Fréttablaðið - 18.03.2011, Side 45
FÖSTUDAGUR 18. mars 2011 29
Feneyjatvíæringurinn verður í
brennidepli á málþingi sem Lista-
safn Reykjavíkur og Kynningarmið-
stöð íslenskrar myndlistar standa
fyrir á Kjarvalsstöðum á sunnudag.
Framsögumenn hafa allir komið
að Feneyjatvíæringnum með einum
eða öðrum hætti og munu þeir miðla
af reynslu sinni og reifa ýmis álita-
mál varðandi hátíðina.
Birta Guðjónsdóttir, sýningar-
stjóri og myndlistarmaður, munu
ræða um Feneyjatvíæringinn út
frá þátttöku hennar sem aðstoðar-
manns við uppsetningu í íslenska
skálanum árið 2005. Börkur Arn-
arsson rekur gallerí i8 í Reykjavík
og hefur komið að tvíæringnum í
gegnum listamenn á vegum gall-
erísins, til dæmis Ragnar Kjart-
ansson. Börkur fjallar um stöðu og
eftirfylgni við listamenn sem taka
þátt í Feneyjatvíæringnum. Dor-
othée Kirch hefur mótað nýja stefnu
sem forstöðumaður Kynningarmið-
stöðvar íslenskrar myndlistar, KÍM,
og mun varpa ljósi á framtíðarsýn
miðstöðvarinnar á tvíæringinn. Að
lokum mun Ellen Blumenstein, sýn-
ingarstjóri íslenska skálans í Fen-
eyjum 2011, fjalla um tvíæringinn í
alþjóðlegu samhengi og í tengslum
við íslenskan myndlistarveruleika.
Fríða Björk Ingvarsdóttir stýrir
málþinginu, sem fer fram á ensku
og stendur frá klukkan 15 til 17.
Aðgangur er ókeypis og öllum
opinn.
Tvíæringurinn tekinn til kostanna
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 18. mars
➜ Tónleikar
20.00 Kristjana Stefánsdóttir, söng-
kona, og Kjartan Valdemarsson,
píanóleikari,halda tónleika í Menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi kl. 20.
Aðgangseyrir er kr. 2.000.
23.00 Fjáröflunartónleikar Of Mon-
sters and Men fara fram á Faktorý í
kvöld kl 23. Sveitin er á leið í hljóðver
að taka upp sína fyrstu breiðskífu.
Einnig koma fram Orphic Oxtra og
Who Knew?. Húsið opnar kl. 22.
Aðgangseyrir kr. 1.000.
➜ Síðustu forvöð
Síðasta sýn-
ingarhelgi mál-
verkasýningar
Huldu Hlínar,
Huldir heimar,
er um helgina.
Listamaðurinn
verður á staðn-
um frá kl. 13-15
á laugardag.
Sýningu lýkur á
sunnudag. Opið
frá kl. 9-22.
➜ Málþing
12.00 Málþing um niðurstöður
rannsókna á aðstæðum og upplifun
kvenna í fjórum greinum á verkfræði-
og náttúruvísindasviði HÍ fer fram í
dag kl. 12. Aðgangur er ókeypis. Allir
velkomnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
ÚR SÝNINGU SÝNINGANNA Steingrímur Eyfjörð er í hópi þeirra listamanna sem hafa
sýnt á Feneyjatvíæringnum sem fulltrúar Íslands.
Ólafur Elíasson myndlistarmað-
ur hefur hannað frímerki í til-
efni þess að Harpa verður tekin
í notkun 4. maí næstkomandi.
Ólafur hannaði glerhjúpinn utan
á tónlistarhúsinu, sem er tilvísun
í stuðlaberg sem finna má víða
á landinu, og dregur frímerkið
einnig dám af því. Henning Lar-
sen Architects hönnuðu bygg-
inguna en Artec Consultants
hljómburðinn.
Íslandspóstur gefur frímerk-
ið út 4. maí næstkomandi, sama
dag og Harpa verður opnuð með
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar
Íslands undir stjórn Vladimírs
Ashkenazy.
Ólafur hann-
ar frímerki
fyrir Hörpu
Canon Powershot SX30
Verðlaun
febrúar-
mánaðar
2011
1. verðlaun:
Canon EOS 60D
Samtals 13 glæsileg verðlaun
frá Sense, dreifingaraðila
Canon neytendavara
á Íslandi
Ljósmyndakeppni
fyrir dagatal Eimskips 2012
Taktu þátt í ljósmyndakeppni Eimskips og freistaðu þess að fá landslagsmyndina
þína gefna út á dagatali félagsins næsta ár. Hægt er að senda inn mynd
í hverjum mánuði og veitt eru glæsileg verðlaun fyrir bestu mynd mánaðarins.
Fyrstu verðlaun fyrir bestu myndina, glæsileg Canon EOS 60D myndavél, verða
síðan kynnt í lok nóvember um leið og það kemur í ljós hverjir eiga þær myndir
sem valdar voru myndir mánaðarins.
Myndefnið:
Landslag í náttúru Íslands er myndefnið. Á myndinni, sem á að vera í lit, mega
ekki sjást mannvirki eða fólk. Dýr mega ekki vera í forgrunni. Myndina skal
taka í þeim mánuði sem hún tilheyrir, þ.e. janúarmyndina í janúar osfrv.
Skiladagur í hverjum mánuði:
Skiladagur myndar mánaðarins hverju sinni er í síðasta lagi
20. dag mánaðarins á eftir. Febrúarmynd á þannig að skila
inn í síðasta lagi 20. mars.
Um fyrirkomulag keppninnar, skil á myndum og nánari keppnisreglur
er að öðru leyti vísað á www.eimskip.is/ljosmyndakeppni
20.
Munið
skilafrestinn
mars
að verðmæti 94.900 kr.