Fréttablaðið - 15.02.2020, Page 75
Svo fór hann allt í einu að öskra
og snúast í hringi og Óskar
frændi varð svo hræddur að ég
hef aldrei séð barn hlaupa eins
hratt.
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Óskar Veturliði Grímsson
Núpalind 8, Kópavogi, áður
Njarðvíkurbraut 12, Innri-Njarðvík,
lést miðvikudaginn 12. febrúar.
Útförin fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi
föstudaginn 21. febrúar kl. 15.00.
Margrét Gestsdóttir
Atli Már Óskarsson Steinunn Árnadóttir
Gestur Pétursson Bjarney María Hallmannsdóttir
Olga Alexandersdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ólöf Ingibjörg Haraldsdóttir
Laugardælum,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum,
laugardaginn 8. febrúar.
Útför fer fram frá Selfosskirkju
fimmtudaginn 20. febrúar, kl. 13.00.
Jarðsett verður frá Laugardælakirkju.
Sigríður Þórarinsdóttir Óli Sverrir Sigurjónsson
Haraldur Þórarinsson Þórey Axelsdóttir
Kristín Þórarinsdóttir Garðar Sverrisson
Ólafur Þór Þórarinsson Malin Widarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín,
tengdamóðir, amma og langamma,
Ásta Kristjánsdóttir
lést á Landspítalanum í Fossvogi
mánudaginn 10. febrúar. Útför hennar
fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi,
fimmtudaginn 20. febrúar, klukkan 11.00.
Hákon Torfason
Hallgrímur Þór Ingólfsson
Hákon Hallgrímsson Hrefna Guðmundsdóttir
Unnur Hallgrímsdóttir
Þór Hallgrímsson Sandra Heimisdóttir
og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín,
tengdamóðir og amma,
Þórunn Árnadóttir
Tjörn,
Álftanesi,
lést á Litlu-Grund mánudaginn
3. febrúar. Útförin fer fram frá
Bessastaðakirkju mánudaginn 17. febrúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en þeim
er vildu minnast hennar er bent á að láta dvalar-og
hjúkrunarheimilið Grund njóta þess.
Anna Ólafsdóttir Björnsson Ari Sigurðsson
Jóhanna Aradóttir Hörður Bragason
Ólafur Arason Shui Kay Ma
Okkar ástkæri
Guðmundur Örn
Guðbjartsson
sem lést 21. janúar sl. verður
jarðsunginn frá Vídalínskirkju
mánudaginn 17. febrúar kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Ingifríður Ragna Skúladóttir
Guðbjartur Vilhelmsson
Ásdís Erna Guðmundsdóttir
Grétar Örn Guðmundsson
Patrik Birnir Guðmundsson
Alexía Ýr Magnúsdóttir
Guðmundur Dór Guðmundsson
Hrafnkell Skúli Guðmundsson
Vilhelm Guðbjartsson
Eydís Erna Guðbjartsdóttir
Torf hildur Hólm, kölluð Tolla, býr á Höfn í Horna-firði. Flutti þangað með manni sínum, Þorbergi Bjar nasy ni (Bía) f y r ir tveimur árum frá Gerði
í Suðursveit. Hún er elst tíu barna
hjónanna Ingibjargar Zophoníasdóttur
og Torfa Steinþórssonar sem bjuggu á
Hala og fagnar sjötíu og fimm ára afmæli
á morgun.
Hvenær manstu fyrst eftir þér, Tolla?
„Það trúa því ekki allir en ég man eftir
mér tveggja ára. Þá fór ég með mömmu
norður í Svarfaðardal að heilsa upp á
fólkið okkar þar og man mörg atriði úr
þeirri heimsókn.“
Heitir þú eftir f yrstu skáldkonu
Íslands?
„Já, svo er mér sagt. Hún fæddist öld
á undan mér og ólst upp í Suðursveit.
Pabbi hennar var prestur á Kálfafells-
stað. En svo var ég alltaf kölluð Tolla,
kannski hef ég byrjað á því sjálf, en
þegar ég var nefnd Torf hildur tók ég
voðalegan kipp, það var einhver alvara
í því.“
Kynntist þú Þórbergi vel?
„Já, hann var afabróðir minn og var oft
á Hala þegar ég var barn og alveg fram á
mín fullorðinsár. Kom á hverju sumri og
þau hjónin bæði. Mér fannst þau ekkert
voða skemmtileg þegar ég var minni en
þegar ég fékk meira vit kunni ég að meta
þau.“
Er þér eitthvað minnisstætt úr sam-
skiptum þínum við Þórberg?
„Það voru auðvitað blessaðir andarnir
sem hann var alltaf að koma með. Það
voru nautsandinn og vatnsandinn og
margir f leiri sem hann hræddi okkur
á. Einu sinni þóttist hann ætla að grafa
andana og daginn eftir ætlaði hann svo
að fara að vekja þá upp. Þá vafði hann
um sig kaðli og gekk niður á túnið með
járnkarl í hönd. Við krakkarnir fórum í
humátt á eftir honum. Svo fór hann allt í
einu að öskra og snúast í hringi og Óskar
frændi varð svo hræddur að ég hef aldrei
séð barn hlaupa eins hratt. Við vorum
mishrædd, innst inni fannst okkur þetta
spennandi.“
Var Halaheimilið fjölmennt í þínum
uppvexti?
„Já, við erum tíu systkinin og ég byrj-
aði snemma að eignast börn með mínum
manni. Árið sem mamma fæddi síðasta
barnið sitt, eignaðist ég þriðja mitt. Við
Bíi bjuggum á Hala fyrst í samkrulli við
foreldra mína með okkar þrjú litlu börn,
þá voru þrjár yngstu systur mínar litlar.
Svo voru Steinunn amma og Steinþór
afi líka á heimilinu. Auk þess var mikill
gestagangur og margir dvöldu daga og
vikur yfir sumarið. Það þótti bara sjálf-
sagt. Ég hef oft minnst á það við mömmu
að það sé merkilegt að hún skyldi halda
heilsu með allt sem hún hafði að gera.
Svo kom að því að við Bíi f luttum að
Gerði, sem er á sömu torfu og Hali, og
fórum að búa út af fyrir okkur.“
Hafðir þú gaman af búskapnum?
„Já, hann var það skemmtilegasta sem
ég vissi, ég hafði svo gaman af skepn-
unum, bæði kindum og kúm.“
Fannst þér þá ekki erfitt að skilja við
sveitina?
„Nei, veistu, þegar við fluttum austur
á Höfn fyrir tveimur árum þá fannst
mér það ekkert erfitt, það eina sem ég
saknaði var garðurinn minn á Gerði.
Núna langar mig eiginlega aldrei að fara
vestur í sveit. Er bara mjög ánægð hér.
Við búum í Ekrunni og höfum hér dýrð-
legt útsýni, allan fjallahringinn.“
Hvað eigið þið Bíi af af komendum?
„Við eigum sex börn, nítján barna-
börn, tíu langömmu og langafabörn og
sjö fóstur-barnabörn.“
Er eitthvað af þessu fólki í kringum
ykkur?
„Bara Bjössi með sína fjölskyldu á
Gerði, hitt er allt á höfuðborgarsvæðinu.
En tvö systkini mín búa hér á Höfn og
þrír bræður á Hala. Svo er mamma hér
á hjúkrunarheimilinu, á 97. aldursári.“
Ertu alltaf að yrkja?
„Nei, ég er lítið í því, þó kemur það
fyrir. Var eiginlega búin að fá mig full-
sadda af því, því ég var svo oft að yrkja
eftir pöntunum, fyrir þorrablót og hitt
og annað.
Hver eru helstu áhugamálin núna?
„Þau eru mörg. Ég hef gaman af
blómum, það er gott pláss hér við húsið
og ég var með heilmikla blómarækt þar
í fyrrasumar. Svo les ég mikið og nýt
mín við handavinnu. Heimsæki móður
mína og sit hjá henni. Ég hef alltaf nóg að
gera.“ gun@frettabladid.is
Man eftir mér tveggja ára
Torfhildur Hólm Torfadóttir, hagyrðingur frá Hala í Suðursveit, verður sjötíu og fimm
ára á morgun, 16. febrúar. Hún man vel Þórberg og alla andana sem honum fylgdu.
Torfhildur heitir eftir fyrstu skáldkonu Íslands en er alltaf kölluð Tolla og hrökk í kút ef hún var nefnd fullu nafni sem barn.
1 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT