Morgunblaðið - 26.10.2019, Page 34

Morgunblaðið - 26.10.2019, Page 34
34 UMRÆÐAN Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019 AKURINN kristið samfélag | Samkoma kl. 14. Biblíufræðsla, söngur og bæn. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og pré- dikar. Félagar úr kór Árbæjarkirkju leiða sönginn. Organisti er Krístín Jóhannesdóttir. Barnastarf á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar. Kaffi og spjall eftir stundina. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Barn verður skírt. Séra Sigurður Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. Séra Dagur Fannar Magnússon annast samverustund sunnudagaskólans. Félagar úr Kór Áskirkju leiða sönginn. Orgelleikari er Bjartur Logi Guðnason. Kaffisopi í Dal eftir messu. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stund- inni hafa Sigrún Ósk, Þórarinn og Guð- mundur Jens. BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Sr. Magnús Björn Björnsson þjónar ásamt Steinunni Þorbergsdóttur og Steinunni Leifsdóttur.Tómasarmessa kl. 20. Sr. Kristján Björnsson vígslubiskup prédikar. Gospelkór Smárakirkju leiðir söng. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11. Daníel Ágúst, Sóley Adda, Jónas Þórir og Pálmi. Guðsþjónusta kl. 14. Liður í bleikum október í Bústaðakirkju. Gospelkórinn undir stjórn Þórdísar Sævars- dóttur ásamt kantor Jónasi Þóri. Messuþjón- ar og sr. Eva Björk Valdimarsdóttir þjóna. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku. Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau. kl. 18 er vigilmessa. DÓMKIRKJAN | Messa og barnastarf klukkan 11. Prestur er Sveinn Valgeirsson, Kári Þormar og Dómkórinn. EGILSSTAÐAKIRKJA | Sunnudagaskólinn kl. 10.30. Messa kl. 14. Sr. Þorgeir Arason. Organisti er Torvald Gjerde. Kór Egilsstaða- kirkju. Kaffisopi eftir messu. Jól í skókassa: Móttaka í Safnaðarheimilinu laugardag kl. 10-14. Sjá: skokassar.net FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og prédikar. Guðrún Mar- grét Halldórsdóttir, nemandi frá Söngskól- anum í Reykjavík, syngur einsöng. Kór kirkj- unnar syngur. Organisti er Matthías Páll Harðarson. Sunnudagaskóli í umsjá Mörtu og Ásgeirs. Meðhjálpari er Kristín Ingólfs- dóttir. Kaffisopi eftir stundina. GLERÁRKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson, Margrét Árnadóttir kórstjóri og Guðjón Jónsson tónlistarmaður hafa umsjón með stundinni. GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédikar og þjónar. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson og Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Sunnu- dagaskóli á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hafa Þóra Björg Sigurðardóttir og Hólmfríður Frostadóttir. Undirleikari er Stefán Birki- sson. GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Selmessa kl. 13. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar. Organisti er Hilmar Örn Agnarsson og Vox Populi leiðir söng. GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er María Guðrúnardóttir Ágústsdóttir. Um tónlistina sjá Antonía Hevesi og Kirkjukór Grensáskirkju. Messuhópur þjónar ásamt fermingarfjölskyldum. Heitt á könnunni á undan og eftir messu. Miðvikudaginn 30. október er síðdegissamvera kl. 17.30-19. Stofukórinn syngur, Helga Vilborg Sigurjóns- dóttir segir frá störfum sínum fyrir íslenska kristniboðið. Létt máltíð, verð kr. 1.500, skráning í síma 528 4410. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðs- þjónusta og barnastarf kl. 11. Prestur er Karl V. Matthíasson, organisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Sunnudagaskólinn í umsjá Péturs Ragnhildarsonar, blöðrudagur. Meðhjálpari er Guðný Aradóttir og kirkjuvörður er Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffi og djús í boði eftir messuna. HALLGRÍMSKIRKJA | Hallgrímsmessa og barnastarf kl. 11 við 345. ártíð Hallgríms Péturssonar. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir pré- dikar og þjónar fyrir altari ásamt dr. Sigurði Árna Þórðarsyni. Messuþjónar aðstoða. Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Harðar Áskelssonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs Bogi Benediktsson og Rósa Árnadóttir. Ensk messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs Bjarna- sonar. HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11. Karlakór Reykjavíkur syngur, undir stjórn Friðriks Kristinssonar, organisti er Una Haralds- dóttir. Prestur er Eiríkur Jóhannsson. Hjúkrunarheimilið Skjól | Guðsþjónusta á sal á 2. hæð á hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjón- ar fyrir altari. Bjartur Logi Guðnason leikur á orgelið. Almennur söngur. Vinir og vanda- menn heimilisfólks velkomnir með sínu fólki og aðstoð þeirra vel þegin við flutning fólks milli hæða. HRAFNISTA HAFNARFIRÐI | Guðsþjón- usta kl. 11 í Menningarsalnum. Hrafn- istukórinn leiðir safnaðarsöng. Organisti og kórstjóri er Böðvar Magnússon. Ritning- arlestra les Helga Árnadóttir. Meðhjálpari Ingibjörg Hinriksdóttir. Sr. Svanhildur Blön- dal prédikar og þjónar fyrir altari. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam- koma kl. 11. Service. Translation into Engl- ish. Samkoma á spænsku kl. 13. Reunió- nes en español. Samkoma á ensku kl. 14. English speaking service. Samkoma Fíló+ kl. 20. ÍSLENSKA KIRKJAN í Kaupmannahöfn | Sameiginleg hátíðarguðsþjónusta kirkna á Norðurlöndum í Gustafskirkjunni, sænsku kirkjunni í Kaupmannahöfn, kl. 16. Þema guðsþjónustunnar er Hvar finn ég mig heima? Ágúst Einarsson predikar. Kaffi, kleinur, pönnukökur og samtal að guðsþjón- ustu lokinni. Færeyskur söngur og hring- dans. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Almenn sam- koma kl. 13 með lofgjörð, fyrirbænum og barnastarfi. Ragnar Schram prédikar. Kaffi að samverustund lokinni. KEFLAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 11 og sunnudagaskóli. Kór Keflavíkurkirkju og Arn- ór Vilbergsson organisti leiða söng og tón- list. Séra Fritz Már Jörgensson þjónar fyrir altari. Eftir stundina er súpa í kirkjulundi. Miðvikudaginn 30. október kl. 12 er kyrrð- arstund í kapellu vonarinnar. Boðið upp á súpu í kirkjulundi eftir athöfnina. KOLAPORTIÐ | Kolaportsmessa kl. 14 í Kaffi Port. Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir leiðir stundina. Sr. Bjarni Karlsson prédikar. Anna Sigríður Helgadóttir og Aðalheiður Þor- steinsdóttir sjá um tónlistarflutning. KÓPAVOGSKIRKJA | Tónlistarmessa kl. 11. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnudagaskóli á sama tíma í safn- aðarheimilinu Borgum. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Aldís Rut Gísladóttir þjónar. Fílharmónían syngur ásamt söng- skólanemanum Ellerti Blæ Bjarneyjar- Guð- jónssyni. Organisti er Magnús Ragnarsson. Sara Gríms tekur á móti börnunum í sunnu- dagaskólann. Léttur hádegisverður eftir messu. LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Kór Laugarneskirkju og Elísabet Þórðardóttir org- anisti flytja tónlist. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. Sunnudaga- skóli á meðan. Kaffi og samvera á eftir. Betri stofan, Hátúni 12, kl. 13. Helgistund með sr. Davíð Þór og Elísabetu organista. 29.10.: Kyrrðarkvöld kl. 20. Kristin íhugun. Sr. Hjalti Jón Sverrisson leiðir stundina. Húsið opnað kl. 19.40. 30.10.: Foreldrasamvera kl. 10-12. 31.10.: Kyrrðarstund í Áskirkju kl. 12. Há- degisverður og opið hús á eftir. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnudaga- skóli kl. 11. 6-9 ára starf á sama tíma. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðni Már Harðarson þjónar. MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Lágafellssóknar syngur undir stjórn Þorvarldar Arnar Davíðssonar. Sr. Arndís G. Bernhardsdóttir Linn leiðir helgihaldið. Sunnudagaskóli í Lágafellskirkju kl. 13. Um- sjón Þorvaldur og Arndís. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Há- skólakórnum syngja. Organisti er Gunn- steinn Ólafsson. Prestur er Skúli S. Ólafs- son. Umsjón Árni Árnason, Stefanía Bergsdóttir og Ari Agnarsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eftir messu. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Djassmessa kl. 14. Séra Pétur Þorsteinsson þjónar fyrir alt- ari. Kristján Fannar sér um tónlist, Petra Jónsdóttir er messugutti, Ólafur Kristjáns tekur á móti kirkjugestum. Maul eftir messu. Barnastarf í safnaðarheimilinu. SALT kristið samfélag | Sameiginlegar samkomur Salts og SÍK alla sunnudaga kl. 17 í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58- 60. Yfirskrift: Ísland í augum Guðs. Ræðu- maður: sr. Kjartan Jónsson. Barnastarf. Túlkað á ensku. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Óli og Jóhann leiða samveruna. Guðsþjón- usta kl. 14. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar. Félagar úr Kór Seljakirkju leiða söng. Organisti: Tómas Guðni Eggertsson. Guðsþjónusta í Skógarbæ kl. 15.30. Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar og Tóm- as Guðni leikur á flygilinn. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg- unn kl. 10. Viðhorf til málræktar og mál- stefnu fyrr og nú. Ari Páll Kristinsson rann- sóknaprófessor talar. Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjón- ar. Organisti er Kristján Hrannar Pálsson. Sveinn Bjarki og leiðtogar sjá um sunnu- dagaskólann. Félagar úr Kammerkór Sel- tjarnarneskirkju syngja. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn í safnaðarheimilinu. Stund fyrir eldri bæjarbúa þriðjudaginn 29. október kl. 14. Tindatríóið syngur lög úr ýmsum áttum. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Axel Á. Njarðvík þjónar fyrir altari. Org- anisti er Jón Bjarnason. TORFASTAÐAKIRKJA | Messa kl. 14. Axel Á. Njarðvík héraðsprestur þjónar fyrir altari. Organisti er Jón Bjarnason. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Guðs- þjónusta kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur organista. Sr. Bragi J. Ingibergsson þjónar með aðstoð messuþjóna kirkjunnar. Kaffi- sopi í safnaðarheimili á eftir. ORÐ DAGSINS: Jesús læknar hinn lama. (Matt. 9) Undirritaður hefur verið viðloðandi Reykjalund síðastliðin fimm ár, fyrst inniliggj- andi í sex vikur og síð- an sem notandi þeirrar frábæru aðstöðu sem sjúklingum býðst til endurhæfingar á sjálfs sín vegum, í sumum til- fellum undir leiðbein- ingum fagfólks. Er 73 ára gamall. Hef unnið víða, á Íslandi til sjós og lands, í Norður- Ameríku og á Norðurlöndum. Hvergi hef ég verið þar sem svo góðan starfs- anda var að finna eins og á Reykja- lundi fyrir þessa skyndilegu uppsögn forstjórans, Birgis Gunnarssonar, og framkvæmdastjóra lækninga, Magn- úsar Ólasonar. Uppsagnirnar komu að mér virðist öllum starfsmönnum á óvart sem og flestum sem að einhverju leyti tengjast starfsemi Reykjalundar, hvort sem það eru sjúklingar eða ut- anaðkomandi aðilar sem nýta sér hina frábæru aðstöðu til endurhæfingar. Það sem vakti manni óhug og óbragð í munni var hvernig að upp- sögnunum var staðið. Engar haldgóð- ar skýringar voru gefnar, heldur málið afgreitt með hroka og tilvísun í trúnað. Hvaða trúnað? Af hverju trúnað? Á ekki stjórn SÍBS að þjónusta félags- menn eða er stjórnin orðin svo veru- leikafirrt að hún geti gert það sem henni sýnist? Að hún sé orðin eitthvert yfirvald, hafin yfir allt og alla hvað varðar ákvarðanatökur í nafni SÍBS? Nafn SÍBS hefur í huga flestra ver- ið tengt þeim gildum að láta gott af sér leiða, en þessi síðasti gjörningur stjórnar SÍBS hefur ekkert með það að gera. Ég er meðlimur í samtökum lungnasjúklinga sem eiga fulltrúa í stjórn SÍBS, er einnig í Hollvina- samtökum Reykjalundar. Ég á rétt á, ásamt öllum þeim sem málið varðar, að vita hvað olli þessum uppsögnum, ég vil fá haldbærar skýr- ingar, ekki hrokafullt svar með til- vísun í trúnað. Nú er árið 2019, ekki ár leyndarhyggju og einræðis, heldur á allt að vera uppi á borðum þegar svona alvarlegir hlutir gerast, núna er ekki 1950/60 þegar svona aðferða- fræði stjórnenda við uppsagninir tíðkaðist oft, því miður. Það er óumdeilt að vellíðan sjúklinga og bati byggist á góðri vinnuaðstöðu starfs- fólks, vellíðan, starfs- öryggi og ekki síst trausti á yfirmönnum. Nú þegar þetta er skrifað hafa þrír læknar sagt upp störfum og hver veit hvað annað starfsfólk er að hugsa. Ástæðan er eins og allir vita að stjórn SÍBS, með formann stjórnar í broddi fylkingar, hefur komið fram við áðurnefnda, Birgi og Magnús, með svo ómanneskjulegum hætti að það er fáheyrt. Hvað næst? Starfs- maður sem ekki er sammála ein- hverju sem kemur frá SÍBS, verður hann líka rekinn? Hvað með stjórn SÍBS? Hefur hún einhverja þekkingu á endurhæfingu? Á hún yfir höfuð að vera að skipta sér beint af starfseminni á Reykjalundi? Ég held ekki, samanber ráðningu nýs framkvæmdastjóra lækninga. Hann er góður maður, flinkur geðlæknir en hann er ekki sérfræðingur í endur- hæfingarlækningum, þ.e.a.s. líkam- legum. Þegar þú færð tannpínu ferðu ekki til lögfræðings heldur tann- læknis. Ég legg til að stjórn SÍBS aftur- kalli uppsagnirnar, láti heilbrigðis- starfsfólkið á Reykjalundi vinna í friði það sem það best kann. Stjórn SÍBS geri það sem hún er kosin til, þ.e.a.s. að hafa hag umbjóðenda sinna í fyrirrúmi. Óskiljanlegar upp- sagnir á Reykjalundi Eftir Kjartan Mogensen Kjartan Mogensen » Á ekki stjórn SÍBS að þjónusta félags- menn eða er stjórnin orðin svo veruleikafirrt að hún geti gert það sem henni sýnist? Höfundur er landslagsarkitekt. Holtsgata 18, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 4. herbergja parhús á tveimur hæðum, miðsvæðis í Njarðvík Stutt í skóla, leikskóla og þjónustu. Stærð 122,8 m2 Júlíus M. Steinþórsson s. 899 0555 Löggiltur fasteignasali Verð kr. 39.800.000.- Jóhannes Ellertsson s. 864 9677 Löggiltur fasteignasali Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Atvinna

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.