Fréttablaðið - 13.02.2020, Page 4
Þau sögðu að
peningarnir væru
ekki falsaðir en báru því við
að ég væri ekki viðskipta-
vinur.
Wei Li
Í yfirlýsingu til fjölmiðla
lýsir Björn vonbrigðum með
niðurstöðuna.
JEEP® GRAND CHEROKEE
FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
• 3.0L V6 DÍSEL
• 250 HÖ / 570 NM TOG
• 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN
• LÆSING Í AFTURDRIFI
jeep.is
AFMÆLISTILBOÐ VERÐ FRÁ: 10.390.000 KR.
AFMÆLISTILBOÐ
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
LISTAVERÐ VERÐ FRÁ: 10.990.000 KR.
HAFNARFJÖRÐUR Kostnaður vegna
óveðurstjóns í Straumsvíkurhöfn
hleypur á tugum milljóna króna.
Kemur þetta fram í skýrslu sem
verkfræðistofan Strendingur gerði
fyrir Hafnarfjarðarhöfn og byggir
á skoðun kafara frá Köfunarþjón-
ustunni.
Mikið óveður gekk yfir landið
9. og 10. desember síðastliðinn og
var öldugangur mikill. Í desember
var greint frá því að 7,5 milljóna
króna tjón hefði orðið á suður-
enda bryggjunnar þar sem stór
hola hafði myndast á varnargarði.
Hafði aldan grafið sig 15 metra inn
í vörnina og skolað út fyllingu.
Þær skemmdir sem nú er um að
ræða eru á hinum bakka hafnar-
innar og leggjast ofan á kostnaðinn
sem þegar hefur verið reiknaður.
„Þetta eru fyrstu kannanir og við
höfum ekki unnið neitt verðmat
enn þá,“ segir Lúðvík Geirsson
hafnarstjóri.
Stórt gat er á milli kerja á fimm
metra dýpi. Samkvæmt upplýsing-
um frá köfurum hefur gatið byrjað
að myndast fyrir þó nokkru síðan
en óveðrið hafi verulega stækkað
það. Efni hafi skolast út og „hellir“
myndast fyrir innan. Til viðgerðar
þurfi að brjóta upp steypta þekju
og fylla í gatið auk þess sem kafari
hreinsi sárið.
Lúðvík segir nauðsynlegt að laga
gatið, helst sem fyrst til að ekki fari
meira efni út í sjó, en það skapi þó
ekki hættu á svæðinu. Gatið sé aft-
arlega á bakkanum þar sem ekki sé
þung umferð. „Veðrið í vetur hefur
verið hreint ótrúlegt. Í þessu óveðri
stóð beint upp á af norðvestan, um
30 metrar á sekúndu, nánast sam-
fleytt í tíu klukkutíma,“ segir hann.
Lúðvík segir þessar skemmdir
ekki hafa nein áhrif á f lutninga til
og frá álverinu í Straumsvík. En
framtíð þess hefur verið í nokkurri
óvissu þar sem Rio Tinto mun meta
rekstrarhæfið og skoðar möguleik-
ann á að hætta starfseminni.
Kostnaðurinn vegna viðgerð-
anna mun ekki falla á Hafnar-
fjarðarhöfn nema að hluta því að
skylt er að tryggja allar hafnir ríkis
og sveitarfélaga hjá Náttúruham-
faratryggingu Íslands. Eigin áhætta
mannvirkja er tvö prósent en að
lágmarki ein milljón króna.
„Næstu skref eru þau að tækni-
menn hjá okkur og tryggingunum
eru að fara yfir málin og taka
ákvörðun um hvernig staðið verður
að endurbótum,“ segir Lúðvík.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Tugmilljóna tjón á höfninni
Skemmdir á Straumsvíkurhöfn vegna óveðursins sem gekk yfir 9. og 10. desember síðastliðinn eru mun
meiri en áður var talið. Tjónið hleypur á tugum milljóna króna samkvæmt skýrslu frá verkfræðistofu.
Skemmdir á höfninni hlaupa á tugum milljóna. Kostnaður mun að hluta falla á Hafnarfjarðarhöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í þessu óveðri stóð
beint upp á af
norðvestan, um 30 metrar á
sekúndu, nánast
samfleytt í 10
klukkutíma.
Lúðvík Geirsson,
hafnarstjóri
VIÐSKIPTI Arion banki neitaði í gær
að taka við íslenskri mynt kínverska
ferðamannsins Wei Li. Hafði Li beðið
í tvo daga eftir ákvörðun bankans en
áður hafði hann sett um 360 þúsund
krónur í mynttalningarvél.
