Fréttablaðið - 15.02.2020, Page 33

Fréttablaðið - 15.02.2020, Page 33
Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Í lýsingu á viðburðinum á sam-félagsmiðlum stendur: „Má ég halda áfram að hlusta á uppá- haldstónlistarmanninn minn, þó svo að hann hafi verið dæmdur fyrir kynferðisof beldi? Á ég að slökkva á uppáhaldsseríunni minni þegar aukaleikari birtist á skjánum, af því að ég veit að hann hefur barið konuna sína? Má syrgja nauðgara? Halda með morðingja?“ Og áfram er spurt: „Hvað með listamenn sem ekki eru níðingar en hafa viðhorf sem ganga þvert gegn mínu eigin siðferði? Má ég lesa bækur eftir rasista? Veita hómófób YouTube-áhorf? Læka mynd hjá manni sem hatar konur?“ Á málþinginu sem er haldið á vegum Siðmenntar og er hluti af fyrsta Siðmenntarþingi félags- ins verður reynt að svara þessum erfiðu spurningum. Inga Auðbjörg K. Straumland, formaður Sið- menntar, segir að hugmyndin að málþinginu hafi komið vegna þess að hún hafi mikið velt því fyrir sér hversu flókið getur verið að setja sér siðferðislegar línur um hvaða listamenn má styrkja með áhorfi sínu og athygli. Í lýsingu málþingsins segir að Býst við áhugaverðum umræðum Á málþingingu Má njóta níðinga? sem fer fram í dag verður velt upp siðferðislegum spurningum á borð við: Má ég lesa bækur eftir rasista, hlusta á tónlist eftir ofbeldismann eða syrgja nauðgara? Inga Auðbjörg K. Straumland segist sjálf ekki vita hvar hún á að draga línuna í þessum efnum. MYND/ HARI sumt fólk taki harða siðferðislega afstöðu gegn listafólki sem hefur breytt rangt, á meðan öðrum finn- ist að listin hljóti að standa fyrir sínu, óháð gjörðum listamannsins. Þar segir einnig að flestir húki ringlaðir á milli þessara tveggja póla og eigi erfitt með að draga sína persónulegu línu í sandinn. „Ég er oft ekki viss sjálf hvaða línu ég vil setja og hef til dæmis velt því fyrir mér hvort það sé rétt- lætanlegt að horfa á myndir eftir Woody Allen, eða myndir með Johnny Depp og eins hvort megi syrgja Kobe Bryant og mér fannst eiginlega kominn tími á að fá ein- hvern til að svara þessu fyrir mig,“ segir Inga. Framsögufólk veltir upp erfiðum spurningum Steinunn Ólína Hafliðadóttir, Þóra Tómasdóttir og Arnar Eggert Thoroddsen verða framsögumenn á málþinginu og munu rekja sínar hugmyndir um þessar siðferðis- legu spurningar og eftir það verða umræður úr sal. „Steinunn Ólína hefur mikið látið að sér kveða í ungmenna- málum og femínisma, hún skrifaði grein í Flóru veftímarit sem var á þessari línu svo þess vegna hafði ég samband við hana,“ segir Auður. Steinunn Ólína Hafliðadóttir situr í ritstjórn femíníska veftíma- ritsins Flóru og hefur undanfarin ár beitt sér fyrir femínískum verk- efnum, en hún vann meðal annars að átaki Stígamóta, Sjúk ást. Arnar Eggert er tónlistargagn- rýnandi sem hefur mikið skoðað útskúfunarmenningu. Doktors- ritgerð hans var á sviði dægurtón- listar og mun hann einbeita sér að útskúfunarmenningunni þar, hvernig henni er háttað og hvernig hún hefur þróast. Hann er aðjunkt í félagsfræði við Háskóla Íslands og umsjónarmaður grunnnámsins þar í fjölmiðlafræði. „Mér fannst mjög mikilvægt að fá innsýn úr tónlistarbransanum því umfjöllunarefnið á mjög vel við þar,“ segir Inga. „Þóra Tómasdóttir kemur úr kvikmyndabransanum og er mik- ill femínisti, hún hefur líka langa reynslu af blaðamennsku og mun fjalla um afhjúpun og útskúfun. Þannig að ég held að við höfum náð nokkuð breiðri skírskotun í listina með þessu framsögufólki.“ Inga býst við áhugaverðum umræðum á málþinginu í dag. „Siðmenntarþingið er í tengslum við afmæli Siðmenntar en við eigum 30 ára afmæli núna. Eitt af markmiðum félagsins er að standa fyrir umræðu um siðferðismál og húmanisma og mál tengd okkar gildum og þetta er málefni sem er fólki hugleikið.“ Málþingið hefst klukkan 14.00 í dag og stendur til 15.30. Það er öllum opið og fer fram í sal Garð- yrkjufélags Íslands í Síðumúla. Einstakt tilboð fyrir tvo á kr. 19.900 – aukanótt – 14.400 Á FOSSHÓTEL REYKJAVÍK Bókist í gegnum netfangið res.reykjavik@fosshotel.is eða á vefnum islandshotel.is/tilbod Gildir til 31. maí 2020 og með fyrirvara um bókunarstöðu. *Gefa verður upp bílnúmer við bókun. Á virkum dögum er hádegisverðarhlaðborð en brunch um helgar. Innifalið er gisting í standard herbergi á Fosshótel Reykjavík ásamt brunch hlaðborði á Haust Restaurant fyrir tvo, að auki frítt bílastæði í bílastæðahúsi.* 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . F E B R ÚA R 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.