Fréttablaðið - 18.03.2011, Page 24
2 föstudagur 18. mars
núna
✽ ekki missa af
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Anna María Sigurjónsdóttir
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is og Sigríður
Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
blogg vikunnar
Tískuliðið
Bloggið Fashionsquad.com var
stofnað af stílistanum
Carolinu Eng-
man árið 2006.
Á blogginu skrá-
setur Eng-
man klæðn-
að sinn við
ýmis tilefni.
Auk þess er
hún dug-
leg að
fjalla um
tísku al-
mennt.
New York tíska
Blogginu www.fashiontoast.com
er haldið úti af Rumi
Neely sem er hálf-
ur Japani og hálf-
ur Bandaríkjamað-
ur. Hún starfar
bæði sem fyr-
irsæta og stíl-
isti og hefur
haldið úti
blogginu frá
árinu 2007. Hún
segir helstu tísku-
fyrirmyndir sínar
vera fyrirsæturn-
ar Erin Wasson og
Daria Werbowy og
lýsir stíl sínum sem
afslöppuðum Kali-
forníu-stíl. Skemmti-
legt blogg sem
gaman er að lesa.
LEIKKONAN CLEMENCE POESY
mætti afslöppuð og sæt á verð-
launahátíð í London um helgina.
NORDICPHOTOS/GETTY
H
afste inn Júl íusson
vöruhönnuður mun
kynna vörulínuna HAF
by Hafsteinn Júlíusson
í verslun GK Reykjavík á meðan á
HönnunarMars stendur. Fyrr í vik-
unni gerði hann einnig samning
við verslunina Selfridges í Lond-
on varðandi sölu og dreifingu á
vörum sínum.
Hafsteinn er menntaður vöru-
hönnuður frá LHÍ og og Scuola
Politecnica í Mílanó. Hafsteinn
stofnaði HAF by Hafsteinn Júlí-
usson í byrjun síðasta árs ásamt
kærustu sinni og Daníel Ólafs-
syni en fyrirtækið þróar, framleið-
ir og dreifir íslenskum hönnunar-
og lífsstíls-
vörum.
Hann ákvað að stofna fyrirtækið
eftir að fjöldi fyrirspurna fór að
berast frá erlendum söluaðilum,
þar á meðal bresku stórverslun-
inni Selfridges sem hann gerði ný-
verið sölusamning við. Hafsteinn
hefur verið búsettur í Mílanó und-
anfarin þrjú ár og segir mikinn
kost að búa í svo mikilli nálægð
við miðju hönnunarhringiðunnar.
Eins og áður hefur komið fram
mun Hafsteinn kynna vörulínu
sína í verslun GK Reykjavík á
meðan á HönnunarMars stendur
og er þetta í fyrsta sinn sem hann
tekur þátt í viðburðinum. „Mig
langaði að kynna HAF og okkar
vörur til sölu á Íslandi í gegnum
HönnunarMarsinn og hafði því
samband við Hönnunarmiðstöð
og þannig kom þetta til. Sýning-
in sem við ætlum að setja upp
í GK Reykjavík nefnist Vörur í
vinnslu og er eins konar þrí-
vítt súlurit sem lýsir ferli og
stöðu hverrar vöru fyrir sig
á myndrænan hátt,“ útskýr-
ir Hafsteinn.
Sérstakt opnunarteit i
fer fram fimmtudaginn 24.
mars og mun Danni Deluxe
spila verkið HAF 001: Music that
Inspired Us auk þess sem allir
sýningargestir fá afhentan QR-
kóða sem inniheldur verkið. GK
Reykjavík mun einnig hefja sölu
á hinum stórskemmtilegu Grow-
ing Jewelry mosaskartgripum eftir
Hafstein við þetta tilefni.
HAFSTEINN JÚLÍUSSON VÖRUHÖNNUÐUR TEKUR ÞÁTT Í HÖNNUNARMARS:
GERÐI SAMNING VIÐ
SELFRIDGES
Atorkusamur Hafsteinn Júlíusson vöruhönnuður tekur þátt í HönnunarMars og setur
meðal annars upp sýningu í GK Reykjavík.
F
áir fatahönnuðir hafa tjáð
sig um mál Johns Galliano á
opinberum vettvangi síðan
hann var handtekinn í París
fyrir kynþáttafordóma. Hönn-
uðurinn Isaac Mizrahi er ekki
í þeim hópi og hefur meðal
annars sagt að hann vonist til
að Galliano muni aldrei starfa
innan tískubransans aftur.
„Ég var aldrei sérstaklega
hrifinn af því sem Galliano
gerði. Ég var hrifnari af því sem
McQueen og Vivienne Westwo-
od gerðu. Og nú kemst ég að því
að hann hatar gyðinga og ég
hugsaði með mér: „Bæ, bæ Gal-
liano“. Ég held að hann muni
aldrei starfa innan bransans
aftur. Ég vona það alltént í það
minnsta,“ sagði Mizrahi í viðtali
við The Cut.
Isaac Mizrahi er ekki hrifinn af John Galliano:
Vonar að hann
starfi aldrei aftur
Ekki hrifinn Isaac Mizrahi vonar að Galliano
muni aldrei aftur starfa innan bransans.
NORDICPHOTOS/GETTY
OFURKONA Vorlína snyrtivöruframleiðand-
ans MAC nefnist Wonder Woman og er til heiðurs
ofurhetjunni frægu. Litirnir eru kvenlegir og inniheld-
ur línan meðal annars litaða maskara, þrjár augn-
skuggapallettur og ofurstóran varagloss.