Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 48
Þetta er bara fínt hingað til og enskur morgunverður gerir líka allt betra,“ segir hinn heims-
frægi portrettljósmyndari Gavin
Evans glaðlega um komu sína til
landsins. Á morgun verður opnuð í
Esju, nýjum sýningarsal Hörpu, sýn-
ingin Bowie – The Sess ion. Sýningin
var opnuð 19. febrúar í The Institute
í Holzmarkt í Berlín en verður opnuð
nánast samtímis í A-Galerie Paris
og Hörpu. The Session mun ferðast
víða á árinu en myndlistarmaður-
inn Ingvar Björn sem hefur starfað
með Gavin í Berlín mun einnig sýna
afrakstur þess samstarfs.
Uppistaða sýningarinnar er
myndir úr þekktri myndaröð af
David Bowie en af öllum myndum
sem teknar voru af Bowie var port-
rettmyndin eftir Evans í algjöru
uppáhaldi. Enda er hún áhrifamikil
og persónuleg birtingarmynd af
manninum á bak við goðsögnina
sem kemur kannski ekki á óvart
þar sem Evans hefur fengist við að
mynda fólk frá unga aldri.
Réttarmeinafræði, rokk og ról!
„Ég er fæddur og uppalinn á Norð-
austur-Englandi þar sem ég kynntist
ljósmyndum strax þegar ég var strák-
ur. Nágranni okkar var fyrrverandi
réttarmeinaljósmyndari fyrir lög-
regluna á Bermúda og ég komst í að
skoða möppuna hans og heillaðist
gjörsamlega. Þarna voru myndir af
líkum og ótrúlegu blóðbaði sem ég
átti auðvitað ekki að sjá. Þannig að
ég hafði komist í þessa möppu, sem
ég átti auðvitað ekkert með að vera
að skoða, og hann tók hana af mér
um leið og hann áttaði sig á þessu en
það var of seint. Þarna var ég tólf ára
og þetta var hugljómum fyrir mér.
Þarna uppgötvaði ég að myndavélin
væri miðill sem ég gæti beint
að hverju sem er og að
ljósmyndum væru
engin takmörk sett.
Þegar ég var
fimmtán ára var
ég svo farinn að
nota myndavélina
til þess að komast
inn á tónleika og
til að komast bak-
sviðs á tónleikum
og mynda tónlistar-
mennina. Fyrir mér
snerist áhuginn alltaf
um að mynda fólk. Það
var alltaf markmiðið
og ég hafði aldrei áhuga
á því að mynda líflausa
hluti eða landslag. Ætli
það sé ekki vegna
þess að þaðan
sem ég kem
þá er landslagið eins og í upphafs-
atriðinu í Blade Runner, afar líflaust
og óspennandi, enda er ég frá sama
stað og Ridley Scott. En ég hef s.s.
alltaf verið heillaður af fólki og þessi
áhugi og myndavélin voru í raun
vegabréfið mitt frá Norðaustur-Eng-
landi og út í heim.
Þetta er bara fólk
Gavin Evans hefur á ferli sínum
myndað ótal stjörnur á borð við
Julliette Binoche, Morrissey,
Nick Cave, Iggy Pop, Björk,
Terry Gilliam og þannig
mætti áfram telja og
myndir hans þykja
sérstaklega bein-
skeyttar og draga
fram persónuleika
viðkomandi. „Málið
er að ég byrja að
mynda svo ungur
og þá var ég gjör-
samlega ómeð-
vitaður um að það
væru einhverjar reglur. Ég var til
að mynda algjörlega ómeðvitaður
um alla fagurfræði og annað slíkt
og það mótaði afstöðu mína. Ég er
svo mjög ungur farinn að mynda
þekktar rokkstjörnur, hetjurnar
mínar, en fljótlega geri ég mér grein
fyrir því að þetta er bara fólk. Mann-
eskjur. Það sem heillaði mig var
því að ná að mynda þetta fólk sem
manneskjur fremur en fræga fólkið
og það hefur alltaf verið grunnurinn
að öllum mínum verkum. Ef maður
setur fólk ekki á stall heldur leitast
við að mynda það eins og það er þá
fær maður beinskeyttar myndir af
fólki eins og það er í raun og veru.
Þannig að fyrir mér snýst þetta í raun
meira um sálfræði en fagurfræði, það
er mín nálgun.“
Ég bara mynda
Stjörnurnar sem Evans hefur myndað
í gegnum árin þurfa eflaust að gæta
að ímynd sinni gagnvart almenningi
og því þarf að vera til staðar traust á
milli þeirra og ljósmyndarans. „Málið
er að fólkið kemur til mín í stúdíóið
í því felst ákveðið öryggi. Það er ekki
eins og ég sé á ströndinni að smella
myndum af fólki þar sem það er
berskjaldað. Þegar fólk kemur til
mín veit það að það er ekki að fara
fá glamour-myndir heldur eitthvað
annað og öðruvísi en samt myndir af
sér. Þannig að traustið er í sjálfu sér
til staðar þegar fólk kemur á staðinn
og í rauninni hef ég aldrei pælt mikið
í þessu, ég bara mynda fólk. Með staf-
rænu tækninni get ég líka sýnt fólki
hvað ég er að gera í miðju ferlinu og
ég hika ekki við að gera það því þá
er stundum hægt að ýta því aðeins
lengra, komast nær því og fá betri
mynd.
Barrie og Gary
Evans segir að það skipti máli að
láta reyna á mörk þess hvað fólk
er tilbúið að gera og hvað mynda-
vélin getur gert. Hann segir að
sumir þeirra sem hafi verið fyrir
framan myndavélina hjá honum
séu óneitan lega eftirminnilegri en
aðrir. „Sá allra eftir minnilegasti er
gaur sem heitir Barrie og fólk getur
skoðað myndirnar mínar og kynnt
sér sögu hans á vefsvæðinu mínu
(gavinevans.com). Þetta er náungi
sem ég hitti á götum Glasgow og við
eyddum saman mörgum mánuðum
í stúdíóinu og það er heilmikil saga á
bak við það. Hann er mér ógleyman-
legur og hafði mikil áhrif á mig.
En af fræga fólkinu þá verð ég að
segja Gary Oldman en ég varði degi
með honum og hann er stórkostleg-
asta myndefni sem ég hef hitt. Hann
er líka fyndnasti maður sem ég hef
nokkurn tíma hitt og það var algjör
opinberun því hann er alltaf að leika
einhverja rosalega harðhausa.
En svo veit maður aldrei hvað ger-
ist næst. Núna er ég að fara að ferðast
um heiminn með þessa sýningu og
myndavélin er aldrei langt undan.
Hún er kannski ekki utan á mér en
alltaf innan seilingar.“
RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS
HVAÐ FÆR STJÖRNURNAR
TIL AÐ SKÍNA SKÆRAR?
Myndir af morðum
Gavin Evans ljósmyndari fyrir framan nokkur verka sinna á sýningunni Bowie – The Session sem verður opnuð í Hörpu á
morgun. FRÉTTaBlaðið/STEFán
Ein þekktasta mynd
Gavins Evans af
poppgoðinu David
Bowie.
mynD/Gavin EvanS
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
á Bermúda
kveiktu þessa
ástríðu
Á morgun verður opnuð í Hörpu sýningin
Bowie – The Session eftir portrettljós-
myndarann Gavin Evans sem hefur
myndað ótal stjörnur á gifturíkum ferli.
1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r48 m e n n I n G ∙ F r É T T a B L a ð I ð
menning