Morgunblaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is DVERGARNIR Þungar og öflugar undirstöður DVERGARNIR R HNERRIR DURGURJÖTUNN DRAUPNIR ÞJARKUR Þessir dvergar henta vel sem undirstöður þar sem þung og öflug festing er aðalatriði. Leikhópurinn Óskabörnógæfunnar frumsýndi fyrr íþessum mánuði Rocky! eft-ir Tue Biering sem lýst hef- ur verið sem „enfant terrible“ eða óeirðasegg í dönsku leikhússenunni. Fyrir frumuppfærslu verksins, sem frumsýnd var í Kaupmannahöfn haustið 2017 í leikstjórn höfundar, hlaut Biering dönsku Reumert- sviðlistaverðlaunin 2018 fyrir leik- stjórn sína auk þess sem uppfærslan hlaut sérverðlaun ársins. Í viðtali við Biering sem birtist í Politiken í fyrra lýsir hann því að hann sjái leikhúsið sem ákveðna gíslatöku þar sem áhorf- endur eru þvingaðir til þátttöku. Hann hefur iðulega gengið fram af áhorf- endum sínum með ögrandi aðstæðum, eins og þegar hann undir merkjum leikhópsins Fix&Foxy í fyrra sýndi Lampedusa Cruises þar sem dönskum leikhúsgestum bauðst „skemmtisigl- ing“ um innri höfn Kaupmannahafnar á báti sem Biering sótti frá Lampe- dusa og notaður hafði verið til að flytja hundruð flóttamanna yfir Miðjarðar- hafið. Tæpum áratug áður setti hann, undir merkjum sama hóps, upp aðlög- un á kvikmyndinni Pretty Woman þar sem starfandi vændiskonu var greitt fyrir að fara með hlutverk vændis- konunnar Vivian Ward sem Julia Roberts lék á sínum tíma. En þess má geta að nýráðinn leikhússtjóri Háloga- landsleikhússins í Tromsø, Egill Heið- ar Anton Pálsson, rifjaði þátttöku sína í þeirri uppfærslu upp í viðtali við Morgunblaðið fyrir skemmstu. Í fyrrnefndu viðtali við Politiken lýsir Biering því hvernig hugmyndin að Rocky! hafi kviknað út frá vanga- veltum hans um það hvort við höfum aðeins umburðarlyndi gagnvart þeim sem eru eins og við sjálf. Með sama hætti og stór munur felist í því að vita af vændi eða mæta vændiskonu aug- liti til auglitis sé líka mikill munur á því að vita af hatursfullri orðræðu öfgahægrifólks og mæta slíkri mann- eskju í eigin persónu og vera neydd til að hlusta á lífsskoðun hennar. Sagðist hann vonast til þess að slíkt stefnumót gæti leitt til samtals, því verst af öllu væri ef fólk, sem misbyði slíkt stefnumót, neitaði að taka af- stöðu og brygðist við með þögninni eða aðgerðarleysinu einu. Í uppfærslu Óskabarna ógæfunnar á Rocky! í leikstjórn Vignis Rafns Valþórssonar bregður Sveinn Ólafur Gunnarsson sér í hlutverk menntaðs listamanns sem lýsir sjálfum sér sem umburðarlyndum vinstrimanni. Hann langar að deila með áhorf- endum aðdáun sinni á kvikmyndinni Rocky frá 1976 þar sem Sylvester Stallone leikur áhugaboxara og hand- rukkara sem fær óvænt tækifæri til að keppa við Apollo Creed, ríkjandi heimsmeistara í hnefaleikum. Lista- maðurinn rifjar upp erfiða æsku Rocky þar sem félagslega kerfið brást með þeim afleiðingum að Rocky endar sem ómenntaður undirmáls- maður sem varla getur gert sig skilj- anlegan með orðum. Upprifjun Sveins Ólafs á kvikmyndinni víkur fljótt af leið og í staðinn er dregin upp mynd af Rocky sem, vegna hnefa- leikakeppninnar, nýtur sívaxandi hylli bæði almennings og fjölmiðla þar sem hann fær rými til að tjá hat- ursfulla orðræðu sína í garð innflytj- enda, vinstrimanna og menntafólks enda er Rocky á móti hnattvæðingu og fjölmenningarlegu samfélagi. Í framhaldinu gerist Rocky aðgerðar- sinni og fer þaðan út í pólitík þar sem hann hlýtur glæsilega kosningu og nýtur hylli meðal fólks af öllum þjóð- félagsstéttum, listamanninum til mik- illar gremju. Þrá hans eftir að skilja Rocky snýst að endingu upp í reiði og vonleysi þegar hann missir trúna á lýðræðið, því hann vill ekki búa í landi þar sem öfgahægrifólk hefur kosn- ingarétt. Sveinn Ólafur fer á kostum í Rocky! Hann hefur einstaklega fína nærveru og heldur góðu sambandi við áhorfendur hvort heldur hann stendur fremst á sviðsbrúninni eða við bakvegginn aftast í leikrýminu. Túlkun hans er full af blæbrigðum sem þjóna verkinu vel og minnist rýnir þess ekki að hafa séð hann betri á sviði. Á þeim 80 mínútum sem hann talar nær látlaust við áhorfendur – nema rétt þegar hann tekur sér hlé til að mála nöfn lykilpersóna á bakvegg- inn – langar mann stöðugt að vita meira. Hann berst við ósýnileg öfl sem kýla hann í gólfið, missir bók- staflega málið þegar míkrófónn hans endar uppi í munninum á honum og tekur æðiskast með hafnaboltakylfu á svínsskrokki sem hann hefur hengt upp áður en hann tekur á sig hlutverk svínsins í fullkominni uppgjöf og býð- ur andstæðingi sínum að lumbra á sér. Svínsskrokkurinn fær áberandi pláss í uppfærslunni og vísar í fræga sláturhúsasenu úr Rocky þar sem Sylvester Stallone er umkringdur upphengdum nautsskrokkum. Eðli málsins samkvæmt hefur nauts- skrokki verið skipt út fyrir svín sam- kvæmt fyrirskrift Biering, enda Dan- ir umfangsmiklir í framleiðslu og útflutningi svínakjöts. Neysla svína- kjöts tengist danskri þjóðarvitund og hefur lengi verið bitbein í dönskum stjórnmálum, en Danski þjóðarflokk- urinn hefur síðustu árin barist ötul- lega fyrir því að opinberum stofn- unum á borð við leikskólum, skólum og elliheimilum verði skylt að hafa svínakjöt á boðstólum að minnsta kosti einu sinni í viku, en víða hefur svínakjöt verið fjarlægt af matseðl- inum af tillitssemi við múslima sem af trúarlegum ástæðum borða ekki svínakjöt. Það var því ekki tilviljun að Biering gaf þekktri stjórnmálakonu frá Danska þjóðarflokknum lokaorðið í uppfærslu sinni í Kaupmannahöfn. Konu sem síðla árs 2016 var kærð til lögreglunnar fyrir hatursorðræðu þegar hún í ræðustól á landsfundi flokksins það sama ár sagði útlend- inga „svína allt út, svindla, stela, nauðga og drepa“. Hatursfull orð- ræða á borð við þessa í garð útlend- inga hefur í gegnum tíðina verið kunnuglegt leiðarstef öfgahægri- manna og tryggði einum valdamesta manni heims kosningu fyrir þremur árum. Eins og fram kom hér að framan mun það hafa verið von höfundar að með því að gefa öfgahægrimanneskju lokaorð sýningarinnar mætti skapa samtal. Frumsýningargestir Tjarnar- bíós vissu varla hvernig þeir ættu að bregðast við orðræðu íslenska leyni- gestsins. Örfáir gengu út og einn gesta varpaði fram spurningu með þeim afleiðingum að leynigesturinn fipaðist í málflutningi sínum. En fleir- um leið vafalítið eins og rýni sem hafði varla geð í sér til klappa í sýn- ingarlok enda bauðst gestum ekki að þakka Sveini Ólafi frábæra frammi- stöðu hans án þess að klappa sam- tímis fyrir leynigestinum og haturs- fullri orðræðu hans. Á leið út úr leikhúsinu var rýnir hugsi yfir því að Biering skyldi ekki treysta áhorf- endum til að draga sínar eigin sam- svaranir milli umfjöllunarefnis verksins og stjórnmálaumræðu sam- tímans. Í staðinn valdi hann að slátra þeirri mögnuðu hægfara uppbygg- ingu sem leikaranum hafði tekist að skapa og slökkti þannig beinlínis á þeirri íhugun og úrvinnslu sem fyrri hluti kvöldsins hafði kallað á. Að missa trúna á lýðræðið Morgunblaðið/Eggert Listamenn Sveinn Ólafur Gunnarsson og Vignir Rafn Valþórsson í Tjarnarbíói. Tjarnarbíó Rocky! bbbmn Eftir Tue Biering. Íslensk þýðing: Vignir Rafn Valþórsson og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikstjórn: Vignir Rafn Valþórsson. Leikmynd og búningar: Enóla Ríkey. Ljós: Jóhann Pálmi Pálma- son og Magnús Thorlacius. Hljóð: Ísidór Jökull Bjarnason. Starfsmaður á plani: Sveinn Óskar Ásbjörnsson. Leikari: Sveinn Ólafur Gunnarsson. Leikhóp- urinn Óskabörn ógæfunnar frumsýndi í Tjarnarbíói 18. október 2019. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Knut Eckstein mun í dag kl. 15 í Listasafninu á Akureyri færa sýningu sína ég hefenganáhuga á nokkrusemer- stærraen lífið í endanlegt form með gjörningi. Sýningin var opn- uð 5. okt. sl. og býður Eckstein áhorfendum upp á viðsnúning, eða ranghverfu – hvorki meira né minna en áhrifin, skynhrifin – af risavöxnu, þrívíðu landslagsmálverki sem hægt er að ganga inn í, skv. tilkynningu. Knut Eckstein Færir sýningu í endanlegt form Kammersveit Reykjavíkur kemur fram í tónleikaröðinni Sígildum sunnu- dögum í Norður- ljósum í Hörpu á morgun kl. 16 og flytur kvintett fyrir strengja- kvartett og píanó eftir Robert Schumann; sextett fyrir flautu, óbó, klarinett, fagott, horn og píanó eft- ir Francis Poulenc og blásarakvint- ettinn Trois Pièces Brèves eftir Jacques Ibert. Robert Schumann Tveir Frakkar og Schumann Ný ensk þýð- ing á Passíu- sálmum Hall- gríms Péturs- sonar kemur út á Hallgríms- hátíð á morg- un, 27. októ- ber. Þýðandi er dr. Gracia Grindal, fyrrv. prófessor í prédikunarfræðum við Lúther- stofnunina í St. Paul í Minnesota. Þýðingin er gefin út af Hallgríms- kirkju í samvinnu við Skálholts- útgáfuna með stuðningi Kristni- sjóðs. Passíusálmarnir Ensk þýðing á Passíusálmunum Í alvöru? er yfir- skrift vinnustofa sem Sequences-- myndlistar- hátíðin heldur í samstarfi við Ás- mundarsal um helgina. Lista- menn sem taka þátt í Sequences leiða vinnustof- ur í Gryfju Ásmundarsalar. Þór- anna Dögg Björnsdóttir stýrir vinnustofu í dag kl. 14 fyrir 15 ára og eldri og Karlotta Blöndal á morgun kl. 14 fyrir fjögurra ára og eldri. Karlotta Blöndal Tvær vinnustofur í Gryfjunni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.