Fréttablaðið - 18.03.2011, Page 21
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Tónlistarskóli Kópavogs stendur fyrir raftónleikum í
Salnum í Kópavogi á morgun. Þar flytur Rík-
harður H. Friðriksson nýleg verk eftir sjálfan
sig byggð á umhverfishljóðum, raddhljóð-
um, rafhljóðum og gítarhljóðum. Tónleik-
arnir hefjast klukkan 15.
L
ilja Sigurgeirsdóttir, matreiðslu-
maður og eigandi Mömmukaffis
í Búðakór í Kópavogi, hefur alla
tíð verið mikil súpugerðarkona
og reynir að hafa hollustuna að leiðar-
ljósi þegar hún stendur yfir súpupott-
unum. Hún opnaði Mömmukaffi síðast-
liðið haust og býður upp á ilmandi súpu
alla daga.
„Hugmyndin að kaffihúsinu var að
bjóða upp á fjölskylduvænan stað í
úthverfi, fjarri ys og þys borgarinnar,
og hefur það gefist vel,“ segir Lilja. Hún
segir aðstöðuna og veitingarnar taka
mið af þörfum fjölskyldunnar og þá sér
í lagi yngstu gestanna, en fjórðungur
staðarins er lagður undir leiksvæði sem
foreldrar hafa góða yfirsýn yfir.
Lilja segir viðskiptavini koma úr
ýmsum áttum og að fólk úr ólíkum
hverfum mæli sér mót á staðnum, enda
er hann miðsvæðis. Þá er gjarnan boðið
upp á léttar og fjölskylduvænar upp-
ákomur og má þar nefna reglulega
fræðslu og ráðgjöf fyrir mæður með
börn á brjósti. vera@frettabladid.is
Sérfræðingur í súpum
Lilja opnaði Mömmukaffi í Búðakór síðastliðið haust og hefur það fallið vel í kramið hjá fjölskyldum í hverfinu, sem og hjá íbúum
nágrannasveitarfélaganna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
1,5 lítri vatn
2 stórar sætar
kartöflur í teningum
2 meðalstórar
saxaðar gulrætur
2-3 hvítlauksrif eftir
smekk fínt söxuð
Ferskt engifer á
stærð við þumal-
putta, afhýtt og fínt
saxað
1 stk. matarlaukur,
saxaður
2 msk. krydd lífsins
frá Pottagöldrum
1 msk. Garam
masala frá Potta-
göldrum
1-2 teningar
grænmetiskraftur
eftir smekk
olía til steikingar
Aðferð:
Grænmeti og
kryddi blandað
saman og létt-
steikt (svitað) með
olíu í potti. Vatni
bætt út í og látið
sjóða í þrjú korter
og maukað með
töfrasprota. Þá
er komin þessa
fína súpa og
ekkert eftir nema
að smakka hana
til og bæta við
kryddunum ef
þurfa þykir. Mjög
gott er að bera
súpuna fram með
nýbökuðu brauði
og hummus eða
smjöri.
ENGIFERBÆTT SÆTKARTÖFLUSÚPA
Fyrir 4
Lilja Sigurgeirsdóttir geymir ógrynni súpuupskrifta í kollinum og deilir með sér góðri uppskrift: