Fréttablaðið - 17.12.2016, Page 92
Besta erlenda plata árs-ins að mati álitsgjafa Fréttablaðsins reyndist platan Lemonade með Beyoncé. Sex álitsgjafar settu plötu hennar á
lista og tekur hún því fyrsta sætið á
undan hinum fjölhæfa rappara og
pródúsent Kanye West, en platan
hans Life of Pablo var þó jafn oft
sett í fyrsta sætið og plata Beyoncé,
eða tvisvar sinnum. Fast á eftir þeim
koma svo þrjár plötur sem voru
allar nefndar til fjórum sinnum en
það eru plöturnar Starboy með The
Weeknd, Blonde með Frank Ocean
og A Seat at the Table með Solange
Knowles. Þar sem Starboy var einu
sinni sett í fyrsta sætið tekur hún
forystuna og fær að tylla sér í þriðja
sætið. Blonde tekur svo fjórða sætið
enda oftar sett ofar á lista en A Seat
at the Table.
Það sem er áberandi á þessum
erlenda lista er að hann er nánast
R&B
afar áberandi
þetta árið
Allar bestu erlendu plötur þetta árið utan
ein eru R&B plötur. Hér líkt og á íslenska
listanum eru áberandi frumlegar útgáfur,
þó að sumar þeirra hafi kannski ekki verið
neitt sérstaklega aðgengilegar vegna sam-
keppni á tónlistarstreymismarkaðnum.
Stefán Þór
Hjartarson
stefanthor@
frettabladid.is
einungis skip-
aður R&B-söngvurum, en þetta
virðist hafa verið afar sterkt ár í
þeirri senu. Í fyrra var rappið áber-
andi á listanum en mjúki ættinginn
ræður nú ríkjum. Spurning hvað
það segir okkur um heiminn í dag.
Drottning poppsins
Beyoncé var ákaflega áberandi á
þessu ári og stóran þátt í því átti öll
markaðsmaskínan sem fór í gang í
kringum útgáfuna á Lemonade, sem
samt sem áður kom eiginlega eins
og þruma úr heiðskíru lofti. Það
höfðu ekki komið neinar tilkynn-
ingar um útgáfudag en hún birtist
bara á streymisveitunni Tidal einn
góðan veðurdag. Það er þó ekki
alveg rétt enda kom fyrst út sérstök
mynd sem var sýnd á HBO-sjón-
varpsstöðinni og var í raun tón-
listarmyndband fyrir alla plötuna
í heild. Það var ekki til að minnka
vinsældir poppdrottningarinnar að
í textum hennar mátti greina megna
óánægju hennar með hjónaband
sitt og sögusagnirnar fóru á kreik.
Lemonade var miklu meira en bara
plata.
Lífið sjálft sem list
Kanye West var að sama skapi ákaf-
lega áberandi en þó umdeildari
en Beyoncé, svona eins og honum
einum er lagið. Fyrir útgáfu The Life
of Pablo fór Kanye mikinn á Twitt-
er þar sem hann bunaði út úr sér
alls konar hlutum sem margir tóku
illa. Fólk fór að efast um geðheilsu
rapparans. En líklega hefur hann
verið allt annað en veikur á geði
því að þetta umtal varð einungis til
að vekja athygli á plötunni. Hann
notaði að mörgu leyti eigin persónu
sem markaðstól, líf hans sjálfs var
auglýsingin. Hún kom einungis út
á Tidal-tónlistarveitunni og birtist
þar ókláruð – Kanye West dundaði
sér við að bæta og breyta löngu eftir
að hún kom út. Mörgum fannst það
sniðugt en öðrum ekki – hins vegar
verður ekki deilt um að platan er
stórgóð og þetta er ekki eini listinn
þar sem hún kemst hátt.
