Morgunblaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019 26. október 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.4 125.0 124.7 Sterlingspund 160.32 161.1 160.71 Kanadadalur 95.04 95.6 95.32 Dönsk króna 18.512 18.62 18.566 Norsk króna 13.631 13.711 13.671 Sænsk króna 12.912 12.988 12.95 Svissn. franki 125.53 126.23 125.88 Japanskt jen 1.1444 1.151 1.1477 SDR 171.17 172.19 171.68 Evra 138.31 139.09 138.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.3874 Hrávöruverð Gull 1488.85 ($/únsa) Ál 1711.5 ($/tonn) LME Hráolía 60.99 ($/fatið) Brent ● Í sameiginlegri ályktun frá Félagi atvinnurekenda, Húseigendafélag- inu og Lands- sambandi eldri borgara, sem fjallað er um nánar á síðunni, er megnri óánægju lýst yfir vegna yfir- vofandi og þegar orðnum álögum á fasteignir í formi fast- eignaskatts, fasteignagjalda og annarra gjalda sem lögð eru á fasteignaeig- endur á grundvelli fasteignamats. „Stjórnvöld þurfa að grípa til tafarlausra aðgerða til að stemma stigu við sjálf- virkum hækkunum á slíkum gjöldum og leita annarra, sanngjarnari og hóflegri leiða og aðferða en fasteignamats til grundvallar skattheimtu og álagningar gjalda. Slíkar álögur á fasteignaeig- endur hafa farið sífellt og mikið hækk- andi undanfarin ár og verulegar hækk- anir eru í pípunum og fyrirsjáanlegar á ári komandi. Staðreyndir og tölur tala sínu máli og staðfesta það óyggjandi,“ segir m.a í yfirlýsingunni. Segir þar einnig að hömlulitlar hækkanir á álög- um rýri hag eigenda og að útreikningur fasteignamats sé ógegnsær og illskilj- anlegur skattgreiðendum. Megn óánægja með álögur á fasteignir Ályktun Fasteigna- gjöld talin of há. STUTT BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Á fundi Félags atvinnurekenda, Húsaleigufélagsins og Landssam- bands eldri borgara undir yfir- skriftinni: Eru fasteignir féþúfa? hélt Magnús Árni Skúlason, hag- fræðingur hjá Reykjavík Econo- mics, áhugavert erindi þar sem hann fjallaði um fasteignagjöld á at- vinnuhúsnæði sem eru nú um stundir, sér í lagi í Reykjavík, í hæstu hæðum, og raunar hærri en þau voru rétt fyrir efnahagshrunið árið 2008 miðað við hvern fermetra. „Fasteignaskattar á atvinnuhús- næði eru í mörgum sveitarfélögum í hámarki. Og í sumum tilfellum eru þeir orðnir hærri á hvern fermetra heldur en á bóluárinu 2008,“ segir Magnús Árni í samtali við Morg- unblaðið. Samkvæmt lögum þá er sveitarstjórnum heimilt að hækka fasteignagjöld um allt að 25%. Fast- eignaskattar á atvinnuhúsnæði nema því í mörgum tilfellum 1,65%, m.a. í Reykjavík, Árborg og Reykjanesbæ. Hafa hækkað um 61% frá árinu 2015 í Reykjavík Sé horft á fasteignaskatta sveit- arfélaga á hvern fermetra atvinnu- húsnæðis sést að verðið nemur 3.079 kr. í Reykjavíkurborg en nam 2.875 kr. árið 2008. Ásamt Mos- fellsbæ og Garðabæ innheimtir Reykjavík því hærri skatta nú en árið 2008 á þann mælikvarða. Sem dæmi þá nema fasteignaskattar í Kópavogi á hvern fermetra 2.488 kr. miðað við 3.203 kr. árið 2008. 53% af verslunar- og skrifstofuhús- næði á landinu er staðsett í Reykja- vík. Þar hafa fasteignaskattar hækkað um 61% frá árinu 2015, frá 8,6 milljörðum króna í 13,9 millj- arða árið 2019. Í samanburði við ná- grannalöndin nema fasteignaskatt- ar 2% af landsframleiðslu hér á landi miðað við 1,8% í Danmörku og 1% í Svíþjóð, en þar hefur fast- eignaverð einnig hækkað mikið á undanförnum árum. Frystur skattstofn á Norðurlöndum „Mjög víða á Norðurlöndum er stofn til fasteignagjalda frystur eða hluti hans reiknaður til fasteigna- gjalda. Þar er horft til raunhæfrar skattlagningar í stað þess að velta henni alveg á leigusalann sem endar mögulega á því að tapa á eigninni,“ segir Magnús Árni. Að hans mati eiga fasteignagjöld ávallt að haldast í hendur við afrakstur eigna. Þarf að aðlaga óðeðlilegum breytingum á fasteignamarkaði „Fasteignaskattur eru auðvitað nauðsynlegur skattstofn en það er brýnt að endurskoða hann á hverj- um tíma og aðlaga hann bæði óeðli- lega miklum hækkunum á fast- eignamarkaði og hvaða tekjur eignirnar bera. Fasteignamat Þjóð- skrár er tekjumat á atvinnuhúsnæði og það hefur hækkað mjög mikið með nýrri aðferðafræði. En það þyrfti að gaumgæfa betur. Hærra fasteignamat ætti að endurspegla hærri tekjur hjá viðkomandi fast- eign en oftar en ekki getur það rýrt tekjurnar af eigninni. Sérstaklega ef leiga lækkar. Á meðan mestu erf- iðleikarnir ganga í gegn í atvinnulíf- inu nú um stundir ætti að taka tillit til þess og lækka skatta á atvinnulíf. Líka vegna þess að laun hafa hækk- að mikið og þar með eru útsvars- greiðslur sveitarfélaga hlutfallslega hærri miðað við fasteignaskatta,“ segir Magnús Árni. Fasteignaskattar á atvinnu- húsnæði í hæstu hæðum Fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði 2008-2019 Kr./fermetra á föstu verðlagi 2019 3.500 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 2008 2011 2015 2019 Akureyri Garðabær Hafnarfjörður Kópavogur Mosfellsbær Reykjanesbær Reykjavík 3.079 1.500 1.630 2.488 2.009 2.430 1.618 1.458 2.227 2.364 3.203 1.316 2.875 1.275 Heimild: Reykjavík Economics  Fasteignaskattar eru hærri hér á landi en í nágrannalöndum okkar Rúm vika er nú liðin frá því að stefnumótaappið The One var sett í loftið á Danmerkurmarkaði og vakti það strax mikla athygli. Að sögn Davíðs Arnar Símonarsonar, annars hugmyndasmiða forritsins, hafa við- tökurnar verið góðar en með hjálp gervigreindar parar The One saman tvo notendur í senn og leyfir þeim að ræða saman áður en þeir gefa hvor öðrum rautt eða grænt ljós. Gangi sú pörun ekki eftir tengjast notendur saman við annan einstakling daginn eftir. „Það hefur gengið vonum framar. Yfir þúsund manns skráðu sig fyrstu dagana og notkunin er mikil. Við höf- um fengið fullt af viðbrögðum frá dönskum notendum sem segja að þetta sé heilbrigðari leið til þess að kynnast einhverjum en að dæma fólk alltaf eftir útliti,“ segir Davíð. Nú þegar er notkunin orðin meiri í Dan- mörku en á Íslandi, en forritið var sett í loftið hér á landi í lok júní síð- astliðins. Davíð fór raunar í viðtal hjá bæði ríkisútvarpi Danmerkur, DR, og Ekstra Bladet. „Báðir þessir fréttamiðlar fjölluðu um appið út frá þeim vinkli að það eru konur sem ákveða svolítið ennþá hvaða karl- menn fá að nota appið. Eftir hvert spjall er konan spurð hvort maður- inn hafi verið almennilegur eða ekki. Ef hann var það ekki dettur hann út úr kerfinu. Þetta fannst þeim hjá DR og Ekstra Bladet fréttnæmt. Þetta virðist einnig höfða til kvenfólks því við fengum fleiri kvenkyns notendur en karlkyns,“ segir Davíð Örn. Ást The One er sagt vera heilbrigð leið til þess að finna lífsförunaut. The One vekur at- hygli í Danmörku  Yfir þúsund manns skráðu sig á nokkrum dögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.