Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.03.2016, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 17.03.2016, Qupperneq 28
Fyrir Alþingi liggur lagafrumvarp sem lýtur að löggildingu leið­sagnar ferðamanna. Kveðið er á um að löggilding og starfsleyfi skuli veitt „hæfum leiðsögumönnum“ og hæfnin metin út frá „viðurkenndri námskrá“. Í frumvarpinu er „leiðsögn ferða­ manna“ ekki skilgreind né gerð að vernduðu starfi. Það skiptir þó máli að greint sé á milli leiðsagnar, farar­ stjórnar og hópstjórnar, enda um mjög mismunandi þætti ferðaþjón­ ustu að ræða. Það er þörf á því að skilgreina þessi hugtök til að koma megi böndum á starfsemi erlendra leiðsögumanna sem gera út frá öðrum löndum til ferða hér á landi. Það er óviðunandi að menntun og kunnátta innlendra leiðsögumanna sé sniðgengin með því að erlendum leiðsögumönnum sé ekki gert skylt að hafa innlendan leiðsögumann sér við hlið. Samkvæmt frumvarpinu er leyfis­ veiting háð því að þeir sem leyfið fá hafi lokið „leiðsögunámi hérlendis sem uppfyllir kröfur námskrár“ eða hafi haft „leiðsögu ferðamanna hér­ lendis að aðalstarfi í samanlagt þrjú ár, enda sýni þeir með hæfnisprófi að þeir búi yfir þeirri þekkingu og færni sem þarf til að ljúka leiðsögunámi“. Þá er leyfi háð því sem stendur í 2. gr. laga nr. 26/2010, sem varða starfsemi erlendra þegna hér á landi. Frumvarpið er því um leið að löggilda leiðsögn erlendra leiðsögumanna, hafi þeir á annað borð tilskilin leyfi frá sínu heimalandi. Fimm skólar bjóða upp á leið­ sögunám hér á landi: Leiðsögu­ skóli Íslands, sem heyrir undir MK, Símenntun á Akureyri, sem kennir samkvæmt samkomulagi við Leið­ söguskólann/MK, Endurmenntun Háskóla Íslands, Ferðamálaskóli Íslands og loks Keilir. Engin námskrá í gildi Staðan á leiðsögunámi á Íslandi er sú, samkvæmt upplýsingum frá ráðu­ neyti menntamála, að engin námskrá er í gildi sem stendur; árið 2011 var námskrá um framhaldsskóla numin úr gildi og hverri námsbraut gert að senda nýja námskrá til staðfestingar ráðuneytis. Leiðsöguskóli Íslands hefur enn ekki sent tillögu að nám­ skrá til ráðuneytis og er hún því hvorki til né í ferli. EHÍ kennir samkvæmt náms­ lýsingu sem fagráð leiðsögunáms hefur umsjá yfir; fagráðið hefur enga stjórnsýslustöðu og ákvarðanir þess gilda ekki sem námskrá í lagalegum skilningi. Ferðamálaskóli Íslands og Keilir kenna samkvæmt eigin nám­ skrám en ekki samkvæmt því sem nefnt hefur verið „viðurkennd nám­ skrá“ – sem er varla nema von fyrst engin viðurkennd námskrá um leið­ sögunám er yfirhöfuð til. Til er Evrópustaðall um leiðsögu­ nám (ÍST EN 15565:2008), samþykkt­ ur af Íslands hálfu, en ekki komið til framkvæmdar. Ástæða er til að þeir skólar, sem hér eru nefndir, könnuðu hvort þeirra námsframboð standist ekki kröfur Evrópustaðalsins, bættu úr þar sem þarf, og skilgreiningar­ vandi á því hvað er gild leiðsögu­ menntun væri þar með úr sögunni. Félag leiðsögumanna hefur um árabil ekki viðurkennt sem fagfélags­ menn aðra en þá sem lokið hafa námi frá Leiðsöguskóla Íslands/MK eða EHÍ. Ekki er ljóst á hvaða forsendum sú viðurkenning er veitt þar sem ekk­ ert nám í leiðsögn telst viðurkennt eða löggilt frá 2011. Í lögum félags­ ins segir um inngöngu í fagfélagið: „Umsókn skal fylgja staðfesting leið­ söguprófs frá skóla, sem mennta­ og menningarmálaráðuneytið viður­ kennir og kennir samkvæmt gildandi námskrá ráðuneytisins.