„Okkur er ekki skylt að taka við
peningum frá aðilum sem eru ekki í
viðskiptum við bankann. Þá þurfum
við alltaf að fara eftir reglum um
peningaþvætti og afla upplýsinga
um uppruna fjár sem auðvitað verða
að vera trúverðugar,“ segir Haraldur
Guðni Eiðsson, upplýsingafulltrúi
Arion banka.
Að sögn Haraldar stæði ekki á
bankanum að endurgreiða Wei Li
krónurnar sínar, bókstaflega.
Li kom til landsins á dögunum
með um 170 kíló af íslenskum 100
krónum. Peningarnir voru í mis-
jöfnu ástandi og kveðst Li ekki
þekkja uppruna þeirra nema að hluti
komi úr samanpressuðum íslensk-
um bílum. Hann hafði þó komið
tvisvar áður í sömu erindum og haft
rúmlega fjórar milljónir upp úr því.
Í þessari heimsókn var hluti
myntarinnar í nokkuð góðu lagi. Þá
peninga fór Li með í myntvél Arion
banka á Smáratorgi. Hafði Li verið
stöðvaður í nokkrum útibúum en
á Smáratorgi náði hann að setja um
360 þúsund krónur í vélina. Þegar
hann freistaði þess að innleysa inn-
eignarnóturnar var honum tjáð að
bankinn ætlaði að gefa sér tvo daga
til að meta myntina. Li mætti síðan í
útibúið í gær og fékk þau skilaboð að
bankinn ætlaði ekki að taka við pen-
ingunum. „Þau sögðu að peningarnir
væru ekki falsaðir en báru því við að
ég væri ekki viðskiptavinur,“ segir Li.
Í kjölfarið haf i starfsmenn
bankans reynt að afhenda honum
mynt til baka og báðu hann um að
afhenda inneignarkvittanirnar.
„Ég neitaði því alfarið og spurði
hvernig ég gæti verið viss um að
þetta væru mínir peningar sem fóru
í vélina.“ Hann segist svo hafa yfir-
gefið útibúið á hlaupum eftir að
starfsmenn uppgötvuðu að hann var
að taka upp samskiptin og hótuðu í
kjölfarið að hringja á lögregluna. Li
segist ætla að skoða hvort íslenskur
lögfræðingur geti aðstoðað sig.
„Ég er með kvittanir upp á inneign
í Arion banka. Afganginn ætlaði ég að
gefa listamanni eða góðgerðarfélagi
en ég hef ekki komist í samband við
neina slíka,“ segir Li.
Örþrifaráð væri að feta í fót-
spor Egils Skallagrímssonar. „Ég
fer af landi brott eftir nokkra daga.
Kannski dreifi ég bara krónunum
niðri í miðbæ Reykjavíkur. Heldur
þú að það sé löglegt?“ spyr Li. – bþ
Arion banki neitaði að taka við íslenskri mynt Kínverjans Wei Li
STJÓRNSÝSLA Stjórn Sorpu ákvað
á fundi sínum í gær að segja Birni
H. Halldórssyni, framkvæmda-
stjóra félagsins, upp störfum. Í til-
kynningu frá stjórninni segir að
ákvörðunin eigi sér meðal annars
stoð í skýrslu Innri endurskoðunar
Reykjavíkurborgar.
Þar hafi verið gerðar alvarlegar
athugasemdir við störf og upp-
lýsingagjöf framkvæmdastjórans
í tengslum við áætlanagerð vegna
gas- og jarðgerðarstöðvar.
Á stjórnarfundi í síðustu viku
var Birni veitt formleg áminning
og fékk hann í kjölfarið fjögurra
daga frest til að bregðast við. Að
viðbrögðunum fengnum hafi svo
verið tekin ákvörðun um uppsögn.
Í yfirlýsingu sem Björn sendi fjöl-
miðlum í gær lýsir hann miklum
vonbrigðum með þessa niðurstöðu.
Hann segist telja að með uppsögn
sinni sé stjórnin að varpa athyglinni
frá eigin ábyrgð í málinu.
Björn segir að ákvörðun um bygg-
ingu gas- og jarðgerðarstöðvar hafi
verið tekin af stjórn félagsins á
grundvelli kostnaðaráætlunar sem
stjórn og eigendur hafi útbúið. Póli-
tísku „handafli“ hafi verið beitt til
að framkvæmdir gætu hafist sem
fyrst.
Þá segir Björn að stjórnin hafi
haft allar upplýsingar um kostnað
við verkefnið og fjarstæðu að hann
haf i leynt upplýsingum. Innri
endurskoðandi sé þar að auki van-
hæfur vegna fjölskyldutengsla við
stjórnarmann Íslenska gámafélags-
ins, eins helsta keppinautar Sorpu.
– sar
Birni sagt upp
hjá Sorpu
1 3 . F E B R Ú A R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð