Morgunblaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019 ✝ Karl Aspelundfæddist 18. októ- ber 1930 á Ísafirði. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Vest- fjarða á Ísafirði 15. október 2019. For- eldar hans voru Har- ald Aspelund, f. í Noregi 1898, d. 1979, og Arnþrúður Helga Magnúsdóttir Aspe- lund, f. á Ísafirði 1906, d. 2000. Systkini Karls eru: 1) Magnús Aspelund, f. 1931, d. 14. september 2015. 2) Helga Aspelund, f. 1942. Árið 1957 voru Karl og Agnes Kristín, f. 1937 í Reykjavík, gefin saman í Neskirkju. Foreldrar hennar voru Hallvarður Einar Árnason, f. 23.12. 1895, d. 20.1. og var virkur þátttakandi í íþrótt- um. Hann byrjaði nám í bifvéla- virkjun en söðlaði um og hóf nám við íþróttaskólann á Laugarvatni og útskrifaðist þaðan sem íþrótta- kennari árið 1951. Karl starfaði sem íþróttakennari við Barna- og gagnfræðaskólann á Ísafirði og einnig við Menntaskólann fyrst eftir stofnun hans. Allan sinn starfaldur starfaði Karl sem íþróttakennari. Með kennslu- störfum lagði hann einnig stund á nám í ljósmyndun sem hann vann við um tíma. Í hlutastörfum starf- aði Karl sem bílstjóri, við bifreiða- skoðun og um tíma átti hann og rak minkabú. Karl og Agnes bjuggu fyrstu árin í Aðalstræti 22 á Ísafirði en byggðu síðar hús við Sætún 9 á Ísafirði árið 1970 þar sem þau bjuggu alla tíð og börn þeirra uxu þar úr grasi. Karl verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju í dag, 26. október 2019, klukkan 14. 1969, og Guðrún Kristjánsdóttir, f. 19.12. 1903, d. 7.3. 1986. Börn Karls og Agnesar Kristínar eru: a) Harald, f. 1957, hann á fjögur börn og fimm barnabörn. b) Hall- varður Einar Aspe- lund, f. 1958, kvænt- ur Eyleifu Björgu Hauksdóttur, þau eiga tvö börn og tvö barnabörn. c) Guðrún Aspelund, f. 1961, gift Einar Val Kristjánssyni, þau eiga fjögur börn og fimm barnabörn. d) Arnþrúður Helga Aspelund, f. 1962, hún á eitt barn. Karl ólst upp á Ísafirði, kynntist ýmsum störfum til sjávar og sveita á unglings- og námsárum sínum Hann Karl mágur minn bónaði bílana sína áður en hann kvaddi þessa jarðvist, bílar voru hans áhugamál enda var hann bifreiða- eftirlitsmaður ásamt Harald föð- ur sínum í tugi ára. Kalli tók mig með í margar ferðir þegar hann fór að sinna bifreiðaeftirlitinu, bæði keyrandi á bíl og með Djúp- bátnum, hann fræddi mig um sögu, mannlíf og náttúru Vest- fjarða, hann var jú kennari hann Kalli „íþróttakennari“. Kalli hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og tók- umst við oft á um skoðanir okkar en hvorugt gaf eftir. Kalli reynd- ist mér „krakkanum“ mjög vel þegar ég var hjá þeim Agnesi systur minni í fjóra mánuði 1958, Agnes gekk þá með Hallvarð en Harald var ársgamall. Þau Agnes voru höfðingjar heim að sækja, ég kom vestur við ýmis tækifæri, til dæmis við fermingar krakkanna. Ferming Haralds er minnis- stæðust því húsið var ekki fullbú- ið þá. Ragna systir og Kalli voru að fúga skorsteininn, ég var í eld- húsinu að baka, mamma að hekla hlífar á armana á sófasettinu og Agnes verkstjóri yfir okkur, þá kom drengur úr næsta húsi og varð alveg ringlaður því honum fannst við systur vera sama kon- an og alls staðar. Síðastliðið sumar heimsótti ég ásamt Hönnu og Nonna þau Kalla og Agnesi og rifjuðum við upp lið- inn tíma. Kalli hafði áhuga á fólk- inu sínu og spurði mikið um mitt „sitt“ fólk, hvernig barnabörnin mín hefðu það og þá sérstaklega Gauti og Atli synir Hönnu og Nonna en þeir kölluðu Kalla alltaf „Kalla afa“ þegar þeir voru yngri enda reglulegir gestir hjá þeim hjónum. Þarna áttum við yndis- lega stund saman sitjandi í sólinni úti á svölum og horfðum inn poll- inn. Svona vil ég muna þig. Kalli minn, ég vil þakka þér alla samfylgdina, hún var nú ekki leiðinleg. Árný Þ. Hallvarðsdóttir. Það standa fimm falleg hús við Sætún á Ísafirði sem öll eru byggð snemma á sjöunda ára- tugnum. Hús Kalla og Agnesar Aspelund er númer níu og stend- ur innst í götunni. Það er líka fal- legasta húsið og garðurinn þeirra, sem teygir sig í sveig inn fyrir botnlangann, með þeim falleg- ustu. Þegar þessi módernísku hús með hreinum formum og flötu þaki voru byggð tók öll fjölskyld- an þátt í framkvæmdinni, börnin, afinn og amman, bæði hjónin og svo vinirnir á steypudögum. Kalli pældi mikið í hvernig best væri að þessari stórframkvæmd staðið og stóð meðal annars og sprautaði vatni á nýja steypuna til þess að hægja á þornuninni, enda eru veggirnir hans ennþá sléttir og sprungulausir eftir öll þessi ár. Kalli var mikill pælari og sér- vitringur að auki, en það er vest- firskur eiginleiki sem reynist hafa fleiri kosti en galla. Hann velti hlutunum fyrir sér á alla kanta, fyrir honum voru öll málefni og öll verkefni tilefni til endurskoðunar. Þau Agnes voru glæsilegt par, Kalli alltaf svo fínn í tauinu og vel greiddur og hún fallega klædd í sérhönnuðum og sérsaumuðum fötum, en Agnes er hönnuður og saumakona með fágaðan smekk og vandvirk í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur. Garðurinn þeirra er ekki bara útpældur (Kalli) heldur útfærður og hann- aður af mikilli smekkvísi (Agnes). Þar hafa þau ræktað grænmeti í mörg ár og um tíma spígsporuðu marglit dverghænsni um garðinn. Hænunum fylgdi tilraunastarf- semi sem fólst í því að Kalli tók alltaf minnstu eggin til að unga þeim út og fá þannig með tíman- um minni og minni hænur. Han- inn kom reglulega yfir í garðinn til okkar og galaði þar. Við því amaðist enginn enda fylgdi þess- um dýrum mikil litagleði og líf. Við viljum þakka þessum ná- grönnum okkar öll yndislegu árin í Sætúninu. Nú eru börnin í götunni að sjálfsögðu öll flutt að heiman (nema þau sem hafa tekið við húsi foreldra sinna) en við húsið núm- er 9 má oft sjá mergð bíla og reið- hjóla. Þangað sækja barnabörnin og börnin og maður sér fyrir sér fjörugar samræður og miklar pælingar, enda hafa börnin fjögur erft marga af eiginleikum for- eldra sinna. Heimilisfólkið í Sætúni 9 hefur gert sitt í gegnum tíðina til að stuðla að skapandi og gagnrýnni hugsun, fögru mannlífi og góðu samfélagi. Það er gott að eiga ná- granna eins og þau. Við systkinin ásamt móður okkar Jónínu Einarsdóttur kveðj- um Kalla með söknuði og sendum Agnesi og fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur. Jón Ottó, Elísabet, Margrét og fjölskyldur. Karl Aspelund 26. október, afmæl- isdagurinn þinn, elsku mamma, sá fyrsti eftir að þú kvaddir okkur fyrir réttum tveimur mánuðum. Mig langaði svo að skrifa til þín kveðju en þú kvaddir okkur svo snögglega að ekki vannst tími til. Tómleikinn og söknuðurinn er mik- ill en eftir sitja minningar og þakk- læti fyrir yndislega og örláta móð- ur. Við systkinin elskum söguna af fyrstu kynnum foreldra okkar. Mamma var að vinna í sjoppu, nán- ar tiltekið gömlu Skeifunni, og pabbi vann þar við smíðar ásamt fleiri ungum mönnum. Þetta var árið 1958 og þau 17 ára gömul. Mamma var nýbyrjuð að vinna þarna og strákarnir vildu stríða henni aðeins. Í þá daga var til gos- drykkur sem hét kist. Pabbi kemur inn og vinirnir flissandi á eftir hon- um og segir: „Hafið þér kist, frök- en?“ Hún snýr upp á sig og svarar: „Það kemur þér ekkert við!“. „Ég var nú bara að spyrja hvort þú hefðir til sölu gosdrykkinn kist.“ Eftir þetta voru örlög þeirra sam- tvinnuð og samrýndari og ást- fangnari hjón var erfitt að finna. Mamma var óvenjuskipulögð og framtakssöm kona. Sýndi þetta skipulag sig best þegar þeim byrj- uðu að fæðast börn. Fyrst kom stúlka 1960, svo drengur 1962, þá önnur stúlka 1964 og að lokum drengur 1966. Þessum barneignum var lokið þegar hjónin voru á 24. aldursári enda fullkomin fjölskylda og engin ástæða til að bæta við. Börnin voru vel öguð og ávallt óað- finnanlega til fara, í heimasaumuðu af móður sinni sem sat gjarnan við sauma eftir að aðrir voru lagstir til hvílu. Biðu þá til dæmis nýsaum- aðir 17. júní kjólar stúlknanna um morguninn og stuttbuxur og skyrt- ur á drengina. Þau voru svo greidd og strokin og svo vel öktuð að minnti einna helst á Von Trapp- börnin úr Sound of Music. Barnabörnin þín kunnu svo sannarlega að meta það að eiga svona hressa og skemmtilega ömmu sem grínaðist óspart í þeim. Greta María Sigurðardóttir ✝ Greta MaríaSigurðardóttir fæddist 26. október 1941. Hún lést 17. ágúst 2019. Útför Gretu Mar- íu fór fram 23. ágúst 2019. Bræður mínir kunnu ekki alltaf eins vel að meta húmorinn þinn en þú notaðir hann oft til að veita þeim ráðningu. Eitt sinn læddir þú nýveidd- um rauðmaga ofan í baðið hjá Sigga sem hafði dvalið þar fram úr hófi lengi. Það sem þú hlóst þegar hann gusaðist með látum upp úr baðinu og hljóp nakinn fram í stofu. Ásgeir fékk einnig að kenna á stríðninni þegar þú tókst ráðin í þínar hendur og kveiktir í allt of súrum og slitnum Adidas-skóm hans niðri á stétt. Þú gast svo ekki stillt þig um að kalla í hann út að glugga til að sjá skóna standa í ljós- um logum. Það var mikið hlegið þegar hann hljóp bölvandi út með slökkvitækið í höndunum. Þú varst elskuð af vinnufélögum þínum, Oddfellowsystrum og vin- konum þar sem þú varst oftast fremst í flokki við að skipuleggja skemmtanir og mannamót. Þú varst góðhjörtuð, fordómalaus, ein- stakur fagurkeri, með eindæmum smekkleg og útsjónarsöm kona og ber heimili ykkar pabba vott um það. Hluti af þér mun alltaf fylgja mér og ég sé þér bregða fyrir með bros á vör og blik í auga á hverjum degi. Aþena mín, Haukur og Atlas Þór sakna yndislegrar ömmu og langömmu. Elsku hjartans fallega og skemmtilega mamma mín, takk fyrir allt það góða sem þú gafst mér og mínum. Þín Sif. Elsku tengdamamma hefði orð- ið 78 ára í dag, 26. október, en í dag kveðjum við hana í hinsta sinn. Afmælisveisla hjá þér er ekki í boði þetta árið fyrir okkur sem syrgjum þig, en vonandi heldur þú þitt afmælisboð á himnum og mamma mín er kannski bara í boð- inu hjá þér, úr því þið ákváðuð að kveðja okkur með aðeins níu vikna millibili í sumar. Í maí 2016 var þér óvænt boðið upp í „dans“ af óvelkomnum aðila. Þér með þinni elju, þrautseigju og dugnaði tókst að „dansa“ hann út af gólfinu á einu ári. Svo hélstu bara áfram að dansa og dilla þér með okkur hinum. En síðla sumars réðist þessi óvelkomni aðili aftur inn í líf okkar og hreinlega hrifsaði þig út af dansgólfinu á örskömmum tíma. Við náðum varla áttum – og þú bara allt í einu farin frá okkur. Þín er svo sárt saknað. Þú varst svo allt umlykjandi, væntumþykja, snyrtimennska og gjafmildi ein- kenndi þig. Sífellt með útbreiddan faðminn að passa upp á þitt fólk. Gefa öllum gjafir og allir skyldu fá jafnt, alltaf passað upp á það. Börn- in þín, tengdabörn og barnabörn voru í fyrsta sæti hjá þér og elsku tengdapabba. Þú varst svo dugleg að hafa samband við okkur öll, sama hvar í heiminum við vorum stödd. Svo voruð þið hjónin alltaf mætt á allar skólaskemmtanir, leik- og danssýningar hjá barna- börnunum. Það var dásamlegt að hvað þið gáfuð ykkur alltaf tíma í að sinna barnabörnunum. Nú pöss- um við tengdapabba og gefum hon- um með gleði, af tíma okkar. Í febrúar sl. fylgdir þú mér fyrstu skrefin inn í Oddfellowregl- una. Mikið er ég glöð að þú fylgdir mér þessi fyrstu skref. Ég tek þau næstu án þín en lofa að standa mig vel og vera þér til sóma. Hringur- inn þinn er minn núna og minnir mig á þig á hverjum degi. Þið tengdapabbi voruð gift í tæp 60 ár og saman í yfir 60 ár. Eign- uðust fjögur börn á rúmum fimm árum og þú tæplega 25 ára þegar yngsta barnið fæddist. Geri aðrir betur. Börnin vel upp alin, snyrti- leg og fín. Ekki voru auraráðin mikil en þú og saumavél gerðuð kraftaverk. Þú varst mjög góður kokkur og sama hvort það var hversdagsmatur eða veislumatur, þetta smakkaðist alltaf betur hjá þér. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Elsku tengdamamma, takk fyrir allt sl. 30 ár. Sigríður. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ELÍS PÉTUR SIGURÐSSON, Elli P., lést miðvikudaginn 16. október á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. Útför fer fram frá Glerárkirkju, Akureyri, föstudaginn 8. nóvember klukkan 13.30. Fjóla Ákadóttir Sigurður Elísson Jóhanna Guðnadóttir Áslaug Elísdóttir Björn Hermannsson Erla Vala Elísdóttir Stefanía Fjóla Elísdóttir Alejandro Guilllen Mellado Ragna Valdís Elísdóttir Herbert Harðarson Elís Pétur Elísson Helga Rakel Arnardóttir Bryndís Karlsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG ELÍASDÓTTIR, Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ, lést á Hrafnistu, Nesvöllum, fimmtudaginn 17. október. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 1. nóvember klukkan 13. Jóhann Pétursson Elías Ásgeir Jóhannsson Margrét Hrönn Emilsdóttir Pétur Jóhannsson Sólveig Einarsdóttir Margrét Sigrún Jóhannsd. Werner Kalatschan Kristín Jóhannsdóttir Jón Þorsteins Jóhannsson Jóhann Ingi Jóhannsson Mariana Tamayo barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, SIGRÍÐUR ÞORLEIF ÞÓRÐARDÓTTIR, Staðarhrauni 23, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 19. október. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 30. október klukkan 14. Ingibjörg Marín Björgvinsd. Jón Fanndal Bjarnþórsson Björgvin Björgvinsson Hanna Margrét, Sigríður Emma, Elísabet Inga, Kristjana Marín, Sylvía Björg, Svala María og systur hinnar látnu Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, VALBORG ODDSDÓTTIR, Birkihlíð 38, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 8. október. Útför hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk. Emil Örn Evertsson Þórhildur Knútsdóttir Kári Emilsson Sindri Emilsson Ásta Sóley Emilsdóttir Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA SVANDÍS SIGURÐARDÓTTIR, Bædý, Úthlíð í Skaftártungu, lést sunnudaginn 20. október. Útför hennar fer fram frá Grafarkirkju í Skaftártungu laugardaginn 2. nóvember klukkan 14. Valur Oddsteinsson Herdís Erna Gústafsdóttir Haukur Sigurjónsson Trausti Fannar Valsson Guðrún Inga Sívertsen Elín Heiða Valsdóttir Guðmundur Ingi Arnarsson Oddný Steina Valsdóttir Ágúst Jensson Sigurður Árni Valsson Stefanía Hjaltested og barnabörn Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.