Morgunblaðið - 12.09.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Gran Canaria
22. október í 3 vikur
Verð frá kr.
179.995
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir ræddi loftslags-
málin sérstaklega í stefnuræðu for-
sætisráðherra á Alþingi í gærkvöldi,
meðal annars í ljósi óstöðugs veður-
fars og náttúruhamfara. Formenn
sumra stjórnarandstöðuflokka tóku
undir áhyggjur hennar af loftslags-
málunum í umræðunum en aðrir
lýstu efasemdum um forsendur
ályktana hennar eða gagnrýndu þær
aðgerðir sem ríkisstjórnin grípur til.
„Loftslagsváin er að skapa
neyðarástand nú þegar víða um
heim. Hún er okkar stærsta áskor-
un,“ sagði forsætisráðherra. „Mann-
kynið ber ábyrgð á ástandinu, mann-
kyninu stafar ógn af því og nú er
stærsta verkefni mannkynsins að
draga úr hraða þessarar ógnvæn-
legu þróunar, lágmarka skaðann og
tryggja framtíð okkar og lífríkisins
alls á þessari plánetu. Því að mann-
kynið á ekki eftir að fá annað tæki-
færi á annarri plánetu heldur aðeins
það tækifæri sem við höfum hér og
nú.“
Hún sagðist stolt af því að leiða
ríkisstjórn sem legði fram fyrstu
fjármögnuðu aðgerðaáætlunina til
að berjast gegn loftslagsvánni, en
hún snerist um orkuskipti í sam-
göngum og stóraukna kolefnisbind-
ingu. Nýttir yrðu efnahagslegir
hvatar til að ná loftslagsmarkmiðum,
bæði grænir skattar og grænar íviln-
anir.
Umræðan þarf að halda áfram
Katrín kom inn á heimsókn Mike
Pence, varaforseta Bandaríkjanna,
og þá umræðu sem skapast hefði um
samskipti Íslands við stórveldi
heimsins, um öryggis- og friðarmál,
hernaðaruppbyggingu og loftslags-
mál. Sú umræða þyrfti að halda
áfram.
„Ég legg ríka áherslu á að lofts-
lagsváin verður ekki leyst með
gamaldags málflutningi kalda stríðs-
ins heldur þarf alþjóðlega samvinnu
þar sem allir sitja við borðið. Þess
vegna setjum við umhverfismálin í
forgang í formennskuáætlun okkar
íslenskra stjórnvalda í Norður-
skautsráðinu og nýtum hvert tæki-
færi sem gefst á vettvangi alþjóða-
mála til að setja loftslagsmálin á
dagskrá,“ sagði forsætisráðherra.
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, tók undir orð for-
sætisráðherra um neyðarástand
vegna hamfarahlýnunar af manna-
völdum en vildi bæta við öðrum ógn-
um mannkyns: ójöfnuði og ófriði.
Aldrei hefði verið meiri ástæða til
samvinnu. „Samt treystir ríkis-
stjórnin sér ekki til að ráðast í að-
gerðir í loftslagsmálum sem uppfylla
alþjóðlegar skuldbindingar okkar.
Og í stað þess að boða nánari sam-
vinnu við Evrópuríki – sem leiða að-
gerðir í loftslagsmálum – eygja þau
frekar tækifæri í samstarfi við stór-
veldi, með leiðtoga, sem sjá skamm-
tíma ávinning í glundroða,“ sagði
Logi Einarsson.
Nálgast málin á rangan hátt
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, sagði að
loftslagsmálin væru vissulega mikil-
væg en þeir sem mest töluðu um þau
nálguðust málin oft á kolrangan hátt.
„Til að takast á við stór úrlausnar-
efni eins og ógnir í umhverfismálum
þurfum við að beita vísindum og
skynsemi, en ekki notast við sýndar-
pólitík og moka ofan í skurði. Og
ekki með því að finna upp nýja refsi-
skatta, hvaða nöfnum sem þeir eru
nefndir. Skatta sem hafa ekki önnur
áhrif en að auka álögur á almenning,
hækka verðlagsvísitölu og bitna auð-
vitað verst á þeim tekjulægri,“ sagði
Sigmundur.
