Morgunblaðið - 26.10.2019, Side 17
17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019
Ríkissaksóknari felldi ákvörðunina
úr gildi og lagði fyrir lögreglustjóra
að taka málið til rannsóknar.
„Fólk móðgast, hneykslast, eða
reiðist, telur á sig hallað, telur á sér
brotið og svo framvegis. Þetta er
óhjákvæmilegur fylgisfiskur opin-
berrar umræðu í lýðræðisþjóð-
félagi,“ sagði m.a. í sýknudómi.
Eyrún sagði sig síðar úr VG til að
mótmæla frumvarpi til breytinga á
lögum m.t.t. tjáningarfrelsis.
Hún hætti í lögreglunni árið 2018
og starfar nú sem lektor við Háskól-
ann á Akureyri. Hatursglæpir heyra
nú undir alvarlega ofbeldisglæpi,
þar sem eru m.a. tekin fyrir morð,
en þeir eru undirdeild hjá miðlægri
rannsóknardeild lögreglu.
Ábendingar um vanda
Nokkrum vikum eftir að Sigríður
Björk kvaðst lesa um samskipta-
vanda í fjölmiðlum svaraði Ólöf Nor-
dal, þá innanríkisráðherra, fyrir-
spurn í febrúar 2016 um meintan
samskiptavanda innan lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu.
„Síðastliðið ár bárust ráðuneytinu
ábendingar um að það væri sam-
skiptavandi innan embættis lög-
reglustjórans á höfuðborgarsvæð-
inu. Ráðuneytið fundaði með
lögreglustjóranum vegna þessa og
var ákveðið sl. vor, í samráði við lög-
reglustjórann, að fá utanaðkomandi
ráðgjafa til að greina hvort slíkur
vandi væri fyrir hendi og þá hver rót
hans væri og hvernig ráða mætti bót
á honum. Ráðgjafinn skilaði skýrslu
til ráðuneytisins í lok síðasta árs.
Niðurstöður hans voru að eftir viðtöl
við stjórnendur við embætti
lögreglustjórans á höfuðborgar-
svæðinu hefðu komið fram skýrar
vísbendingar um vanda sem snerti
samskipti og samstarf. Væri hann
þess eðlis að hann yrði ekki leystur
án utanaðkomandi aðstoðar … Ósk-
aði ráðuneytið eftir því við lögreglu-
stjórann að hann fylgdi eftir þessum
niðurstöðum og ráðleggingum. Lög-
reglustjórinn hefur, í samráði við
yfirstjórn embættisins, ráðið sér-
fræðinga til aðstoðar við að bæta
samskipti innan embættisins,“ sagði
m.a. í svari ráðherrans.
Lýstu erfiðum samskiptum
Jafnframt kom fram í dómi
Hæstaréttar í máli Aldísar Hilmars-
dóttur gegn ríkinu að Lands-
samband lögreglumanna hefði sent
innanríkisráðuneytinu bréf í desem-
ber 2016. Þar hefði komið fram að
allt frá árinu 2015 hefðu fjórir
starfsmenn lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu, og svo 20 til 30 til
viðbótar, leitað til sambandsins og
lýst stöðu sinni og erfiðleikum sem
þeir hefðu upplifað í kjölfar eineltis
af hálfu lögreglustjórans.
Taldi sambandið brýnt að „ráð-
herra gripi þegar til eftirlits- og
rannsóknarskyldu þeirrar sem á
honum hvíldi og tæki málið til rann-
sóknar samkvæmt lögum nr. 46/1980
um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi
á vinnustöðum og reglugerð nr.
1009/2015 um aðgerðir gegn einelti,
kynferðislegri áreitni, kynbundinni
áreitni og ofbeldi á vinnustöðum“.
En fram kom í dómum Hæstaréttar
í málum sem varða lögregluna á
höfuðborgarsvæðinu að skipulags-
breytingar sumarið 2015 ollu óróa.
Ólga upp á yfirborðið
Haustið 2016 sögðu fjölmiðlar frá
ásökunum þriggja lögreglumanna á
hendur Sigríði Björk vegna eineltis,
en áðurnefnd Aldís var ein þeirra.
Meðal þeirra var fyrrverandi sam-
starfsmaður Sigríðar Bjarkar hjá
lögreglunni á Suðurnesjum.
Um líkt leyti sagði Snorri
Magnússon, formaður Lands-
sambands lögreglumanna, í samtali
við Útvarp Sögu vandséð að Sigríður
Björk gæti gegnt áfram embætti.
Síðar um haustið 2016 ræddi Sig-
ríður Björk um að efla þyrfti traust
til lögreglu, sem hefði minnkað. En
samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup sögð-
ust 83% treysta lögreglunni árið
2014, þegar Sigríður Björk tók við,
en 77% árið 2015. Traustið hefur síð-
an aukist og mældist 83% í árs-
byrjun. Lögreglan þótti standa sig
vel í ýmsum málum, ekki síst í máli
ungrar konu sem var myrt.
Unnið á málafjöldanum
Eftir mikla áherslu á heimilis-
ofbeldi í upphafi, sem leiddi til fjölg-
unar á tilkynntum málum, fór at-
hyglin á kynferðisbrot.
Sigríður Andersen, þá dóms-
málaráðherra, taldi síðar að lög-
reglan hefði náð árangri í þessum
viðkvæma málaflokki. Tekist hefði
að vinna á málafjöldanum. Komu
þessi sjónarmið fram í svari ráð-
herrans við fyrirspurn Bryndísar
Haraldsdóttur í febrúar sl. um áhrif
aukinna fjárveitinga til lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt
ársskýrslu ríkissaksóknara 2018 var
hlutfall niðurfelldra kynferðisbrota-
mála hjá embættinu 65%, 70%, 61%
og 68% árin 2014-2017 í alls 248 mál-
um sem varða 194. gr. alm. hgl.
Sumarið 2017 lýsti Sigríður Björk
því yfir að lögreglan hefði að mestu
náð markmiðum sínum varðandi
heimilisofbeldi.
Haustið 2017 kom óeining innan
fíkniefnalögreglunnar upp á yfir-
borðið. Síðar var ítarlega fjallað um
þær deilur í dómi Hæstaréttar í máli
Aldísar Hilmarsdóttur.
Tölvupóstum ekki svarað
Í febrúar 2018 komst meðferð
kynferðisbrotamála aftur í hámæli
er Sævar Þór Jónsson lögmaður
gagnrýndi lögregluna fyrir að svara
ekki tölvupóstum í máli sem vörðuðu
meint brot gegn barni.
Sigríður Björk og Karl Steinar
Valsson héldu blaðamannafund
vegna málsins í febrúar 2018.
Fjölluðu þau um vankanta á rann-
sókninni og boðuðu úrbætur.
Slíkir blaðamannafundir eru ekki
algengir hjá lögreglunni. Haustið
2018 hafði Fréttablaðið eftir fjár-
málastjóra lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu að lögreglan hefði
ekki nægan mannskap til að sinna
upplýsingamálum. Tilefnið var að
lögreglan hafði greitt Góðum sam-
skiptum um 900 þúsund vegna ráð-
gjafar við stefnumótun í upplýsinga-
málum, ásamt ræðuskrifum.
Ráðinn án auglýsingar
Skömmu eftir blaðamannafund-
inn, eða í apríl 2018, varð Theodór
Kristjánsson, bróðir Hönnu Birnu,
yfirmaður kynferðisbrotadeildar.
Fram kom í úttekt Stundarinnar að
Theodór var ráðinn án auglýsingar.
Það sama gilti um Öldu Hrönn.
Má í þessu efni rifja upp þau til-
mæli GRECO, ríkjahóps Evrópu-
ráðsins gegn spillingu, í skýrslu sem
birt var í fyrravor, að lögreglan
fylgdi eftir gagnsæju og formlegu
hæfnismati við val í stjórnunar-
stöður.
Yfirlögfræðingur hættir
Sem áður segir starfaði Alda
Hrönn náið með Sigríði Björk vegna
átaks í nokkrum málaflokkum.
Fram kom í viðtali Fréttablaðsins
við Öldu Hrönn í febrúar 2018 að
Sigríður Björk hefði kallað hana til
starfa með engum fyrirvara.
„Hluti af flutningi Sigríðar Bjark-
Ferill Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur sem lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu
Dæmi um
mál sem
hafa ratað
í fjölmiðla
2014 JÚLÍ Hanna Birna Kristjáns-
dóttir skipar Sigríði Björk í
embætti án auglýsingar – Sig-
ríður Björk var lögreglustjóri á
Suðurnesjum 2009-2014
SEPTEMBER
Sigríður
Björk tekur
við embætti
OKTÓBER Lögreglan birtir skýrslu
sem hún tók saman 2008-2011
um árásirnar á Alþingishúsið og
lögreglustöðina við Hlemm – skýrslan
var gerð í tíð Stefáns Eiríkssonar, þá
lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu,
sem hvarf til annarra starfa í júlí
NÓVEMBER Sigríður
Björk segir á fundi stjórn-
skipunar- og eftirlits-
nefndar að skýrslan um
svonefnda búsáhalda-
byltingu sé einstök í sögu
lögreglunnar
2015 JANÚAR Sautján
lögreglumenn senda
bréf til Landssambands
lögreglumanna og
kvarta undan samskipta-
vanda við Sigríði Björk
Hanna Birna sendir
umboðsmanni Alþingis
bréf þar sem hún telur
að samskipti sín við lög-
reglustjórann á Höfuð-
borgarsvæðinu (Stefán)
hafi verið mistök
FEBRÚAR Persónuvernd úrskurðar að Lög-
reglan á Suðurnesjum hafi ekki haft heimild til
að senda innanríkisráðuneytinu upplýsingar
um hælisleitanda – Sigríður Björk var þá
lögreglustjóri hjá Lögreglunni á Suðurnesjum
– skjalið tengdist lekamálinu sem leiddi til
afsagnar Hönnu Birnu í árslok 2014
Sigríður Björk sendir
frá sér yfirlýsingu um
málið – Lögreglan
á Suðurnesjum hafi
talið að lagaleg heim-
ild væri fyrir miðlun
skýrsludraga
MARS Sigríður Björk
segir undanfarnar vikur og
mánuði hafa reynt á hana
og embættið – boðar þjón-
andi forystu, huga þurfi að
auðinum sem fólginn sé í
samstarfsmönnum
APRÍL Innanríkis-
ráðuneytið sendir
Sigríði Björk bréf þar
sem fram kemur að
ábendingar hafi borist
um samskiptavanda
innan lögreglunnar
JÚLÍ Nýtt
skipurit tek-
ur gildi hjá
lögreglunni
á höfuð-
borgarsvæð-
inu 9. júlí
NÓVEMBER Fram kemur í Morgunblaðinu
að umfangsmiklar skipulagsbreytingar
séu framundan hjá lögreglunni – Alda
Hrönn Jóhannsdóttir, settur yfirlög-
fræðingur hjá embættinu, stýrir átaks-
verkefnum – þau lúta að kynferðisofbeldi,
heimilisofbeldi, mansali og hatursglæpum
Fréttablaðið segir á forsíðu að
íbúð í Hlíðunum hafi verið út-
búin til nauðgana – í kjölfarið
er efnt til mótmæla fyrir utan
lögreglustöðina við Hlemm
– meintir gerendur voru
nafngreindir á félagsmiðlum
DESEMBER Sigríður
Björk kveðst lesa um
samskiptavanda í
fjölmiðlum – vinnu-
sálfræðingur skilar
skýrslu eftir viðtöl við
20 starfsmenn
2016
JANÚAR
Sigríður Björk
færir Aldísi
Hilmarsdóttur
til í starfi
Staða lögreglufulltrúa haturs-
glæpa sett á stofn hjá LRH – Eyrún
Eyþórsdóttir sinnir málaflokknum
– um 70 íslenskir lögreglumenn,
víða um landið, fengu sérstaka
þjálfun í að greina, rannsaka og
sporna gegn hatursglæpum
JÚLÍ Sigríður
Björk leitar
stuðnings á lok-
aðri síðu róttækra
femínista – vísar
til áhrifa karla í
lögreglunni
Lögreglu-
maður
hyggst
stefna lög-
reglustjóra
til greiðslu
miskabóta
SEPTEMBER Fram
kemur í frétt RÚV
að þrír lögreglu-
menn hafi sakað
Sigríði Björk um
einelti – meðal
þeirra var Aldís
Snorri Magnússon,
formaður Lands-
sambands lög-
reglumanna, segir
vandséð að Sigríður
Björk geti áfram
gegnt embætti
NÓVEMBER
Sigríður Björk
kveðst sammála
því að lögreglan hafi
fjarlægst borgarana,
traust til lögreglu
hafi minnkað
2017 JÚNÍ Sigríður
Björk segir lögregluna
að mestu hafa náð
markmiðum sínum
um heimilisofbeldi
SEPTEMBER
Aldís Hilmarsdóttir
vitnar um einelti
– Sigríður Björk
kveðst hafa fengið
margar kvartanir
vegna Aldísar
Jón H. B. Snorra-
son, saksóknari
hjá lögreglunni
á höfuðborgar-
svæðinu, fer til
ríkissaksóknara
OKTÓBER Sigríð-
ur Björk greinir frá
áreitni sem hún
varð fyrir sem ung-
ur skattstjóri og
síðar sýslumaður
á Vestfjörðum
2018 FEBRÚAR Sævar Þór
Jónsson, lögmaður og
réttargæslumaður drengs
sem kærði mann fyrir
kynferðisbrot, gagnrýnir
að lögreglan hafi ekki
svarað tölvupóstum hans
OKTÓBER Tveir dómar
felldir í Hæstarétti, ríkið
dæmt til að greiða tveim-
ur lögreglumönnum sem
störfuðu hjá Lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu
bætur. Annar þeirra var
Aldís Hilmarsdóttir.
2019 MARS Eyrún
Eyþórsdóttir, stjórnandi
hatursglæpadeildar
lögreglu, segir sig úr VG
vegna áforma um að
breyta hegningarlögum
m.t.t. tjáningarfrelsis
APRÍL Sigríður
Björk kynnir í bréfi
til starfsmanna
breytingar á stöðum
yfirmanna hjá emb-
ættinu – kveðst ekki
skynja óróleika innan-
húss vegna þessa
SEPTEMBER Átta af níu
lögreglustjórum lýsa
yfir vantrausti á hendur
Haraldi Johannessen rík-
islögreglustjóra, eftir viðtal
við hann í Morgunblaðinu,
og var Sigríður Björk meðal
þeirra
SJÁ SÍÐU 18