Morgunblaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 37
ólík væru, að varla er hægt að tala
um annað án þess að það eigi líka
við um hitt. Benni var einstaklega
hlýr og næmur maður. Ákafur að
skynja, skoða, ferðast og fræðast
og umræðuefnin því óþrjótandi.
Við Edda kynntumst sem börn
og bundumst vinaböndum. Korn-
ung kynntum við maka okkar og
vinátta tókst með öllum fjórum.
Svo góð að við Þórhildur settum
upp hringana við eldhúsborðið í
litlu kjallaraíbúðinni þeirra. Áður
höfðum við Benni unnið saman
eitt sumar vestur í Bolungarvík.
Þar var unnið myrkranna á milli
en samt gafst tími til að gleðjast
og gamna sér.
Það er sagt að maður þurfi ekki
stöðugt að hitta vini sína. Í okkar
Benna tilfelli var það rétt. Þá
sjaldan við sáumst var sem þráð-
urinn væri tekinn upp frá í gær.
Þetta sterka trausta band trosn-
aði ekki í áranna rás. Reyndar
urðu vinafundir tíðari nú seinni
árin, auk þess sem við hittum þau
oft á mannamótum, í leikhúsi og á
tónleikum. Þau létu fátt fram hjá
sér fara á í menningarsviðinu, ut-
an lands sem innan. Dvöldu oft
langdvölum erlendis til að njóta
þess besta sem völ var á. Þau
komu m.a. til Hannover á frum-
sýningu sonar okkar, Þorleifs
Arnar, á Die Eddu og voru meira
að segja búin að lesa handritið til
að geta betur fylgst með og notið!
Við munum sakna vinar og
vinafunda en munum vonandi
eiga margar góðar samveru-
stundir með Eddu og þar verður
Benna minnst með söknuði, en
með tímanum aðeins með gleði og
þakklæti.
Væri ég skáld hefði ég ort
saknaðarljóð um látinn vin, en fæ
mér til hjálpar orð Þorgeirs
Sveinbjarnarsonar:
Mér var gefið sumar.
Sól er í æðum mínum,
sól og dögg.
Ég var fögnuður trés,
en fékk svo að kynnast
kaldri haustnótt.
Næðingurinn losaði mig
af greininni.
Og regnið gróf mig
í gljúpan svörð.
Ég hverf
í moldina.
Í hjarta mínu
er himinn
og jörð.
Við Þórhildur biðjum allar góð-
ar vættir að styrkja Eddu og dæt-
urnar, Helgu og Sigríði, í söknuði
þeirra og sorg.
Arnar Jónsson.
Sæmdarheitið „drengur góð-
ur“ átti svo sannarlega við um
Benedikt E. Guðbjartsson, vin
okkar Benna.
Við kynntumst sem ungir
menn þegar við unnum saman í
áratug í Landsbanka Íslands. Þar
skilaði Benni góðu verki bæði fyr-
ir Landsbankann og starfsmenn
banka og sparisjóða. Hugmynda-
auðgi hans, þekking og brennandi
áhugi nýttust vel við úrlausn lög-
fræðilegra viðfangsefna sem og í
félagsstarfi. Hann var gefandi og
skemmtilegur félagi og vinur.
Á þeim árum sem eftir fylgdu
var alltaf gaman að hitta Benna
en tækifærum til samveru fjölgaði
þegar við báðir vorum komnir á
efri ár. Þá nutum við þess að hitt-
ast vikulega í heilsuræktinni með
AGGF-félögum okkar. Benni var
jafn kvikur í hreyfingum sem
huga. Hann lyfti geði guma með
glaðværð sinni.
Ljúft er að minnast langra og
stuttra ferða sem við hjónin fór-
um saman í. Við áttum líka góðar
stundir þegar við hittumst fyrir
vestan þar sem Benni og Edda
voru með aðsetur í Stykkishólmi
og við Rannveig vorum nágrann-
ar þeirra í Helgafellssveit.
Þeir sem kynntust Benna kom-
ust fljótt að raun um mannkosti
hans. Hann var traustur og heið-
arlegur maður sem gerði sitt til að
bæta samfélagið. Benni lét í sér
heyra með skýrum rökum ef hon-
um fannst gengið á svig við sann-
leikann og skynsemina. Mikill
söknuður fylgir því að þurfa að sjá
á eftir góðum vini.
Við Rannveig vottum Eddu,
fjölskyldunni og öllum aðstand-
endum innilegustu samúð.
Tryggvi Pálsson.
Eftir að ánægjulegri ferð okk-
ar Ganglera til Provence í Frakk-
landi lauk þ. 29. sept. kvöddum við
þau Benedikt vin okkar og Eddu
konu hans, en þau framlengdu
Frakklandsveruna og dvöldu eftir
það nokkra daga í París. En skjótt
skipast veður í lofti. 12. okt. var
Benni allur og var það okkur öll-
um mikil harmafregn.
Í rúm 30 ár höfum við tilheyrt
hópi sem kallar sig „Ganglera“. Í
byrjun hittumst við og gengum
saman, á laugadagsmorgnum, um
Reykjanes og nágrenni. En fyrir
30 árum var blásið til fyrstu ferð-
arinnar utan þéttbýlis. Sú ferð var
nokkuð söguleg. Keyrt var til Ísa-
fjarðar, þaðan siglt til Hornvíkur
og hrepptum við hið versta sjó-
veður. Aðbúnaður okkar var
fremur frumstæður á þeirra tíma
mælikvarða. En þetta var upphaf-
ið að ferðum okkar Ganglera um
Ísland. Á hverju sumri höfum við
farið víða um óbyggðir Íslands,
gengið á fjöll og vaðið kaldar jök-
ulár. Síðan hafa bæst við nokkrar
utanlandsferðir. Það var gengið á
Mallorca, Spáni og í Ungverja-
landi og nú síðast voru farnar
tvær skoðunarferðir til Frakk-
lands. Í ferðum okkar hafa smátt
og smátt skapast fastmótaðar
venjur. Í lok hverrar ferðar er út-
nefnd ný nefnd sem tekur ákvörð-
un um hvert farið verður næsta
sumar. Matseld skiptist síðan á
alla félagana og að kvöldi hvers
göngudags er sest að ríkulegum
kvöldverði, matbúnum af ferða-
félögunum. Það má segja að þau
Benni og Edda hafi verið frum-
kvöðlarnir að þessum ferðum.
Þau hóuðu saman gönguglöðum
hópi vina, sem hefur að mestu
leyti haldið hópinn síðan. Það er
margs að minnast úr ferðum okk-
ar. Eftirminnilegar eru ferðirnar
á Hornstrandir, Ísafjarðardjúp
og til Vestmannaeyja undir far-
arstjórn þeirra Eddu og Benna.
Ekki gleymist þegar við sigldum
frá Reykjarfirði í Furufjörð. Bát-
ur var að fara þangað með rekavið
og Benni sá til þess að við fengum
að fljóta með. Þar hafði hann ver-
ið í sveit ungur drengur og naut
þess að koma aftur á fornar slóðir.
Bærinn var þá uppistandandi og
við komumst þangað inn og hann
sagði okkur deili á herbergjaskip-
an. Hann lýsti vel fyrir okkur
landslagi og staðháttum, þó að
landið væri orðið breytt, allt í
hvönn og þúfum.
Í Vestmannaeyjum dvöldum
við í nokkra daga, á heimaslóðum
Eddu. Áður en lagt var upp í þá
ferð, sem stóð í nokkra daga,
héldu margir að einn dagur nægði
þar til skoðunarferða en það var
öðru nær. Hver dagur var þaul-
skipulagður og við sáum ótrúlega
margt.
Benni var hvers manns hug-
ljúfi, brosmildur, ávallt léttur í
lund og sannkallaður gleðigjafi í
hópnum og það var ekki leiðinlegt
að vera nálægt honum þegar hann
hóf sig til flugs í frásögnum. Eitt
og annað gat stundum farið úr-
skeiðis í ferðunum, þá reyndist
Benni oft ráðagóður og sá fljótt
hvernig bregðast átti við. Gang-
lerarnir eiga bók með sönglögum.
Þar var uppáhaldslagið hans
„Svantes lykkelige dag“ og alltaf
þegar það var sungið var hann
forsöngvari. Við eigum þeim
Benna og Eddu mikið að þakka.
Þau hafa verið máttarstólpar okk-
ar Ganglera. Við kveðjum vin
okkar með söknuði. Okkar inni-
legustu samúðarkveðjur til Eddu
og fjölskyldunnar.
F.h. ferðahóps Ganglera,
Sveinbjörn Sigurðsson,
Véný Lúðvíksdóttir.
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 10-17 alla virka daga
Elsku móðir mín og amma,
HALLDÓRA GÍSLADÓTTIR
frá Hofstöðum í Garðabæ,
lést sunnudaginn 29. september.
Útförin fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi
þriðjudaginn 29. október klukkan 13.
Aðalheiður Kristjánsdóttir og dætur
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
KRISTJÁN JÓHANN ÁSGEIRSSON
Miðvangi 31, Hafnarfirði,
lést 19. október á Sólvangi.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 28. október klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja
minnast hans er bent á Alzheimersamtökin.
Anna Guðbjörg Erlendsdóttir
Anna Karen Kristjánsdóttir Björn Arnar
Kristína V. Kristjánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
AUÐAR GUÐVINSDÓTTUR
Njarðarvöllum 6, Njarðvík.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu henni
umhyggju og ástúð uns yfir lauk. Sérstakar þakkir til
Kvenfélagsins Gefnar fyrir ómetanlegt framlag.
Kærleikskveðja,
f.h. aðstandenda,
Þóra Harðardóttir Gígja Harðardóttir
Halla Huld Harðardóttir Hugrún Dögg Harðardóttir
Jörundur Guðni Harðarson Anna Heiða Harðardóttir
Föðurbróðir okkar,
TRYGGVI GUNNARSSON,
öldrunarheimilinu Hlíð, Akureyri,
lést 17. október.
Jarðarförin fer fram frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 30. október klukkan 13.30.
Gunnar M. Guðmundsson Erna H. Gunnarsdóttir
Þóra K. Guðmundsdóttir Magnús H. Sævarsson
og fjölskyldur
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓHANNS PÉTURS
SIGURBJÖRNSSONAR,
Hrísey.
Sigurður Jóhannsson Kirsten Ruhl
Steinunn Jóhannsdóttir Barði Sæmundsson
Sólveig Jóhannsdóttir Sæmundur Guðmundsson
Lovísa Jóhannsdóttir Guðlaugur Georgsson
Jóhann Pétur Jóhannsson Margrét Sigmundsdóttir
Þröstur Jóhannsson Kristín Björk Ingólfsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Við þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SONJU BACKMAN,
Fjölnisvegi 15, Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heru, krabbameinsdeildar 11E á
Landspítalanum og líknardeildarinnar í Kópavogi.
Birgir Ísleifur Gunnarsson
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SÚSANNA MARTA VILHJÁLMSDÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Bæjarási Hveragerði
15. október.
Útförin fer fram frá Hveragerðiskirkju
miðvikudaginn 30. október klukkan 13.
Gunnar N. Einarsson Guðrún Helgadóttir
Grétar Einarsson Óskar Á. Ástþórsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
HALLDÓR JÓNSSON,
Brákarhlíð, Borgarnesi,
Lækjasmára 4, Kópavogi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, 24. september.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
María Eyvör Halldórsdóttir
Ásta Óla Halldórsdóttir Marteinn Kristjánsson
Þóra Ágústa Harðardóttir
barnabörn og aðrir aðstandendur
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HANNES ARNAR GUÐMUNDSSON,
Efri-Sandvík, Grímsey,
lést á öldrunarheimilinu Hlíð, Akureyri,
21. október. Útför hans fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 4. nóvember klukkan 13.30.
Hallgerður Gunnarsdóttir
Guðmundur Hannesson Marta Pálsdóttir
Gunnar Hannesson Ragna Gunnarsdóttir
Linda Hannesdóttir Gísli Ingólfsson
Kristín Hannesdóttir
Sigurður Hannesson Guðbjörg Henningsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HÁKON ÁRNASON
hæstaréttarlögmaður,
lést á heimili sínu Heiðarási 26, í faðmi
fjölskyldu, fimmtudaginn 24. október.
Útför fer fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Bertha Stefanía Sigtryggsdóttir
Helena Hákonardóttir Sveinbjörn Sigurðsson
Harri Hákonarson Lísa Birgisdóttir
Tryggvi Hákonarson Sólveig Árnadóttir
og barnabörn