Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.02.2020, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 15.02.2020, Qupperneq 24
Hamagangurinn hefur lítil áhrif á hana sjálfa en hún er ekki viss um ástvini sína. „Það sem særir mig helst þegar ég verð fyrir neikvæðri umræðu er vitneskjan um að börn og ástvinir geta lesið það versta sem skrifað er í virkum í athuga- semdum. Fjölskylda mín hefur aldrei kvartað við mig, en ég þykist vita að þetta hafi verið þeim erfitt stundum. Ég vona samt að ég sé þeim sæmileg fyrirmynd. Ég hefði gjarnan viljað vernda yngstu börn- in mín fyrir sviptingum síðustu ára, en það á maður ekki val um. Það er ekkert hugsað út í það þegar ráðist er að fólki á Íslandi að það eigi fjöl- skyldu.“ Ólína var fréttakona á Sjónvarp- inu á níunda áratugnum og naut hylli í því starfi. Þaðan var hún fengin árið 1990 til forystu fyrir Nýjan vettvang sem þá var nýtt stjórnmálaaf l jafnaðar- og félags- hyggjufólks í Reykjavík. Hún hlaut brautargengi sem borgarfulltrúi og varð oddviti minnihlutans í borgar- stjórn Reykjavíkur næstu fjögur árin. „Þá byrjaði ballið. Sjálfstæðis- mennirnir sáu ofsjónum yfir mér og ætluðu sannarlega að taka mig niður. Þeir beittu öllum brögðum í bókinni og ég varð fyrir ótrúlegum persónuárásum. Sumar aðferðirnar voru svo soralegar að sómakærir Sjálfstæðismenn báðu mig afsök- unar á þeim síðar. Eftir þá reynslu þekki ég öll skólabókardæmin úr kynjafræðinni um hvernig tekið er á konum sem ógna valdhöfum á opinberum vettvangi.“ Hraður þroski Um miðjan tíunda áratuginn flutti Ólína með Sigurði, eiginmanni sínum og börnum þeirra, til Dan- merkur. Þar vann hún að doktors- verkefni sínu við Hafnarháskóla. Stuttu eftir heimkomuna var hún ráðin skólameistari Menntaskól- ans á Ísafirði. Þá endurnýjaði Ólína kynni sín af Ísafirði þangað sem hún f lutti með foreldrum sínum f jórtán ára gömul þegar faðir hennar varð bæjarfógeti og sýslu- maður í Ísafjarðarsýslum. Á Ísa- firði eignaðist hún sitt fyrsta barn, nýorðin 17 ára gömul. Stuttu síðar kynntist hún þar mannsefninu sínu og saman eiga þau fjögur börn að auki. „Ég þurfti að hraða þroskanum þegar ég varð ófrísk 16 ára,“ segir Ólína. „Samfélagið var öðruvísi í þá daga en ég sé ekki eftir neinu,“ bætir hún við og brosir. „Ef að hlutirnir blessast þá má maður bara þakka fyrir.“ Brosið stækkar þegar hún klárar að telja hvað elsta barnið er orðið gamalt. „Hann er að verða 45 ára og löngu búinn að ná mér,“ segir hún glettin á svip. Fjölskyldan hélt heimili á Ísafirði frá aldamótum allt til 2017 að hún flutti aftur í höfuðborgina. Nú deila þau tímanum milli Reykjavíkur og Laugarvatns þar sem þau kenna bæði við ML, Sigurður í fullri stöðu en Ólína kennir íslensku í hluta- starfi, nemendum með erlendan bakgrunn. „Það er gaman að kenna ungu fólki. Laugarvatn er dásam- legur staður. Gott mannlíf í nálægð við náttúruna.“ Þræll í þágu þjóðar Ólína sat á þingi fyrir Samfylking- una frá 2009 til 2013, var síðan vara- þingmaður og sat á þingi 2015-2016. Hún saknar ekki þingmennskunnar sem hún segir vera mikið annríkis- starf. „Þingmaður nýtur engrar frið- helgi. Hann er í vinnunni alla daga, öll kvöld, alla frídaga. Á mínum tíma voru launin ekki í neinu sam- ræmi við álagið. Þingmaður sem sinnir sínu starfi vel er þræll í þágu þjóðar.“ Báðir stóru vinstrif lokkarnir kljást við trúverðugleikavanda gagnvart almennum launþegum segir Ólína. „Það hefur orðið rek frá verkalýðshreyfingunni sem er alvarlegra en margur gerir sér grein fyrir. Ef Samfylkingunni tekst ekki að byggja upp samband og verða trúverðugri fulltrúi verka- fólks á Íslandi en hún er í dag þá er ég hrædd um að flokkurinn sé í Ólína og Skutull að síga með þyrlu Landhelgisgæslunnar. MYND/AÐSEND Ólína og Skutull hafa verið á útkallslista Landsbjargar síðustu tíu árin. erfiðum málum. Samfylkingin átti að sameina félagshyggjufólk, en nú eru ný stjórnmálaöf l komin inn á sviðið og tala beint inn í verkalýðs- hreyfinguna.“ Ólína dregur djúpt andann. „Ég er samt ekkert í pólitík lengur, sit bara heima í stofu með mínar skoðanir,“ segir hún og hlær. Endurkoma í samfélagið Það hefur ekki gengið sem skyldi fyrir ýmsa fyrrverandi þingmenn, þar á meðal Ólínu, að fá starf hjá hinu opinbera að lokinni þing- mennskunni. Hún segir þetta áhyggjuefni. „Mér finnst ekki að þingmennskan eigi að vera ævi- starf. Tvö til þrjú kjörtímabil eru alveg nóg. Vandinn er hins vegar sá að fólk þarf að geta átt endurkomu í samfélagið. Það er ekki þannig á Íslandi því svo virðist sem menn verði vanhelgir af að sitja á Alþingi Íslendinga. Fólk fær ekki vinnu,“ segir hún hvöss. „Erlendis eru fyrrverandi þingmenn eftirsóttur starfskraftur, bæði í einka- og opin- bera geiranum, sem stjórnendur eða ráðgjafar. Það er eitthvað allt annað í gangi hér sem veldur því að þegar fólk kemst inn á þing þá hangir það eins og hundar á roði, enda hafa margir ekki að neinu að hverfa eftir þingmennsku.“ Hún bendir á að ef fólk ætti end- urkomu út í samfélagið þá gæti átt sér stað eðlileg og heilbrigð nýliðun í þinginu í staðinn fyrir stöðnun og „daunilla lykt pólitískra hrossa- kaupa og ráðninga“ eins og hún orðar það. „Flokkarnir að koma sínum mönnum á alla pósta og líta á það sem sitt hlutverk að stoppa ann- arra flokka fólk í því að nýta krafta sína og hæfileika. Þetta er skaðlegt fyrir samfélagsheildina.“ Nornaveiðar Ólína fann fyrir miklum létti þegar þingmennskan var yf irstaðin. „Mestu munaði um samverustundir með fjölskyldunni en líka áhuga- málin. Ég elska að grúska. Það var alveg frá mér tekið á meðan ég var á þingi. Þá spilaði ég sjaldnast á píanóið, ég orti ekki ljóð og greip aldrei gítarinn. Þegar ég hætti kom þetta allt aftur. Ég fór að syngja, yrkja og skrifa, og er nú búin að koma frá mér bók.“ Fimmta bók Ólínu, Lífgrös og leyndir dómar. Lækningar, töfrar og trú í sögulegu ljósi, kom út í haust og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. „Bókin varð til upp úr doktorsverkefninu mínu, Brennuöldinni, sem fjallaði um galdramálin á Íslandi og munn- mæli sem þeim tengdust. Þá áttaði ég mig á því að f lestir sem voru brenndir á báli fyrir galdra hér á landi voru að reyna að stunda lækn- ingar. Hér voru engir læknar á þeim tíma og öll viðleitni til slíks var litin hornauga, jafnvel sem galdrar og guðlast. Þegar ég var búin að gera göldrunum skil þá voru lækningar næsta rökrétta skrefið.