Fréttablaðið - 17.12.2016, Side 24
Sjónvarpið um helgina
Laugardagur
12.20 Palace Chelsea Sport
15.10 Atletico - Las Palmas Sport
16.20 Stjarnan - Haukar Sport 2
17.15 Stoke - Leicester Sport 3
17.20 WBA - Man. Utd Sport
18.30 Sunderland - Watford Sport 2
19.30 Boro - Swansea Sport
20.10 West Ham - Hull Sport 2
Sunnudagur
13.20 Bournemouth - Soton Sport
14.30 Darmstadt - Bayern Sport 2
15.50 Man. City - Arsenal Sport
19.10 Tottenham - Burnley Sport 2
19.40 Barcelona - Espanyol Sport
21.20 Denver - N. England Sport 2
Klopp elsKar rocKy
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri
liverpool, sló að venju á létta
strengi á blaðamannafundi en það
er nánast hægt að ganga að því vísu
að Þjóðverjinn bjóði upp á eitthvað
skemmtilegt.
liverpool mætir everton á mánu-
dagskvöldið í lokaleik sínum fyrir
jól en leikurinn fer fram á Goodi son
park. Klopp komst að því í vikunni
að Goodison park kemur við sögu í
einni rocky-myndanna.
„Það var algjör tilviljun en ég fór
í jólapartí í gær og þegar ég kom
heim hafði ég ekkert að gera. Ég
ákvað að horfa á myndina creed
sem var mjög góð,“ sagði Jürgen
Klopp og bætti við:
„Ég hafði ekki hugmynd um
að Goodison park kæmi við sögu
í myndinni. Hann leit vel út en
ekkert meira en það,“ sagði Klopp
brosandi. Bardaginn í creed fór
einmitt fram á Goodison park en
sylvester stallone er mikill everton-
maður.
„Þegar ég var yngri reyndi ég einu
sinni að nota söguna úr rocky IV,
þegar rocky mætir Ivan Drago, á
fundi með leikmönnum mínum.
eftir aðeins fimm mínútur fór ég
að átta mig á því að leikmennirnir
höfðu ekki hugmynd um hvað ég
var að tala um,“
sagði Klopp.
„Ég varð að hætta
með söguna því
aðeins tveir af
leikmönn-
unum höfðu
séð myndina,“
sagði Klopp.
„rocky er
æðisleg saga.
Ég hef elskað
rocky alla
mína ævi.“
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r24 s p o r t ∙ F r É t t A b L A ð i ð
KörFUboLti „Þetta kom mér á óvart
því ég bjóst ekki við því að ég myndi
yfirgefa Njarðvík á þessari leiktíð,“
segir bandaríski körfuboltamaður-
inn stefan Bonneau sem Njarð-
víkingar ákváðu að semja ekki við
aftur, en samningur hans rann út í
desember. Bonneau hefur heillað
körfuboltaáhugamenn með til-
þrifum sínum síðan hann kom til
landsins í janúar 2014 en dvöl hans
á Íslandi er lokið í bili.
„Mér var sagt að Njarðvík
vildi núna vera með stóran
mann,“ segir Bonneau sem
hefur undanfarin misseri
vegna meiðsla sinna deilt
mínútum með nokkrum
öðrum bandarískum leik-
mönnum sem eru alltaf stærri
og spila undir körfunni.
Þetta hefur verið eitt af
a ð a l u m ræ ð u e f n u n u m í
kringum Njarðvík en nú
þegar Bonneau er heill héldu
flestir að hann yrði fyrir val-
inu en svo var ekki. Þetta
kom þessum smáa en knáa
bakverði verulega á óvart en
skilaboðin fékk hann ekki frá
Daníel Guðna Guðmunds-
syni, þjálfara liðsins.
Bestu stuðningsmennirnir
„Danni sagði mér ekki frá þessu. Ég
fékk bara skilaboð um þetta og vissi
ekki alveg hvað ég átti að segja. Ég
fékk sjokk þegar mér var sagt þetta
ef ég á að vera heiðarlegur. Ég vissi
ekki hvað ég átti að segja eða gera,“
segir Bonneau sem hugsar þó bara
með hlýhug til Njarðvíkur.