Söngvarinn myrki verður
Stjörnustrákur
The Weeknd hefur bókstaflega skot-
ist upp á stjörnuhimininn á síðustu
árum. Hann byrjaði feril sinn sem
ákaflega myrkur og dularfullur
R&B-söngvari sem lýsti skugga-
hliðum djammlífernisins. Síðan
breyttist það töluvert þegar hann
fór að vinna með poppaðri hljóm
en Starboy er algjör hápunktur
ferils söngvarans kanadíska, epískt
ferðalag í gegnum allt það vinsæl-
asta í popptónlist í dag. Á plötunni
má einnig finna nokkra góða gesti
en titillag plötunnar, sem tröllríður
útvarpsstöðvunum þessa dagana, er
unnið með franska rafdúóinu Daft
Punk og einnig eru þarna Future,
Lana Del Rey og Kendrick Lamar –
sannkallað stórskotalið.
Platan sem var beðið eftir
Frank Ocean fer aldrei troðnar
slóðir í tónlist sinni. Í fyrsta lagi lét
hann aðdáendur sína bíða í mörg
ár eftir þessari plötu. Síðan eins og
til að strá salti í sárin stríddi hann
þeim í marga daga en á vefsíðunni
birti hann undarleg og hálf til-
gangslaus myndbönd sem upphaf-
lega virtust vera lifandi streymi en
reyndust svo lúppur. Fólk flykktist
samt til að horfa á þessi undarlegu
myndbönd og beið alltaf eftir því
að loksins kæmi platan Boys Don’t
Cry út – það gerðist þó aldrei og
þess í stað var hún titluð Blonde.
Engu að síður er um frábært lista-
verk að ræða.
Það er eitthvað í vatninu hjá
Knowles-fjölskyldunni
A Seat at the Table með Solange
Knowles hefur fengið frábæra
dóma alls staðar og halda gagnrýn-
endur vart vatni yfir þessu meistara-
stykki, tónlistarvefsíðan Pitchfork
velur hana sem plötu ársins. Á A
Seat at the Table fjallar Solange um
reynslu sína sem svört kona í heimi
nútímans og má að vissu leyti tala
um að hún sé „mótmælaplata“,
ákaflega pólitísk og viðeigandi í
ljósi þróunar stjórnmála í Banda-
ríkjunum.
Logi PeDro StefánSSon
tónlistarmaður
Innlendar
Aron Can Þekkir stráginn
Sturla Atlas Season 2
emmsjé gauti Vagg og velta
Sin fang Spaceland
gKr GKR
Erlendar
Kanye West The Life of Pablo
frank ocean Blonde
DVSn Sept. 5th
the Weeknd Starboy
rihanna Anti
KAró
söngkona
Innlendar
Sturla Atlas Season 2
Aron Can Þekkir stráginn
emmsjé gauti Vagg og velta
reykjavíkurdætur RVKDTR
Cyber Cyber Is Crap
Erlendar
rihanna Anti
Kanye West The Life of Pablo
Beyoncé Lemonade
frank ocean Blonde
Drake Views
Björn VALur PáLSSon
plötusnúður og pródúsent
Innlendar
emmsjé gauti Vagg og velta
gKr GKR
Aron Can Þekkir stráginn
emmsjé gauti 17. nóvember
Sturla Atlas Season 2
Erlendar
Anderson Paak Malibu
Keytranada 99,9%
the Weeknd Starboy
Skepta Konnichiwa
Young thug Slime Season 3
HeLgA PáLeY
listakona
Innlendar
tSS Glimpse of Everything
WeSen Wall of Pain
Kælan mikla Kælan mikla
Dj flugvél og geimskip Nótt
á Hafsbotni
gKr GKR
Erlendar
Angel olsen My Woman
jerry Paper Toon Time Raw!
jessy Lanza Oh No
father I’m a Piece of Shit
Solange A Seat at the Table
HuLDA HóLmKeLSDóttir
blaðamaður á Vísi
Innlendar
emmsjé gauti Vagg og velta
gKr GKR
reykjavíkurdætur RVKDTR
Aron Can Þekkir stráginn
Kælan mikla Kælan mikla
Erlendar
David Bowie Blackstar
the Weeknd Starboy
Beyoncé Lemonade
Sia This Is Acting
Zayn Mind of Mine
geoffreY SKYWALKer
forstjóri Priksins
Innlendar
Bjarki Б
emmsjé gauti 17. nóvember
Kælan mikla Kælan mikla
nonnimal Freyja
Aron Can Þekkir stráginn
Erlendar
Anderson Paak Malibu
Young thug Jeffery
roy Woods Waking Up at
Dawn
Drake Views
Skepta Konnichiwa
KjArtAn AtLi
fjölmiðlamaður
Innlendar
emmsjé gauti Vagg og velta
Aron Can Þekkir stráginn
emmsjé gauti 17. nóvember
gKr GKR
Sturla Atlas Season 2
Erlendar
Beyoncé Lemonade
Chance the rapper Coloring
Book
Lil Durk 2x
frank ocean Blonde
mike Posner At Night, Alone
óSK gunnArSDóttir
útvarpskona á fm957
Innlendar
Kaleo A/B
mugison Enjoy
emilíana torrini Colourist
júníus meyvant Júníus Meyvant
Þórunn Antonía Þórunn
Antonía
Erlendar
Beyoncé Lemonade
frank ocean Blonde
Kanye West Life of Pablo
Solange A Seat at the Table
Kings of Leon Walls
DAníeL óLAfSSon
plötusnúður og lífskúnstner
Innlendar
Aron Can Þekkir stráginn
emmsjé gauti Vagg og velta
gKr GKR
Herra Hnetusmjör og joe
frazier Bomberbois
Alexander jarl Kókosolíu-
furstar
Erlendar
Kanye West Life of Pablo
Young thug Slime Season 3
travis Scott Birds in the Trap
Sing McKnight
jessy Lanza - Oh No
Post malone – Stoney
KjArtAn guðmunDSSon
fagurkeri
Innlendar
Sturla Atlas Season 2
terrordisco Fyrst
emmsjé gauti Vagg og velta
Sin fang Spaceland
morðingjarnir Loftsteinn
Erlendar
A tribe Called Quest We Got
It from Here … Thank You 4
Your Service
David Bowie Blackstar
Danny Brown Atrocity Exhib-
ition
Beyoncé Lemonade
Blood orange Freetown
Sound
SteinÞór HeLgi
athafnamaður
Íslenskt
Bjarki Б
Aron Can Þekkir stráginn
Kælan mikla Kælan mikla
emmsjé gauti Vagg og velta
Snorri Helgason Vittu til
Erlent
Anohni Hopelesness
Danny Brown Atrocity
Exhibition
21 Savage Savage Mode
Kornél Kovács The Bells
Solange A Seat at the Table
ÞurA StínA
plötusnúður
Íslenskt
reykjavíkurdætur RVKDTR
gauti 17. nóvember
gKr GKR
Aron Can Þekkir stráginn
gauti Vagg og velta
Erlent
Skepta Konnichiwa
Kanye West Life of Pablo
Beyoncé Lemonade
Views Drake21 Savage og
Metro
Boomin Savage Mode
SiggA LitLA
altmuligt kona
Íslenskt
Sturla Atlas Season 2
Aron Can Þekkir stráginn
Samaris Black Lights
Sin fang Spaceland
emmsjé gauti Vagg og velta
Erlent
Weeknd – Starboy
roy Woods - Waking at Dawn
A tribe Called Quest - We Got
It from Here … Thank You 4
Your Service
Solange - A Seat at the Table
majid jordan - Majid Jordan
Steinunn eLDfLAug
tónlistarkona
Íslenskt
Andi Andi
Páll ivan This Is My Shit
Panos from Komodo Pana-
sonic Motor
Sindri freyr Tónlist fyrir
kafara
naðra Allir vegir til glötunar
Erlent
noisia Outer Edges
Black sun Empire
Kero Kero Bonito Bonito
Generation
oranssi Pazuzu Värähtelijä
Current Value Biocellulose
Álitsgjafar Fréttablaðsins
1
2
3
4
5
1 7 . d e s e m b e r 2 0 1 6 L A U G A r d A G U r92 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð