Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2016, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 17.03.2016, Qupperneq 24
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is Umræðan undanfarna daga um hvar eigi að byggja þjóðarsjúkrahús er stórundarleg og úr takti við raunveruleikann. Framkvæmdir eru þegar hafnar á Landspítalalóðinni, þar megum við engan tíma missa; gefa heldur hressilega í ef eitthvað er. Mál númer eitt, tvö og þrjú er að koma allri þjónustu við bráðveika og bráðarannsóknar- þjónustu undir eitt þak, og bæta bráðavanda LSH við Hringbraut á sem fæstum árum. Ég hef sjálf þurft að leita á LSH nýlega vegna veikinda í fjölskyldunni og get vottað að þar er aðstaðan út í hött, bæði fyrir sjúklinga og starfsmenn. Húsa- kynni spítala á Indlandi sem ég heimsótti í vetur eru betur úr garði gerð en margt sem boðið er upp á á LSH. Þetta ástand er ekki samboðið okkur sem þjóð. Byggja fullkomið hátæknisjúkrahús En ábyrgð okkar stjórnmálamanna er meiri og nær lengra. Miðað við efnahagslega stöðu okkar þjóð- félags sem hefur líklega aldrei verið betri, áherslur almennings (sbr. undirskriftalista Kára um endur- reisn heilbrigðiskerfisins) og hækkandi aldurssam- setningu þá er mjög nauðsynleg að við Íslendingar förum að huga að því að byggja annað fullkomið hátæknisjúkrahús. Eins og dæmin sanna mun undirbúningur þess máls taka ár ef ekki áratug. Auðvitað byggjum við og endurreisum eins og hægt er á Landspítalalóðinni og reynum að gera það á sem allra skemmstum tíma, þar erum við að kljást við bráðavanda, en leggjum á sama tíma grunninn að framtíðinni í heilbrigðismálum á Íslandi. Þetta er algerlega tímabært og ekkert nema skynsemi fólgin í því að byggja duglega undir helstu velferðarstoð þessa þjóðfélags. Snúa af brautinni þar sem við erum annars flokks og koma okkur aftur í fremstu röð. Ekki samboðið okkur sem þjóð Elín Hirst alþingismaður Auðvitað byggjum við og endur- reisum eins og hægt er á Landspítala- lóðinni og reynum að gera það á sem allra skemmstum tíma. Hrægammakonan Fáir stjórnmálamenn vildu taka jafn harða afstöðu gegn kröfu- höfum föllnu bankanna og Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Sögusagnir bárust af því að Sigmundur vildi knýja gömlu bankana í þrot, þótt á endanum hafi nauða- samningar orðið niðurstaðan. Og stundum, á meðan málin voru enn óleyst, kallaði ráð- herrann kröfuhafana ónefnum eins og hrægamma. Hörð afstaða Sigmundar kemur dálítið á óvart núna í baksýnisspeglinum, þegar í ljós kemur að eiginkona hans var á meðal kröfuhafa. Það er spurning hvort Sigmundur hafi nýtt sér koddahjalið á kvöldin til að útskýra afstöðu sína fyrir frúnni. Karmað bítur fast Lög um kynjakvóta í stjórnum skráðra fyrirtækja hafa verið umdeild og jafnvel talin stangast á við stjórnarskrána. Samkvæmt lögunum er hluthöfum ekki frjálst að velja þá stjórn sem þeir helst kjósa heldur verður kynjaskipting að vera 60/40. Til- gangur lagasetningarinnar var að auka hlut kvenna í stjórnum félaga. En það má segja að karmað hafa bitið fast þegar fresta þurfti aðalfundi VÍS í gær vegna þess að einungis konur voru í framboði til stjórnar. Og tvær hæfar konur þurfa að víkja til að hleypa einhverjum körlum að. jonhakon@frettabladid.is Félag í eigu eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunn-laugssonar forsætisráðherra á fleiri hundruð milljónir og er skráð til heimilis á Bresku Jómfrúareyjunum. Um er að ræða 1,2 milljarða króna samkvæmt skattframtölum. Félagið lýsti alls kröfum upp á um hálfan milljarð króna í þrotabú íslensku bankanna og er því það sem kallast erlendur kröfuhafi. Eiginkona Sigmundar, Anna S. Pálsdóttir, greindi sjálf frá þessu á Facebook-síðu sinni á þriðjudag. Í pistlinum er það tekið fram að um sé að ræða fjár- muni sem eru arfur og hennar séreign í hjónabandinu. Hún spyr hvort ekki sé betra að beina orkunni í að tala um eitthvað sem skipti raunverulega máli. Það er hins vegar ýmislegt sem orkar tvímælis í þessu máli. Í fyrsta lagi voru í gær samþykktar siðareglur þing- manna. Þar segir í 8. grein: „Þingmenn skulu við störf sín forðast árekstra milli almannahagsmuna og fjárhagslegra hagsmuna þeirra eða annarra hagsmuna sem eru faglegir, persónulegir eða tengdir fjölskyldu þeirra, hvort sem þeir eru raunverulegir eða hugsanlegir.“ Ljóst er að störf Sig- mundar sem forsætisráðherra, þar sem hann hefur haft töluvert með uppgjör slitabúa bankanna að gera sem og reglusetningu gagnvart kröfuhöfum þeirra, myndi hafa fallið beint undir þessa grein. Eiginkona hans hefur beina fjárhagslega hagsmuni af því með hvaða hætti slitabúin munu gera upp við kröfuhafa sína. Í öðru lagi hefur Sigmundur í störfum sínum lagt ríka áherslu á að íslenska krónan sé sterkur og brúkanlegur gjaldmiðill. Hann sagði til að mynda að stuðningur við innlenda matvælaframleiðslu snérist um að spara gjaldeyri, þegar hann rökstuddi kosti nýja búvörusamn- ingsins. Þannig að á sama tíma og hann hvetur Íslendinga til að spara gjaldeyri og talar upp krónuna hefur nánasti aðstandandi hans ákveðið að hér á landi séu fjárfestingar- kostir innan hafta ekki boðlegir. Milljarða forði í gjaldeyri liggur þannig í fjárfestingarsjóðum erlendis. Það er ómögulegt að halda því fram að fjármál eigin- konu Sigmundar komi honum bara alls ekki við. Um er að ræða 1.200 milljónir. Í því samhengi má nefna að Landspítalinn fékk við lok fjárlagagerðar á síðasta ári nokkurn veginn nákvæmlega þá fjárhæð til að sinna bráðaþjónustu og viðhaldi. Ekki er um að ræða neina smáaura – þetta eru auðæfi. Þannig auðæfi að Sigmundur Davíð getur verið viss um að börn hans munu í raun aldrei þurfa að vinna handtak á ævi sinni nema þau vilji. Miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir á þessari stundu virðist ljóst að forsætisráðherrahjónin hafa ekki aðhafst neitt ólöglegt eða gegn settum reglum í fjármál- um sínum. Þvert á móti kom fram í fréttum gærdagsins að eignirnar hefðu verið gefnar upp í skattframtölum Önnu frá því hún eignaðist umrætt félag á árinu 2008. Það er hins vegar þannig með þetta mál eins og svo oft er með önnur að þrátt fyrir að hlutirnir séu löglegir er það hverjum og einum í sjálfsvald sett að ákveða hvort þeim finnist þeir siðlegir. Og hvort þeir raunverulega skipti máli. Hvað skiptir máli? Það er ómögulegt að halda því fram að fjármál eiginkonu Sigmundar komi honum bara alls ekki við. Um er að ræða 1.200 milljónir. 1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð SKOÐUN
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.