„Þó ég hafi ekki verið alveg sáttur
við hvernig þetta var afgreitt yfir-
gef ég ekki Njarðvík með óbragð
í munni. Ég elska fólkið þarna og
stuðningsmenn Njarðvíkur eru
þeir bestu sem ég hef spilað fyrir. Ég
elska allt á Íslandi og mun sérstak-
lega sakna krakkanna sem gáfu mér
mikið og höfðu svo mikinn áhuga á
öllu sem ég og liðið vorum að gera.
Verst fannst mér að fá ekki tækifæri
til að kveðja,“ segir Bonneau.
Tók tíma að venjast
Bonneau hefur margsinnis endur-
tekið hversu mikið hann elskar
Ísland en sterk umræða um að hann
myndi fá ríkisborgararétt skapaðist
fyrr á árinu. Hann minn-
ist þess þegar hann kom
hingað fyrst um miðjan
vetur. Bonneau er ekki
frá Flórída eða Kaliforníu
og vandist vondu veðri á
uppeldisslóðum sínum í
New york, en vetrarhörk-
urnar voru miklar þegar
hann lenti fyrst.
„Ég gat bara ekki vanist
veðrinu fyrstu mánuðina
hérna. Það var alltaf snjór
og rok. Ég var að reyna að
útskýra þetta fyrir vinum
mínum en það þurfti að
vera hér til að skilja þetta
og aðlagast. Það gerðist
svo oft þegar ég var utan-
dyra að rokið feykti mér
til og frá. Ég var reyndar mjög hrif-
inn af sólarljósi allan sólarhring-
inn,“ segir Bonneau sem er ekki
bara góður í körfubolta heldur hefur
útgeislun hans á velli gert hann að
einum vinsælasta leikmanni deild-
arinnar undanfarin ár.
„Ég elska að spila leikinn. Ég brosi
bara því ég elska að spila körfubolta.
Það var líka svo gaman hérna fyrsta
tímabilið. Mirko [stefán Virijevic]
var herbergisfélagi minn og svo
voru svo flottir strákar þarna eins
og Magic, Ólafur Helgi og Hjörtur
Hrafn. Maðurinn sem ég mun sakna
mest er samt logi Gunnarsson. Það
Verst að fá
ekki tækifæri
til að kveðja
Stefan Bonneau hvarf óvænt á braut frá Njarðvík
og úr Domino’s-deildinni þegar ekki var samið við
hann aftur. Þessi mikli háloftafugl og skemmtikraft-
ur átti ekki von á ákvörðun Njarðvíkinga.
Stefan Bonneau er einn allra besti leikmaður sem hefur spilað á Íslandi en hann
skemmti landsmönnum með frábærum tilþrifum. FréTTABLAðið /ErNir
er kóngurinn í Njarðvík og minn
maður að eilífu. logi Gunnarsson er
langbesti samherji sem ég hef haft á
ferlinum,“ segir Bonneau.
Gæti komið aftur
Bonneau var varla búinn að ná
áttum eftir að samningurinn var
ekki endurnýjaður þegar danska
liðið svendborg rabbits með
aðstoðar landsliðsþjálfarann arnar
Guðjónsson í brúnni brást við
skjótt. Bandaríski bakvörðurinn
segist hafa gaman að því að prófa
nýja deild. Hann útilokar ekki að
koma aftur til Íslands og eiginlega
langt frá því.
„auðvitað mun ég skoða tilboð
frá Íslandi ef eitthvað berst. Ég mun
aldrei hafna neinu blindandi frá
Íslandi án þess að skoða það. Ísland
er góður staður og þangað væri ég
mikið til í að koma aftur. Deildin
er skemmtileg og landið gott. Ég
veit ekki hvað gerist. Við sjáum til
hvað gerist í sumar eða jafnvel bara
í janúar,“ segir stefan Bonneau.
tomas@365.is
Logi Gunn-
arsson er
langbesti
samherji sem
ég hef haft á
ferlinum.
Stefan Bonneau
Sport