Fréttablaðið - 17.03.2016, Síða 44
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Árni Guðmundsson
fyrrverandi skólastjóri
Íþróttakennaraskóla Íslands,
Laugarvatni,
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ,
lést mánudaginn 7. mars.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn
22. mars kl. 13.00.
Hjördís Þórðardóttir
Árni Árnason Dóra G. Wild
Árni Haukur Árnason, Agnes Wild, Egill K. Wild
Elsku besti pabbi okkar, afi og vinur,
Tadeusz Jón Baran
Gvendargeisla 28,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu.
Jarðað verður 21. mars kl. 13.00
í Vídalínskirkju í Garðabæ.
Margrét Solvang Finn Rune Solvang
Thomas André, Marius Réne og Frida Martine
Brynjar Theodór Baran
Ellen Marta Baran Atli Fannar Bjarnason
Pawel Lewicki Agnieska Poslednik
Marek Wolanczyk Heiða Ásgeirsdóttir
Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Magnús Sverrrisson
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
Dóra Guðbjörnsdóttir
Háaleitisbraut 22,
lést 13. mars
Útförin verður auglýst síðar.
Jóna Njálsdóttir
Einar Biering Ágústsson
Ágúst Valur Einarsson Dóra Esther Einarsdóttir
Erla Björk Biering Njáll Örvar Einarsson
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
Ástu Þorvarðardóttur
Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða í
Vestmannaeyjum fyrir einstaka alúð og umönnun.
Guðrún Linda Þorvaldsdóttir
Valgerður Þorvaldsdóttir Ola K. Naa
Jóhanna Erla Þorvaldsdóttir
Hannes Þorvaldsson Anna Magdalena Sívertsen
Björk Þorvaldsdóttir Hjalti Erdmann Sveinsson
Guðrún Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Helga
Kristjánsdóttir
frá Ártúni við Hofsós,
lést miðvikudaginn 9. mars 2016.
Útförin fer fram frá Hofsósskirkju
laugardaginn 19. mars kl. 15. Blóm og kransar afþakkaðir,
en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð
Rakelar Pálmadóttur við Grunnskólann á Hofsósi,
reikningsnr. 0310-13-703015, kt. 561179-0189, og
Minningarsjóð Svandísar Þulu Ásgeirsdóttur, reikningsnr.
0150-15-380128, kt. 421208-0180.
Kristján Björn Snorrason Þóra Þrastardóttir
Guðný Snorradóttir Árni Sörensen
Anna Jóna Snorradóttir Jón Magnús Magnússon
Kristín Snorradóttir Þorvaldur E. Þorvaldsson
Helga S. Snorradóttir Jón Hallfreð Engilbertsson
Þórunn Snorradóttir Jón Ágúst Björnsson
ömmubörn og langömmubörn.
Bróðir okkar,
Ragnar Haraldsson
sjómaður,
Álfheimum 36,
lést á Hrafnistu í Reykjavík 11. mars.
Útför fer fram frá Langholtskirkju
21. mars kl. 13.00.
Systkini hins látna
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Helgi E. Kristjánsson
Miðtúni 16, Selfossi,
lést 8. mars. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 21. mars
kl. 13.00.
Óðinn Burkni Helgason Rhiannon Mary Helgason
Sylvía Rós Helgadóttir Friðjón Guðmundsson
Sunneva Ösp Helgadóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Bjarni Aðalsteinsson
Bólstaðarhlíð 62,
fyrrum skólastjóri
að Reykjum í Hrútafirði,
andaðist á líknardeild Landspítalans 13. mars sl. Útförin
fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 22. mars kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands.
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðlaug Bjarnadóttir
Alda Bjarnadóttir Einar Sigtryggsson
Steinunn Kristín Bjarnadóttir Aðalsteinn Þór Sigurðsson
Eyrún Jenný Bjarnadóttir Kristján Pétur Hilmarsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, dóttir og systir,
Lilja Kúld
Huldubraut 5, Kópavogi,
lést í faðmi fjölskyldu sinnar á
Landspítalanum við Hringbraut
þriðjudaginn 8. mars. Útförin fer fram frá
Kópavogskirkju föstudaginn 18. mars kl. 13.
Jóhann Hafnfjörð Rafnsson
Kristína Aðalsteinsdóttir
Björn Halldór Helgason
Guðrún Lilja Skúladóttir
Guðný Kúld
Þorsteinn Kúld
Hjartkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Sturla Þórðarson
Sunnubraut 19, Búðardal,
lést föstudaginn 11. mars.
Útför hans fer fram frá Hjarðarholts-
kirkju laugardaginn 26. mars kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Breiðfirðinga.
Þrúður Kristjánsdóttir
Kristján Sturluson Sigrún M. Arnarsdóttir
Steinunn Sturludóttir Sveinn Ólafsson
Friðrik G. Sturluson Silja Rún Gunnlaugsdóttir
Hanna Dóra Sturludóttir Lothar Odinius
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Þuríður Árnadóttir
kennari,
lést á hjúkrunarheimilinu
Droplaugarstöðum föstudaginn
11. mars. Útförin verður gerð frá
Seljakirkju föstudaginn 18. mars kl. 13.00.
Júlíus Jón Daníelsson
Árni Daníel Júlíusson Birna Gunnarsdóttir
Anna Guðrún Júlíusdóttir Viðar Hreinsson
Monica Haug
barnabörn og barnabarnabörn.
„Ég er bara alveg hissa að það skuli ekki
hafa verið fyrr, mér hefur fundist svo
lengi að ég væri alveg að verða fertug,“
segir Guðrún Eva Mínervudóttir rit-
höfundur spurð hvernig henni finnist
að eiga fertugsafmæli í dag. „Þetta eru
ágætis tímamót.“
Guðrún Eva býr í Hveragerði með eig-
inmanninum Marteini Þórssyni, hand-
ritshöfundi og leikstjóra, og fjögurra ára
dóttur þeirra, Mínervu. Hún er ánægð
fyrir austan fjall. „Það er fínt að vera
aðeins úti á landi,“ segir hún og kveðst
hafa ágætan samanburð.
„Alltaf að skrifa? Já, það er eina alvöru
vinnan mín, sú eina sem ég fæ borgað
fyrir,“ segir Guðrún Eva sem gaf út sína
fyrstu bók árið 1998 þegar hún var 22
ára. Það var smásagnasafnið Á meðan
hann horfir á þig ertu María mey. Hún
lofar ekki bók á þessu ári en segir það
góðan möguleika.
Annað kvöld ætlar Guðrún Eva að
halda upp á afmælið í Petersen svítunni
á efri hæð Gamla bíós. „Þangað eru allir
velkomnir sem þykir vænt um mig, þó
þeim hafi ekki verið boðið,“ segir hún
og tekur fram að engar keyptar veitingar
verði í boði, bara tilboð á barnum. „Ég
hef afþakkað gjafir svo ég þarf ekki að
vita hversu margir koma, en það er opið
hús og skífuþeytir á staðnum. Vonandi
verður stuð.“ gun@frettabladid.is
Þetta eru ágætis tímamót
Guðrún Eva Mínervudóttir rithöfundur býst við stuði annað kvöld í tilefni afmælisins.
Guðrún Eva ætlar að halda upp á afmælið í miðborginni, þó hún kunni því vel að búa utan
skarkalans. Fréttablaðið/Ernir
1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r44 T í m a m ó T ∙ F r É T T a B L a ð I ð
tímamót