Fréttablaðið - 17.03.2016, Page 72
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
facebook.com/noisirius
Nú mega páskarnir koma því að Nóa páskaeggin eru tilbúin.
Og vitið þið bara hvað? Við vönduðum okkur alveg sérstaklega
í ár, því við vitum að þið viljið hafa þau fullkomin. Bæði
gómsæta súkkulaðiskelina sem bráðnar í munni og allt
góðgætið sem leynist þar fyrir innan.
Ekki ryðjast — það er nóg til fyrir alla.
Þau eru tilbúin
N Ó I SÍ R Í U
S
Sjálfbærni og samfélagsábyrgð
Sukkulaðið okkar inniheldur kakó sem framleitt
er á sjálfbæran og ábyrgan hátt. Það stuðlar að
betri lífsskilyrðum og aðbúnaði starfsfólks.
1 7 . m a r s 2 0 1 6 F I m m T U D a G U r72 L í F I ð ∙ F r É T T a B L a ð I ð
Ég hef aldrei verið í sjónvarpi svo það má segja að hafi sannarlega hoppað út í djúpu laugina þarna,“
segir Valgerður Árnadóttir, sem birtist
nú á skjáum fiskveiðiáhugamanna um
heim allan. Hún tók sér stöðu dómara
í þáttum BBC-sjónvarpsstöðvarinnar,
Earth’s Wildest Waters: The Big Fish.
„Þetta er átta þátta sería þar sem átta
veiðimenn taka þátt og í hverjum þætti
dettur einn út. Fyrsti þátturinn í þess-
ari seríu var tekinn upp hér á Íslandi, á
Þingvöllum og á Ísafirði,“ útskýrir Val-
gerður. Voru það sjónvarpsmennirnir
Ben Fogle og Matt Hayes sem ásamt
fylgdarliði heimsóttu landið í fyrra,
í þeim tilgangi að leggja þrautir fyrir
keppendur, og dómari hvers lands,
sem heimsótt var, sá um að vega og
meta færni viðkomandi.
Valgerður segir föður sinn, Árna
Baldursson, eiganda Stangveiðfélags-
ins Lax-Á, upphaflega hafa verið hugs-
aðan í verkið en það hafi hins vegar
ekki gengið upp og hún því skellt sér
á Skype þar sem viðtalið við framleið-
anda fór fram. Þar hreppti hún í stuttu
máli hnossið. „Það var mjög gaman að
fá að taka þátt í þessu, sér í lagi í ljósi
þess að ég var eina konan sem sinnti
hlutverki dómara í þessari seríu. Mér
finnst gott að vera fyrirmynd bæði
kvenna og ungu kynslóðarinnar.“
Besti sjónvarpstíminn
Þættirnir hafa þegar verið sýndir í Bret-
landi, Ástralíu og á Nýja-Sjálandi, en
verða sýndir víða um Evrópu á næst-
unni, segir Valgerður. „Þetta er hálf
fyndið, ég hafði ekki gert neitt svona
áður. Svo eftir viku af upptökum segir
framleiðandinn við mig: Vá, þú ert
greinilega reynslubolti í þessu, ertu
bara ekkert stressuð? og ég gat ekki
annað en hlegið og spurt til baka; Nei
í rauninni ekki. Hvað gæti klikkað?
Tökum við ekki bara aftur ef með
þarf? Hún játti því en gat ekki annað
en spurt mig hvað ég héldi að margir
myndu horfa á þetta. Ég sagðist halda
kannski svona hundrað þúsund manns
í besta falli. Hún hló, enda kom það á
daginn að um tvær milljónir horfðu
á þáttinn, enda á „primetime“ í sjón-
varpinu úti í Bretlandi.“
Valgerður segist sjálf hafa mikinn
áhuga á að vinna meira með vitneskju
sína um fiskveiðar í sjónvarpi enda
liðið vel fyrir framan vélarnar. Hún
viðurkennir jafnframt að sannarlega
sé ákveðið forskot fyrir hana að vera
kona í þessum karllæga bransa, hún
fái fyrr athygli í sportinu. „En það er
líka dálítð erfitt. Að vera kona í þessum
bransa gerir það að verkum að manni
finnst maður oft þurfa að sanna sig
meira. Vera eitthvað meira en „pretty
face“ og allt þetta.“ Þá segist hún alloft
lenda í að veiðimenn sem komi í kof-
ana hér heima, biðji hana um að hella
upp á kaffi eða annað slíkt, sem hún og
gerir. „Svo verða þeir eins og beygluð
vaskaföt þegar ég klæði mig í gallann
og fer að veiða rétt eins og þeir,“ segir
hún og hlær.
Samfélagsmiðlamiðuð
Valgerður hefur í nægu að snúast, en
hún er nýflutt aftur til landsins frá
Kaupmannahöfn, þar sem hún var í
mastersnámi í lögfræði, samhliða því
að sinna gríðarlega umfangsmikilli
samfélagsmiðlavinnu, sem einmitt er
tengd fiskveiðunum, og ferðast vítt og
breitt um heiminn með stöngina í far-
teskinu. „Ég hef mjög gaman af að spá
í samfélagsmiðlana og er með tólf þús-
und fylgjendur á Instagram þar sem ég
pósta myndum úr veiðinni. Þá blogga
ég líka, sem átti bara að vera hobbí en
fær gríðarlega góðar viðtökur, sér í lagi
í Kanada og Bandaríkjunum,“ segir
hún að lokum, spennt fyrir komandi
ævintýrum.
gudrun@frettabladid.is
Pollslök fyrir framan
tvær milljónir
Valgerður Árnadóttir þekkir laxveiði eins og lófann á sér. Hún gegn-
ir stöðu dómara í þáttunum Earth’s Wildest Waters: The Big fish sem
breska sjónvarpsstöðin BBC framleiðir. Hún er eini kvendómarinn.
Valgerður hefur farið út um allan heim til að renna fyrir fisk, svo sem Skotlands, Mexíkó, Grænlands og Belíss. Hún horfir
löngunaraugum til Rússlands núna.
Ben Fogle, Valgerður og Matt Hayes meðan á tökum stóð hér á landi.
Earth’s WildEst
WatErs
Nýir raunveruleikaþættir þar sem
átta þátttakendur hefja leikinn. Í
hverjum þætti er farið í heimsókn
til nýs lands þar sem aðstæður
til veiði eru ólíkar og dettur einn
keppandi út í hverjum þætti uns
eftir stendur einn – sigurvegarinn.
Þátturinn frá Íslandi var fyrstur í
loftið og um tvær milljónir manna
fylgdust með.
En það Er líka
dálítð Erfitt. að
vEra kona í þEssum bransa
gErir það að vErkum að
manni finnst maður oft
þurfa að sanna sig mEira.