Fréttablaðið - 18.03.2011, Blaðsíða 38
22 18. mars 2011 FÖSTUDAGUR
Umfjöllun íslenskra fjölmiðla í kjölfar hins alþjóðlega fjár-
málahruns hefur því miður oft á
tíðum einkennst af slúðri og slag-
orðum. Það er vond blanda og ekki
einungis skaðleg fyrir fórnarlömb-
in hverju sinni heldur alla umræðu
í landinu, sem bæði verður neikvæð
og afturvirk. Þegar til lengri tíma
er litið kann það að verða dýrkeypt
fyrir allt samfélagið.
Hjá fjölmiðlunum virðast „kröf-
ur markaðarins“ oftast ráða för í
efnistökunum, rétt eins og lýðhyllin
virðist stýra stjórnmálamönnum en
ekki leiðsögnin sem þeim er ætlað
að veita. Hraðinn í fréttaflutningi
og e.t.v. fjárskortur í ofanálag virð-
ist bitna á metnaði og gæðum. Ég
hef að öllu jöfnu ekki hirt um að
elta ólar við ónákvæmni eða upp-
spuna í umræðunni en um þessar
mundir fæ ég þó ekki lengur orða
bundist og leyfi mér að benda á
nokkur dæmi um óvandaða blaða-
mennsku á undanförnum dögum.
1. Ég hygg að flestir fjölmiðlar
hafi sagt frá því að mér og reynd-
ar öllum öðrum sem handteknir
voru í tengslum við húsleitir Ser-
ious Fraud Office, SFO, og Sérstaks
saksóknara í London og á Íslandi
hafi verið sleppt sama kvöld „gegn
tryggingu“. Sjálfur var ég frjáls
ferða minna í eftirmiðdag þessa
dags eftir 15 mínútna langa yfir-
heyrslu og ekki krafinn um nein-
ar tryggingar frekar en aðrir sem
færðir voru til yfirheyrslu. Enginn
þessara fjölmiðla gaf sér tíma til að
spyrja um hvers konar tryggingar
væri að ræða. Bullið tók hver mið-
illinn upp eftir öðrum og enginn
þeirra hefur séð ástæðu til að leið-
rétta sig.
2. Önnur ónákvæmni fjöl-
miðlanna þar sem hver étur upp
eftir öðrum er að handtökur hafi
verið framkvæmdar í kjölfar hús-
leitar. Um leið er gefið í skyn að við
húsleitirnar hafi fundist gögn sem
réttlættu handtökur. Það er rangt.
Hins vegar voru menn færðir til
yfirheyrslu samhliða húsleitum. Á
þessu tvennu er mikill munur – en
fjölmiðlum stendur á sama.
3. Sérstakur saksóknari hélt
því fram í upphafi að hann kæmi
hvergi nærri þessum húsleitum
heldur væru þær alfarið á vegum
SFO í London. Á sama tíma mætti
Björn Þorvaldsson aðstoðarsak-
sóknari á heimili mitt í London og
reyndi að dyljast í stórum hópi inn-
fæddra án þess að gera grein fyrir
sér. Þegar á hann var gengið sér-
staklega sagðist hann vera túlkur
til aðstoðar ef einhver grunsam-
leg skjöl fyndust á íslensku. Hvort
Björn hafi löggildingu sem slíkur
læt ég ósagt um.
4. Fréttastofa RÚV hefur á sínum
snærum sérstakan pistlahöfund
í London, Sigrúnu Davíðsdóttur.
Hún hefur gefið sig út fyrir yfir-
gripsmikla þekkingu á málefn-
um Kaupþings í aðdraganda falls
bankans og hefur ekki tekið fyrr-
verandi stjórnendur bankans nein-
um vettlingatökum. Hún setti hins
vegar á sig silkihanskana þegar
hún tók hátíðarviðtal við fyrrver-
andi fjármálaráðherra Bretlands,
Alistair Darling, og leyfði honum
án nokkurrar gagnrýni eða athuga-
semda að klifa á sinni gömlu lyga-
möntru um óeðlilega flutninga fjár-
magns til Íslands. Vafalaust átti
þessi skáldskapur Darling stóran
þátt í því að Bretar ákváðu að fella
Kaupthing Singer Friedländer á
sama tíma og þeir komu fjölmörg-
um öðrum breskum og mun verr
stöddum bönkum til hjálpar. Sú
mismunun er mér enn óskiljanleg –
og sömuleiðis sú ákvörðun Breta að
beita hryðjuverkalögum á Lands-
og Seðlabankann með skelfilegum
afleiðingum fyrir samfélagið. Um
þetta hirti hin sérfróða fréttakona
RÚV ekki að spyrja enda þótt sjálf-
ur fjármálaráðherra Breta á þess-
um tíma sæti fyrir framan hana.
Hún bugtaði sig og beygði í lotn-
ingu fyrir viðmælanda sínum og
leyfði honum að nota sig sem krana
fyrir eldgamla og úrelta lygasögu.
Sigrúnu var sama um sannleikann.
Ríkisútvarpinu líka. Og öðrum fjöl-
miðlum. Hvergi er risið upp til að
rannsaka eða mótmæla þessum
rakalausu dylgjum.
