Fréttablaðið - 17.12.2016, Side 100

Fréttablaðið - 17.12.2016, Side 100
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Óttars Guðmundssonar Bakþankar Sauðkindin er hluti af íslenskri menningu og þjóðarsál. Íslendingar hafa lengi reynt að fá útlendinga til að skynja mikilfengleika skepnunnar. Í upphafi sjöunda áratugarins setti Þorvaldur Guð- mundsson í Síld og fisk á markaðinn léttreykt lambakjöt til útflutnings sem kallaðist London-lamb. Sagt var í blöðunum að nafnkunnir Holly- wood-leikarar hefðu aldrei bragðað betra kjöt. Íslenska ríkið stóð fyrir útflutningnum og borgaði fólki fyrir að leggja sér lambið til munns. Ekki tókst þó að selja einn lambaskanka í þessu átaki og London-lambið fór til neyslu í fermingarveislum og jóla- boðum landsmanna. Árið 1964 var íslenskt veitinga- hús opnað með pompi og prakt í London sem hét Iceland Food Center. Enn og aftur birtust greinar um vinsældir veitingastaðarins og alsæla viðskiptavini. Þetta kom þó fyrir lítið og staðurinn fór á hausinn með bullandi tapi. Ríkið stóð fyrir kostnaðinum og niðurgreiddi hvern bita sem étinn var á staðnum. Fleiri tilraunir hafa verið gerðar til að kenna heiminum að meta íslenska vegalambið. Niðurgreitt lambakjöt hefur verið til sölu á Norðurlöndum um árabil en aldrei náð verulegri útbreiðslu. Nú á að gera enn eina tilraunina. Á fjáraukalögum eru veittar 100 milljónir til markaðsátaks til að borga útlendingum fyrir að kaupa lambakjöt. Eitt þúsund tonn eru óseld í frystikistum og þeim verður að koma út með góðu eða illu. Skyn- samlegra væri þó að horfast í augu við breyttar matarvenjur fólks og fækka sauðfé í landinu verulega. Lögmál markaðarins hljóta að ráða. Árið 1987 var óselt lambakjöt urðað og kallaðist eftir það haugalamb. Sennilega væri það ódýrari kostur en að fara í enn eina söluherferðina með niðurgreitt lambakjöt. Blessuð sauðkindin 7 dagar Þú átt rétt á 11 tíma hvíld milli vinnudaga – líka í desember! til jóla Verslun opin 11-21 alla daga - Veitingastaður opinn 9:30-20:30 - www.IKEA.isl i ll i i i i Jólafjörið okkar nær hámarki um helgina og við hlökkum til að sjá þig! Ekki missa af síðasta tækifærinu til að fá ókeypis mynd með jólasveininum og bragða á ljúffengu glöggi og gómsætum smákökum. Í versluninni finnur þú ótal gjafahugmyndir og nú er allt jólaskraut á lækkuðu verði. Við tökum vel á móti þér. Komdu í ókeypis myndatöku með jólasveininum IKEA jóla- glöggið er engu líkt. Prófaðu! © I nt er I K EA S ys te m s B .V . 20 16 595,- Jólaglögg óáfengt Öll börn fá gefins endurskinsmerki Komdu og smakkaðu gómsætar nýbakaðar smákökur um helgina. Við kynnum nýjar tegundir! Það er jólafjör alla helgina frá 13-17 Hangikjöt og meðlæti 1.295,- Hamborgarhryggur og meðlæti 1.295,- Hangiskanki og meðlæti 1.295,- Kalkúnn og meðlæti 1.295,- OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN Í ENGIHJALLA, VESTURBERGI OG ARNARBAKKA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.