sem tóku gildi í júlí 2015. Þetta felur í sér að fasteignasali getur ekki innheimt gjald frá kaupanda sem ekki hefur verið samið um. Hildur Ýr Viðarsdóttir, héraðs- dómslögmaður á Landslögum, segir að ákvæðið hafi verið í eldri lögum, en með lagabreytingu árið 2015 var skerpt á þessari reglu. „Þetta var þannig að það var of algengt að fasteignasalar rukkuðu þetta umsýslugjald án þess að hafa heim- ild fyrir því. Einhverjir höfðu þetta í smáa letrinu í kauptilboði, sem er í raun ósanngjarnt því kaupandi vill kaupa eign og hún er bara til sölu á tiltekinni fasteignasölu eða -sölum og hann getur ekki snúið sér annað,“ segir Hildur og bætir við að aldrei hafi verið vafi á því hvort heimild væri fyrir gjaldinu áður, heldur þurfa kaupendur að vera meðvit- aðir um gjaldið og að heimilt sé að innheimta það ef kaupandinn sam- þykkir. „Stóra málið er að það þarf að gera samning, það er mjög brýnt þann- ig að öllum sé ljóst hvað verið er að gera og um hvað er samið,“ segir Grétar en að sögn hans hefur Félag fasteignasala sent öllum félags- mönnum sínum bréf og áréttað þá skyldu að semja þurfi um gjöldin. thordis@frettabladid.is Ég greiði 20 þúsund krónur fyrir fóður landnámshænu í tvö ár og fæ í staðinn 20 egg á mánuði. Það finnst mér góð kjör. Sunna Ben fjöllistakona neytenduR 1 7 . m a r s 2 0 1 6 F i m m T u D a g u r20 F r é T T i r ∙ F r é T T a B L a ð i ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.