Ráðstöfunartekjur hækka
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir,
iðnaðarráðherra og varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, vakti athygli á
lækkun tekjuskatts einstaklinga sem
gert er ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi.
Það þýddi að ráðstöfunartekjur
þeirra tekjulægstu hækkuðu um
rúmlega 120 þúsund kr. á ári. Ríkis-
sjóður myndi skila 21 milljarði á ári
til skattgreiðenda, eða réttara sagt:
hætta að taka þessa fjárhæð af þeim.
Jafnframt væri verið að stórauka
fjárfestingar í innviðum og auka
fjárframlög til margra málaflokka.
Gott að búa á Íslandi
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
gönguráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, fór yfir störf ráð-
herra flokksins og ríkisstjórnar-
innar. Nefndi að brýnt væri að setja
skýrar reglur um kaup og sölu á
jörðum þar sem þróun síðustu ára
hefði verið algerlega óviðunandi.
„Ísland er um margt fyrirmyndar-
samfélag sem er jafnan ofarlega á
listum um hagsæld og lífsgæði í
heiminum, deilir toppsætunum með
nágrannaþjóðum okkar á Norður-
löndum,“ sagði ráðherra og lauk
ræðu sinni þannig: „Ríkisstjórnin
hefur skýra sýn hvað varðar lífsgæði
og tækifæri á Íslandi og metnað til
að gera stöðugt betur. Það er nefni-
lega gott að búa á Íslandi.“
Á miðju vegasaltsins
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
formaður Viðreisnar, sagði að ríkis-
stjórnin gæti ekki varið hagsmuni
landsins í utanríkis- og varnar-
málum vegna bresta í baklandi
stjórnarflokkanna. „Ísland þarf nú,
líkt og aðrar þjóðir, að velja hvort
þróa eigi tengslin í fjölþjóða-
samstarfi eins og ESB eða hverfa
aftur til tvíhliða samskipta að hætti
Breta og Bandaríkjamanna. Ríkis-
stjórnarflokkarnir sitja hins vegar á
miðju vegasaltsins og vita ekki sitt
rjúkandi ráð.“
Ólafur Ísleifsson, formaður þing-
flokks Miðflokksins, rakti aukinn
áhuga bandarískra stjórnvalda á Ís-
landi og norðurslóðum og samstarfs-
verkefni kínverskra stjórnvalda sem
nefnt er Belti og braut. „Fram hefur
komið að afstaða ríkisstjórnarinnar
til hins kínverska frumkvæðis virðist
leika á tveimur tungum. Athygli vek-
ur að forsætisráðherra notaði ekki
stefnuræðu sína til að skýra stefnu
ríkisstjórnar sinnar til þessa mál-
efnis.
Loftslagsváin er stærsta áskorunin
Forsætisráðherra segir að loftslagsváin verði ekki leyst með gamaldags málflutningi kalda stríðsins
Formaður Miðflokksins segir að beita þurfi skynsemi og vísindum í baráttunni en ekki sýndarpólitík
Morgunblaðið/Eggert
Eldhúsdagur Katrín Jakobsdóttir flutti stefnuræðu forsætisráðherra í gærkvöldi og í kjölfarið skiptust þingmenn á skoðunum um hana.
Formaður Inga Sæland sagði frá stefnumálum Flokks fólksins og hvaða lausnir hann hefði fram að færa. Við hlið
forseta Alþingis, Steingríms J. Sigfússonar, situr Ragna Árnadóttir, nýr skrifstofustjóri þingsins.
Inga Sæland, formaður Flokks
fólksins, sagði sögu úr eigin lífi
þegar hún gagnrýndi velferðar-
kerfið. Hún sagði að það hefði
tekið sjúkrabíl 32 mínútur að
koma til heimilis hennar í
Grafarholti þegar maður
„hrundi niður“. Þetta hefði þó
verið klukkan hálf ellefu að
morgni og lítil umferð. „Hvað í
veröldinni er í gangi? Ef viðkom-
andi sem þarna hrundi niður
væri verulega tæpur á því væri
hann löngu dauður. Það segir
sig sjálft,“ sagði Inga.
Hvað í veröld-
inni er í gangi?
SAGA AF HEIMILINU