Morgunblaðið - 26.10.2019, Qupperneq 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 2019
✝ Benedikt EinarGuðbjartsson
fæddist á Ísafirði
16. júní 1941. Hann
lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans
í Fossvogi 12. októ-
ber 2019.
Foreldrar hans
voru Sigríður Ólöf
Jónsdóttir, f. 17.2.
1911, d. 19.10.
1998, og Guð-
bjartur Jónsson, f. 18.8. 1911, d.
22.6. 1991. Bræður Benedikts
eru Sveinn Árni, f. 15.9. 1939, og
Jón Kristinn, f. 26.12. 1946.
Benedikt kvæntist 21. sept-
ember 1963 Eddu Hermanns-
fræðaprófi. Var síðan einn vetur
í Héraðsskólanum á Núpi áður
en hann fór í Verslunarskóla Ís-
lands, þaðan sem hann útskrif-
aðist sem stúdent 1964. Bene-
dikt lauk embættismannaprófi í
lögfræði frá Háskóla Íslands
1970. Hann fór í framhaldsnám í
háskólanum í Ósló og nam þar
fjármunarétt. Veturinn 1982-
1983 var Benedikt í námi við Sa-
int Mary-háskólann í London.
Eftir námið í Ósló vann hann
fjögur ár á lögmannsskrifstofu
Árna Grétars Finnssonar og
kenndi jafnframt verslunarrétt í
Verslunarskóla Íslands. Árið
1975 hóf hann störf í lög-
fræðideild Landsbanka Íslands
og vann þar í 28 ár. Síðustu
starfsárin vann hann hjá
Reykjavíkurborg.
Benedikt verður jarðsunginn
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
26. október 2019, og hefst at-
höfnin kl. 13.
dóttur. Dætur
Benedikts og Eddu
eru Helga, f. 12.4.
1968, og Sigríður, f.
26.4. 1972. Helga er
gift Margeiri
Sveinssyni, f. 7.5.
1966, og eiga þau
tvo syni, Sævar, f.
10.4. 1996, og Sig-
urð Rúnar, f. 1.4.
2001. Sigríður er
gift Arnari Geirs-
syni, f. 9.10. 1971, og eiga þau
þrjá syni, Benedikt Jens, f. 19.4.
2000, Kristján Geir, f. 7.4. 2002,
og Arnar Helga, f. 27.1. 2005.
Benedikt ólst upp á Ísafirði
og lauk þaðan barna- og gagn-
Mig langar að kveðja hann
Benna frænda með nokkrum orð-
um og þakka honum samfylgdina
í gegnum lífið. Þegar við, barna-
börn þeirra Siggu og Bjartar, sem
ólust upp fyrir vestan, komum
suður til að fara í skóla eða vinna
og hefja búskap áttum við frænd-
fólk í Hafnarfirði. Það voru þau
Benni og Edda og dætur þeirra
Helga og Sigga. Það var gott að
vita af þeim og geta leitað til
þeirra ef eitthvað var. Mjög fljótt
fóru þau að standa fyrir jólaboði
að hætti ömmu Siggu þar sem
boðið var upp á hangikjötsveislu
með meiru. Í fyrstu vorum við
ekki mjög mörg en eftir því sem
árin liðu bættust við makar, börn
og loks barnabörn. Jólaboðið þró-
aðist með tímanum og næsta kyn-
slóð tók við. Enn þann dag í dag
hittumst við um jól og núna er
jólaboðið orðið mjög fjölmennt.
Það var mjög dýrmætt af hafa
þessi fjölskyldutengsl í upphafi en
ekki síður núna og er ég mjög
þakklát Benna frænda og fjöl-
skyldu að hafa komið þessum
jólasið af stað. Þetta varð til þess
að næsta kynslóð, börnin okkar,
hittast minnst einu sinni á ári og
þau þekkja því og vita hvert af
öðru.
Benni frændi hafði einstaklega
fallega rithönd, alveg eins og Guð-
bjartur afi. Það var alltaf augljóst
þegar jólakortið frá honum kom í
hús. Núna seinni árin sendi hann
oft með jólakortinu, gamlar ljós-
myndir. Stundum voru það mynd-
ir sem hann hafði tekið af mínum
börnum þegar þau voru lítil í jóla-
boðum hjá honum eða jafnvel af
okkar frændsystkinum litlum.
Þetta voru skemmtilegar send-
ingar sem glöddu mig alltaf mjög
mikið og sýndu svo vel hvað
Benna var umhugað um fjölskyld-
una alla. Alltaf var gaman að hitta
Benna frænda og fá hlýtt faðmlag
og breitt bros og finna áhuga hans
á okkar lífi og starfi. Þess mun ég
sakna í jólaboðum framtíðarinn-
ar. Við fjölskyldan sendum Eddu,
Helgu, Siggu og þeirra fjölskyld-
um innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Benna
frænda.
Jónína Salóme.
Ég væri að segja ósatt ef ég
segði að við Benni hefðum verið
nánir. En Benni var frændi minn
og mér þótti vænt um hann. Við
áttum líka meira sameiginlegt en
virðist kannski í fyrstu. Báðir er-
um við aldir upp við Ísafjarðar-
djúp, báðir fluttum við úr for-
eldrahúsum eftir að
grunnskólanámi lauk til frekara
náms í öðrum landshluta, báðir
gerðum við lögfræðina að ævi-
starfi okkar og báðir sóttum við
viðbótarnám í lögfræði til Lund-
úna. Þá settumst við báðir að á
höfuðborgarsvæðinu og foreldrar
okkar bjuggu og hafa alla tíð búið
fyrir vestan. Þess utan sá ég ým-
islegt í fari Benni sem ég kannast
við hjá mér sjálfum.
Fregnin um skyndileg og al-
varleg veikindi Benna og andlát
skömmu síðar var óvænt. Hann
var ekki gamall til þess að gera,
leit vel út og virtist vel á sig kom-
inn. Þess vegna er erfiðara að
sætta sig við þetta. En það deilir
enginn við manninn með ljáinn.
Hann kemur þegar hann kemur
og enginn fær rönd við reist. Nýr
veruleiki blasir við.
Benni birtist sem hlýr og glað-
ur maður. Hann gaf mikið af sér
þegar fjölskyldan kom saman og
lagði sitt af mörkum til þess að
hún hittist og að frændsemin yrði
ræktuð, t.d. með því að halda ár-
legt jólaboð fyrir stórfjölskylduna
á höfuðborgarsvæðinu, fyrst á
Víðivanginum og síðar í Bogahlíð-
inni. Var yfirleitt rætt um hangi-
kjötsboð með vísan til þess að for-
eldrar hans buðu ávallt hinum
bræðrunum tveimur sem bjuggu
fyrir vestan, Svenna og Nonna og
fjölskyldum þeirra, í hangikjöt á
jóladag. Benni og að sjálfsögðu
líka Edda, eiga þakkir skildar fyr-
ir þetta. Fyrir vikið þekkist okkar
fólk í þriðja ættlið ágætlega eða
a.m.k. kannast vel hvort við ann-
að, sem ekki er sjálfgefið í nú-
tímasamfélagi.
Það kom fyrir að ég gisti hjá
Benna og Eddu í íþróttaferðum
sem ég fór reglulega í til Reykja-
víkur þegar ég var að alast upp í
Bolungarvík. Eitt skiptið stendur
upp úr. Þegar hreyfill Fokker-
vélarinnar sprakk yfir Ísafirði á
leiðinni suður þannig að nauð-
lenda þurfti í Keflavík. Árið var
1982 og ég á tólfta ári. Þá var gott
að koma til þeirra, en þau tóku
alltaf vel á móti mér og voru mér
góð.
Ég bind ákveðnar vonir við að
vitundin haldist með einhverjum
hætti þegar farið er yfir móðuna
miklu. Því vil ég gera ráð fyrir að
við hittumst öll þegar þar að kem-
ur og Benni hafi bara farið á und-
an okkur.
Elsku Edda, Helga, Sigga og
fjölskyldur. Ég geri mér ekki
grein fyrir því hversu mikil sorgin
er eða sársaukinn, en ég veit að
hann er mikill og stundum jafnvel
nístandi. Hugur okkar Drífu er
hjá ykkur og þið eigið alla okkar
samúð.
Símon Þór Jónsson.
Það er ótrúlegt að Benni, okkar
góði vinur, sé horfinn á braut.
Andlát hans bar skjótt að og erum
við harmi slegin. Enn erum við
minnt á hve lífið er hverfult og
mikilvægt að njóta hverrar stund-
ar. Edda og Benni kunnu það og
voru einstaklega samhent í þeim
efnum. Þau fóru saman í daglega
göngutúra um borgina og lögðu
rækt við heilsuna á margvíslegan
annan hátt. Þau lögðu einnig rækt
við andann og sóttu saman tón-
leika og aðra listviðburði. Þau
nutu þess að ferðast með vinum,
bæði innanlands og utan, oftast í
gönguferðum en einnig í þeim til-
gangi að fræðast um framandi
slóðir og njóta mannlífs og menn-
ingar hjá öðrum þjóðum. Hér
heima dvöldu þau títt í húsi sínu í
Stykkishólmi og tóku þátt í lífi
íbúanna þar. Edda og Benni
kunnu svo sannarlega þá list að
njóta lífsins.
Við, ásamt Eddu og Benna,
höfum verið vinahópur sem hist
hefur reglulega og átt glaðar og
skemmtilegar stundir saman sem
við erum þakklát fyrir. Er margs
að minnast. Benni var einstakt
ljúfmenni, gamansamur og til í
allt. Hann tók því vel í þá hug-
mynd eitt árið að hann og karl-
mennirnir í vinahópnum okkar
dönsuðu ballett á árshátíð á
vinnustað eiginkvennanna. Var
æft stíft undir stjórn ballettdans-
ara og dönsuðu þeir kafla úr
Svanavatninu í tjullpilsum og
hvítum sokkabuxum sem vakti
mikla kátínu. Hafa þeir síðan ver-
ið kallaðir Svanirnir í okkar hópi.
Við kynntumst brennandi
veiðiáhuga Benna þegar við fór-
um saman í veiðiferðir um tíma og
síðustu tvö árin höfum við farið
saman í golfferð til Spánar. Alltaf
var Benni hrókur alls fagnaðar.
Hann kunni líka að krydda sam-
verustundirnar með góðum sög-
um, gjarnan frá æskuslóðunum
fyrir vestan þegar hann sem ung-
ur maður var á sjó.
Það er ósegjanlega sárt til þess
að hugsa að Edda sjái nú á bak
Benna sínum og er erfitt að hugsa
sér annað án hins. Við erum þakk-
lát fyrir að hafa átt Benna að vini
og minnumst hans með hlýju og
miklum söknuði. Vinahópurinn
okkar verður aldrei samur án
hans.
Eddu, dætrum þeirra, Helgu
og Sigríði, og fjölskyldum þeirra,
vottum við okkar innilegustu
samúð.
Blessuð sé minning Benedikts
Guðbjartssonar.
Sigríður Vilhjálmsdóttir og
Þórarinn Þórarinsson,
Jónína Margrét Guðnadóttir
og Sveinn Snæland,
Sigrún Helgadóttir
og Ari Arnalds.
Nú þegar við kveðjum okkar
góða vin Benedikt eða Benna eins
og hann var kallaður kemur
margt upp í hugann.
Við kynntumst þeim hjónum
Eddu og Benna þegar við vorum
við nám í Osló á árunum 1970 og
1971. Þar tókst með okkur vinátta
sem staðið hefur óslitið síðan og
aldrei hefur fallið skuggi á. Fyrir
það erum við þakklát.
Í Osló nutum við m.a. jóladags-
ins saman með börnum okkar.
Upp frá því var það hefð sem stað-
ið hefur í tæpa hálfa öld að hittast
og borða saman um jólin. Það var
þó ekki aðeins á jólum sem við
nutum samveru þeirra hjóna
heldur við fjölmörg önnur tæki-
færi. Benni og Guðmundur voru
t.d. báðir um árabil í leikfimihópi
hjá Gauta Grétars og við spiluð-
um golf saman bæði hér og er-
lendis. Þá nutum við gestrisni
þeirra hjóna m.a. í Stykkishólmi
og þau heimsóttu okkur oftar en
einu sinni til Edinborgar.
Benni var traustur vinur. Hann
hafði einstaklega létta lund og
góða nærveru, brosmildur og
skemmtilegur. Þau Edda voru
sérlega samrýnd hjón. Við erum
fátækari án hans en mestur er þó
missir fjölskyldunnar.
Við vottum Eddu, dætrunum
Helgu og Sigríði og fjölskyldum
þeirra samúð okkar.
Þorbjörg og Guðmundur.
Horfinn er óvænt og skyndi-
lega af sviðinu góður vinur minn
til margra ára, Benedikt Guð-
bjartsson. Hann fæddist árið
1941, ólst upp vestur á Ísafirði,
fluttist suður til náms í Verslunar-
skóla Íslands og lauk síðan lög-
fræðiprófi frá Háskóla Íslands ár-
ið 1970. Kynni mín við Benedikt
og Eddu Hermannsdóttur, konu
hans, hófust þegar þau hjón flutt-
ust til Hafnarfjarðar.
Fljótlega eftir að Benedikt
kom hingað til Hafnarfjarðar hóf
hann störf sem lögmaður á lög-
fræðiskrifstofu Árna Grétars
Finnssonar, en á þeim árum var
Árni Grétar forustumaður í bæj-
armálum hér í firðinum. Ekki er
að efa að á þeim vinnustað hafi
málefni Hafnarfjarðar verið til
umræðu bæði á vettvangi bæjar-
og félagsmála en fljótlega eftir
komu Benedikts hingað var hann
kallaður til ýmissa starfa á vett-
vangi félagsmála.
Benedikt gleymdi ekki upp-
runa sínum og þeim lífsgildum
sem hann ólst upp við og oft var
vitnað til fólksins fyrir vestan.
