Fréttablaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 2
Í kringum hádegi verða
appelsínugular viðvaranir í
gildi um land allt.
Veður
Hægt vaxandi austanátt og
þykknar upp í dag, 13-23 m/s seint
um kvöldið, hvassast og dálítil
snjókoma syðst og dregur úr frosti.
SJÁ SÍÐU 22
Á verkfallsvaktinni
Verkfall starfsmanna Ef lingar hjá Reykjavíkurborg hélt áfram í gær og stendur til miðnættis í kvöld. Verkfallsvakt félagsins heimsótti um 60 staði í
gær og var áhersla lögð á grunnskóla en þessi mynd er tekin við Grandaskóla. Urðu verkfallsverðir varir við eitt verkfallsbrot á leikskóla í borg-
inni. Ótímabundið verkfall skellur á næsta mánudag verði enn ósamið. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
LOK Á POTTA
LITIR: GRÁTT EÐA BRÚNT
MARGAR STÆRÐIR TIL Á LAGER
HEITIRPOTTAR.IS
HÖFÐABAKKI 1
SÍMI 7772000
STJÓRNSÝSLA Ráðherra verður
skylt að hlutast til um málefni
sveitarfélaga sem hafa haft færri en
þúsund íbúa lengur en þrjú ár sam-
fleytt, verði frumvarp samgöngu- og
sveitarstjórnarráðherra sem nú er til
kynningar í samráðsgátt stjórnvalda
að lögum. Samkvæmt frumvarpinu
skal ráðherra eiga frumkvæði að
því að sameina sveitarfélög með svo
lítinn íbúafjölda öðru eða öðrum
sveitarfélögum eftir nánar tilgreind-
um reglum.
Í frumvarpinu er mælt fyrir um
heimild til að veita tímabundna und-
anþágu frá lágmarksíbúafjölda í allt
að fjögur ár mæli sérstakar ástæður
gegn því að umrætt sveitarfélag
myndi stjórnsýslulega heild með
nærliggjandi sveitarfélögum. – aá
Ráðherra fær
frumkvæðið
Sigurður Ingi
Jóhannsson.
SAMFÉLAG „Við fögnum fimm ára
afmæli hátíðarinnar nú í ár,“ segir
Sesselja Hlín Jónasardóttir, annar
skipuleggjandi listahátíðarinnar
List í ljósi, sem fram fer á Seyðisfirði
um helgina.
„Hátíðin er haldin á þessum tíma
ár hvert til að fagna komu sólar-
innar í bæinn eftir fjóra mánuði í
myrkrinu,“ segir Sesselja, en sólin
drífur ekki yfir fjöllin umhverfis
bæinn svo mánuðum skiptir yfir
vetrartímann.
„Upplifuninni þegar sólin kemur
aftur yfir fjöllin er eiginlega ekki
hægt að lýsa. Það að fá sólargeislana
í andlitið er ótrúlega mikilvægt,“
segir Sesselja og bætir við að það sé
vel þess virði að fagna komu sólar-
innar.
Fjöldi innlendra og erlendra lista-
manna sýnir tuttugu verk á hátíð-
inni og segir Sesselja ekki hægt að
setja stemninguna í orð. „Hátíðin
er haldin utandyra þar sem við
slökkvum öll ljós í bænum og í
mínútu er alveg dimmt. Svo lýsum
við upp daginn með verkunum,“
segir hún. Verkunum er varpað
á hús bæjarins og náttúruna sem
umlykur hann.
Una Björg Magnúsdóttir mynd-
listarkona er ein þeirra sem sýna
verk á hátíðinni. Verk hennar, Slow
Scene on Ice, verður til sýnis ofan í
lóninu í bænum. „Verkið er skúlptúr
sem svipar til leikmyndar. Það verð-
ur ofan í lóninu og eins og veðrið er
má vel vera að það frjósi þarna ofan
í,“ segir Una og hlær.
„Ég er búin að vera hérna í vinnu-
dvöl í fjórar vikur og hér eru allir
spenntir fyrir hátíðinni og afar
stoltir,“ segir Una.
