Fréttablaðið - 18.03.2011, Síða 42
18. mars 2011 FÖSTUDAGUR26
BAKÞANKAR
Þórunnar
Elísabetar
Bogadóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. skrambi, 6. í röð, 8. tré, 9. háttur,
11. mun, 12. tónstigi, 14. yfirbragð,
16. sjó, 17. stúlka, 18. munda, 20.
þys, 21. steypuefni.
LÓÐRÉTT
1. líkamshluti, 3. átt, 4. eyja í
Miðjarðarhafi, 5. svelg, 7. aftursæti,
10. op, 13. festing, 15. löngun, 16.
pumpun, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. ansi, 6. áb, 8. við, 9. lag,
11. ku, 12. skali, 14. stíll, 16. sæ, 17.
mey, 18. ota, 20. ys, 21. gifs.
LÓÐRÉTT: 1. háls, 3. nv, 4. sikiley, 5.
iðu, 7. baksæti, 10. gat, 13. lím, 15.
lyst, 16. sog, 19. af.
Jájá. Í dag
hneppi
ég alveg
upp!
Við hvað
ertu
hræddur?
Að einhver
fari að
strjúka þér
og reyna
við þig?
Pondus!
Þú ert
mættur!! Jááá...
Einu
sinni
enn?
Jæja, þá er sá
dagur runn-
inn upp. Ég
er á leiðinni í
hommapartí!
Takk kærlega
fyrir!
Látt‘ekki
svona!
Við förum
nú ekki
oft í partí
og þetta
verður bara
hýrt!
Nei! En ég
kann bara
betur við
veislur þar
sem menn
ræða um liðs-
uppstillingu af
innlifun!
Þú ert
bara
fordóma-
fullur! Þeir
eru alveg
eins og
við, sann-
aðu til!
Úff! Af hverju leggur
hann Palli ekkert
upp úr útlitinu?
Solla, ertu búin að hugsa
um hvað þú ætlar að
búa til fyrir mömmu á
mæðradaginn?
Er það ekki
hlutverk
kennarans
míns?
Hátækni-
sjúkrahús Sko, hjartadeildin er uppi á tólftu
hæð. Því miður er
lyftan ekki komin
í gagnið svo þú
verður að fara upp
stigann.
Tölvur eru hinir mestu tímaþjófar. Það geta væntanlega flestir verið sammála
um, þó notagildi þeirra sé líka nokkuð
óumdeilt. Það er þó ekki fyrr en tölvurnar
eru teknar út úr jöfnunni, hvort sem það
er gert meðvitað eða ekki, sem það kemur
í ljós nákvæmlega hversu miklum tíma er
eytt í þessum tækjum.
NÚ Í kvöld ætlar hópur fólks að komast
að þessu með því að halda hátíðlegan
„National Day of Unplugging“ sem
mætti þýða sem „Tökum úr sam-
bandi dagur“ eða „Ótengdi dag-
urinn“ á íslensku. Hvíldardagur
í raun. Hann á að standa fram á
morgundaginn, heill sólarhringur
án farsíma og nets. Þetta er erf-
itt fyrir marga, erfiðara en þeir
kannski gera sér grein fyrir.
ÉG TÓK óviljandi forskot á sæl-
una fyrr í vikunni. Hleðslu-
tæki tölvunnar minnar
gaf sig og ég sat uppi
með hleðslulausa tölvu.
Þetta reyndist mér
erfitt, opinbera
skýringin á því
var að sjálfsögðu
sú að ég er að
skrifa BA-rit-
gerð og hún
er jú skrifuð á tölvu. Þó það sé satt og rétt
og hafi sett strik í reikninginn þótti mér
alveg jafn erfitt ef ekki erfiðara að kom-
ast ekki á fréttamiðla, á tölvupóstinn, á
Facebook.
JAFNVEL þó að ég vissi innst inni að ég
væri nú líklega ekki að missa af neinu
brjálæðislegu truflaði þetta mig. Ég er
bara allt of vön því að vera með tölvuna
opna einhvers staðar, þó ég sé ekkert að
gera í henni. Hún bara er þar og það er
hægt að kíkja á hina ýmsu staði á netinu
hvenær sem er.
FLJÓTLEGA fór þetta þó að hafa mjög
jákvæð áhrif og ýmislegt sem hefur lengi
setið á hakanum var framkvæmt. Það
þurfti bara nokkra daga til að afeitrast
aðeins og sjá hversu mikill tími fer í ekki
neitt þegar maður á fullhlaðna fartölvu.
Ég missti heldur ekki af neinu stórfeng-
legu, í mesta lagi sparaði ég mér pirring.
ÞÓ ÞURFTI ég á endanum að útvega mér
hleðslutæki, enda nauðsyn fyrir bæði nám
og vinnu. Nú verður hins vegar minni
tíma eytt í bullið, svo lengi sem það loforð
endist.
ÞAÐ KREFST smá tíma að venjast því, en
hvíldardagur er jafn nauðsynlegur frá
tölvunni sem öðru. Prófaðu bara.
Tæknipása