Morgunblaðið - 26.10.2019, Síða 56
Kristín Mort-
hens opnar
myndlistar-
sýningu í
Gallerí Porti
í dag, 26.
október, kl.
16 og aðra í
verslun GK
Reykjavík 6. nóvember. Sýningin í
Gallerí Porti verður fyrsta einka-
sýning hennar á Íslandi eftir út-
skrift úr málaradeild OCAD Uni-
versity í Torontó þar sem hún
hlaut heiðursverðlaun fyrir fram-
úrskarandi árangur í málverki. Á
sýningunni í Porti kannar Kristín
hringformið út frá tilfinningum og
táknfræði og í málverkunum birt-
ist hringurinn ýmist sem spírall,
lykkja eða ormur sem bítur í hal-
ann á sér.
Kristín sýnir í Porti
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 299. DAGUR ÁRSINS 2019
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.150 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Ísland vann sigur á einu besta
landsliði heims, Svíþjóð, í fyrri vin-
áttulandsleik þjóðanna í handbolta
karla í Svíþjóð í gær, 27:26. Hinn
tvítugi Sveinn Jóhannsson, í sinni
frumraun í alvöru landsleik, og línu-
maðurinn reyndi Kári Kristján
Kristjánsson voru á meðal þeirra
sem styrktu stöðu sína fyrir
valið í EM-hópinn í janúar. »46
Barist um EM-sæti
í frábærum sigri
Hátíðin Ljóðadagar óperudaga –
ljóð fyrir loftslagið, verður haldin
frá 30. október til 3. nóvember og
sækir hún innblástur í ungu bar-
áttukonuna Gretu Thunberg, æsk-
una, náttúruna, mæður og feður
heimsins og eistnesku söngbylt-
inguna á 9. áratug síðustu aldar.
Markmið hátíðarinnar er að búa
til jákvæðan og valdeflandi vett-
vang til að huga að
loftslagsmálunum
og verða söng-
urinn, tónlistin og
ljóðin notuð sem
miðill til að
hvetja til hóp-
eflis, umræðna,
íhugunar og
lausna á
vandanum.
Thunberg innblástur
Ljóðadaga óperudaga
ÍÞRÓTTIR MENNING
afla sér upplýsinga um allt sem við-
kemur ræktun blóma og grænmetis
og fésbókin hefur reynst henni vel.
„Þar eru margir hópar um garðrækt
og ég hef fengið svör við öllum mín-
um spurningum, sama hverju ég hef
kastað inn á netið. Ég hef aldrei
hugsað út í að rækta blóm og græn-
meti og til dæmis aldrei gert mér
grein fyrir að mismunandi plöntur
þurfa mismunandi umhirðu.“
Plantan og afurðirnar hafa breytt
lífi Kolbrúnar Evu. Þegar tómatarnir
byrjuðu að vaxa setti hún niður papr-
ikufræ sem skilaði árangri. „Það er
komið blóm en ég veit ekki hvað ger-
ist,“ útskýrir hún. Kolbrún Eva
keypti líka kálhaus og setti í vatn og
tilraunin stóð undir væntingum.
Sama gerðist með ýmsar plöntur.
„Það er alveg sama hvað ég hef gert,
allt hefur gengið upp, vaxið og dafn-
að. Ég er frekar óþolinmóð en þegar
hlutirnir ganga upp vekja þeir óneit-
anlega meiri áhuga. Þessi planta óx
svo hratt að ég þurfti ekkert að bíða.
Hitinn er mikill hérna við gluggann á
sumrin en það verður líka mjög kalt
þegar kólnar úti á veturna. Ég ætla
að sjá til hvað plantan endist lengi og
ef hún drepst endurtek ég örugglega
leikinn næsta sumar. Svo þarf ég
bara að fá mér garðhús og fara út í
ræktun af fullri alvöru.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Kolbrún Eva Oddsdóttir í Vogum á
Vatnsleysuströnd hafði aldrei talið
sig vera með „græna“ fingur þar til í
sumar, þegar kirsuberjatómatar
byrjuðu að spretta sem gorkúlur úr
pottaplöntu í stofunni. Oddur Evert,
rúmlega tveggja ára sonurinn, kom
með stilk heim í sumar og skilur ekki
almennilega breytinguna en þakkar
fyrir tómatana.
Börnin á Heilsuleikskólanum Suð-
urvöllum í Vogum fengu það verkefni
í sumar að setja fræ úr kirsuberja-
tómötum í mold í skyrdósum, sem
síðan voru settar til hliðar. „Áður en
börnin fóru í sumarfrí höfðu fræin
spírað og Oddur hélt hreykinn á
skyrdósinni sinni með stönglinum í á
leiðinni heim,“ segir móðirin. Hún
segist hafa sett hana í horn við sól-
ríkan stofugluggann, stilkurinn hafi
fljótlega orðið að stóru blómi og hún
þurft að setja það í pott. „Blómið
stækkaði og stækkaði og ég hef þurft
að skipta fjórum eða fimm sinnum
um pott auk þess sem plantan hefur
heldur betur borið ávöxt, gefið enda-
laust af sér – ég hef ekki þurft að
kaupa tómata undanfarna mánuði.“
Hún bætir við að hún hafi gefið móð-
ur sinni afleggjara og sagan hafi end-
urtekið sig. „Litla greinin hefur vaxið
mikið og plantan hennar borið ríku-
legan ávöxt.“
Hugsar um gróðurhús
Tómataplantan er einær og Kol-
brúnu Evu hefur verið sagt að hún
eigi að drepast um leið og kólnar, en
þrátt fyrir lægra hitastig, jafnvel
undir frostmarki úti, er allt nánast
við það sama. „Hún er slappari en
hún var fyrir mánuði en eins og sjá
má er hún enn með tómata og græn
blöð.“
Kolbrún Eva segist aldrei hafa
verið með margar plöntur og þá
sjaldan að það hafi gerst hafi þær
drepist fljótlega. „Ég held að þessi
vöxtur sé vegna loftsins í Vogunum,
því allt blómstrar hérna.“
Vegna breyttrar stöðu í stofunni
heima hefur Kolbrún Eva reynt að
Kirsuberjatómatar
vaxa á hverri grein
Fræ á leikskólanum urðu að stórri plöntu heima í stofu
Morgunblaðið/RAX
Tómatatré Kolbrún Eva Oddsdóttir og Oddur Evert við gjöfula plöntuna.