Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 66
66 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019
HAUKAR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Haukar í Hafnarfirði eru þekkt
stærð í handboltanum hér heima.
Morgunblaðið spjallaði við leik-
stjórnandann Tjörva Þorgeirsson
um Haukaliðið og tímabilið sem er
nýhafið.
„Við erum bara þokkalega sáttir
þótt ekki hafi gengið sérstaklega vel
í æfingaleikjunum. Við töpuðum
reyndar í Evrópukeppninni en erum
þrátt fyrir það nokkuð bjartsýnir
fyrir tímabilið hér heima. Mér sýnist
reyndar að fjölmiðlafólk og ýmsir
aðrir hafi ekki sömu trú á okkur.
Sem er bara fínt,“ sagði Tjörvi, sem
hefur marga fjöruna sopið með
Haukum á Íslandsmótinu. Hann er
ekki einn um það í Haukaliðinu enda
nokkrir þrautreyndir leikmenn í lið-
inu eins og Ásgeir Örn Hallgríms-
son og Vignir Svavarsson, sem nú
sneri heim frá Danmörku. Fari svo
að Haukar komist í þá stöðu að berj-
ast um titlana verður skortur á
reynslu þeim í það minnsta ekki að
falli.
„Já, það er rétt hjá þér. Þegar bú-
ið verður að tjasla öllum saman
finnst mér að við ættum að geta bar-
ist á öllum vígstöðvum. Við eigum
ekki að þurfa að vera í einhverju
miðjumoði. Við misstum auðvitað
Danna (Daníel Þór) og erfitt verður
að fylla hans skarð en Adam, ég og
Atli reynum að sjá um það. Við feng-
um einnig menn og Viggi (Vignir)
styrkir okkur á línunni og í vörninni.
Auk hans fengum við Ólaf til okkar.“
Á þessari öld hefur skapast mikil
og góð sigurhefð hjá Haukum þótt
liðið hafi ekki orðið meistari á allra
síðustu árum. Á síðasta tímabili fór
liðið þó í úrslit en tapaði þar fyrir
Selfossi.
„Við í Haukum stefnum alltaf á
alla titla og það mun ekkert breytast
í ár. Við höfum alltaf trú á því enda
er það eina vitið.“
Allir hata janúarpásuna
Umhverfið sem leikmenn á Ís-
landsmótinu lifa og hrærast í er
nokkuð sérstakt sökum þess að
langt hlé er gert í miðju móti vegna
stórmóta hjá A-landsliðinu. Mótið
byrjar snemma og menn spila fram
til jóla. Byrja aftur í byrjun febrúar
og þá er reynt að gíra sig upp og í
úrslitakeppninni í apríl og maí vilja
svo allir toppa.
„Já, þetta er eiginlega allt of sér-
stakt. Ég held að allir leikmenn hati
þessa janúarpásu enda er það eins
og annað undirbúningstímabil. Það
gengur hins vegar ekki að spila illa
allan veturinn og ætla sér svo bara
að toppa í lok tímabilsins. Menn vilja
hafa stíganda í leik sínum yfir vetur-
inn þótt liðin vilji toppa undir lok
tímabilsins. Það tókst næstum því
hjá okkur í fyrra en Selfyssingarnir
voru bara ferskari og betri. Þeir
áttu þetta skilið,“ sagði Tjörvi, sem
segir helstu áherslubreytingar liðs-
ins vera í vörninni.
„Það verður aðallega í vörninni
sem einhverjar breytingar verða. Í
fyrra vorum við eiginlega bara með
eitt varnarafbrigði en núna reynum
við að eiga fleiri afbrigði til að geta
brugðist við ef á þarf að halda. Í
sókninni spila nánast öll liðin á svip-
aðan hátt en sóknin kemur alltaf
þegar líður á haustið,“ sagði Tjörvi
enn fremur.
Metnaðurinn
minnkar ekki
á Ásvöllum
Morgunblaðið/Hari
Klókur Tjörvi hefur verið heilinn í sóknarleik Hauka í mörg ár.
Haukar setja markið hátt að venju
Helstu áherslubreytingar í vörninni
Atli Már Báruson
Ásgeir Örn Hallgrímsson
Darri Aronsson
Guðmundur Bragi Ástþórsson
Hjörtur Ingi Halldórsson
Jakob Aronsson
Ólafur Ægir Ólafsson
Tjörvi Þorgeirsson
Þjálfari: Gunnar Magnússon
Aðstoðarþjálfari: Maksim Akbac-
hev
Árangur 2018-19: 1. sæti og úr-
slit.
Íslandsmeistarar: 1943, 2000,
2001, 2003, 2004, 2005, 2008, 2009,
2010, 2015, 2016
Bikarmeistarar: 1980, 1997, 2001,
2002, 2010, 2012, 2014
Haukar unnu 28:24-sigur gegn
HK í fyrstu umferð deildarinnar í
gær á Ásvöllum.
MARKVERÐIR:
Andri Sigmarsson Scheving
Grétar Ari Guðjónsson
Magnús Gunnar Karlsson
HORNAMENN:
Brynjólfur Snær Brynjólfsson
Einar Pétur Pétursson
Halldór Ingi Jónasson
Jón Karl Einarsson
Kristófer Máni Jónasson
Orri Freyr Þorkelsson
LÍNUMENN:
Gunnar Dan Hlynsson
Heimir Óli Heimisson
Jason Guðnason
Vignir Svavarsson
ÚTISPILARAR:
Adam Haukur Baumruk
Lið Hauka 2019-20
KOMNIR
Ólafur Ægir Ólafsson frá Lakers
Stafa (Sviss)
Vignir Svavarsson frá Holstebro
(Danmörku)
FARNIR
Daníel Þór Ingason í Ribe-Esbjerg
(Danmörku)
Hallur Kristinn Þorsteinsson í
Fram
Jón Þorbjörn Jóhannsson, hættur
Breytingar á liði Hauka
Það er mikil reynsla í leikmannahópnum og
þjálfarateyminu en er það nóg í titil?
Það hefur vantað herslumuninn upp á síðustu ár
og maður skyldi ætla að hungrið væri til staðar.
Liðið þarf á Adam Hauki Baumruk að halda og
hann fær tækifæri til þess að stíga upp í vetur.
Áhugavert: Hversu stórt skarð skilur Daníel Þór
Ingason eftir sig?
Sebastian Alexandersson
um Hauka
HANDBOLTI
Olísdeild karla
FH – Selfoss.......................................... 30:32
Haukar – HK ........................................ 28:24
Staðan:
ÍR 1 1 0 0 33:26 2
ÍBV 1 1 0 0 30:24 2
Valur 1 1 0 0 20:14 2
Haukar 1 1 0 0 28:24 2
Selfoss 1 1 0 0 32:30 2
Afturelding 1 1 0 0 28:27 2
KA 1 0 0 1 27:28 0
FH 1 0 0 1 30:32 0
HK 1 0 0 1 24:28 0
Stjarnan 1 0 0 1 24:30 0
Fram 1 0 0 1 14:20 0
Fjölnir 1 0 0 1 26:33 0
Meistaradeild karla
C-riðill:
Cocks – Sävehof....................................25:30
Ágúst Elí Björgvinsson varði fimm skot í
marki Sävehof.
Þýskaland
Leverkusen – Neckarsulmer ............. 24:16
Hildigunnur Einarsdóttir skoraði þrjú
mörk fyrir Leverkusen.
Birna Berg Haraldsdóttir skoraði tvö
mörk fyrir Neckarsulmer.
Spánn
Bidasoa – Barcelona ........................... 23:26
Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk
fyrir Barcelona.
Danmörk
Mors-Thy – GOG.................................. 23:29
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði tvö mörk
fyrir GOG og Arnar Freyr Arnarsson þrjú.
Viktor Gísli Hallgrímsson varði níu skot í
marki liðsins.
Frakkland
París SG – Nantes................................ 32:29
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 6 mörk
fyrir PSG.
Nice – Toulon ....................................... 20:18
Mariam Eradze skoraði eitt mark fyrir
Toulon.
Besancon – Bourg-de-Péage.............. 26:20
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir skor-
aði níu mörk fyrir Bourg-de-Péage.
Noregur
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Falk – Elverum .................................... 18:33
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði eitt
mark fyrir Elverum.
Lokakeppni HM karla
8-liða úrslit:
Bandaríkin – Frakkland .......................79:89
Ástralía – Tékkland...............................82:70
Í undanúrslitum á morgun leikur Spánn
við Ástralíu og Argentína við Frakkland.
KÖRFUBOLTI
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
AFMARKANIR
& HINDRANIR
Fjölbreyttar lausnir
til afmörkunar á
ferðamannastöðum,
göngustígum og
bílaplönum.
Dvergarnir R