Fréttablaðið - 17.12.2016, Síða 40
Atli Örvarsson er einn virtasti tónlistarmaður okkar Íslendinga. Hann hefur í gegnum tíðina unnið til fjölda
verðlauna fyrir kvikmyndatónlist
sína sem er mikils metin um víða
veröld. Atli hefur um árabil starfað
í Los Angeles við tónsmíðar í kvik
myndum. Fyrir rúmu ári flutti hann
heim, nánar tiltekið til Akureyrar,
ásamt fjölskyldu sinni og stundar
þar tónsmíðar sínar.
Atli hefur unnið að stórum verk
efnum á síðustu árum. Til að mynda
stórmyndinni Pirates of The Caribb
ean, sem og að vinna að kvikmynd
inni The Edge of 17 með Hailee
Steinfeld í aðalhlutverki en hún
skaust upp á stjörnuhimininn eftir
að hafa leikið í myndinni True Grit
þar sem hún var tilnefnd til Óskars
verðlauna.
„Mest af mínum verkefnum er í
Bandaríkjunum en það er að aukast
talsvert í Evrópu. Einnig hef ég
unnið að því að semja alla tónlist í
Chicagoþáttaseríunum sem sýndar
eru á NBCsjónvarpsstöðinni, Chic
ago Med, Chicago P.D., Chicago Fire
og Chicago Justice. Þeir þættir eru
að fá mikið áhorf. Um tíu milljónir
manna horfa á frumsýningu þeirra
þátta og svo eru þeir einnig sýndir
um allan heim,“ segir Atli.
Vildi finna ræturnar
Eftir rúma tvo áratugi í Bandaríkj
unum ákvað Atli að breyta til og
flytja norður til Akureyrar. Ekki þarf
að fara mörgum orðum um muninn
á þessum tveimur stöðum, en fyrir
áhugasama eru um 2.400 færri sólar
stundir á Akureyri en í Hollywood á
ári hverju. En af hverju ákvað Atli, í
þeirri stöðu sem hann er, að flytja
norður á Akureyri af öllum stöðum?
„Móðurfjölskylda mín kemur
frá Mýri í Bárðardal, þannig að ég
er hálfur Þingeyingur, og ólst upp
að miklu leyti á Akureyri. Ég flutti
til Bandaríkjanna árið 1993 og hef
verið starfandi í Los Angeles síðan
árið 1998. Eftir þennan langa tíma
ákváðum við að tengjast meira Evr
ópu og Íslandi og finna ræturnar.
Svo á ég tvö börn, fjögurra og átta
ára, og vildi leyfa þeim að tengjast
rótunum líka. Þannig að úr varð að
við fluttum norður.“
Norður frá skarkalanum
Atli segir mikinn mun á þessum
tveimur stöðum. Hann þarf að vera
mikið á ferðalögum vegna vinnu
sinnar, rekur hljóðver í Los Angeles
og þarf að hafa samskipti við starfs
menn sína. Því vinnur hann heiman
frá sér á tveimur tímabeltum.
„Þetta er svolítið eins og að vera
á frystitogara,“ segir Atli. „Ég er
mikið á ferðalögum svo þessi stað
setning er kannski ekki svo galin,
að geta komið norður frá skarkal
anum. Einnig áttaði ég mig ekki
fyrr en eftir á á því hvað það er gott
að koma heim. Þetta er ákveðinn
aukabónus sem ég fæ,“ segir hann
og minnist á hvað kyrrðin geri
honum gott á Akureyri. „Ég verð
einhvern veginn meira skapandi í
Eyjafirði. Þegar þú ert úti, eins og
til dæmis í Los Angeles, er einhvers
konar sálrænn kliður sem truflar
mann nokkuð. Bakgrunnsómur
sem er alltaf viðvarandi. Þennan
klið er ekki að finna á Akureyri og
því hreinsast slíkt áreiti í burtu.
Fyrir listamann að komast í svona
umhverfi þar sem rætur manns eru
skiptir miklu máli fyrir sköpunar
gáfuna. Hér er meira andrými og ég
verð afkastameiri fyrir vikið.“
Óhefðbundin leið að tónlistinni
Upphafið að tónlistarferli Atla má
í raun rekja til Akureyrarkirkju
árið 1975. Mun hann hafa farið
nokkuð óhefðbundna leið, öðru
vísi en flestir aðrir á hans aldri. „Ég
byrja í tónlistarskóla um sex ára
aldurinn þannig að í upphafi fer
ég akademísku leiðina í tónlist á
meðan margir aðrir kannski byrja
í bílskúrsböndum eða fara aðrar
leiðir. Ég var kominn í nám sex ára
gamall,“ segir Atli.
