Fréttablaðið - 15.02.2020, Page 81

Fréttablaðið - 15.02.2020, Page 81
Dýr vikunnarBrandarar „Ég er sko ekki orðinn gamall, ég verð það bara þegar ég verð eldri.“ Hans klaufi er sýndur í glænýjum búningi í Tjarnarbíói, af leik- hópnum Lottu. Hann var króaður af í viðtal: Hvað heitir þú fullu nafni og hversu gamall ertu? Ég heiti Hans, Hans klaufi, og ég er sko ekki orðinn gamall, ég verð það bara þegar ég verð eldri. Ertu klaufabárður eða af hverju hefur þú viðurnefnið klaufi? Á ég að segja þér, stundum get ég verið klaufi en ekkert alltaf. Eins og til dæmis ef maður heitir Þröstur, þá er maður ekkert alltaf fugl. Ertu sonur karls og kerlingar í koti sínu – eða hverra manna ertu? Já, foreldrar mínir eru karl og kerling. Áttu einhver systkini – og þá hver? Á ég að segja þér, ég á sko systur sem heitir Gréta og við erum sko systk- ini og við heitum Hans og Gréta. Hver er besti vinur þinn? Á ég að segja þér, hann heitir sko Aron, Aron prins. Aron er sko mjög góður (hann er eiginlega bara bestur). Hann á sko heima í kastala í Ævin- týraskóginum. Áttu einhverja óvini? Nauts, af hverju ætti maður að vilja eiga svo- leiðis? Hverja umgengst þú helst í þessu leikriti um Hans klaufa sem er í Tjarnarbíói núna? Aron, ég er sko aðstoðarmaðurinn hans, ég er samt ekki aðstoðarmaðurinn minn. Þegar ég segi að ég sé aðstoðarmað- urinn hans þá þýðir sko hans Arons en ekki Hans klaufa. Enda gæti ég ekkert verið aðstoðarmaðurinn hjá sjálfum mér, hahahahahahaha. Svo hitti ég líka Öskubusku og stjúp- systur hennar og frosk og systkini hans Arons, þau heita Ríkey og Sölvi. Hvað finnst þér langskemmti- legast að gera? Leika mér og baka og skrifa sögur og á ég að segja þér, núna er ég að skrifa sögu sem heitir Hans klaufi. Hvað finnst þér best að borða? Baka bollur og borða þær, til dæmis rjómabollur og fiskibollur og kjöt- bollur og berlínarbollur og svo á ég líka afmæli á bolludaginn. Aron segir að það sé ekki hægt, hann segir: „Hans, bolludagurinn er ekki alltaf á sama degi.“ Þá segi ég alltaf … uuu… jú, bolludagurinn er alltaf á bolludegi! Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór? Kannski bollubakari í höllinni eða – hey – kannski verð ég ekkert stærri og þá verð ég kannski bara áfram aðstoðarmaðurinn hans Arons og ef ég verð alltof stór þá kannski verð ég bara RISASTÓR HANS KLAUFI. Stundum get ég verið klaufi Á ÉG AÐ SEGJA ÞÉR, ÉG Á SKO SYSTUR SEM HEITIR GRÉTA OG VIÐ ERUM SKO SYSTKINI OG VIÐ HEITUM HANS OG GRÉTA. Laufhalaeðla (e. satanic leaf- tailed gecko) lifir á Madagaskar. Hún er fimm til fimmtán senti- metrar að lengd. Hali hennar er flatur og líkist mjög laufi, eins og nafn hennar bendir til. Það hjálpar henni að dyljast óvinum sínum á daginn og liggja í leyni fyrir bráð sinni að nóttu til. Hún hefur engin augnlok en notar langa tunguna til að hreinsa óhreinindi úr augunum. Laufhalaeðlan er næturdýr. Hún veiðir sér skordýr til matar, meðal annars krybbur og meli. Sjálf er hún sérfræðingur í að forðast stærri dýr. Það gerir hún með feluhalanum sínum og hefur líka ýmis önnur ráð. Hún getur, til dæmis, gert sig mar- flata, til að minnka skuggann sem hún annars varpar; hún getur opnað skoltinn á sér upp á gátt, þannig að við óvininum blasi ógnvekjandi eldrautt munnholið og svo getur hún misst halann, vísvitandi, til að villa um fyrir þeim sem ætla að veiða hana. Laufhalaeðla Laufhalaeðlan er alger sérfræðingur í að forðast stærri dýr. „Palli, þú ættir að þvo þér í framan. Það sést á andlitinu á þér hvað þú varst að borða í hádeginu.“ „Jæja, og hvað borðaði ég svosem í hádeginu?“ „Spagettí.“ „Nei, það var í gær.“ Ferðamaðurinn: „Er húsið þarna sumarbústaður?“ Bóndinn: „Já, ef einhver vill leigja það. Annars verður það svínastía áfram.“ „Ég vil ekki segja að maðurinn minn sé grindhoraður en þegar hann fór með dóttur okkar niður að Tjörn á laugardaginn hentu endurnar brauði til hans.“ Konráð á ferð og ugi og félagar 391 „Nú mala ég ykkur,“ sagði Kata glottandi þegar hún sá sudoku gáturnar. „Ég er orðin svo góð í að leysa sudoku gátur að við skulum koma í kapp um hver verður fyrstur til að leysa þær,“ bætti hún við. Konráð horfði á gáturnar. „Allt í lagi, til er ég.“ „Og ég,“ sagði Lísaloppa sem var líka góð í að leysa sudoku gátur svo hún var alveg til í keppni. „Við glímum öll við þær báðar og þá kemur í ljós hversu klár þú ert orðin,“ bætti hún við. „Allt í lagi,“ sagði Kata montin. „En ég vara ykkur við,“ bætti hún við. „Ég mun mala ykkur,“ sagði hún og glotti en meir. Heldur þú að þú getir leyst þessar sudoku gátur hraðar en Kata? ? ? ? 1 5 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð KRAKKAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.