Benedikt var mikill fjölskyldu-
maður, vinnusamur og heiðarleg-
ur í samskiptum sínum við annað
fólk. Eftir að þau hjónin luku
starfsdegi sínum voru hugðarefn-
in fjölmörg. Þar var fjölskyldan í
fyrirrúmi, umhyggjan fyrir
barnabörnunum, erlendar náms-
og skemmtiferðir og ekki síst við-
vera í húsi þeirra í Stykkishólmi.
Við sem áttum því láni að fagna
að hitta Benedikt að jafnaði viku-
lega að morgni föstudags hér í
firðinum hin síðari ár til að ræða
málefni líðandi stundar söknum
nú góðs félaga. Það var einmitt á
föstudagsmorgni fyrir tveimur
vikum að vinur okkar þurfti að
sinna öðru verkefni en að mæta á
hinn vikulega fund okkar. En þá
gerðist hið óvænta, að hann varð
fyrir slysi sem leiddi til þess að
hann lést degi síðar. Þótt Bene-
dikt ætti aðeins tvö ár í að fylla
áttunda áratuginn var hann vel á
sig kominn líkamlega og ekki
skorti á áhugamálin. Hópurinn
kveður Benedikt og þakkar sam-
fylgdina.
Nú þegar Benedikt Guðbjarts-
son er kvaddur og hans lífsgöngu
er lokið verður ekki annað sagt en
að hún hafi verið björt og göfug.
Hann var traustur maður og vel-
viljaður.
Ég votta Eddu, dætrum og
fjölskyldum þeirra innilega sam-
úð mína og kveð Benedikt og
þakka samfylgdina.
Sigurður Þórðarson.
Benedikt vinur okkar er allur.
Við Þórhildur hittum þau hjónin,
Benna og Eddu, kát og glöð á tón-
leikum í Hörpu. Ákveðið var að
hittast fljótt, það hafði svo margt
á dagana drifið síðan við hittumst
síðast. Margt sem þurfti að segja
frá. En daginn eftir var varstu all-
ur. Það kveikir ugg í brjósti, en
engum tjáir að etja við dauðann.
Því þurfti að hraða svo för?
Minningar sækja á og þær eru
ófáar og ylja. Margt rifjast upp
sem rökkur áranna hafði hulið og
allt var það á eina lund. Góðar og
skemmtilegar minningar. Alltaf
var jafn gaman að hitta þessi
gestrisnu og glaðværu hjón. Svo
samhent voru Edda og Benni þótt
Benedikt Einar
Guðbjartsson
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Virðing,
reynsla
& þjónusta
Allan
sólarhringinn
571 8222
Svafar:
82o 3939
Hermann:
82o 3938
Ingibjörg:
82o 3937
www.kvedja.is
svafar & hermann
Elskuleg frænka okkar,
SVAVA SVEINSDÓTTIR,
Hamrahlíð 25, Reykjavík,
lést sátt við guð og menn fimmtudaginn
3. október á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks Grundar.
Systkinabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
RAGNHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Sæbóli, Ingjaldssandi,
Kópavogsbraut 1a,
Kópavogi,
sem lést mánudaginn 7. október, verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 1. nóvember klukkan 13.
Guðmundur Pétursson Sigrún Ingibjörg Arnardóttir
Anna Bára Pétursdóttir Freysteinn Vigfússon
Sigurður Pétursson Guðrún Ólafsdóttir
Ingibjörg Pétursdóttir Valtýr Reginsson
ömmu- og langömmubörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVERRIR GUÐVARÐSSON,
Hlaðhömrum 2,
áður Fálkahöfða 4,
lést á Landakotsspítala þriðjudaginn
22. október. Útför hans fer fram frá
Áskirkju föstudaginn 1. nóvember klukkan 14.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landakotsspítala L2 fyrir
frábæra umönnun.
Sigríður Bjarnason
Hjálmar Sverrisson
Oddrún Sverrisdóttir Gísli Guðmundsson
Sverrir Sverrisson Kristrún Leifsdóttir
Pétur Sverrisson Helena Ragnarsdóttir
Karl Friðrik Sverrisson Susan Ellekær
Birgir Þór Sverrisson Kolbrún Eva Valtýsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur
og tengdasonur,
SIGMAR ÓLAFSSON,
húsasmíðameistari og kennari,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut þriðjudaginn 22. október.
Sigurrós H. Jóhannsdóttir
Ástgeir Rúnar Sigmarsson
Díana Kristín Sigmarsdóttir
Ólafur R. Sigfússon Hólmfríður R. Hjartardóttir
Kristín Andersdóttir Kristbjörn Ólafsson
Eiginmaður minn,
STEINAR JÓHANNSSON
frá Vestmannaeyjum,
Boðaþingi 12, Kópavogi,
lést á Vífilsstöðum 22. október.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Fyrir hönd fjölskyldunnar
Ingigerður Axelsdóttir