Morgunblaðið - 26.10.2019, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019
SALURINN Hamraborg 6 200 Kópavogi 44 17 500 salurinn.is
Jólatónleikar
8. og 9.12.
kl.20.00
Miðasala
Salurinn.is
SÆTABRAUÐS
DRENGIRNIR
Bergþór, Gissur Páll, Hlöðver og Viðar
ásamt Halldóri Smárasyni, útsetjara og píanóleikara.
Böðvar Páll Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
Guðni Ágústsson, fyrrverandi land-
búnaðarráðherra, vill að Ólafur Ragn-
ar Grímsson, fv. forseti Íslands, verði
tilnefndur til friðarverðlauna Nóbels
fyrir framlag sitt til umhverfismála.
Guðni kom inn á
þetta í prédikun
sinni í Bessastaða-
kirkju sl. sunnu-
dag en vakin var
athygli á þessu í
Bændablaðinu sl.
fimmtudag.
Þegar Ólafur
Ragnar var forseti
kom hann, ásamt
fleirum, á fót sam-
tökunum Arctic
Circle með það að markmiði að koma
á samtali og samvinnu um norður-
slóðir og framtíð þeirra. Ólafur hélt
svo áfram að vinna með samtökunum
og er stjórnarformaður þeirra í dag.
„Hingað koma í Hörpu yfir 2.000
manns á ári hverju á eina stórbrotn-
ustu ráðstefnu sem haldin er í heim-
inum um norðurslóðir,“ segir Guðni
við Morgunblaðið. „Ólafur fær þarna
forna fjendur; Kínverja, Rússa,
Bandaríkjamenn, Þjóðverja, Frakka,
Breta og um 50 ríki, stór og smá, til að
sitja ráðstefnu í nokkra daga. Hún
gengur snurðulaust og friðsamlega
fyrir sig, það er mikill áhugi fyrir
henni og hún er að breiða út vængi
sína í þessari umræðu,“ segir Guðni
og þykir mikið til þessara samtaka
koma.
Skilað miklum árangri
„Ég taldi það mjög líklegt að Ólaf-
ur, eða þessi samtök, yrðu fyrir starf
sitt tilnefnd til friðarverðlauna Nób-
els,“ segir Guðni. Spurður hvort
samtökin hafi haft mikil áhrif segir
hann:
„Það er engin spurning að þetta
skilar miklum árangri og magnaðri
fræðilegri umræðu, bæði meðal vís-
indamanna og ekki síður að stjórn-
málamenn komi hingað með opinn
hug.“
Þá telur Guðni okkur Íslendinga
hafa upp á margt að bjóða með okkar
hreina loftslag og vatn, endurnýjan-
lega orkugjafa og ekki síst þekkingu
sem hægt sé að miðla til annarra
landa.
Spurður hvort hann hafi ekki hugs-
að sér að tilnefna Ólaf sjálfur til verð-
launanna segist Guðni ekki hafa
hugsað svo langt. „Ég veit bara ekki
alveg hvernig það er gert en það get-
ur verið. Þetta var bara hugdetta sem
margir hafa þó nefnt við mig.“
Ólafur verði tilnefndur
til nóbelsverðlauna
Guðni Ágústsson vill tilnefningu vegna Arctic Circle
Predikun Guðni Ágústsson í prédikunarstól Bessastaðakirkju.
Ólafur Ragnar
Grímsson
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Formaður Hollvinasamtaka Heil-
brigðisstofnunar Vesturlands, Stein-
unn Sigurðardóttir, fyrrverandi
hjúkrunarforstjóri, færði Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands, HVE, 12
sjúkrarúm að gjöf í vikunni. Í maí síð-
astliðnum fékk HVE fimm rúm frá
samtökunum og þau ráðgera að bæta
enn um betur í tengslum við aðalfund
Hollvinasamtakanna í apríl á næsta
ári.
Steinunn stóð fyrir því að Hollvina-
samtökin voru stofnuð í janúar 2014.
„Við þurfum að standa vörð um heil-
brigðisþjónustu á Vesturlandi,“ segir
hún, en samtökin hafa afhent HVE
tæki að gjöf fyrir um 74,4 milljónir
króna frá 2015.
Framkvæmdastjórn HVE lætur
samtökin fá lista á hverju ári yfir þau
tæki sem brýnast er að kaupa hverju
sinni. Stjórn samtakanna hefur fengið
stuðning frá einstaklingum, fyr-
irtækjum og stofnunum og fært HVE
gjöf á hverju ári. Sneiðmyndatæki fyr-
ir ríflega 49 milljónir króna var gefið
2015, gæslutæki og blöðruómskoð-
unartæki 2016, skurðstofustæða og
skuggaefnisdæla fyrir sneiðmynda-
tökur að verðmæti samtals um 12
milljónir kr. 2017 og öndunaraðstoð-
arvél í fyrra. Sjúkrarúmin, sem Holl-
vinasamtökin hafa gefið, eru merkt
með nafni félagsins og gefanda.
Steinunn segir að stofnunin hafi nú
talið brýnast að endurnýja rúmin.
Oddfellowstúkurnar á Akranesi hafi
gefið fjögur sjúkrarúm í ár í tilefni 200
ára afmælis Oddfellowreglunnar, sem
íslenska Reglan tilheyrir, og því sé
endurnýjunin langt komin.
Ljósmynd/Skagafréttir
Gjöf Gestir skoða sjúkrarúmin. Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna,
til hægri, býr sig undir að prófa að liggja í einu þeirra.
Hafa gefið 17
sjúkrarúm í ár