Morgunblaðið - 12.09.2019, Side 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
brottfarartíma. Gestur í opinberri
heimsókn er á ábyrgð íslenska ríkis-
ins og það má ekkert koma upp á
sem varpar skugga á heimsóknina,“
sagði Guðbrandur. Algengt er að er-
lendu gestirnir séu með sína eigin
öryggisverði. Samhæfing við þá fer í
gegnum embætti Ríkislögreglu-
stjórans. Guðbrandur benti á að er-
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Erlendra fyrirmenna sem heim-
sækja Ísland í opinberum heim-
sóknum eða öðrum erindum er
vandlega gætt. Eggert ljósmyndari
var á Bessastöðum þegar Indlands-
forseti kom þangað í fyrradag og
tók þá mynd af þeim Ágústi Svans-
syni, aðstoðaryfirlögregluþjóni í
aðgerða- og skipulagsdeild LRH,
og Guðbrandi Sigurðssyni, aðstoð-
aryfirlögregluþjóni í umferðardeild
LRH. Þeir hafa báðir langa reynslu
af að gæta háttsettra erlendra
gesta sem heimsækja Ísland.
Þrengsli í anddyri Höfða
Guðbrandur Sigurðsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn á að baki 39 ár í
lögreglunni en hann hóf þar störf
tvítugur árið 1980.
„Ég var við öryggisgæslu sem
sérsveitarmaður í anddyri Höfða á
leiðtogafundinum 1986,“ sagði Guð-
brandur. „Anddyrið er svo þröngt að
ég þurfti að færa mig alveg upp að
veggnum svo þeir Reagan Banda-
ríkjaforseti og Gorbatsjov, leiðtogi
Sovétríkjanna, kæmust framhjá!“
Áður en Guðbrandur varð sér-
sveitarmaður var hann bifhjóla-
lögreglumaður og fylgdi bílalestum
fyrirmanna. Hann hefur tekið þátt í
öryggisgæslu opinberra gesta sem
bifhjólalögregla, sérsveitarmaður
eða fylgdarstjórnandi.
„Þetta eru krefjandi verkefni. Við
þurfum að vinna eftir stífu skipulagi
frá stjórnvöldum, stilla upp bílum,
hafa allt klárt og virða komu- og
lendir öryggisverðir færu ekki með
lögregluvald og væru ekki með
heimild til afskipta af íslenskum
borgurum. Allar þeirra áhyggjur
þurfa að fara í gegnum íslensku lög-
regluna.
„Þetta hefur gengið áfallalaust og
sárasjaldan orðið einhverjar uppá-
komur. Að öllu jöfnu eru Íslendingar
kurteisir og skilningsríkir á skyldur
ríkisins við opinberar heimsóknir,“
sagði Guðbrandur.
Fólk er almennt tillitssamt
„Ég byrjaði í lögreglunni 1982 og
kom að öryggisgæslu á leiðtogafundi
þeirra Gorbatsjovs og Reagans í
Höfða 1986,“ sagði Ágúst Svansson
aðstoðaryfirlögregluþjónn. „Ég var í
gamla vegaeftirlitinu. Þá vorum við
mikið í að fylgja fyrirmennum. Svo
fór ég í almennu lögregluna. Nú er
ég í aðgerða- og skipulagsdeild og
við sjáum um ákveðna skipulagingu í
kringum opinberar heimsóknir.
Umferðardeildin er svo með fram-
kvæmdina og ég er oft með í henni.“
Ágúst segir að heimsóknirnar
kalli á mikið samstarf Ríkislög-
reglustjóra, LRH, sendiráða, ráðu-
neyta, forsetaskrifstofu og fleiri.
Mikilvægt sé að allar tímasetningar
standist. Eitt af hlutverkum lögregl-
unnar er að tryggja að menn komist
greiðlega á milli staða. Mótorhjólin
fara á milli gatnamóta og tryggja að
bílalestin komist leiðar sinnar
snurðulaust. Einnig þarf að tryggja
öryggi gestanna á öllum tímum.
„Við berum virðingu fyrir þessum
verkefnum eins og öðrum sem við
fáum. Fólk er mjög tillitssamt og
sýnir okkur og erlendu gestunum al-
mennt mikla kurteisi. Það verður
aldrei ofþakkað,“ sagði Ágúst.
Morgunblaðið/RAX
1986 Gorbatsjov, leiðtogi Sovétríkjanna, og Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, í Höfða.
Morgunblaðið/Eggert
Aðstoðaryfirlögregluþjónar Þeir Ágúst Svansson (t.v.) og Guðbrandur Sig-
urðsson hafa lengi gætt öryggis tiginna erlendra gesta sem komið hafa í heim-
sóknir til Íslands. Þar þarf allt að fara eftir stífu skipulagi og settum reglum.
Stóðu vakt-
ina við Höfða
Morgunblaðið/Hari
2019 Guðni Th. Jóhannesson forseti og Mike Pence, varaforseti Bandaríkjanna, í Höfða.
Saman í löggæslunni 1986 og 2019
Kjaraviðræður BSRB við viðsemj-
endur hafa heldur þokast í rétta átt
þótt hægt hafi gengið, segir á vef
BRSB. Enn á eftir að leysa úr
stórum ágreiningsmálum á borð við
styttingu vinnuvikunnar og jöfnun
launa milli markaða.
Kjarasamningar flestra aðildar-
félaga BSRB hafa verið lausir frá
því í byrjun apríl og viðræður við
viðsemjendur staðið yfir síðan.
BSRB fer með samningsumboð í
ákveðnum málaflokkum en aðild-
arfélög bandalagsins semja hvert
fyrir sig um laun og ýmis sérmál.
Viðsemjendur eru þrír; ríkið, Sam-
band íslenskra sveitarfélaga og
Reykjavíkurborg. Áætlað var að
ljúka viðræðum fyrir 15. september
en ólíklegt að það takist.
Viðræður þokast
hægt við BSRB
Allt um sjávarútveg
Tabula gratulatoria
Ellert B. Schram áttræður
Þann 10. október 2019 verður Ellert B. Schram, fyrrum ritstjóri DV,
alþingismaður, forseti ÍSÍ og núverandi formaður Félags eldri borgara
í Reykjavík og nágrenni, áttræður. Um það leyti kemur út sjálfsævi-
saga hans, Enginn veit sína ævina fyrr en öll er, og gefst vinum hans
og velunnurum kostur á að skrá nafn sitt á heillaóskaskrá í tilefni
þessara tímamóta og að fá bókina á forlagsverði, eða á kr. 6.000 með
sendingarkostnaði. Hægt er að panta verkið hjá útgefandanum á net-
fanginu skrudda@skrudda.is eða í síma 552 8866. Bókin verður send
kaupendum um mánaðamótin okt./nóv. 2019.
Til að panta bókina og fá nafn sitt jafnframt á heillaóskaskrána þarf að
senda inn nafn, kennitölu og heimilisfang fyrir 25. sept. nk. Sé óskað
eftir að greiða verkið með greiðslukorti þarf að senda kortanúmer og
gildistíma, annars verður stofnuð krafa í heimabanka þegar bókin
kemur út. Nánari upplýsingar fást hjá forlaginu.
SKRUDDA
Hamarshöfða 1
110 Reykjavík
skrudda@skrudda.is
Strandarkirkja er það
Í messutilkynningum í Morgun-
blaðinu sl. föstudag birtist mynd af
Strandarkirkju við Suðurstrandar-
veg. Í myndatexta var ranglega
skrifað Strandakirkja og Suður-
strandavegur og er beðist velvirð-
ingar á því.
LEIÐRÉTT
Morgunblaðið/Ómar