Á hann afa sínum að þakka
að hafa byrjað í tónlist. „Þetta
var þannig að einn daginn fór ég
í heimsókn með afa mínum til
bróður hans, Áskels Jónssonar org
anista í Akureyrarkirkju,“ segir Atli
og brosir við. „Afi sagði við hann
að það væri alveg öruggt að það
byggi tónlist í stráknum. Því ákvað
ég daginn eftir að banka upp á hjá
honum og vildi fá kennslustund í
orgelleik. Þannig hófst þetta nú allt
saman.
Síðan geng í gegnum tónlistar
skólann á Akureyri sem var magn
aður undirbúningur fyrir ævi
starfið. Þar fékk maður að leika í
blásarakvintett, skólahljómsveit
inni og svo var maður tekinn inn
í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
ásamt hljómsveit leikfélagsins. Ég
var því farinn að vinna fyrir mér
sem tónlistarmaður 13 ára gamall.“
Spila með tilfinningar
Tilgangur kvikmyndatónlistar er að
hjálpa til við að segja sögu og dýpka
hana og kalla fram tilfinningar.
„Það er öll tónlist leyfileg í kvik
myndum, hvort sem það er rokk
eða sólóharmónikka í Hrútum, eða
80 manna stórhljómsveit tekin upp
í Abbey Road,“ segir Atli og bendir á
að líklega sé það toppurinn, að fá að
stýra sinfóníuhljómsveit á heims
mælikvarða í því alkunna hljóðveri.
„Kvikmyndatónlist er mér að skapi
og helgast það af því að þú ert að
eiga við tilfinningar, styðja þær eða
kalla þær fram. Það er mitt „forte“,“
segir Atli.
Hann hefur ekki haft mjög
gaman af þeim flokki tónsmíða þar
sem verið er að fara eftir fyrirfram
ákveðnum reglum, þar sem reglan
sé mikilvægari en útkoman og loka
afurðin. Stærðfræðin sé að yfirtaka
tónlistarsmíðina í of miklum mæli.
Þekking að aukast
Hrútar slógu eftirminnilega í gegn,
bæði hér á landi sem og erlendis og
vann til fjölda verðlauna. Melan
kólísk saga sauðfjárræktunar
tveggja bræðra í Bárðardalnum,
heimahögum Atla, féll vel í kramið
erlendis. Tónlist Atla fær að njóta
sín mjög í myndinni en hann samdi
alla tónlist í henni.
Atli segir Íslendinga mikla og
góða sögumenn og að menning
okkar sé þannig mikilvæg útflutn
ingsvara okkar, bæði í tónlist, kvik
myndum og sögum. „Gamla góða
höfðatalan getur til að mynda ekki
útskýrt alla þessa góðu glæpasagna
höfunda okkar, við höfum ekki
nægilega marga glæpi á Íslandi til
að útskýra þetta,“ segir Atli. „Kvik
myndir héðan eru einnig að fá
meira lof erlendis þar sem þekk
ingin í greininni er að aukast.“
„Það er merkilegt hvað við erum
að framleiða mikið gæðaefni þrátt
fyrir minni efni og tilkostnað. Því
höfum við tileinkað okkur að vera
meira skapandi í lausnum. Við
erum í raun að gera frábæra hluti
bæði í kvikmyndum og sér í lagi í
tónlist þar sem við erum einhvers
konar alþjóðlegt fyrirbæri og menn
undrar hversu gott efni kemur
héðan.“
Atli segir það hins vegar skjóta
skökku við að Íslendingar virðist
frekar fara á bandarískar spennu
myndir í kvikmyndahúsum hér
lendis en íslenskar myndir. „Það
kannski vantar smá tengingu milli
kvikmyndagerðar og almennings.
Ef menn skoða hvað við erum að
framleiða þá eru það kannski meira
„art house“ myndir í staðinn fyrir
að vera söluvara eins og banda
rísku myndirnar. Það er fín blanda
að setja þetta saman. Og ég held að
það sé að breytast. Áhuginn er að
aukast og myndirnar eru að höfða
til fleiri án þess að slegið sé af kröf
um um gæði kvikmyndanna.“
Atli og Anna Örvarsson, kona hans, prúðbúin við hátíðlegt tækifæri í Beverly Hills, Los Angeles. MyNd/TArA ZieMBA/FiLMMAgic
„Eins og
að vera á
frystitogara“
Tónskáldið Atli
Örvarsson hefur
getið sér gott orð
fyrir kvikmyndatón-
list sína síðustu árin.
Þrátt fyrir miklar
annir í Hollywood
ákvað hann fyrir
rúmu ári að flytjast
búferlum á heima-
slóðir á Akureyri. Atli
segir íslenska kyrrð
veita sér hugarró og
innblástur.
Dæmi um tónlist Atla í frægum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum
Sveinn
Arnarsson
sveinn@frettabladid.is
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r40 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð