Morgunblaðið - 26.10.2019, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019
Suðurlandsbraut 26 Sími: 587 2700
Opið: 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga www.alno.is
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Breska lögreglan sagði í gær að hún
hefði handtekið karlmann og konu
sem eru grunuð um að hafa tekið
þátt í smygli á fólki og bera ábyrgð á
dauða 39 manna sem fundust látnir í
gámi flutningabifreiðar í Essex á
Suðaustur-Englandi á þriðjudags-
kvöld.
Þau sem voru handtekin eru 38
ára að aldri og frá bænum Warring-
ton í Cheshire-sýslu á Vestur-Eng-
landi. Lögreglan sagði að þau væru
grunuð um að tengjast dauða 31
karlmanns og átta kvenna sem fund-
ust látin í kæligámi bifreiðarinnar í
iðngarði í Grays, austan við London.
Rannsóknin á málinu er viðamesta
morðrannsókn bresku lögreglunnar
frá hryðjuverkunum í London árið
2005 þegar 52 menn biðu bana.
Lögreglan í Essex sagði í frétta-
tilkynningu að talið væri að fólkið
sem dó í gámnum væru Kínverjar.
Sendiherra Kína í London sagði þó
að lögreglan hefði ekki staðfest þjóð-
erni fólksins. Hann kvaðst hafa sent
kínverskan hóp til að aðstoða lög-
regluna í Essex við að bera kennsl á
líkin.
Breska ríkisútvarpið kvaðst hafa
rætt við fjölskyldur þriggja Víet-
nama, tveggja kvenna og eins karl-
manns, sem óttast er að hafi látið líf-
ið í gámnum. Fjölskylda annarrar
kvennanna segist hafa greitt 30.000
pund, jafnvirði 4,8 milljóna króna,
fyrir að henni yrði smyglað til Bret-
lands. Bróðir hinnar konunnar sagði
að hún hefði hringt í sig snemma á
þriðjudag og sagt að hún væri að
fara inn í gám og ætlaði að slökkva á
símanum til að hún fyndist ekki.
Lögreglumenn rannsökuðu í gær
þrjú hús á Norður-Írlandi vegna
málsins. Talið er að húsin tengist bíl-
stjóra flutningabreiðarinnar, 25 ára
Norður-Íra sem var hnepptur í
gæsluvarðhald eftir að líkin fundust.
Dánardómstjórar eru enn að rann-
saka dánarorsökina.
Gámurinn var fluttur með ferju
frá hafnarbænum Zeebrugge í Belg-
íu og kom til hafnar í Purfleet á Eng-
landi seint á þriðjudagskvöld. Sak-
sóknari í Belgíu rannsakar nú
hvaðan gámurinn kom. „Ekki er enn
vitað hvenær fólkið var sett í gáminn
og hvort það var gert í Belgíu,“ hefur
fréttaveitan AFP eftir saksóknaran-
um.
Yfir 200.000 flóttamenn frá Kína
Þrátt fyrir mikinn hagvöxt í Kína
síðustu áratugi hafa tugir þúsunda
manna farið þaðan til annarra landa í
von um betra líf. Alls eru um 212.100
kínverskir flóttamenn skráðir í
heiminum og 94.400 Kínverjar hafa
sótt um hæli, samkvæmt skýrslu
Sameinuðu þjóðanna á síðasta ári.
58 kínverskir farandmenn fundust
látnir í hollenskri flutningabifreið í
hafnarbænum Dover á Englandi árið
2000. Samkvæmt skýrslu bresku
stjórnarinnar á síðasta ári er Kína í
fjórða sæti á lista yfir helstu upp-
runalönd fólks sem smyglað hefur
verið til Bretlands.
50 km
3
39 farandmenn létu lífið í gámi flutningabíls
Heimild: Fréttastofa AFP
Grays
Bílstjórinn
lagði af stað
án gáms
Bílstjórinn handtekinn og
hnepptur í gæsluvarðhald
Flutningabíllinn fór til Grays
þriðj. 22. okt.
Höfn
Purfleet
1
2
4
5
6
Gámurinn kom til hafnar og
flutningabíllinn sótti hann
Leið flutninga-
bifreiðarinnar
Leið gáms
flutningabílsins
Lögreglumenn kallaðir
út vegnamálsins
Höfn Holyhead
Dublin
Zeebrugge
Calais
39 lík fundust í gámi
flutningabifreiðarinnar,
31 karlmaður og 8 konur
39 lík fundust
Þriðjud. kl. 23.40
Þriðjud. kl. 22.30
Sunnud. 20 okt.
Eftir kl. 23.05
Flutningabifreiðin
kom til Bretlands
Gámurinn var fluttur
með ferju frá höfninni
FRAKKLAND
BRETLAND
ÍRLAND
HOLLAND
BELGÍA
NORÐUR-
ÍRLAND
LONDON
Ermarsund
Þrjú í haldi vegna
dauða farandmanna
Talið er að fólkið hafi komið frá Kína og Víetnam
Yfirlitssýning á verkum ítalska
snillingsins Leonardos da Vinci var
opnuð í Louvre-safninu í París í
fyrradag í tilefni af því að 500 ár
eru liðin frá dauða listmálarans,
myndhöggvarans, arkitektsins,
verkfræðingsins, vísindamannsins,
tónlistarmannsins og fræðimanns-
ins.
Um 240.000 manns hafa þegar
bókað miða á sýninguna, sem á að
standa til 24. febrúar. Undirbúning-
urinn tók um áratug og áhersla er
lögð á málverk og teikningar lista-
mannsins. Sýnd eru alls 162 verk,
meðal annars 24 teikningar sem
fengnar voru að láni frá Elísabetu
2. Bretadrottningu. Einnig voru
fengin verk frá British Museum,
Hermitage-safninu í Sankti Péturs-
borg og listasöfnum á Ítalíu.
Da Vinci skaraði fram úr á flest-
um sviðum og vegna fjölhæfni sinn-
ar var hann álitinn ímynd snillings-
ins á endurreisnartímanum. Þótt
tiltölulega fá málverk hafi varð-
veist eftir hann hafði hann mestar
mætur á málaralistinni, að sögn
Louis Franks, annars af tveimur
sýningarstjórum yfirlitssýningar-
innar. „Hann leit á málaralistina
sem vísindi, drottningu vísindanna,
sem þátt í öllum vísindum og jafn-
vel sem guðdómleg vísindi vegna
þess að hún getur endurskapað
heiminn,“ hefur fréttaveitan AFP
eftir Louis Frank.
Leonardo da Vinci fæddist í Flór-
ens á Ítalíu 15. apríl 1452. Eftir að
hafa starfað þar og í Mílanó, Fen-
eyjum og Rómaborg undir verndar-
væng hertoga, prinsa og konunga
dvaldi hann síðustu þrjú árin í
Frakklandi. Hann lést í franska
bænum Amboise 2. maí 1519, 67 ára
að aldri.
500 ár frá dauða Leonardos da Vinci
AFP
Hafði mestar mætur á
drottningu vísindanna
Meistaraverk Sýningargestur í Louvre-safninu í París skoðar eitt mál-
verka Leonardos da Vinci, Jesúbarnið, María mey og heilög Anna.
Viskíflaska var seld á uppboði í
London á andvirði tæpra 1,5 millj-
óna punda, jafnvirði 240 milljóna
króna, að sögn uppboðsfyrir-
tækisins Sotheby’s í gær. Það er
hæsta verð sem greitt hefur verið
fyrir viskíflösku á uppboði í heim-
inum.
Viskíið kom frá The Macallan-
víngerðinni í Skotlandi, er ein-
möltungur úr ámu númer 263, var
eimað fyrir rúmum 90 árum og
þroskað í eik í 60 ár, að sögn
fréttaveitunnar AFP. Flaskan er
ein af 40 viskíflöskum sem The
Macallan segir að hafi verið fram-
leiddar úr ámu númer 263 árið
1986. „Þetta eru þær flöskur af
skosku viskíi sem eru í mestum
metum hjá viskísöfnurum,“ sagði í
kynningu uppboðsfyrirtækisins.
Fyrra metið var 1,2 milljónir
punda, jafnvirði 192 milljóna
króna, sem greiddar voru fyrir
aðra viskíflösku úr sömu ámu á
uppboði í fyrra.
BRETLAND
Viskíflaska seld
á 240 milljónir