Fréttablaðið - 17.12.2016, Qupperneq 26
Íslenskir jólasveinar í Árbæjarsafni. Fréttablaðið/antonbrink
Ef til vill hafa ekki allir foreldrar tök á að undirbúa laufabrauðsútskurð og föndur en vilja
samt sem áður kynna börn sín fyrir
gömlum jólasiðum úr æsku. Þá
er tilvalið að sækja jóladagskrár í
boði, til að mynda þá sem er í boði
á Árbæjarsafni á sunnudag.
Þar er dagskrá á öllu safnsvæð
inu og hægt að rölta á milli gömlu
húsanna og fylgjast með undir
búningi jólanna eins og hann var í
gamla daga.
Í Árbænum sitja fullorðnir og
börn með vasahnífa og skera út
laufabrauð en uppi á baðstofulofti
er spunnið og prjónað. Í Kornhús
inu búa börn og fullorðnir til músa
stiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í
Hábæ er hangikjöt í potti sem gestir
Músastigar og laufabrauð í Árbæjarsafni
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, verður heiðursgestur á jólahátíð Hróksins í dag. Hátíðin er haldin í h ö f u ð st ö ð vu m
Hróksins, Geirsgötu 11. Þar hefur
farið fram fatasöfnun í þágu græn
lenskra barna og ungmenna.
Dagskráin er fjölbreytt að sögn
Hrafns Jökulssonar, formanns Hróks
ins. Hann telur upp Bjartmar Guð
laugsson tónlistarmann, Jóhannes
Kristjánsson eftirhermu og Lindu
Guðmundsdóttur harmóníkuleik
ara frá Finnbogastöðum sem munu
skemmta gestum. „Gáttaþefur rekur
inn nefið og Stekkjastaur teflir við
gesti og gangandi,“ segir Hrafn og
einnig verði myndasýning frá starfi
Hróksins á Íslandi og Grænlandi.
„Gómsætar vöfflur og kökur og
rjúkandi kakó verður líka í boði. Þar
munu konur úr prjónahópi Gerðu
bergs standa vaktina, en þær eru
mjög virkar í starfi Hróksins,“ segir
Hrafn frá.
Hann segir starfsárið hafa verið
fjölbreytt. „Liðsmenn félagsins hafa
farið sex sinnum til Grænlands
og haldið fjölmargar hátíðir til að
útbreiða skák, gleði og vináttu. Þá
hafa fjölmargir sjálfboðaliðar unnið
við fatasöfnunina fyrir grænlensku
börnin, og Kalak og Hrókurinn stóðu
í haust að heimsókn 11 ára barna frá
AusturGrænlandi ellefta árið í röð,
sem hingað komu til að læra sund
og kynnast íslensku samfélagi,“ segir
Hrafn.
Hróksmenn hafa í ár heimsótt
Barnaspítala Hringsins flesta fimmtu
daga. „Þær heimsóknir hófust árið
2003 og hafa skapað óteljandi gleði
stundir. Þá vinna Hróksmenn náið
með Vinaskákfélaginu að því að efla
skákiðkun meðal fólks með geðrask
anir og má segja að þessi tvö verkefni
standi hjörtum liðsmanna Hróksins
næst,“ segir Hrafn. „Að auki hefur
félagið efnt til fjölda viðburða fyrir
unga sem aldna og í vor söfnuðu
Hróksmenn þremur milljónum
króna í þágu sýrlenskra flóttabarna.
Liðsmenn Hróksins starfa í anda
einkunnarorðanna ,,Við erum ein
fjölskylda“ segir Hrafn og vonast til
að sem flestir komi á jólahátíðina á
Geirsgötu 11 á milli 14 og 17.
kristjanabjorg@frettabladid.is
Útbreiða skák, gleði og vináttu
Hróksmenn fagna jólum og halda hátíð í dag. Árið hefur verið viðburðaríkt og hafa bæði grænlensk, íslensk og sýrlensk
börn notið góðs af starfsemi Hróksins. Konur í prjónahópi í Gerðubergi aðstoða Hróksmenn í góðgerðarstarfseminni.
Prjónakonur í Gerðubergi með gjafir handa börnunum í kulusuk sem Hróksliðar sjá um að koma til skila. Fréttablaðið/SteFÁn
fá að bragða á. Í Nýlendu má fylgjast
með tréútskurði og í Miðhúsum er
hægt að fá prentaða jólakveðju. Í
Efstabæ er jólaundirbúningurinn
kominn á fullan skrið og skatan
komin í pottinn. Í hesthúsinu frá
Garðastræti eru búin til tólgarkerti
og kóngakerti eins og í gamla daga.
Jólahald heldra fólks við upphaf
20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og í
Krambúðinni eru kramarhús, kon
fekt og ýmis jólavarningur til sölu.
Á sunnudag er einnig haldin guðs
þjónusta í safnkirkjunni, sungið og
dansað í kringum jólatréð þar sem
jólasveinar skemmta gestum. – kbg
í vor söfnuðu
Hróksmenn þremur
milljónum króna
í þágu sýrlenskra
flóttabarna.
á sunnudag er guðs-
þjónusta í kirkjunni
og sungið og dansað í
kringum jólatréð.
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r26 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
helgin