Morgunblaðið - 12.09.2019, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Það hefur verið gaman að sjá
gamla bæinn lifna við og öðlast nýj-
an tilgang. Á sínum tíma stóð til að
jafna hann við jörðu en sem betur
fór varð ekkert úr því,“ segir Krist-
ín Jóhannsdóttir á bænum Tyrf-
ingsstöðum á Kjálka í Skagafirði, en
á tveimur tímum tók hún á móti
hátt í 150 manns í gamla torfbæn-
um og bakaði lummur ofan í mann-
skapinn.
Um var að ræða opið hús laugar-
daginn 31. ágúst sl. í tengslum við
Menningarminjadaga Evrópu 2019,
en að viðburðinum stóðu Byggða-
safn Skagfirðinga og Fornverka-
skólinn, auk ábúenda á Tyrfings-
stöðum, þeirra Kristínar og
Sigurðar M. Björnssonar, sambýlis-
manns hennar.
Gestum var boðið að ganga um
húsin og fræðast um þá uppbygg-
ingu sem hefur staðið yfir á Tyrf-
ingsstöðum frá árinu 2007. Hefur
hún farið fram með námskeiðahaldi
og kennslu í torf- og grjóthleðslu og
grindarsmíði.
Námskeiðin hafa notið mikilla
vinsælda og er búið að útskrifa um
300 nemendur, bæði íslenska og er-
lenda. Fornverkaskólinn hefur stað-
ið fyrir námskeiðunum, en um er að
ræða samstarfsverkefni Byggða-
safnsins, Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra og Hólaskóla. Verk-
efnastjóri skólans er Bryndís Zoega
og hefur Helgi Sigurðsson torf-
hleðslumaður staðið í fararbroddi
kennslunnar, auk fleiri. Nokkrir
smiðir hafa komið að kennslunni,
einkum Bragi Skúlason.
Mörg handtökin eftir
Á Tyrfingsstöðum er nú komin
heilleg bæjarmynd, með íbúðarhúsi,
fjósi, hlöðu, fjár- og hesthúsum og
réttum, að því er fram kemur á vef
Byggðasafnsins. Á opna húsinu sl.
laugardag sagði Sigríður Sigurðar-
dóttir, fv. safnstjóri Byggðasafns-
ins, frá tilurð Fornverkaskólans og
verkefninu á Tyrfingsstöðum, sem
hún átti stóran þátt í að koma af
stað á sínum tíma. Samstarfsverk-
efnið heldur áfram og námskeiðin
hjá Fornverkaskólanum, enda mörg
handtökin eftir, eins og að ganga
frá þökum húsanna og hleðslum og
ljúka við innréttingar innan dyra,
svo fátt eitt sé nefnt. Einnig
stendur til að mála baðstofuna eins
og hún var á árum áður.
Hver einasta lumma hvarf!
Eins og áður sagði stóð Kristín í
ströngu við lummubakstur í gamla
bænum. Þetta voru nokkur tímamót
því ekki hafði verið kveikt á eldavél
í torfbænum í ein 50 ár, eða síðan
Kristín og fjölskylda fluttu frá Tyrf-
ingsstöðum til Sauðárkróks árið
1969. Hún hafði þá búið á bænum
nær óslitið frá fæðingu, 1944, en
Kristín er einkadóttir hjónanna Jó-
hanns Eiríkssonar og Freyju Ólafs-
dóttur, sem bjuggu á Tyrfings-
stöðum í rúm 40 ár. Fyrir nokkrum
árum flutti Kristín aftur að Tyrf-
ingsstöðum.
„Ég hrærði góðan slurk af deigi
um morguninn og bakaði lumm-
urnar á stórri pönnu, enda veitti
ekki af. Þetta hvarf allt saman, hver
einasta lumma. Það var virkilega
gaman að fá allt þetta fólk, sem
hafði orð á því hve gott var að finna
lummulyktina þegar það gekk í
bæinn,“ segir Kristín, en hún festi
kaup á nýrri viðarvél til að hafa í
eldhúsi gamla bæjarins. Ekki þótti
ráð að gera gömlu eldavélina upp,
enda var hún tengd við miðstöð sem
ekki er lengur til staðar. „Ég þarf
ekki að fara lengra en í Silfrastaði
til að fá kubba í viðarvélina, þar er
af nógu að taka.“
Hún hefur einnig gripið í
baksturinn heima fyrir í íbúðarhús-
inu á Tyrfingsstöðum, sem stendur
skammt frá torfbæjunum, þegar út-
skrift fer fram hjá Fornverkaskól-
anum. Þá hefur hún boðið heim í út-
skriftarkaffi þegar nemendur hafa
fengið skírteini sín í hendur.
„Ég hef einnig bakað lummur í
byrjun hvers námskeiðs og fært
nemendum og kennurum, til að
koma þeim í gamla fílinginn. Við
höfum reynt að gera þetta
skemmtilegt,“ segir Kristín að end-
ingu, kampakát með samstarfið við
Fornverkaskólann og Byggðasafnið.
Torfið á Tyrfingsstöðum fær nýtt líf
Hátt í 150 manns komu í opið hús á Tyrfingsstöðum í Skagafirði Torfbæir gengið í endurnýjun
lífdaga Samstarfsverkefni Fornverkaskólans og Byggðasafnsins „Hver einasta lumma hvarf“
Ljósmyndir/Byggðasafn Skagfirðinga
Opið hús Fjöldi fólks lagði leið sína að Tyrfingsstöðum á Kjálka í Skagafirði, í blíðskaparveðri á dögunum. Og allir fengu lummur í eldhúsinu.
Lummubakstur Kristín Jóhannsdóttir stóð í ströngu við baksturinn.
Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is
Ægishjálmur
Verð 8.500
Vegvísir
Verð 8.500
Draumstafur
Verð 8.500
Fulltrúar frá Ladys Circle klúbbi 15
á Akureyri komu færandi hendi og
afhentu fæðingardeild Sjúkrahúss-
ins á Akureyri afrakstur söfnunar-
innar Mömmur og möffins sem efnt
var til á hátíðinni Einni með öllu á
Akureyri um verslunarmannahelg-
ina í sumar.
Að þessu sinni söfnuðust 1.071
þús. krónur en fyrir afraksturinn
verða keyptar nýjar vöggur fyrir
börn á fæðingardeildinni. Mömmur
og möffins hefur fest sig í sessi sem
einn af hugljúfustu viðburðum Einn-
ar með öllu sem haldin er um versl-
unarmannahelgina á Akureyri.
Bæjarbúar, fyrirtæki og hópar taka
sig saman og baka möffinskökur en
þetta árið voru tæplega 3.000 kökur
lagðar á borðið og seldar ásamt kaffi
og söfum. Alls hafa fæðingardeild-
inni verið færðar tæplega 6 millj. kr.
að gjöf frá árinu 2010 og eru það allt
peningar sem safnast hafa með sölu
á möffinskökum á bæjarhátíðinni
vinsælu. Peningar sem þarna hafa
safnast hafa m.a. verið notaðir til
kaupa á mælitækjum á fæðingar-
deildinni og húsbúnaði. Fyrir af-
rakstur hátíðarinnar eitt árið var
keypt nýtt og gott fæðingarrúm.
sbs@mbl.is
Stuðningur Frá vinstri talið Ingibjörg Jónsdóttir forstöðuljósmóðir og svo
frá Ladys Circle eru hér í röðinni Hrönn Guðmundsdóttir, Valdís Anna
Jónsdóttir, H. Rut Jónsdóttir og Ólöf Heiða Óskarsdóttir.
Möffinsstyrkur
til fæðingardeildar