“ Ólína lifnar öll við þegar talið berst að því sem hún hefur verið að grúska í. „Grasakonur og ljósmæður í Evrópu voru margar brenndar á báli. Hér á landi voru það frekar karlar sem gáfu sig út fyrir að geta farið með læknisdóma og því voru þeir í meirihluta þeirra sem brennd- ir voru hér.“ Hún segir að nornir í Evrópu og galdramenn á Íslandi séu skólabókardæmi um hvernig hægt sé að notfæra sér fáfræði, búa til óvin og valda ótta. „Við sjáum þetta aftur og aftur þegar þjóðir eru að undirbúa stríð. Gyðingaof- sóknirnar. McCarthy-isminn. Alltaf sama aðferðafræðin. Nornaveiðar.“ Fólki bjargað frá dauða Hin ástríðan í lífinu var hesta- mennska, lífsstíll og íþrótt sem hún stundaði í 40 ár áður en hún lagði hana á hilluna. Í staðinn kom björgunarhundasveitin sem hún gekk til liðs við árið 2005. „Ég átti orkumikinn hund sem mig langaði til að fengi útrás. Þessi hundur varð nú aldrei alvöru leitarhundur. Í dag á ég Skutul, 12 ára gamlan höfðingja sem hefur verið á útkallslistanum hjá Björgunarhundasveit Íslands síðustu tíu árin. Hann er endurmet- inn á hverju ári og við erum saman félagar í Landsbjörgu.“ Hundar eru afar mikilvæg leitartæki segir Ólína. „Þeir þurfa ekki að sjá til að leita. Það má vera myrkur og hríð. Í víða- vangsleit fara þeir yfir stór svæði, og þeir eru ómetanlegir í snjóflóðum þar sem það tekur þá 2-3 mínútur að vinna verkefni sem tæki mann 45 mínútur. Þetta kom í ljós í snjóflóð- unum fyrir vestan árið 1995. Ekkert annað leitartæki jafnast á við hund í slíkum aðstæðum.“ Sum útköllin hafa verið heilmikil lífsreynsla og nefnir hún sem dæmi þegar hátt í tvö hundruð björgunar- sveitarmenn tóku þátt í að bjarga 49 ferðamönnum og leiðsögumönnum í námunda við Langjökul 7. janúar síðastliðinn. Hópurinn var í vél- sleðaferð og tepptist þegar veðrið versnaði fyrr en áætlað var. „Það útkall var bæði krefjandi og gef- andi því þarna var lífi fólks sannar- lega bjargað. Krafturinn í veðrinu var þvílíkur að á köf lum óttaðist björgunarfólkið um sitt eigið öryggi. Menn skiptust á að ganga á undan farartækjunum langleiðina frá Gullfossi í Geldingarfell. Þar settum við upp neyðarhjálp fyrir fólkið þegar komið var með það á snjóbílum fyrsta spölinn. Við gáfum því heitt að drekka og klæddum það í þurrt, en svo tók við tímafrekur f lutningur að Gullfossi þar sem læknar og hjúkrunarfólk biðu þess í fjöldahjálparstöðinni. Þetta var raunveruleg björgun og okkur leið öllum mjög vel á eftir.“ Hvað er svo næst á dagskrá? Ólína gjóar augum í átt að vinnuað- stöðunni sinni. Þar er opin fartölva og bunki af þykkum bókum sem bera öll merki grúsks. Hún kímir. „Ég get ekki tjáð mig um það að svo stöddu.“ ÞARNA SÓTTU UM KONUR SEM ÉG FULLYRÐI AÐ VORU MARGAR HÆFARI EN SÁ SEM RÁÐINN VAR, ENGIN ÞEIRRA VIRÐIST HAFA KOMIÐ TIL ÁLITA HJÁ PÓLITÍSKT SKIPAÐRI STJÓRN RÍKISÚTVARPSINS. SVO VIRÐIST SEM MENN VERÐI VANHELGIR AF AÐ SITJA Á ALÞINGI ÍSLENDINGA. FÓLK FÆR EKKI VINNU. Ólínu gafst meiri tími til samverustunda með fjölskyldunni og áhugamála eftir að hún hætti á þingi. Ólína gekk til liðs við Björgunarhundasveitina árið 2005. H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 23L A U G A R D A G U R 1 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.