Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 23

Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 23
W.A. MOZART Óperan sem þú mátt ekki missa af! Síðasta sýning Laugardaginn 19. mars „Afrek“ „Sterk heildræn uppfærsla“ „Frábærlega valið í hlutverk“ HJ · Kastljósi #islenskaoperan H Ö N N U N : H G M · LJ Ó SM Y N D IR : J Ó Miðasala í síma 528 5050 og á harpa.is ✿ Starfsmannafjöldi viðskiptabanka og sparisjóða á Íslandi* 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 3.175 3.383 3.559 3.462 3.541 3.653 4.328 4.835 „Ég er ofboðslega undrandi,“ segir Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar, um ákvörðun Landsbankans um að hefja undirbúning að málaferlum vegna sölu bankans á 31,2 prósenta hlut í Borgun í nóvember 2014. Í til- kynningu í gær kom fram að Lands- bankinn hefði falið lögmönnum að undirbúa málsókn til þess að endur- heimta þá fjármuni sem bankinn fór á mis við í viðskiptunum. Bankinn seldi hlutinn í Borgun hópi fjárfesta og stjórnenda Borgunar á mun lægra verði en fyrirtækið er í dag metið á. „Ég sé engan grundvöll fyrir mál- sókn,“ segir Haukur. Steinþór Páls- son sagði við RÚV í byrjun febrúar að bankinn myndi leita réttar síns kæmi í ljós að upplýsingum hefði verið hald- ið frá Landsbankanum í söluferlinu. Þá hefur Landsbankinn einnig gefið út að bankinn hafi ekki verið upplýstur um að Borgun ætti rétt á greiðslum ef Visa Inc. nýtti sér valrétt til að kaupa Visa Europe. Visa Inc. nýtti valréttinn í nóvember og fær Borgun 6,5 milljarða greidda vegna þeirra viðskipta. Haukur hafnar því að stjórnendur Borgunar hafi leynt upplýsingum fyrir Landsbankanum í viðræðunum. Boðun málarekstursins kemur í kjölfar þess að Bankasýsla ríkisins hafnaði öllum skýringum Lands- bankans á því hvers vegna bankinn hefði ekki selt hlut sinn í Borgun í opnu útboði. Bankaráðinu var gefinn frestur til mánaðamóta til að grípa til aðgerða. Í gærkvöldi kom yfirlýsing frá fimm bankaráðsmönnum Lands- bankans um að þeir gefi ekki kost á sér til endurkjörs. Steinþór Pálsson gaf einnig út að stjórn bankans verði með óbreyttum hætti. – ih Forstjóri Borgunar undrast málsókn Landsbankans Haukur Oddsson, forstjóri Borgunar „ Á Íslandi hefur einnig orðið jöfn og þétt fækkun eftir hrun sem hefur ekki síður lotið að útibúakerfinu, en útibúum hefur fækkað um helming á síðustu tíu árum. Þó það hafi verið hagræðing í fjármálakerfinu, þá mun hún halda áfram. Fólk er alltaf að leita nýrra leiða til hagræðingar í rekstri. En við tókum stærri skerf af skellinum en aðrir á þessum tíma,“ segir hann. Guðjón bendir einnig á að lang- stærstur hluti þeirra starfsmanna sem misstu störf sín árið 2008 var sá sem tengdist fjárfestingarbanka- starfsemi. „Margir af þessum erlendu bönkum sem eru að tilkynna um uppsagnir núna eru stórir bankar með mikinn fókus á fjárfestingar- starfsemi. Hér á landi minnkaði sú starfsemi verulega í kjölfar efna- hagshrunsins. Nú þegar hert hefur að fjármálamörkuðum heimsins þá hafa þessir stóru bankar sem hafa verið með uppsafnaða þörf í smá tíma gripið til aðgerða sem voru tímabærar,“ segir Guðjón Rúnars- son. Barclays 132,3 þúsund 1,2 þúsund + Lloyds bank 45,9 þúsund 10,6 þúsund JP Morgan 235,7 þúsund 5 þúsund + Citigroup 239 þúsund 2 þúsund Bank of America 223 þúsund 10 þúsund + BNP Paribas 185 þúsund 1 þúsund Goldman Sachs 36,9 þúsund 0,25 þúsund ING 84,7 þúsund 2,7 þúsund *Heimild: FME Bankar á Íslandi tóku þetta mjög kröftuglega út í kjölfar hrunsins, enda voru þeir neyddir til að gera það. Á meðan bankar víða annars staðar héldu út lengur. Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármála- fyrirtækja f r é t t i r ∙ f r é t t A B L A ð i ð 23f i M M t U D A G U r 1 7 . M A r S 2 0 1 6

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.