“ Þetta þýðir að enginn sem útskrif­ ast hefur úr leiðsögunámi frá EHÍ er tækur í fagfélagið og ekki heldur neinn þeirra sem hafa útskrifast frá Leiðsöguskóla Íslands/MK eftir 2011 né öðrum skólum. Hér er komið að grundvallar­ spurningum fyrir starfandi leiðsögu­ menn: Hver hefur stjórnsýsluvaldið að ákveða hvað er gilt leiðsögunám á Íslandi og út frá hvaða forsendum? Til er Starfsgreinaráð ferðamála­ greina sem hefur yfirsýn yfir mennt­ unarþarfir og menntunarmál innan ferðaþjónustunnar. Þar er sá far­ vegur sem svona mál ættu að vinnast gegnum. Framundan er annasamt sumar. Félag leiðsögumanna þarf að vera til­ búið til að standa með sínu fólki og þjónusta vel. Þá verða forsendur og skilgreiningar á störfum félagsmanna að vera óumdeildar og starfsrammi félagsins skýr. Námskráin (sem ekki er til) og frumvarpið Gott skref til að bæta vinnu­brögð á Alþingi, auka sjálf­stæði þess og eftirlitshlutverk, er að þingmenn víki af þingi verði þeir ráðherrar. Þannig yrði þrískipt­ ing valds miklu skýrari, aðhald þings með ríkisstjórn betra og dregið yrði úr ráðherraræði. Alþingi yrði losað undan ofurvaldi ríkisstjórnar. Þjóðfundurinn 2010, stjórnlaga­ nefnd og síðar stjórnlagaráð voru þessarar skoðunar. Í 89. grein að nýrri stjórnarskrá er kveðið á um að verði alþingismaður ráðherra skal viðkomandi víkja af þingi og vara­ maður taka sæti hans. Verði Sam­ fylkingin hluti af nýrri ríkisstjórn á þetta að vera hluti af verkefnalista hennar. Þingmenn og ráðherrar Magnús Orri Schram frambjóðandi til formanns Sam- fylkingarinnar Á síðustu vikum hefur tillögu að sameiningu Þjóðminjasafns og Minjastofnunar Íslands verið varpað inn í umræðuna, í bókstaflegum skilningi. Málið ber að með slíku offorsi að undarlegt verður að teljast. Lítil sem engin umræða hafði farið fram áður en málið var afgreitt á einungis þremur fundum stýrihóps ráðherra. Fyrir utan almenna óánægju með tillög­ urnar og lagafrumvarpið, gefur því augaleið að eitthvað meira en lítið er bogið við aðdraganda málsins, svo ekki sé talað um hvernig standa á að sameiningunni og skipan í embætti forstöðumanns. Uppgefnar ástæður sameiningar eru hagræðing og nauðsyn þess að koma skikki á minjamál og minja­ vörslu í landinu. Hvort tveggja er mik­ ilvægt þótt sundrung og samþjöppun valds séu því miður líklegri afleiðingar breytinganna. Auk þess er dapurlegt að sjá umræðu um nauðsynlega festu í málaflokknum snúast í gagnrýni á þá sem innan hans starfa, en það er greinilegt af umræðu síðustu daga að fornleifafræðingum finnst að þeim vegið. Verkferla og verklag má lengi bæta en það er ekki þar sem skórinn kreppir mest. Það sem raunveru­ lega þarf að koma skikki á er hvernig staðið er að fjárveitingu til fornleifa­ rannsókna í landinu. Aðför að rannsóknum Einna alvarlegast í þessum tillögum er þó sú aðför að rannsóknum á sviði menningararfs, í breiðum skilningi, sem þær hafa í för með sér. Fyrir stofnun Fornleifaverndar ríkisins árið 2001 voru bæði stjórnsýsla og rannsóknastarf á höndum Þjóð­ minjasafns Íslands. Með tilkomu Fornleifaverndar var greint á milli þessara þátta. Með síðustu laga­ breytingum árið 2013, þegar Forn­ leifavernd varð að Minjastofnun Íslands, varð Þjóðminjasafn Íslands auk þess að háskólastofnun, en sam­ starfssamningur safnsins og HÍ var einmitt endurnýjaður á dögunum. Þessi þróun hefur verið til góðs og þótt mikilvægt sé að stuðla að sem mestu og bestu samstarfi á milli þess­ ara sviða (stjórnsýslu og rannsókna) er ekki síður mikilvægt að halda þeim aðgreindum. Skýr stefnumótun í minjavernd og rannsóknum eins og lögð er til í fyrir­ liggjandi frumvarpi er mikilvæg. Í greinargerð með frumvarpinu kemur hins vegar fram að fyrirmynd þess sé m.a. sótt til Noregs. Það verður að teljast undarlegt í ljósi þess að norska kerfið byggir einmitt á aðgreiningu stjórnsýslu og rannsókna – en þeim mun skýrari og öflugri samvinnu á milli sviðanna. Þjóðminjasafnið er mikilvæg rann­ sóknastofnun á sviði fornleifarann­ sókna. Verði samruni að veruleika er hætt við að dagar Þjóðminjasafns sem rannsóknastofnunar séu taldir – allavega að trúverðugleiki þess sem slíkrar bíði verulegan hnekki. Það væri mikið ógæfuspor. Að öðrum kosti verður ný Þjóðminjastofnun handhafi óeðlilegs vísindalegs for­ ræðis, sem á sér ekki fyrirmynd í Noregi. Þau áform að færa m.a. mál­ efni friðlýsingar beint til ráðuneytis, eða forsætisráðherra, undirstrikar þá óheppilegu forræðishyggju sem í stefnir. Forræðishyggja og samþjöppun Það er erfitt að slíta tillögur um sam­ einingu Þjóðminjasafns og Minja­ stofnunar úr samhengi við það hringl með málaflokkinn sem á undan er gengið. Þar má nefna tilflutning málaflokksins frá ráðuneyti mennta­ og menningarmála til forsætisráðu­ neytis (sem er fremur undantekning á Vesturlöndum), duttlungakenndar fjárveitingar forsætisráðherra til verkefna án auglýsinga, og ráðherra­ væðingu málefna um verndarsvæði í byggð. Ekki er laust við að sæki að manni uggur – hvað er eiginlega í gangi? Þjóðarminjar og menningar­ arfur eru hápólitísk og vandmeð­ farin fyrirbæri – það hefur sagan sýnt okkur. Þannig er það alltaf, en ekki síst í fjölmenningarsamfélagi samtímans. Menningararfur má ekki verða verk­ færi stjórnmála. Það má ekki hagræða honum þannig. Sú forræðishyggja og samþjöppun valds sem virðist liggja að baki sameiningartillögum er aðför að sjálfstæði rannsókna og sífelldri endurskoðun á því sem við hömpum sem þjóðararfi okkar. Samvinna er lausnin, ekki sam­ eining. Hagræðing menningararfs? Í greinargerð með frumvarp- inu kemur hins vegar fram að fyrirmynd þess sé m.a. sótt til Noregs. Það verður að teljast undarlegt í ljósi þess að norska kerfið byggir einmitt á aðgreiningu stjórn- sýslu og rannsókna – en þeim mun skýrari og öflugri samvinnu á milli sviðanna. Þóra Pétursdóttir doktor í fornleifafræði við UiT Norges Arktiske Universitet Framundan er annasamt sumar. Félag leiðsögumanna þarf að vera tilbúið til að standa með sínu fólki og þjónusta vel. Jakob S. Jónsson leiðsögumaður Koltvísýringur í andrúmsloft­inu er að aukast, mikið til vegna útblásturs frá bruna á jarðefnaeldsneyti. En hvað erum við að gera í málunum? Nýtum við alla okkar krafta til að draga úr losun? Í samgöngunum notumst við nánast alfarið við jarðefnaelds­ neyti. Fjölmargir möguleikar eru í stöðunni til þess að draga úr losun frá samgöngum, sérstaklega vegna notkunar einkabíla innan borgarinnar. Af hverju gerum við einkabílnum svona hátt undir höfði þegar við vitum að það er ekki framtíðin? Það er hægt að gera miklu betur til þess að það verði jafn auðvelt að ganga og hjóla eins og að keyra bíl í borginni. Í dag er bíllinn í fyrirrúmi alls staðar og tekur nánast allt pláss sem ætlað er undir samgöngur. Gangandi og hjólandi vegfarendur þurfa oft bíða lengi eftir að kom­ ast yfir á gatnamótum, fara langar krókaleiðir og sums staðar er bara alls engin almennileg aðstaða. Þessi séraðstaða fyrir einkabílinn endurspeglar ekki umhverfis­ og heilsufars kostnaðinn sem á honum hvílir. Í Noregi er oft vísað til þess að tappinn í umferðinni í dag sé tappinn í heilbrigðiskerfinu á morgun. Það er nokkuð til í því. Til þess að draga úr losun á gróðurhúsaloftegundum þurfum við framsæknar aðgerðir. Aðgerðir sem geta haft fjölmargar jákvæðar afleiðingar í för með sér. Það þarf að hvetja fólk til að ganga og hjóla frekar en að letja fólk til þess. Gamal dags fyrirmyndir í bæjar­ skipulagi þurfa að víkja fyrir fram­ sæknu skipulagi sem gerir ráð fyrir því að einkabíllinn verði ekki skil­ greindur sem aðalfarkosturinn. Í Evrópu er víða verið að gera stórtækar breytingar á reglu­ gerðum um skipulagsmál. Mikið er byrjað að tala um svokallaðar „snjallborgir“. Snjallborg má skil­ greina sem borg þar sem öll orku­ notkun er í lágmarki, framleiðsla á endurnýtanlegri orku í hámarki og almenningssamgöngur og aðstaða fyrir hjólreiðamenn og gangandi vegfarendur í fyrirrúmi. Mark­ vissar aðgerðir hafa verið gerðar bæði í stærri og minni bæjum, eins og til dæmis Þrándheimi í Noregi. Þar hefur tekist að draga úr losun frá samgöngum um tæplega 10% á örfáum árum. Þetta er gert með því að byggja markvisst upp hjóla­ stíga, göngustíga og almennings­ samgöngur. En einnig er þetta gert með „pisk og gulrot“ eða refsingu og umbun. Þeir fá umbun sem velja hreinni valkosti í samgöngum og þeim gert erfiðara um vik sem velja að fara á einkabílnum í vinnuna. Með þessum aðgerðum skapast raun­ hæfur valgmöguleiki við einka­ bílinn. Sjúkdómseinkenni jarðar vegna loftslagsbreytinga eru orðin það alvarleg að við verðum að gera betur og vera snjöll á öllum sviðum, bæði fyrir umhverfið og heilsuna. Snjallborg? Gamaldags fyrirmyndir í bæjarskipulagi þurfa að víkja fyrir framsæknu skipu- lagi sem gerir ráð fyrir því að einkabíllinn verði ekki skilgreindur sem aðalfar- kosturinn. Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir verkfræðingur 1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r28 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.