Hún upplifði það í gær þegar sólin
teygði sig yfir fjöllin og segir hún
líkt og Sesselja að augnablikið hafi
verið magnað. „Ég hef aldrei áður
verið svona lengi þar sem sér ekki
til sólar í svona langan tíma og það
kom mér mjög mikið á óvart hvað
þetta hefur mikil áhrif á mann,“
segir hún.
Bæði Sesselja og Una segja bæjar-
búa taka mikinn þátt í hátíðinni og
að allir séu þeir af vilja gerðir að
leggja hönd á plóg. „Ég hitti tvær
eldri konur í sundlauginni um
daginn og þær sögðu mér frá því að
þær væru búnar að vera að leita í
geymslunni að gömlum jólaljósum
því einhvern vantaði þau,“ segir
Una.
Hátíðin hefst í dag með listsýn-
ingu í Herðubreið klukkan 17 en
vaninn er þó að hún hefjist á föstu-
degi. „Bæði eigum við von á mörgu
fólki að sunnan og svo er veður-
spáin ekki góð fyrir föstudaginn
svo við ákváðum að hefja hátíðina
á fimmtudegi þetta árið,“ segir Sess-
elja og bætir við að fjöldi erlendra
ferðamanna leggi einnig leið sína
í bæinn til að njóta listarinnar og
myrkursins. „Ég hef heyrt af fólki
sem er að koma alla leið frá Ástralíu
til að upplifa hátíðina.“
Kveikt verður á listaverkum
hátíðarinnar klukkan 18 í dag og
verða þau til sýnis fram á laugardag.
birnadrofn@frettabladid.is
Fagna komu sólar á
Seyðisfjörð með list
List í ljósi er haldin á Seyðisfirði um helgina. Með hátíðinni fagna bæjarbúar
endurkomu sólar í bænum en þar sést ekki sólarljós í fjóra mánuði yfir vetrar-
tímann. Listafólk skreytir bæinn og umhverfið með verkum byggðum á ljósi.
Mikið tilstand var þegar verk Unu var sett upp í lóninu á Seyðisfirði í gær.
Ég hef aldrei verið
svona lengi þar sem
sér ekki til sólar í svona
langan tíma og það kom mér
mikið á óvart hvað
þetta hefur
mikil áhrif.
Una Björg
Magnúsdóttir,
myndlistarkona
VEÐUR Appelsínugular viðvaranir
hafa verið gefnar út fyrir morgun-
daginn en þá mun austanstormur,
-rok eða ofsaveður ganga yfir land-
ið. Til að byrja með verður veðrið
verst á Suður- og Vesturlandi en fær-
ast svo norður og austur yfir landið.
Í kringum hádegi verða appels-
ínugular viðvaranir í gildi um
allt land. Síðdegis dregur úr vind-
hraðanum á höfuðborgarsvæðinu
og Suðurlandi. Appelsínugular
viðvaranir munu hins vegar gilda
fram á aðfaranótt laugardags á Vest-
fjörðum, Ströndum og Norðurlandi
vestra auk Breiðafjarðar.
Gert er ráð fyrir víð tækum sam -
göngu truf lunum og ekkert ferða-
veður er á meðan við varanir eru
í gildi. Veður stofan hvetur fólk til
að sýna var færni og fylgjast grannt
með veður spám.
Þannig hefur Icelandair af lýst
22 brottförum til og frá Evrópu en
átta aukaflug verða farin í dag. Sam-
kvæmt tilkynningu frá félaginu
munu áhrifin ná til um átta þúsund
farþega en um 1.500 hafa þegið boð
um að f lýta og breyta f lugi. Í gær-
kvöldi var allt f lug til og frá Banda-
ríkjunum og Kanada enn á áætlun.
Veður fræðingar brýna einnig
fyrir fólki og fyrir tækjum að gæta
að lausa munum þar sem líkur eru á
foktjóni, sér í lagi sunnan til á land-
inu. Veðrið gengur niður á föstu-
dags kvöld en veðurfræðingar segja
það vera skamm vinnan vermi þar
sem von er á annarri lægð á laugar-
daginn sem einnig gæti orðið skæð.
– sar, kdi
Viðvaranir
um allt land
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð