Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 69

Morgunblaðið - 12.09.2019, Síða 69
Eitt ogannað ÍÞRÓTTIR 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2019 www.gilbert.is KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR FYRIR ÖLL TÆKIFÆRI Í KAPLAKRIKA Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Íslandsmeistarar Selfyssinga gerðu góða ferð í Hafnarfjörð í kvöld þar sem þeir lögðu bikarmeistara FH 32:30 í 1. umferð Olísdeildar karla í handknattleik. Eins og jafnan áður þegar þessi lið eigast við var boðið upp á spennuleik en Selfyssingar reynd- ust sterkari á lokakaflanum og fögnuðu vel og innilega í leikslok. Fyrsti stundarfjórðungur leiks- ins var í járnum en Selfyssingar tóku þá frumkvæðið, náðu mest fimm marka forystu og voru fjór- um mörkum yfir í hálfleik, 17:13. FH-ingum gekk illa að eiga við sterka vörn Íslandsmeistaranna og Einar Baldvin Baldvinsson mark- vörður þeirra varði vel og ekki síð- ur Sölvi Ólafsson, sem kom inn á og varði öll þrjú vítaköst FH í fyrri hálfleik. Í sókninni var Haukur Þrastarson erfiður, en hann skor- aði sex af mörkum Selfyssinga í fyrri hálfleik. Selfyssingar héldu frumkvæðinu fyrsta korterið í seinni hálfleik en þá vöknuðu FH-ingar til lífsins. Þeir skoruðu fimm mök í röð og breyttu stöðunni úr 20:25 í 25:25. Ásbjörn Friðriksson fór mikinn á þessum kafla og þýski markvörður Phil Döhler átti góða endurkomu en hann fann sig ekki í seinni hálf- leik. En Selfyssingar létu þetta ekki slá sig út af laginu. Með Hauk Þrastarson og línumanninn Guðna Ingvarsson áttu þeir góðan enda- sprett og unnu að lokum verð- skuldaðan sigur. Haukar lögðu nýliðana Á Ásvöllum tóku deildarmeist- arar Hauka á móti nýliðum HK þar sem deildarmeistararnir fóru með fjögurra marka sigur af hólmi, 28:24. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og höfðu HK-ingar yfirhöndina framan af leik og náðu mest tveggja marka forskoti í fyrri hálfleik. Haukar voru hins vegar sterkari undir lok fyrri hálfleiks og var staðan jöfn í hálfleik, 13:13. Hafnfirðingar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og náðu sex marka forskoti eftir 40. mínútna leik. Það forskot létu deildarmeist- ararnir aldrei af hendi og þeir fögnuðu þægilegum sigri í leikslok. Atli Már Báruson var atkvæða- mestur í liði Hauka með sex mörk en hjá HK skoraði Ásmundur Atla- son níu mörk. Selfoss vann meistaraslaginn  Deildarmeistararnir byrja á sigri Morgunblaðið/Árni Sæberg Sigur Árni Steinn Steinþórsson með boltann í Krikanum í gær. Kaplakriki, Olísdeild karla, miðviku- daginn 11. september 2019. Gangur leiksins: 2:1, 4:4, 6:7, 8:11, 9:14, 13:17, 16:20, 19:23, 22:25, 25:26, 28:28, 30:32. Mörk FH: Bjarni Ófeigur Valdimars- son 8, Ágúst Birgisson 6, Ásbjörn Friðriksson 6, Einar Örn Sindrason 4/3, Arnar Freyr Ársælsson 2, Jakob Martin Ásgeirsson 2, Birgir Már Birgisson 1, Einar Rafn Eiðsson 1. Varin skot: Phil Döhler 9, Birkir Fannar Bragason 6. FH – Selfoss 30:32 Utan vallar: 12 mínútur Mörk Selfoss: Haukur Þrastarson 9/1, Guðni Ingvarsson 8, Hergeir Grímsson 4/2, Atli Ævar Ingólfsson 3, Árni Steinn Steinþórsson 3, Alex- ander Már Egan 2, Magnús Öder Einarsson 2, Guðjón Baldur Ómars- son 1. Varin skot: Einar Baldvin Baldvins- son 12, Sölvi Ólafsson 7/3. Utan vallar: 8 mínútur Áhorfendur: 715. Bandaríkjamenn eru úr leik á HM karla í körfuknattleik í Kína eftir tap fyrir Frakklandi í 8-liða úrslitum, 89:79. Bandaríkin hafa unnið síðustu tvær keppnir, 2010 og 2014, en nú er ljóst að Bandaríkjamenn verja ekki heimsmeistaratitilinn. Síðasta þjóð sem varð heimsmeistari fyrir utan Bandaríkin var Spánn, sem sigraði árið 2006. Frakkar, sem voru með Íslend- ingum í riðli í lokakeppni EM fyrir tveimur árum í Helsinki, voru mjög sannfærandi í leiknum. Þeir voru yf- ir lengi vel eftir að þeir náðu forskoti í öðrum leikhluta. Bakvörðurinn Ev- an Fournier skoraði 22 stig fyrir Frakkland og Donovan Mitchell skoraði 29 stig fyrir Bandaríkin. Frakkland mætir Argentínu í undanúrslitum á morgun. Spánn og Ástr- alía mætast einn- ig í undan- úrslitum en í gær hafði Ástralía betur gegn Tékk- landi 82:70. Patty Mills var stiga- hæstur hjá Ástralíu með 24 stig en Patrik Auda skoraði 21 stig fyrir Tékkland, sem var með Íslandi í riðli í undankeppninni fyrir HM í Kína. sport@mbl.is Bandaríkjamenn leika ekki um verðlaun á HM Evan Fournier  Norðurírski kylfingurinn Rory McIlroy var í gær útnefndur kylfingur ársins á PGA-mótaröðinni en það voru kylfingar á mótaröðinni sem tóku þátt í kosningunni. McIlroy hreppti því Jack Nicklaus-viðurkenninguna í þriðja sinn en hann varð einnig fyrir valinu árin 2012 og 2014. N-Írinn hafði betur í baráttunni við Bandaríkjamennina Brooks Koepka, Matt Kuchar and Xander Schauffele.McIlroy vann þrjú mót á mótaröðinni á tímabilinu og þar á meðal á Tour Championship-mótinu, lokamóti PGA-mótaraðarinnar. Hann varð Fedex-stigameistari og fékk hæsta verðlaunafé í sögu mótaraðar- innar, eða 15 milljónir dollara, sem jafngildir um 1,9 milljörðum íslenskra króna.  Rúnar Arnórsson, kylfingur úr Keili, lék frábærlega á öðrum hringnum á 1. stigs úrtökumótinu fyrir Evrópu- mótaröð karla í Fleesensee í Þýska- landi í gær en þar keppa sex Íslend- ingar. Rúnar lék best allra kylfinga í gær og var á sjö höggum undir pari. Er hann í í 4.-5. sæti á samtals sex högg- um undir pari. Bjarki Pétursson er í 13. sæti á þremur högg- um undir pari. Andri Þór Björnsson, Ragnar Már Garðarsson og Axel Bóasson er allir á parinu eftir tvo fyrstu hringina og eru í 29.-40. Aron Snær Júlíusson er í 41. sæti á einu höggi yfir pari. Spilaðar verða 72 holur á þessu stigi. Þýska knattspyrnufélagið Wolfs- burg er svo gott sem komið áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildar Evrópu kvenna í knattspyrnu eftir 10:0-útisigur gegn Mitrovica frá Kósóvó í fyrri leik liðanna í Kósóvó í gær. Sara Björk Gunnarsdóttir lék ekki með liði Wolfsburg í leiknum, þar sem hún fékk högg á ökkla í bikarleik um síðustu helgi. Sara reiknar með því að vera klár í slag- inn á sunnudaginn þegar Wolfs- burg fær Hoffenheim í heimsókn í þýsku 1. deildinni en þetta staðfesti hún í samtali við mbl.is. Sara hvíld í stór- sigri Wolfsburg AFP Tæp Sara Björk Gunnarsdóttir fékk högg á ökkla um nýliðna helgi. Körfuknattleiksdeild ÍR hefur sam- ið við Búlgarann Georgi Boyanov um að leika með liðinu á komandi keppnistímabili. Boyanov er 26 ára gamall og 201 sentímetri að hæð. Hann kemur til ÍR frá Cherno Mo, sem leikur í búlgörsku NBL-deildinni. Boyanov er væntanlegur til landsins á allra næstu dögum en ÍR hefur leik í úrvalsdeildinni 3. október næstkomandi þegar liðið fær Njarðvík í heimsókn í Selja- skóla í fyrstu umferð Dominos- deildarinnar. sport@mbl.is Búlgarskur liðs- styrkur til ÍR Ljósmynd/usjaguars.com Framherji Búlgarinn Georgi Boya- nov er 201 sentímetri á hæð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.