Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 41

Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 41
41 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 Í september Ljósblár himinn. Dimmblá fjöll og dökkgræn grenitré. Náttúran dró upp fagra síðsumarmynd við Elliðavatn. Eða kannski er þetta haustmynd? Það fer eftir því hvernig litið er á málið. Árni Sæberg Fyrir skömmu var tilkynnt nafn götu- spotta milli Hverfis- götu og Lindargötu að tillögu Ara Matthías- sonar þjóðleikhús- stjóra og hann nefndur eftir Thorbjørn Egner, brúðumeistara, mynd- listarmanni og leik- skáldi. Sundið var nafnlaust, en liggur milli Þjóðmenningar- húss, Hæstaréttar og Þjóðleikhúss- ins. Þjóðleikhúsráði var fyrir nokkr- um misserum kynnt að til stæði að nefna götuna en þá fór Ari Matt- híasson dult með tillögu sína. Ekki er vitað um álit Hæstiréttar eða stjórnar Þjóðmenningarhúss. Víst er Thorbjørn Egner sómi sýndur með tillögu þjóðleikhússtjór- ans. Á heimasíðu leikhússins segir: „Egner hreifst svo mjög af sýn- ingum Þjóðleikhússins á verkum sínum að hann gaf leikhúsinu sýn- ingarréttinn á þeim í hundrað ár. Gjöfin var háð því skilyrði að höf- undarréttargreiðslur skyldu renna í sjóð sem styrkja ætti leiklistar- starfsemi.“ Gjöfina afhenti Egner á 25 ára afmæli leikhússins 1975 en þá var Kardemommubærinn leikinn í þriðja sinn: „Thorbjørn Egner gerði því næst grein fyrir fyrstu úthlutun úr sér- stökum sjóði, Kardi- mommusjóðnum, sem hann hefur stofnað með höfundarlaunum fyrir verk sín frá Þjóð- leikhúsinu, en hlutverk sjóðsins á að vera að auka samskipti ís- lenzkra og norskra leikara,“ segir í frétt Morgunblaðsins og Vísir segir: „Thorbjørn Egner hefur gefið öll höfundarlaun sín vegna sýningar Kardemommu- bæjarins hér í sérstakan sjóð til að efla samskipti milli norsks og ís- lenzks leikhúsfólks.“ Talsvert var um hátíðarhöld 1975: „… verður úthlutað úr Menningar- sjóði en hann er jafngamall leikhús- inu. Thorbjørn Egner … hefur sýnt þá velvild og rausn að gefa höfund- arlaun sín, sem leikhúsráð ráðstafar í samráði við hann.“ Menningar- sjóðinn lagði Ari af og var því and- æft í þjóðleikhúsráði hinn 28. októ- ber 2016. Kvað hann stofnfé uppurið og tekjustofn væri vafasamur. Tvennum sögum fer af Karde- mommusjóði. Á heimasíðu leikhúss- ins segir: „Gjöfin var háð því skil- yrði að höfundarréttargreiðslur skyldu renna í sjóð sem styrkja ætti leiklistarstarfsemi.“ Þar er vikið frá skilmálum gjafarinnar. Veitt var úr sjóðnum í tólfta sinn í upphafi árs 2013. Þá sagði Tinna Gunnlaugsdóttir leikhússtjóri gjöf- ina „allar höfundatekjur með ósk um að þær yrðu nýttar til styrkveit- inga eða einhvers sem verða mætti til nota og gleði fyrir Þjóðleikhúsið“, og fengu fimm listamenn 300 þús- und hver. Segir í ársskýrslu 2013: „Tekjur sjóðsins hafa verið notaðar til að veita viðurkenningar og styrki til leikhúsfólks og til að efla leik- hússtarf í þágu barna.“ Fjórum ár- um fyrr var veitt úr sjóðnum og þá sagt: „Thorbjörn Egner stofnsetti sjóðinn fyrir 25 árum til að efla sam- skipti og kynningu á leiklistar- sviðinu milli Íslendinga og Norð- manna.“ Höfundarlaun eru samningsatriði hverju sinni ef um aðkeyptan er- lendan rétt er að ræða. Hæst hafa þau farið í 25% af miðasölu á síðari tímum. Höfundarlaun Egners taka til texta, búninga- og leikmyndar- teikninga. Á síðari árum hefur leik- húsið kosið að víkja frá upphaf- legum hugmyndum Egners um útlit verka hans. Nú er fram undan svið- setning á Kardemommubænum og víst verður hún fjölsótt og leikin langt fram á 2020. Miðaverð á Ronju er nú kr. 4.500. Ef 50.000 gestir kaupa miða á Kardemommu- bæinn verða tekjur af miðasölu 225 milljónir. Væru höfundarlaun 10%, sem er hóflegt, ætti Kardemommu- sjóðurinn að fá í sinn hlut kr. 22.500.000. Leitað var til Þjóðleikhússins eft- ir afriti af stofnskrá en svör hafa ekki borist. Hjá sýslumanni Norður- lands vestra sem annast sjóði og stofnanir með staðfesta skipulags- skrá er enga stofnskrá að finna, en vísað á Fyrirtækjaskrá. Þar er að finna skráningu á félagasamtökum til heimilis að Lindargötu 7, Egner- sjóðinn, án frekari fylgigagna. Sjóð- urinn er reiðulaus, án stofnskrár, án opinbers eftirlits annarra en starfs- manna Þjóðleikhússins. Ókunnugt er hvernig bókhaldi hans er fyr- irkomið eða hversu há höfundarlaun renna til hans. Blasir við að skil- yrðum gjafarinnar er ekki hlýtt. Af framansögðu má ráða að stjórn leik- hússins hefur í áratugi farið frjáls- lega með tekjur sjóðsins. Upphaf- legt skilyrði um tengsl listamanna hússins við starfsbræður og -systur í Noregi er gleymt og tekjur hans nýttar í almennan rekstur. Ekki þýðir að sýta það sem liðið er: setja þarf Kardemommu- sjóðnum stofnskrá, skilgreina hlut- fall höfundarréttar af miðaverði, skipa sjóðnum stjórn sem hefur armslengd frá rekstri Þjóðleikhúss- ins og væri ákjósanlegt að fulltrúi eigenda réttarins sæti þar, t.d. norski sendiherrann. Samskipti ís- lenskra og norskra listamanna liggja víðar en í starfsmannahópi Þjóðleikhússins, Egner sinnti brúðugerð, myndskreytingum og leikritun. Væri ákjósanlegt að áhersla væri á styrkjum til lista- manna á því sviði – á Íslandi og í Noregi. Það er nýskipaðs þjóðleik- húsráðs að huga að því, er formaður ráðsins snýr heim eftir að hafa ráðið og stýrt heiðurssessi Norðmanna á Bókamessunni í Frankfurt. Þarf að staðfesta þá stefnubreytingu af leik- húsráði og ráðherra svo gjöfin hverfi ekki hljóðlega inn í rekstur Þjóðleikhússins. Aðeins þannig er minningu Thorbjörns Egners sýnd- ur sá sómi sem hann á skilið hvað sem götuheitum líður. Eftir Pál Baldvin Baldvinsson » Setja þarf Karde- mommusjóðnum stofnskrá, skilgreina hlutfall höfundarréttar af miðaverði, skipa sjóðnum stjórn sem hef- ur armslengd frá rekstri Þjóðleikhússins. Páll Baldvin Baldvinsson Höfundur er fráfarandi formaður Fé- lags leikstjóra á Íslandi og sat í þjóð- leikhúsráði, en er nýskipaður for- maður leiklistarráðs. pallbaldvinsson@gmail.com Kardemommusjóðurinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.