5. Íslenskir fjölmiðlar hafa á und-
anförnum dögum margtuggið það
upp úr breskum fjölmiðlum að tjón
breskra skattgreiðenda af Kaup-
thing Edge reikningum og starf-
semi Kaupthing Singer Friedländer
þar í landi eigi eftir að leika á millj-
örðum punda. Engin tilraun er gerð
til að sannreyna þessar staðhæfing-
ar heldur látið nægja að endurflytja
þær sem staðreyndir. Hið rétta er
að enn er óljóst hvort eitthvert tjón
verður af starfseminni, jafnvel
þótt bankinn hafi verið felldur, þar
sem ágætlega hefur gengið að inn-
heimta eigur hans. Hið háa endur-
heimtuhlutfall staðfestir það sem
stjórnendur KSF hafa alltaf haldið
fram en það er að bresk stjórnvöld
hafi gert skelfileg mistök þegar þau
ákváðu að meðhöndla KSF öðruvísi
en alla aðra breska banka haustið
2008. Um þetta er íslenskum fjöl-
miðlum sama. Sönglið skal snúast
um tjónið af völdum bankanna –
ekki Bretanna.
6. Og nú síðast kemur fram enn
einn fjölmiðlamaðurinn sem nærist
á sviðsljósinu og heldur því fram að
í gömlum bankahvelfingum Kaup-
þings í Lúxemborg liggi vand-
lega þvegnir leynisjóðir frá nafn-
greindu rússnesku gasfyrirtæki.
Ásakanir um peningaþvætti eru
um leið ásakanir um alvarlegt lög-
brot, í þessu tilfelli bæði bankans
og viðskiptavinarins. Atvinnuróg-
ur og meiðyrði í fjölmiðlum eru að
verða daglegt brauð. Hið rétta er
að engin rússnesk fyrirtæki voru
nokkru sinni með nokkur viðskipti
við Kaupthing Luxembourg. Hið
rétta er líka að við endurskipulagn-
ingu bankans voru allar innistæð-
ur í honum greiddar til eigenda
sinna. Uppspuninn um rússneska
leynisjóði og peningaþvætti er
innistæðulaus þvættingur. Höf-
undinum Sölva Tryggvasyni er
sama. Líka þeim sem gefa hann út.
Og aðrir fjölmiðlar láta sér svona
smotterí í léttu rúmi liggja.
7. Nýjasta slúðrið er síðan á vef-
miðlinum AMX þar sem nafnlaus-
ir smáfuglar (litlir í orðsins fyllstu
merkingu) hvísla um það í radd-
styrk Gróu á Leiti að líklegast séu
gömlu stjórnendur Kaupþings og
klíkan í kringum þá í broddi fylk-
ingar hins nýja eignarhalds á Arion
banka. Enginn fótur er fyrir þessu
og væntanlega veit hvíslarinn það
jafn vel og allir aðrir. Honum er
sama. Eiganda miðilsins er sama.
En slúðrið er skemmtilegt og aðal-
atriðið að skvetta meiri olíu á eld-
inn og stíga dansinn í kring.
Síðasta dæmið um metnaðarleysi
fjölmiðlanna, nafnlausa fuglahvísl-
ið á AMX, er alls ekki það alvar-
legasta sem ég hef gert að umfjöll-
unarefni í þessari grein. Það er
hins vegar umhugsunarefni hvort
ábyrgðarleysi þessa dvergmiðils
gefi vísbendingu um það sem hinir
stærri leyfi sér líka. Þar undanskil
ég engan en vil þó nefna það að
Fréttablaðið gerir sig að mínu viti
sjaldnar en aðrir sekt um vinnu-
brögð af því tagi sem ég hef gert
að umtalsefni. Ég vil líka vekja sér-
staka athygli á því að einn íslensk-
ur fjölmiðill hefur lögbundnar sam-
félagslegar skyldur enda að fullu í
eigu þjóðarinnar allrar. Þess vegna
er honum, og ekki síst fréttamönn-
um hans og pistlahöfundum, gjarn-
an treyst betur en öðrum. Þessu
fólki er fært mikið vald. Það er
sorglegt að sjá það oft á tíðum vera
sporgengla kollega sinna og jafnvel
forystusauði í þjónkun við spurn
markaðarins eftir fleiri aftökum á
alþingi götunnar.
Slúðrandi fjölmiðlun
Fjölmiðlar
Sigurður
Einarsson
fv. stjórnarformaður
Kaupþings
Engin rússnesk fyrirtæki voru nokkru
sinni með nokkur viðskipti við Kaup-
þing Luxemburg. Hið rétta er líka að við
endurskipulagningu bankans voru allar innistæður
í honum greiddar til eigenda sinna. Uppspuninn um
rússneska leynisjóði og peningaþvætti er þvættingur.
Opnunartími:
Mán-Fös. kl: 12-18
Laug-Sun. kl: 12-16
Fossháls 5-7 l 110 Reykjavík
Sími 551 5600 l utilegumadurinn.is
Fyrsta sýningarhúsið komið frá
þýska hjólhýsarisanum Dethleffs
Sýnum einnig Eximo 2011 hjólhýsi
E
xi
m
o
3
70
Verð: 2.398.000krVerð: 2.998.000kr
E
xi
m
o
5
20
L
Verð: 2.998.000kr
E
xi
m
o
5
20
B
Verð: 2.798.000kr
E
xi
m
o
4
60
Verð frá: 3.468.000kr