Morgunblaðið - 26.10.2019, Side 28

Morgunblaðið - 26.10.2019, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eðli málsinssam-kvæmt er framtíðin alltaf utan seilingar en þó getur ýmislegt verið til marks um það sem koma skal. Í vísindaskáldskap er orðið hversdagslegt að örflögum sé stungið í fólk þannig að hægt sé að fylgjast með því öllum stundum. Nokkuð er síðan farið var að gera þetta við lifandi verur. Hér eru örflögur settar í gæludýr þannig að hægt er að lesa upplýsingar um þau. Ekki hefur verið amast við því að þar með sé gengið á frið- helgi einkalífs þeirra. Í Svíþjóð tók ferðaskrif- stofan TUI upp á því fyrir skemmstu að bjóða starfs- fólki upp á að láta setja í sig örflögu í örlitlu glerhylki. Hylkinu er stungið undir húðina á milli þumalsins og vísifingurs. Nú eru 115 af 500 starfsmönnum TUI í Stokkhólmi með örflögu í handarbakinu. Þeir geta opnað dyrnar að skrifstofum TUI með því að bera hönd- ina að þar til gerðum skynj- ara, gangsett prentara, opn- að skápa og fengið aðgang að sjálfsölum. Það er engin hætta á að aðgangskortið gleymist heima. Starfsmenn TUI geta einnig notað flög- una til að skrá sig inn í stöðvar tveggja líkamsræktarfyrirtækja í Stokkhólmi. Í Svíþjóð eru nokkur þús- und manns með örflögur undir húðinni og geta opnað með þeim útidyrnar eða not- að þær til að framvísa raf- rænum lestarmiðum. Dæmið frá Svíþjóð er ef til vill ekki nothæft í hryll- ingssögur. Örflagan, sem TUI notar, geymir takmark- aðar upplýsingar (minna en kílóbæt) og flöguna er ekki hægt að nota til að fylgjast með ferðum manna. Hún sendir ekki frá sér merki, tengist ekki netinu og virkj- ast aðeins í nánd við skynj- ara. Því má segja að snjall- símar gefi mun meira færi til eftirlits en sú frumstæða örflaga, sem starfsmenn TUI í Stokkhólmi ganga með. Þá setur fólk sjálfvilj- ugt alls kyns upplýsingar um sjálft sig á netið. Mun- urinn er þó sá að hægt er að leggja farsímann frá sér (já, það er hægt) og upplýsing- arnar eru veittar af fúsum og frjálsum vilja þótt ekki hafi alltaf verið hugsað til enda hvað það geti haft í för með sér. Spurningin er hins vegar hvort þetta sé aðeins upphafið. Í framtíðinni verði fólk með vegabréf, ökuskírteini og greiðslukort í örflögu undir húðinni. Svo mætti hugsan- lega bæta við sjúkraskrám, sakaskrá, kosningaþátttöku, einkunnum úr skóla, upplýs- ingum um hversu duglegir menn eru að mæta í ræktina fyrir tryggingafyrirtæki og fleiru. Svo mikið er víst að ör- flögur til að setja í menn með staðsetningarbúnaði eru ekki langt undan. Kínversk stjórnvöld hafa ekki látið möguleika snjall- tækninnar til að stjórna fólki fram hjá sér fara. Þar er fólk dregið í dilka og flokkað eftir því hversu þóknanlegt það er stjórn- völdum. Vanskil eða gagn- rýni á stjórnvöld geta haft í för með sér að fólk verði annars eða þriðja flokks þjóðfélagsþegnar. Þar í landi gæti aðeins verið tíma- spursmál hvenær almenn- ingur verður merktur með örflögum. Víðast hvar er þó líklegt að þessari tækni verði tekið með fyrirvara og tortryggni. Á Evrópuþinginu varð um- ræða um að setja örflögur í launþega tilefni til þess að skrifuð var skýrsla í fyrra. Niðurstaða skýrsluhöfunda var sú að ekki mætti skylda starfsfólk til að vera með ör- flögu undir húðinni og ráða bæri fólki frá því að fallast sjálfviljugt á að ganga með örflögu af persónuvernd- arástæðum. Það var ekki síst vegna hættunnar á að hægt yrði að brjótast inn í flögurnar og hlera, afrita og misnota þær með ýmsum hætti. Snjalltækninni fylgja mikil þægindi. Hingað til hafa neytendur látið þægindin ganga fyrir persónuvernd- inni. Það sem nú þykir sjálf- sagt í þeim efnum var fyrir nokkrum áratugum efniviður í hrollvekjur. Ef eitthvað er hægt að álykta út frá því má búast við að eftir nokkur ár muni áhyggjur út af vanga- veltum um að stinga örflög- um undir húðina á fólki virka hlægilegar. Þar með er þó ekki sagt að það sé eitthvað fyndið við þessa framtíðarsýn. Er sá tími í vændum að atvinnurekendur setji örflögur í starfsmenn?} Merktir menn A lvarleg staða Landspítala hefur mikið verið í umræðunni að und- anförnu. Stjórnvöld hafa nú fyr- irskipað 500 milljóna króna nið- urskurð á næsta ári á sama tíma og spítalinn þarf að vinna niður halla síðustu ára. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sagði aðspurður um stöðuna að það væri eitt- hvað að í kerfi sem tæki sífellt við stórauknum framlögum en lenti viðstöðulaust í vanda. Sagði hann stjórnvöld hafa stóraukið framlög til Landspítala og er það á margan hátt rétt, en fjármálaráðherrann gleymir að botna setn- inguna. Fjárframlög hafa aukist en er um að ræða stóraukin framlög til óbreyttrar þjón- ustu? Nei hreint ekki. Stjórnvöld hafa undanfarin misseri ákveðið að draga jafnt og þétt úr heilbrigðisþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. Á Landspítala skulu allir landsmenn sækja þjónustu auk rúmlega tveggja milljóna ferðamanna sem koma hingað allt árið um kring. Það blas- ir við að fjármagn hefur ekki fylgt fólksfjölgun, hækkandi lífaldri landsmanna og umtalsverðri fjölgun ferðamanna sem fjölgar verkefnum Landspítala. Á síðasta ári sendu heilbrigðisstofnanir af öllu landinu Alþingi umsagnir í tengslum við fjárlagavinnu. Samanlagt sögðu stóru stofn- anirnar nauðsynlegt viðbótarfjármagn miðað við fjárlaga- frumvarp vera 800 milljónir væri vilji stjórnvalda að halda þjónustu óbreyttri. Þessa fjárhæð fengu þær ekki og þá hafa heilbrigðisstofnanirnar þann kost einan að hætta að veita umrædda þjónustu, slökkva og loka ákveðnum deildum. En Landspítalinn hefur ekki þá möguleika. Þau geta ekki bara slökkt ljósin og lokað þjóðarsjúkrahúsinu sem á að þjónusta alla landsmenn. Þar myndast bara lengri og lengri biðlistar, sex mánuðir verða að tólf og tuttugu og fjórum og ríkið og sjúklingar kosta óhemju fé í skaðaminnkun. Ofan á þetta ástand, skilningsleysi ríkisstjórnarinnar á stöðu heilbrigðisstofnana um allt land, nauðsyn þess að veita þjónustu í heimabyggð og um- talsverðan aukakostnað við að halda kerfinu í þessum heljargreipum bætist svo skortur á starfsfólki. Starfsfólki sem er hætt að láta bjóða sér vaktavinnu án álagsgreiðslna á lág- um launum. Hætt að láta bjóða sér framkomu stjórnvalda sem semja fyrst fyrir forstjórana og láta fólkið á gólfinu mæta afgangi. Hætt að láta bjóða sér það að hlusta á ráðamenn tala um að það sé eitthvað að kerfinu sem þau sjálf bjuggu til. Það er nefni- lega miklu dýrara að senda alla til höfuðborgarinnar til að bíða eftir nauðsynlegri læknisþjónustu. Það er miklu dýr- ara að halda fólki óvinnufæru inni á biðlistum misserum saman og það er miklu dýrara að senda fólk, sem beðið hefur misserum saman á biðlistum, til útlanda í nauðsyn- legar aðgerðir. Þetta kallast óskynsamleg hagstjórn og því miður virðast íslensk stjórnvöld vera sérfræðingar í því. Helga Vala Helgadóttir Pistill Já, það er eitthvað að slíku kerfi Höfundur er þingman Samfylkingarinnar Helgavala@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is Starfshópur um hvernig dragamá úr fordómafullri umræðuum geðheilbrigðismál í fjöl-miðlum hefur skilað niður- stöðu í formi viðmiða um hvernig fjalla má um þessi mál á fordóma- lausan hátt. Þegar leitað var að fólki í starfs- hópinn var haft samband við Geð- hjálp, þar sem Anna Gunnhildur Ólafsdóttir var framkvæmdastjóri. Hún hafði áður starfað sem blaða- maður á Morgunblaðinu og var hún beðin að stýra starfshópnum. Auk hennar sátu í hópnum Margrét Er- lendsdóttir, upplýsingafulltrúi heil- brigðisráðuneytisins, Jóna Pálsdóttir jafnréttisfulltrúi, Ragnhildur Að- alsteinsdóttir, varaformaður Blaða- mannafélags Íslands, Sigrún Ólafs- dóttir prófessor og Stefán Gauti frá Samráðsvettvangi geðúrræðanna á höfuðborgarsvæðinu. „Í vinnu við aðgerðaráætlun stjórnvalda í geðheilbrigðismálum kom fram að mikilvægt væri að fjöl- miðlar fjölluðu um geðheilbrigðismál og sjálfsvíg á vandaðan hátt til að ýta ekki undir fordóma,“ sagði Anna Gunnhildur. Hún sagði að einnig hefði komið fram að fjölmiðlafólk væri stundum óöruggt varðandi hugtak- anotkun þegar ætti að fjalla um þessi svið. Því hefði verið ákveðið að móta viðmiðin. Í þeim er t.d. lagt til að í um- fjöllun um fólk sem glímir við geðræn veikindi sé alla jafna notast við skil- greininguna „fólk með geðrænan vanda“ í skýrslunni. „Það verður að taka skýrt fram að þetta eru ekki reglur, enda á ekki að setja fjölmiðlum reglur um um- fjöllun. Þeir verða að hafa frelsi. Fjórða valds hlutverk þeirra er gríðarlega verðmætt. Þetta eru því viðmið.“ Geðheilbrigði og sjálfsvíg Ákveðið var að skipta verkefninu í tvennt, annars vegar viðmið varð- andi almenna umfjöllun um geðheil- brigðismál og hins vegar umfjöllun um sjálfsvíg. Einnig var ákveðið að miða við- miðin við fréttaflutning en ekki dæg- ur- og afþreyingarefni. Horft var til hefðbundinna ljósvaka- og prentmiðla en ekki samfélagsmiðla. Anna sagði að viðmiðin ættu þó að mörgu leyti einnig við um samfélagsmiðla þar sem almenningur gegndi hlutverki rit- stjóra. Leitað var fanga bæði innan lands og utan. Ekki fannst mikið af ís- lensku efni um þetta málefni og ekki var heldur um auðugan garð að gresja í útlöndum. „Við fundum ágætar leið- beiningar frá Alþjóðaheilbrigðis- málastofnuninni (WHO) varðandi um- fjöllun um sjálfsvíg og studdumst mikið við þær í þeim kafla,“ sagði Anna. „Við töluðum líka við notendur geðheilbrigðisþjónustunnar, aðstand- endur, heilbrigðisstarfsfólk og fjöl- miðlafólk og spurðum hvað þeim þætti mikilvægt að kæmi þarna fram.“ Anna sagði það jákvætt að auk- inn áhugi hefði verið á geðheilbrigðis- málum undanfarin ár. Góð og fagleg umfjöllun hefði verið í ýmsum fjöl- miðlum um þau mál t.d. á mbl.is og Stöð 2. Einnig væru til dæmi um um- fjöllun sem stuðlaði að fordómum gagnvart fólki með geðrænan vanda. Á það er m.a. bent í við- miðunum að margir takist ein- hvern tíma á við geðrænan vanda. Alþjóða heilbrigð- ismálastofnunin (WHO) telur að fjórðungur íbúa á Vesturlöndum fái ein- hvern tíma á ævinni einkenni sem megi jafna við geð- röskun. Viðmið við umfjöllun um geðheilbrigði Viðmið í umfjöllun um geð- heilbrigðismál í fjölmiðlum verða kynnt á opnum morg- unverðarfundi „Aðgát skal höfð“ á Grand hóteli, Hvammi, fimmtudaginn 31. október klukkan 9 til 10.30. Heilbrigðisráðuneytið boðar til fundarins. Þar munu Anna G. Ólafs- dóttir, formaður nefndar heil- brigðisráðherra, og Ragnhild- ur Aðalsteinsdóttir, varaformaður BÍ, kynna við- miðin. Kristinn Rúnar Krist- insson baráttumaður mun fjalla um mörk fjölmiðla. Lóa Pind Aldísardóttir fjölmiðlakona talar um nálgun og viðmið í þátta- gerð sinni. Aldís Baldvins- dóttir segir frá reynslu sinni. Síðan verða um- ræður. Fundarstjóri verður Ingibjörg Sveinsdóttir. Morgunverð- arfundur VIÐMIÐIN KYNNT Anna Gunnhildur Ólafsdóttir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjölmiðlar Viðmið til að draga úr fordómafullri umræðu í fjölmiðlum um geðheilbrigðismál má lesa í heild á vef heilbrigðisráðuneytisins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.